Morgunblaðið - 22.04.2001, Síða 41

Morgunblaðið - 22.04.2001, Síða 41
unarinnar. Eftir að hafa heyrt þessa hugmynd þá var ég upptekinn af henni og á endanum var tölvan tek- in fram yfir bílinn. Frá þeim tíma hafa tölvur verið mitt aðaláhugamál og núna nýlega hóf ég störf við þetta áhugamál mitt. Þetta finnst mér gott dæmi um framsýni þína að hafa hvatt mann barnungan til að skoða eitthvað nýtt og heillandi. Þú reyndist mér alltaf góð og fékkst mann ávallt til að brosa. Þinn sterki persónuleiki og létta lund heillaði fólk. Hvernig þú gast náð athygli fólks og jafnvel barna með ákveðinni rödd leikur enginn eftir. Nú ertu farin svo skyndilega, maður trúir þessu ekki enn. Ég á minninguna um þig og ávallt mun ég hana geyma. Ég bið guð að styrkja afa garðó, Hafstein, á þess- ari raunastund og alla aðra sem eiga um sárt að binda. Guð blessi þig. Eiríkur. Í dag eru dýrmætar minningar líftaug okkar. Lífsgöngu kærrar æskuvinkonu er lokið. Hún Þóra okkar er dáin, farin. Snögglega hef- ur dauðinn hrifsað þessa kátu og einarðlegu vinkonu okkar til sín. Eftir stöndum við hnípnar en lítum til baka um farinn veg sem hófst við litla götu í austurbæ Reykjavíkur fyrir hartnær sextíu og fimm árum. Við sem fengum að sjá hana í hinsta sinn á þriðjudaginn var sáum og fundum hvað hennar er sárt saknað af öllum. Þóra var máttarstólpi fjöl- skyldunnar og öllum sem viðstaddir voru athöfnina var hún hjartfólgin mjög. Þóra var bráðskemmtileg kona og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún þekkti ekki rósamál og talaði tæpitungulaust. Orðfæri hennar var ávallt hnyttið og oft var hlegið eða kímt þar sem Þóra var gestur. Í afmælum okkar vildu börnin okkar og seinna tengdabörn alltaf vera sem næst Þóru, því það- an streymdi spaugið umbúðalaust og afdráttarlaus lífsskoðunin. Taugarnar voru sterkar sem við bárum hver til annarrar. Þótt stundum væri langt á milli funda var aldrei langt á milli okkar. Þá voru rifjaðar upp gamlar minningar frá atburðum bernsku- og ung- lingsára. Atburðir sem við höfðum lifað voru dregnir fram og krydd- aðir hæfilegum ýkjum. Það var mik- ið hlegið, því í þá daga vorum við svo lengi börn og lífið ekki eins flók- ið og nú. Við Maggý ætlum að muna Þóru eins og við sáum hana í okkar síðustu heimsókn hjá henni, í miðju kafi við nýtt áhugamál, takandi á móti okkur með bros á vör. Við sendum Hafsteini æskuvini okkar og fjölskyldunni allri hjartans samúðarkveðjur. Hvíli Þóra Run- ólfsdóttir vinkona okkar í friði. Megi hin eilífa hvíld verða henni góð. Guðrún (Gunna) og Margrét (Maggý). Kveðja frá Kvenfélagi Garðabæjar Á morgun mánudaginn 23. apríl verður kvödd hinstu kveðju frá Garðakirkju í Garðabæ Þóra Run- ólfsdóttir, félagskona í Kvenfélagi Garðabæjar. Þóra gekk í félagið árið 1970 og var alla tíð ákaflega virk í starfi þess og má segja að jákvæðni hafi verið hennar aðalsmerki og því var ævinlega gott að leita til hennar þegar vantaði vinnufúsar hendur. Það eru félagskonur sem Þóra sem gefa félögum gildi. Hún var öðrum félagskonum góð fyrirmynd. Hún var formaður fjáröflunar- nefndar félagsins þjóðhátíðarárið 1994 og var í forsvari fyrir morg- unverðarboð bæjarstjórnar Garða- bæjar þar sem tekið var á móti mörg hundruð manns undir öruggri stjórn Þóru. En nú hefur hún kvatt okkur þessi lífsglaða kona, svo snöggt og aldeilis óvænt. Að leiðarlokum þökkum við Þóru langt og gott samstarf. Eiginmanni hennar Hafsteini Flórentssyni, son- um og ástvinum öllum vottum við samúð okkar. Blessuð sé minning Þóru Runólfsdóttur. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 41 BORGIR Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 F A S T E I G N A S A L A Einstaklega falleg og sérstök 124,3 fm íbúð (hæð) á annarri hæð auk stæðis í bílageymslu. Íbúðin er öll mjög opin og eru allar innréttingar og gólfefni af vönduðustu gerð. Fallegt útsýni til sjávar. Kjartan og Guðrún taka vel á móti gestum frá kl. 14- 17. Sjón er sögu ríkari. Verð 15,9 m. AUSTURSTRÖND 10 - SJÁVARMEGIN OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14.00-17.00 Opið hús Viðarrimi 52 Mjög gott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Eignin er öll hin snyrtilegasta. Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu. Stofa og borðstofa með dyr út á verönd og í fallegan garð. 4 góð svefnherbergi, með skápum í öllum, parket á gólfum. Ágætt baðherbergi með kari og sturtu, flísar í hólf og gólf. Húsið er Steni-klætt að utan, og lítur það mjög vel út. Verð 18,9 millj. Rakel og Sigfús taka vel á móti ykkur í dag milli kl. 13 og 15. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  Hafnarfjörður - frábær staðsetning Nýkomið í einkasölu glæsilegt og vel staðsett 5 hæða versl- unar- og skrifsofuhúsnæði með lyftu, samtals 6400 fm. Bíl- akjallari undir húsinu, stórglæsilegt útsýni og gott auglýs- ingagildi. Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu Hraunhamars. KALDASEL 3 - GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS - OPIÐ HÚS Vandað og glæsilegt 285 fm einbýlishús auk 34 fm bílskúrs. Eignin skiptist m.a. í 8-10 her- bergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og þrjú flísalögð baðherbergi og nuddpott. Falleg- ur og gróinn garður með hellulagðri verönd með skjólgirðingu og heitum potti. Hiti í stétt. Bílskúrinn hefur verið innréttaður sem vinn- ustúdíó með gryfju með góðri lofthæð. Rúm- góð 3ja-4ra herbergja séríbúð á jarðhæð en einnig er innangengt inn í hana. Falleg og vönduð eign. Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. 1413 NESBALI - GLÆSILEGT EINBÝLI Vorum að fá í einkasölu þetta fallega einbýlis- hús á einni hæð. Húsið er u.þ.þ. 210 fm auk þess er óvenju stór 80 fm tvöf. bílskúr með gryfju og góðri lofthæð. Vandaðar innréttingar, parket og flísar. Eftirsótt staðsetning. Hús í toppstandi. V. tilboð. 1427 EINBÝLI  Túngata - glæsilegt einbýli. Vorum að fá til sölu eitt af þessum eftir- sóttu einbýlishúsum í Vesturborginni. Húsið stendur við Túngötu og er tvær hæðir og kjallari, samtals um 280 fm Auk þess fylgir nýlegur 34 fm bílskúr. Húsið hefur verið endurnýjað frá grunni á einstaklega smekklegan hátt. Það skiptist m.a. í sex herbergi, tvær stofur, tvö baðherbergi o.fl. Falleg lóð. V. 35,0 m. 1438 Skerjafjörður - glæsilegt. Vorum að fá í einkasölu glæsilegt um 250 fm einbýlishús við Skildinganes með innbyggðum bílskúr á frábærum stað. Húsið skiptist m.a. í stórar stofur m. arni, 5 herb., eldhús, 4 baðherb., saunaklefi o.fl. Fallegur og góður garð- ur með upphitaðri innkeyrslu og gang- stétt. 1353 RAÐHÚS  Hljóðalind - glæsilegt. Einlyft um 150 fm stórglæsileg tenda- raðhús ásamt um 10 fm millilofti. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Nuddbað- kar. Granít á vinnuborðum og gegnheilt parket og flísar á gólfum. Fallegt útsýni. V. 20,6 m. 1420 Sævarland - raðhús á tveimur hæðum - m. auka 3ja herb. íb. Vandað um 275 fm raðhús á tveimur hæðum (ekki pallahús) ásamt bílskúr. Á efri hæð er forstofa, stórar glæsilegar stofur m. arni, 3-4 herb., eldhús og bað. Á jarðhæð er sér 3ja herb. íb. m. sérþvottahúsi og sérinng. auk þvotta- hús efri hæðar, geymslna. V. 25,5 m. 1395 HÆÐIR  Efstasund. Falleg og björt 205 fm efri sérhæð með bílskúr sem hefur verið töluvert endur- nýjuð. Eignin skiptist m.a. í þrjár stofur, eldhús, baðherbergi og fimm herbergi. Tvennar svalir, nýtt eldhús og gólfefni ný að hluta. Kíktu á þessa. V. 18,8 m. 1448 Ögurás, Gb. - sérinngangur og útsýni. Vorum að fá í sölu ákaflega fallega og bjarta efri sérhæð í nýju húsi í Garða- bænum. Íbúðin skilast fljótlega fullbúin með innréttingum, hurðum og skápum en án gólfefna. Sérinngangur. Góðar vestursvalir með miklu útsýni. V. tilboð. 1443 Hamrahlíð. Falleg, björt og mikið endurnýjuð 107 fm efri sérhæð. Íbúðin skiptist í tvær stofur og tvö rúmgóð herbergi. Parket á gólfum, stórar svalir og endurnýjað bað og eldhús. 1431 3JA HERB.  Reynimelur. Góð 3ja herbergja u.þ.b. 70 fm íbúð á efstu hæð í þríbýli á þessum eftirsótta stað í vesturbænum. Eignin skiptist m.a. í stofu, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi. Geymsluloft. Svalir út af- herbergi. Góð íbúð. 1446 Jörfabakki. Björt og vel skipulögð 74,0 fm 3ja her- bergja íbúð á 3. hæð við Jörfabakka. Eignin skiptist m.a. í tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Þvottahús í íbúð. Stutt í skóla og alla þjónustu. V. 9,5 m. 1439 2JA HERB.  Sléttahraun Hfj. Erum með í einkasölu snyrtilega og bjarta u.þ.b. 56 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Parket á stofu. Suðursval- ir. Sam. þvottahús á hæðinni. Góð eign á hagstæðu verði. V. 6,9 m. 1435 Opið í dag sunnudag kl. 12-15 ✝ Finndís Björns-dóttir Zuk fædd- ist í Reykjavík 6. október 1929. Hún lést á páskadag síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Finnsson borgar- starfsmaður og Em- ilía Magðalena Jó- hannesdóttir úr Eyr- arsveit í Grundar- firði. Systkini Finndísar af fyrra hjónabandi Emilíu Magðalenu voru: 1) Guðrún Ragnarsdóttir. 2) Salbjörg Ragn- arsdóttir. 3) Ragnar Emil Ragn- arsson; öll látin. Eftirlifandi systkini eru: Sig- mundur Björnsson á Long Island New York og Hilmar Björnsson á Kárs- nesbraut í Kópavogi. Finndís giftist Tony Zuk árið 1948 og fór þá til Banda- ríkjanna sama ár. Tony eiginmaður hennar fæddist 15. júlí 1917. Hann lést 13. janúar 1990. Börn þeirra eru: Sonía Zuk, f. 1947, og William (Billy) Zuk, f. 8. október 1949. Útför Finndísar fór fram á Long Island í New York 19. apríl. Mín hjartkæra frænka Finndís Björnsdóttir Zuk er látin í West Babylon, Long Island, New York. Hún var gift Bandaríkjamanninum Tony Zuk, sem nú er látinn fyrir nokkrum árum, og sem var hér á landi hermaður á stríðsárunum, in- dælismaður það. Við hjónin dvöld- um hjá Dídí, eins og hún var jafn- an kölluð, í a.m.k. einn mánuð sumarið 1971, auk þess sem við heimsóttum hana margoft þegar við dvöldum hjá Sigmundi bróður hennar, sem rak þar byggingar- firma og einnig býr í Babylon. Dídí var sannkölluð „dame“, dugleg, stjórnsöm og vönduð manneskja, sem við hjónin urðum svo sannarlega vör við í heimsókn okkar til hennar á þeirra fallega heimili þar í landi. Maður naut hjá þeim framúrskarandi gestrisni og glaðværðar. Þar voru á ferð sam- rýnd hjón, sem sýndu börnum sín- um og barnabörnum umhyggju og ástúð. Sérstaklega viljum við þakka þeirra yndislega syni, Billy, fyrir einstaka ástúð við okkur bæði undirrituð, bæði erlendis og meðan hann stundaði íslenskunám hér á landi í eitt ár við Háskóla Ís- lands. Hann er nú klínískur sál- fræðingur að atvinnu í New York. Honum og Soníu systur hans, börnum og barnabörnum sendum við innilega samúð við fráfall móð- ur þeirra, með þakklæti og kærum kveðjum. Laufey og Páll Hannesson. FINNDÍS BJÖRNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.