Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 33

Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 33 ngin taki skjóti að tek þeim vegar fer hafi verið Þetta er vel af og verður þó erjir aðrir arútvegs- rár ng kom til á harla 21 á laug- Mathiesen g á veiðar g steinbít k. og yrði rra ýmsa ki á hvort setningar stjórnar- r málsins aðlögun- ðunni var on, þing- ksins, og d harðlega estun lag- kvótasetn- ári, hafi stæði yfir gum um a stendur Arnar og son, for- g Jóhann ni, gagn- rra harð- a í málinu erra enda hætti eða etningu á rásum á ttir a mfylking- væri á Al- setningar sson, VG, fyrir af- ssu máli. nn innan a hafi á haft uppi gar um að . Nú væri ki. fulltrúar Einar K. flokki, og msóknar- niðurstöð- ekki hefði u laganna. darafli sá nema brot i í sjónum hverju og starf end- fndarinn- n nokkru t væri að u til fram- narliðinn, lýsti hins sjávarút- g uppskar m komnir m. Sagði uti lítilla meðan aðr- m kvótans. son sagð- r harma ekki hefði varp hans um frest- ta m ARTHUR Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að búast megi við aðgerðum af hálfu landssambandsins vegna ákvörðunar Alþingis um að fresta ekki gildistöku laga um kvótasetn- ingu á veiðar smábáta. „Ég tel að þetta sé eitt mesta slys sem orðið hefur í sögu Alþingis. Al- þingi á að gæta hags þegnanna en ekki örfárra einstaklinga sem yfir öllu vilja drottna og ráða. Allt starfsumhverfi mjög stórs hluta smábátaflotans gerbreytist með þeim afleiðingum að fjöldi þjón- ustustarfa og starfa á sjónum tap- ast. Þetta hefur jafnframt þær af- leiðingar að nú verður ekki hægt að halda uppi byggðarlögum sem gert er með óbreyttu fyrirkomulagi, sem þýðir væntanlega stóraukinn vanda byggðarlaganna. Þarna eiga í hlut mun fleiri byggðir en mér sýnist að flestir geri sér grein fyrir og þetta er mun stærra byggðamál en al- menningur áttar sig á. Hér verður því meiriháttar röskun á högum fólks,“ segir Arthur. „Það sem mér finnst langalvar- legast í málinu er að það var drjúg- ur meirihluti fyrir því að þessum óskapnaði yrði frestað til þess að byrja með, en þessi þingmeirihluti náðist aldrei fram. Mér finnst það óskaplega sorglegt að þetta skuli geta gerst. Ég hef hingað til staðið í þeirri meiningu að Alþingi væri vörður lýðræðis, borgaranna og hagsmuna þeirra, en sú trú var tek- in af mér á laugardagskvöld þegar ég fylgdist með umræðunum á Al- þingi. Þessi mikli meirihluti, sem var klárlega til staðar, var kæfður af minnihlutanum,“ segir Arthur. Hann segir ítök LÍÚ mikil innan Alþingis. „Við vitum það fyrir víst að LÍÚ lá eins og marglytta á Al- þingi síðustu vikurnar og þetta er árangur þeirra. Í dag hlýtur að vera dagur gleðinnar í herbúðum LÍÚ og ekki hægt annað en að óska þeim til hamingju með að hafa náð að rústa nokkrum tugum sjávar- byggða við Íslandsstrendur. Þeir skulu hins vegar vita það að svona framganga í málum getur dregið stærri dilk á eftir sér en menn grunar. Ég hef starfað að félags- málum í sextán ár og hef aldrei heyrt hljóð í fólki eins og nú. Málið er komið á allt annað stig,“ segir Arthur. „Eitt mesta slys í sögu Alþingis“ Formaður Landssambands smábátaeigenda boðar aðgerðir vegar raunin er það afleikur af hálfu ríkisstjórnarinnar. Afli króka- báta vegur sífellt þyngra í afla á Drangsnesi. Við höfum í marga ára- tugi byggt afkomu okkar á rækju- vinnslu en nú er hún horfin af grunnslóðinni. Menn hafa því þurft að laga sig að breyttum aðstæðum í hafinu og eru í miðjum klíðum í þessum umskiptum. Þetta virkar því eins og rotthögg á menn. Menn hafa staðið af sér margar hremm- ingar í gegnum tíðina en stundum er hreinlega lagt of mikið á menn. Ég treysti því hins vegar og trúi að stjórnvöld grípi til aðgerða til að milda höggið,“ segir Guðmundur. Þór Örn Jónsson, sveitarstjóri á Hólmavík, segir stöðuna vissulega slæma, enda hafi hún mikil áhrif á Hólmavíkurhöfn og tekjumögu- leika hennar. Hann segir að átta trilluútgerðir leggi upp afla á Hólmavík sem nú missi spón úr aski sínum. „Afli af þessum bátum er uppistaðan í þeim afla sem landað er hér. Samdráttur í afla þeirra hef- ur mikil margfeldisáhrif því það koma margir að útgerð þeirra, til dæmis beitningu. Ég vona að stjórnvöld sýni þessum veiðum skilning, því eini vaxtarbroddurinn í atvinnustarfsemi á Vestfjörðum er í smábátaútgerð. Smábátaveiðar eru auk þess ákaflega vistvænar og þar henda menn ekki fiski í samanburði við togarana. Ég held því að það skaði engan að leyfa trillunum að halda áfram veiðum en skilj- anlega þarf að koma betri stjórn á þessar veiðar,“ segir Þór Örn. Þorlákur Sigurðsson, oddviti í Grímsey, segir að ellefu bátar af nærri þrjátíu í eyjunni verði kvóta- settir í aukategundum. „Það hefur verið ágæt steinbítsveiði á línuna og oft er góð ufsaveiði á haustin. Þessi útgerð er þannig atvinnuskapandi og í henni felst auðvitað heilmikil tekjuöflun. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir öðru en menn hafi aflað sér töluverðrar aflareynslu í þess- um tegundum sem miðað verður við við úthlutun kvótans. Við vitum hins vegar ekki hve kvótinn verður um. Ég vil að minnsta kosti ekki hugsa það til enda hvernig fer ef ekki verður komið til móts við þennan útgerðarflokk,“ segir Ólaf- ur. Verulegt áhyggjuefni Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir niðurstöðu Al- þingis mikil vonbrigði. „Ég hefði kosið að kvótasetningu aukateg- unda hjá krókabátum hefði verið frestað um nokkur ár, eða að minnsta kosti á meðan beðið er eftir niðurstöðum endurskoðunarnefnd- arinnar. Það er ljóst að í Bolung- arvík hefur kvótasetningin veruleg áhrif. Þeir sem eru nýjastir í grein- inni hafa skuldsett sig vegna kaupa á bátum og kvóta og kvótasetningin bitnar hvað mest á þeim. Atvinnulíf okkar hefur að mestu byggst upp á útgerð smábáta eftir að togararnir fóru og væntanlega eru vel á þriðja tug smábáta gerðir út frá Bolung- arvík í dag. Það eru að jafnaði sex menn sem eru í kringum hverja út- gerð, með sjómönnum og beitning- armönnum. Þetta er því verulegt áhyggjuefni og áhrifin víðtæk,“ segir Ólafur. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir að hagmunir sveitarfélagsins séu miklir í smá- bátakerfinu. „Við hefðum viljað fá aðra niðurstöðu en hún var þessi og við tökumst á við það. Ég ætla ekki ríkisstjórninni og Alþingi að láta óbreytt lög taka gildi í haust, kvót- inn hlýtur að verða aukinn. Það þýðir hins vegar ekki að vera með heimsendaspár varðandi þetta og ég er sannfærður um að niðurstað- an hefði ekki orðið þessi, nema að menn hafi eitthvað annað í bak- höndinni til að koma til móts við smábátana,“ segir Halldór. Menn að aðlaga sig breyttum aðstæðum í hafinu Guðmundur B. Magnússon, odd- viti í Kaldrananeshreppi, segir íbúa hreppsins slegna vegna niðurstöðu Alþingis. „Þetta er reiðarslag og maður trúir því ekki að stjórnvöld muni setja punkt fyrir aftan málið með þessum hætti. Ef svo er hins- BÆJAR- og sveitarstjórarnokkurra sjávarbyggða ílandinu segja að gildis-taka laga um kvótasetn- ingu aukategunda hjá krókabátum, sem kemur til framkvæmda þann 1. september nk., muni hafa veruleg áhrif á afkomu fyrirtækja og ein- staklinga í byggðarlögunum. Þeir segja að stjórnvöld verði að koma til móts við kröfur trillukarla til að koma í veg fyrir byggðaröskun og atvinnuleysi. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, segir að í sveitarfélag- inu sé nokkuð blönduð útgerð, bæði sterkar einstaklingsútgerðir í stóra aflamarkskerfinu en eins mjög öfl- ug smábátaútgerð. Hins vegar sé ljóst að ef lögin um kvótasetningu aukategunda taki óbreytt gildi þýði það einhvern samdrátt í smábátaút- gerðinni. „Smábátarnir hafa tölu- verð margfeldisáhrif inni í byggð- arlagið og því munum við finna fyrir samdrætti. Trillukarlar segjast munu segja upp beitningamönnum og beita sjálfir ef þeir hafi minna úr að moða,“ segir Kristinn. Mikið áfall varðandi steinbítinn „Það er óhætt að segja að það hafi dimmt yfir byggðinni þegar okkur bárust fréttir af afgreiðslu Alþingis á þessu máli,“ segir Ólafur M. Birgisson, sveitarstjóri á Tálknafirði. Hann segir að á Tálknafirði hafi verið landað um 1.700 tonnum á síðasta ári. Komi til kvótasetningar sé viðmiðun bátanna ekki nema 400 tonn. „Það munar um minna í svo litlu hagkerfi sem okkar. Lagasetningin í haust verður sérstaklega mikið áfall varð- andi steinbítinn. Menn eru enn að melta þessar fréttir en flestir áttu von á því að stjórnvöld myndu taka á þessu máli, annaðhvort með frest- un laganna eða með öðrum hætti. Menn eru því að velta fyrir sér stöðu mála og hvað tekur nú við. Ég trúi hinsvegar ekki öðru en þessi mál verði skoðuð með tilliti til byggðarlaganna einnig, enda snúa þau ekki aðeins að trillukörlum heldur öllu fólkinu í byggðarlögun- mikill en væntanlega verður um talsverða skerðingu að ræða. Það verður því töluvert högg fyrir litla byggð eins og í Grímsey þó að ekki sé enn hægt að reikna það í tonnum eða krónum,“ segir Þorlákur. Ekki mikil sókn í aukategundir Steinar Hilmarsson, oddviti á Bakkafirði, segir kvótasetninguna hafa töluverð áhrif á útgerð á staðn- um, enda sé langstærsti hluti af lönduðum afla á Bakkafirði af krókabátum og flestir íbúa sveitar- félagsins byggi afkomu sína á út- gerð þessara báta. „Ég vil hins veg- ar ekki taka svo djúpt í árinni að kvótasetning aukategunda valdi hjá okkur byggðaröskun eða stórfelldu atvinnuleysi. Við sækjum ekki eins mikið í aukategundir og til dæmis Vestfirðingar, heldur byggjum út- gerðina að mestu á þorskveiðum enda er ekki mikið um steinbít og ýsu á þessum slóðum. Reyndar fundust gjöful steinbítsmið við Langanes fyrir fáum árum og menn hafa töluvert sótt á þau. Einnig hafa menn fengið lítils háttar ýsu- veiði en ekkert í samanburði við það sem annars staðar gerist,“ segir Steinar. Jósef Friðriksson, sveitarstjóri á Stöðvarfirði, segir hlut krókabáta í lönduðum afla í sveitar- félaginu hafa farið vax- andi á undanförnum ár- um og sé um 62% það sem af er þessu fisk- veiðiári. Kvótasetning aukategunda muni því hafa tölu- verðar afleiðingar fyrir sveitar- félagið. „Það mun minnka afla krókabáta þó svo að í dag sé ekki vitað hversu mikið minni aflinn verður. Hins vegar hefur ekki farið mikið af afla smábáta á Stöðvarfirði til vinnslu í byggðarlaginu heldur er hann seldur annað. Við vitum hins vegar ekki hvaða áhrif þetta hefur á trillukarlana en það er ljóst að áhrifin verða hvað mest á um- svifin við höfnina. Hins vegar hefur þessi lagasetning legið fyrir og menn því væntanlega gert áætlanir út frá því,“ segir Jósef. Trillurnar hafa víða margfeldisáhrif Morgunblaðið/Ásdís Nokkur hundruð smábátar eru gerðir út hringinn í kringum landið. Frá smábátahöfninni í Ólafsvík. Virkar eins og rothögg á menn FRIÐRIK Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir að bú- ið hafi verið að setja lög um kvóta á veiðar smábáta og engar forsend- ur hafi verið fyrir frestun gildis- töku laganna nú. „Þetta var það eina rétta í stöð- unni. Þeir eru að veiða langt um- fram það sem þeim er ætlað og þeir eru að fjárfesta í nýjum skip- um til þess að veiða enn meira,“ segir Friðrik. Um þau sjónarmið að smábátar hafi haldið uppi atvinnu í byggð- arlögum úti á landi segir Friðrik að sé svo sé jafnframt ljóst að þeir hafi tekið atvinnuna af öðrum. „Veiðar þeirra umfram það sem þeim er ætlað koma niður á út- hlutun til annarra. Það sem þeir fara fram úr er tekið af einhverjum öðrum. Hvað fer mikið til vinnslu af þeim afla sem er landað fyrir vestan? Mjög hátt hlutfall fer strax út af svæðinu og er ekki unnið þar,“ segir Friðrik. „Málið snýst um að það hefur átt sér stað mismunun. Það hafa verið teknar aflaheimildir af okkar mönnum og fluttar til þeirra og það eru engar forsendur fyrir því. Við höfum stundað ábyrgar veiðar og farið eftir ráðgjöf fiskifræð- inga,“ segir Friðrik. „Okkar menn hafa dregið saman í rekstri til þess að aðlaga sig út- hlutunum, selt skip og fært saman kvóta. Á sama tíma hafa þeir hirt af okkur stöðugt meiri hluta og fjárfest í nýjum skipum sem eru al- gerlega óþörf því umframafkasta- geta er nú þegar til staðar í flot- anum. Þetta er eingöngu spurning um það hvort menn ætla að stunda ábyrgar veiðar og atvinnustarf- semi eða hvort þeir ætli að treysta á pólitíska fyrirgreiðslu. Við erum löngu hættir því,“ segir Friðrik. „Eina rétta í stöð- unni“ Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.