Morgunblaðið - 22.05.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JOHN BOWIS var ráðherra í heil-
brigðisráðuneytinu í ríkisstjórn
John Majors og segir hann áhugann
á geðheilbrigðismálum hafa vaknað
fyrir alvöru í ráðherratíð sinni. Þeg-
ar íhaldsmenn misstu völdin í Bret-
landi bað Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in, WHO, Bowis að taka að sér að
vera í forsvari fyrir alþjóðaherferðir
stofnunarinnar til að vekja athygli á
málefnum geðheilbrigði annars veg-
ar og taugasjúkdóma s.s. flogaveiki
hins vegar. Bowis ferðaðist um ára-
bil um heimsálfurnar þar sem hann
„bankaði á dyrnar hjá ríkisstjórn-
um, læknum og almenningi til að
vekja athygli á þessum málefnum og
koma þeim á kortið,“ eins og hann
segir sjálfur.
Geðsjúkdómar eru sá sjúkdóms-
flokkur sem vex hvað örast í nútíma-
samfélagi. Geðsjúkdómar eiga eftir
að fara fram úr hjartasjúkdómum
fyrir árið 2020sem sá þáttur sem
veldur mestri örorku. „Kostnaðar-
byrðin vegna geðsjúkdóma verður
gífurleg og ef við förum ekki að láta
hendur standa fram úr ermum og
gera eitthvað í þessum málum eig-
um við eftir að þurfa að takast á við
gríðarstórt heilbrigðisvandamál inn-
an fárra ára,“ segir Bowis og bætir
við: „Við verðum að bæta heilbrigð-
isþjónustuna – okkur hættir allt of
mikið til að hugsa einungis um
lækningu sjúkdóma en ekki forvarn-
ir, geðsjúkdóma en ekki geðheil-
brigði. Ríkisstjórnir verða að veita
fé til forvarna því vandinn er eins og
snjóbolti, hann veltir upp á sig ef
ekkert er að gert og vandamálið
verður sífellt stærra og dýrara því
lengur sem litlum eða engum fjár-
munum er varið til þessa mála-
flokks. Það að leggja fjármuni til
geðverndar er því fjárfesting til
framtíðarinnar.“ Spurður hversu
miklu fé þurfi að verja til þessara
málaflokka brosir hann og svarar að
það verði seint nægum peningum
kostað til og stundum sé farvegur
fjármunanna óskiljanlegur. Í Bret-
landi er t.d. 10 sinnum meira fé veitt
til holdsveikistofnana árlega en til
flogaveikisjúklinga. „Þetta er sorg-
leg og fáránleg staðreynd, að sjúk-
dómur sem hefur verið útdauður í
Bretlandi um áratuga skeið skuli fá
hærri styrkveitingar en miklu
brýnna verkefni sem snertir fjölda
fólks á hverjum degi.“
Fordómaráðherrann
Bowis hefur í starfi sínu sem Evr-
ópuþingmaður lagt megináherslu á
aukna vitund almennings og skiln-
ing á sjúkdómum sem virðast ósýni-
legir og fólk óttast og hefur jafnvel
ríka fordóma um.
„Við verðum að berjast gegn þeim
fordómum sem hafa alltaf fylgt
þessum sjúkdómum, ég var á tíma-
bili kallaður fordómaráðherrann
vegna þess hversu heilbrigðisráðu-
neytið tekur á mörgum málaflokk-
um sem fordómar ríkja í kringum.
Sama hvaða stöðu við gegnum í
samfélaginu þá verðum við að berj-
ast gegn fordómum og skömm sem
enn í dag er nánasti fylgifiskur geð-
og taugasjúkdóma. Það er stað-
reynd að fólk hefur meiri skilning og
samúð með þeim sem eru með „sýni-
lega“ sjúkdóma, taugasjúkdómar og
geðvandamál eru vandséðari og
skilningur á þeim svo miklu minni.
Sjálfur er ég sykursjúkur og fólk á
ekkert erfitt með að skilja þann
sjúkdóm því mikil fræðsla hefur átt
sér stað um orsakir, afleiðingar og
meðferðarmöguleika sykursýki og
sjúkdómurinn því ekki lengur skrít-
inn og dularfullur.“
Spurður hvernig hann telji best
að vinna á fordómum svarar Bowis
að fræðsla sé þar lykilatriði. „Það er
líka nauðsynlegt að fólk sem hefur
einhvern þessara ósýnilegu sjúk-
dóma tali um þá opinberlega og
svipti þannig leyndardómshulunni
af ástandinu. Starfsfélagi minn á
breska þinginu kom út úr skápnum
nýlega og sagði þjóðinni að hann
væri með Parkinsonsveiki, hann hef-
ur þjáðst af þeim sjúkdómi um ára-
bil og fólk hefur haft hann á milli
tannanna allan þann tíma, giskað á
hvað amaði að honum og svo fram-
vegis. Hann vildi aldrei segja frá
sjúkdómi sínum af hræðslu við að
fólk myndi missa trú á honum sem
þingmanni og færi bara að líta á
hann sem sjúkling. Loks ákvað hann
að vera opinskár og þjóðin hefur
sýnt honum mikinn skilning. Þetta á
vonandi eftir að verða hvatning fyrir
aðra að viðurkenna sjúkdóm sinn út
á við. Það er sorglegt að verða vitni
að því hve allt of margir einstakling-
ar sem eru að ná góðum árangri í
sinni starfsgrein kjósa að þegja yfir
sjúkdómi sínum af ótta við almenn-
ingsálitið og þann skaða sem gæti
orðið ef þeir segðu frá. Þessi vandi
heyrir sögunni til ef við náum að
vekja skilning almennings og horf-
ast í augu við ótta okkar og for-
dóma. Við þurfum að sýna fram á að
fólk getur tekist á við og sigrað
sjúkdóma sína, hverjir sem þeir
eru.“
Bowis nefnir í framhjáhlaupi
dæmi um hversu fordómar eru lang-
lífir. Allt til ársins 1970 var floga-
veikum t.d. bannað að giftast í Bret-
landi, og í Bandaríkjunum giltu á
sama tíma lög í mörgum fylkjanna
sem gátu meinað flogaveikum að
fara á veitingahús, í leikhús og í op-
inberar byggingar. Auk þess voru
flogaveikisjúklingar gerðir ófrjóir í
átján ríkjum Bandaríkjanna allt til
ársins 1956. Nútíminn er lítið skárri
og nefnir Bowis að í Þýskalandi og
Ítalíu dagsins í dag eru 20% floga-
veikra atvinnulaus og önnur 20%
fara á ótímabær eftirlaun.
„Þetta eru aðeins örfá dæmi um
hversu grimmir, rangir og miskunn-
arlausir fordómar eru og þetta eru
bara dæmi um flogaveiki, geðsjúk-
dómasögurnar geta verið miklu
svæsnari. Þegar fólk öðlast skilning
á að hægt er að ná stjórn á sjúkdóm-
um, jafnvel þó ekki sé hægt að
lækna þá alla, þá hætta þessir til-
gangslausu fordómar og þungri
byrði er létt af þeim sem þurfa að
kljást við sjúkdómana. Manni virðist
það nógu þungbært að þurfa að tak-
ast á við erfiðan sjúkdóm þótt ein-
staklingurinn þurfi ekki líka að horf-
ast í augu við hræðslu annarra.“
Klúbbhúsin undirstöðuatriði
í geðheilbrigðiskerfinu
„Það þarf að leggja nýjar áherslur
í geðheilbrigðismálum, forgangs-
raða verkefnum á annan hátt. Við
þurfum að koma þeirri staðreynd á
framfæri að við getum öll veikst á
geði – hvenær sem er. Tölfræðin
segir okkur að einn af hverjum
þremur á eftir að finna fyrir geð-
vandamálum einhvern tíma á ævinni
og það segir sig sjálft að þessi eini
getur verið hver sem er í fjölskyld-
unni okkar, einhver sem okkur þyk-
ir vænt um. Það er því skylda okkar
að veita þá heilbrigðisþjónustu sem
við vildum sjálf að ættingjar okkar
fengju að njóta ef þeir veiktust.
Þetta þýðir að það þarf að breyta
ýmsu í núverandi kerfi, við verðum
að bjóða upp á mannúðlegri með-
ferðarúrræði, og tala um þá þætti
sem vantar oft í umræðunni um geð-
heilsu, þ.e. að koma í veg fyrir sjúk-
dóminn. Það þarf einnig að leggja
aukna áherslu á framhaldsmeðferð
fyrir fólk sem hefur gengið í í gegn-
um geðsjúkdómaferlið og fylgja
þeim árangri sem það hefur náð í
baráttunni við sjúkdóm sinn með
öflugri eftirmeðferð. Klúbbhúsin,
eins og Klúbburinn Geysir sem Ís-
lendingar hafa stofnsett og rekið,
eru nauðsynlegur liður í endurhæf-
ingu geðsjúkra og gera þeim kleift
að verða aftur virkir þjóðfélags-
þegnar. Klúbbarnir efla sjálfstraust
fólks, hjálpa því að fá vinnu, geta
þegar best lætur verið eins og annað
heimili þar sem ríkir skilningur á
aðstæðum hvers og eins og enginn
þarf að finna fyrir fordómum sem
eru svo tengdir andlegum sjúkdóm-
um. Það má því segja að klúbbhúsin
séu n.k. aðalbækistöð fólks á bata-
vegi. Klúbbarnir eru því undirstöðu-
atriði sem þarf að efla í góðu geð-
heilbrigðiskerfi. Það hefur sýnt sig
að þetta form endurhæfingar virkar
mjög vel og skilar árangri, fólk veik-
ist síður aftur og er sjaldnar lagt inn
á sjúkrahús. Þarna kemur beinn
sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið
sem ekki er hægt að líta fram hjá.
Forvarnir eru ekki bara heilbrigðis-
mál heldur lífsspursmál sem snertir
öll svið þjóðlífsins. Ef fólk borðaði
betur, hreyfði sig meira og keyrði
varlegar þá mætti spara heilmikinn
pening í þjóðfélaginu en þetta eru
útópískar hugsanir en klúbbhúsin
eru hins vegar raunveruleg og skila
árangri,“ segir Bowis og brosir að
tilhugsuninni um betri og skynsam-
legri heim.
Vinna þarf bug á fordómum tengdum geðsjúkdómum
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
John Bowis Evrópuþingmaður
hefur unnið að geðheilbrigðis-
málum um árabil og öðlast víð-
tæka reynslu af þeim.
Fræðsla og
skilningur
lykilatriði
Breski Evrópuþingmaðurinn John Bowis
er staddur hér á landi til að halda
fyrirlestur um geðheilbrigði á norrænni
ráðstefnu klúbbsins Geysis. Jóhanna K.
Jóhannesdóttir ræddi við Bowis um þennan
sívaxandi málaflokk og vanda og
lausnir tengdar honum.
jkj@mbl.is
SIGURSTEINN Baldursson hjól-
reiðamaður hélt af landi brott í
gær til að hefja háfjallaleiðangur
sinn á fjallahjóli frá nyrstu strönd
Alaska að syðsta odda Argentínu.
Fyrirhuguð leið er 33 þúsund km
löng, þar af 400 km á vegum og
mun hjólaferðalagið vera hið
lengsta sinnar tegundar í heim-
inum.
Leið Sigursteins liggur um 15
þjóðlönd eftir torfærum stígum og
slóðum. Hyggst hann ennfremur
klífa hæsta fjall hvers lands á leið-
inni, m.a. tvo af Hátindunum sjö,
annars vegar hæsta fjall Norður-
Ameríku, McKinley, sem er 6.194
m hátt, og hins vegar hæsta fjall
Suður-Ameríku, Aconcagua, 6.595
m. Sigursteinn sagði á blaða-
mannafundi í gær að kvíðvænleg-
asti þáttur ferðarinnar væri sjálf-
ur brottfarardagurinn þegar
komið væri að kveðjustund. Sagði
hann að þótt kílómetrarnir væru
margir væri ekki aðalmarkmiðið
að safna þeim sem slíkum, heldur
minningum á fjölbreyttri leið.
Vegna leiðangursins hafa Skóla-
vefurinn ehf. og nokkrir valdir
skólar á landinu ákveðið að nýta
tækifærið og búa til námsefni sem
tekur mið af því svæði sem Sigur-
steinn fer yfir á ferð sinni.
Bakvarðasveit Sigursteins er
skipuð Herði Gunnarssyni mark-
aðsstjóra, Þorkatli Þorkelssyni
ljósmyndara og Þorsteini G.
Gunnarssyni fjölmiðla- og upplýs-
ingafulltrúa.
Morgunblaðið/Þorkell
Háfjallaleiðangur hafinn
UM ÞESSAR mundir stendur yfir
námskynning hjá ýmsum deildum
Háskóla Íslands. Kynningin er ætluð
nýstúdentum sem og öðrum sem
vilja kynna sér hvaða nám er í boði
innan deildanna en nemendur og
kennarar verða á staðnum og svara
spurningum, að sögn Halldóru Tóm-
asdóttur kynningarstjóra HÍ.
Halldóra segir kynninguna núna
vera minni en kynninguna sem hald-
in er árlega í apríl og því sé auðveld-
ara að ná persónulegri tengingu við
kennara og fá góða innsýn í námið. Í
dag verður guðfræðideild með kynn-
ingu í stofu 5 í Aðalbyggingu og
heimspekideild í Nýja-Garði. Á
morgun verður kynning á námi
hjúkrunarfræðideildar í Eirbergi og
hjá tannlæknadeild í Læknagarði.
Þriðjudaginn 29. maí verður síðan
kynning hjá lyfjafræðideild í Haga á
Hofsvallgötu 53 og á miðvikudag hjá
félagsvísindadeild í Odda. Allar
þessar kynningar standa yfir frá kl.
15–18. Þá mun viðskipta- og hag-
fræðideild vera með fyrirlestra og
umræður í stofu 101 í Odda á mið-
vikudag kl. 17 en einnig heldur
Námsráðgjöf daglega tvo kynning-
arfundi, fyrir og eftir hádegi, til 6.
júní. Þar er einnig hægt að taka
áhugasviðspróf sem kostar 3.500
krónur.
Námskynning hjá
ýmsum deildum HÍ
SKÓLARÁÐ Skálholtsskóla ákvað á
fundi sínum í gær að mæla aftur með
Guðmundi Einarssyni kennara í
stöðu rektors við skólann. Fyrr í
þessum mánuði frestaði kirkjuráð
ráðningu rektors þar sem það taldi
að Guðmundur uppfyllti ekki öll skil-
yrði fyrir ráðningu. Þegar starfið var
auglýst kom fram að umsækjendur
yrðu að hafa háskólapróf og þekk-
ingu og reynslu í kirkjulegu starfi.
Guðmundur er með próf úr Kenn-
araskóla Íslands. Taldi kirkjuráð það
ekki jafngilda háskólaprófi og óskaði
kirkjuráð eftir nýrri og rökstuddri
tillögu um ráðstöfun starfsins.
Fimm skólaráðsfulltrúar af sjö
mæltu aftur með Guðmundi, sem er
kennari við Reykholtsskóla og segj-
ast þeir í rökstuðningi sem fylgir til-
lögunni telja að hann uppfylli skil-
yrði fyrir ráðningunni. Sr. Sigurður
Sigurðarson, vígslubiskup í Skál-
holti, formaður skólaráðs, segir að
ekki verði gefið frekar upp hvað seg-
ir í rökstuðningnum, þar til kirkju-
ráð hefur séð tillögurnar. Til vara
mæltu þessir sömu fimm með Árna
Svani Daníelssyni guðfræðingi.
Tveir fulltrúar mæltu með sr. Bern-
harði Guðmundssyni, starfsmanni á
biskupsstofu, í starf rektors.
Skólaráð Skálholtsskóla
Enn mælt með Guð-
mundi Einarssyni