Morgunblaðið - 22.05.2001, Page 54
DAGBÓK
54 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket og Helgafell
koma í dag. Kodima fer
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Oyara, Brúarfoss, Vitj-
az og Karelia komu í
gær. Ostankino og Sig-
as Commander koma í
dag. Namay fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1 og Hæð-
argarður 31. Þriðjudag-
inn 29. maí verður farið
að Sólheimum í Gríms-
nesi þar sem staðurinn
verður skoðaður. Kaffi-
veitingar. Lagt af stað
frá Norðurbrún 1, kl.
12.30, síðan teknir far-
þegar í Furugerði og
Hæðargarði. Leið-
sögumaður Anna Þrúð-
ur Þorkelsdóttir. Skrán-
ing og upplýsingar í
Norðurbrún s. 568-6960,
í Furugerði s. 553-6040
og Hæðargarði 568-
3132.
Árskógar 4. Kl. 9–16.30
opin handavinnustofan,
áhersla á bútasaum, kl.
9–12 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans-
kennsla, Sigvaldi, kl.
13–16.30 opin smíða-
stofa, trésmíði/
útskurður, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Aflagrandi 40. Enska
kl. 10 og kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans hjá Sigvalda.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Vegna verkfalls Hlífar
fellur dagskrá niður í
dag, en ef verkfall leys-
ist verður á morgun
línudans kl. 11 og píla
kl. 13:30. Sýning á hand-
verki eldri borgara
verður fljótlega eftir að
verkfall leysist, fylgist
með fréttum. Dagsferð
á Njáluslóðir fimmtu-
daginn 7. júní nk. og 3
daga ferð til Horna-
fjarðar 9. júlí. Skráning
hafin, allar upplýsingar
í Hraunseli, sími 555-
0142
Eldri borgarar í Garða-
og Bessastaðasókn.
Ferð á uppstigning-
ardag. Ekið um Drag-
ann að Reykholti, stað-
urinn skoðaður undir
leiðsögn sr. Geirs
Waage, léttur hádeg-
isverður. Ekið um
Hvanneyri, staðurinn
skoðaður, drukkið kaffi.
Skráning til 22. maí í
síma 565-6380 kl. 10–15.
Ath. ef einhverjir eiga
erfitt með að bóka sig
með svo löngum fyr-
irvara, þá er allt í lagi að
láta sjá sig á brottfar-
ardaginn.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 13
föndur og handavinna.
Kl. 14.45 söngstund í
borðsal með Jónu
Bjarnadóttur.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Þriðjudagur:
Skák kl. 13.30. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Brids
kl. 13 ath. breyting á
degi vegna uppstigning-
ardags. Þriðjudaginn
29. maí verður farin
stutt vorferð í Hafn-
arfjörð og Heiðmörk.
Lagt verður af stað kl.
13 og leið lögð um Hafn-
arfjörð og þar litast um
undir leiðsögn Rúnars
Brynjólfssonar. Síðan
er ekið um Heiðmörkina
og staldrað þar við og
Vatnsveita Reykjavíkur
skoðuð. Að lokum eru
kaffiveitingar í boði
Orkuveitu Reykjavíkur.
Brottför frá Glæsibæ kl.
13. Leiðsögn Páll Gísla-
son og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
10.–12. júní Skaftafells-
sýslur. 3ja daga ferð um
Skaftafellssýslur, komið
að Skógafossi og á fleiri
staði á Suðurlandi. Gist
á Hótel Eddu, Kirkju-
bæjarklaustri. Upplýs-
ingar í síma 588 2111.
Félag eldri borgara
Kópavogi heldur al-
mennan félagsfund í
félagsheimilnu Gjá-
bakka laugardaginn 26.
maí nk. kl. 14. Dagskrá:
Sagt frá landsfundi
LRB. Starf og staða
félagsins. Kjaramál
eldri borgara. Önnur
mál er fram kunna að
koma. Vestmanna-
eyjaferð verður 20. júní
nk. Þátttökulistar eru í
félagsheimilunum Gjá-
bakka og Gullsmára.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður og fleira, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia,
sumardagskráin er
komin.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50
og kl. 10.45, kl. 9.30
glerlist, handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 10–17, kl. 14 boccia,
þriðjudagsganga fer frá
Gjábakka kl. 14.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun,
kl. 9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
16.30 myndlist.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 boccia, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
tréskurður.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 búta-
saumur, tréútskurður
og frjáls spilamennska.
Flóamarkaður verður á
Vesturgötu 7 miðviku-
daginn 23. og föstudag-
inn 25. maí kl. 13–16.30.
Á miðvikudeginum
verða pönnukökur með
rjóma með kaffinu. Á
föstudeginum kl. 15
kynna Árni Sighvatsson
barítonsöngvari og Jón
Sigurðsson píanóleikari
nýútkominn geisladisk
sem heitir Úr söngva-
safni Kaldalóns. Veislu-
kaffi og dansað í kaffi-
tímanun. Dagsferð
verður farin fimmtudag-
inn 7. júní. Lagt af stað
kl. 10. Viðkoma í Eden í
Hveragerði. Farið verð-
ur á Njáluslóðir, Njálu-
safn skoðað undir leið-
sögn Arthúrs Björgvins
Bollasonar. Ekið um
Stokkseyri og Eyr-
arbakka, Eyrar-
bakkakirkja skoðuð. Sr.
Úlfar Guðmundsson
tekur á móti hópnum.
Kvöldverður og dans á
Hótel Örk. Sundlaug og
heitir pottar fyrir þá
sem vilja. Leið-
sögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar og
skráning í síma 562-
7077. Ath takmarkaður
miðafjöldi.
Vitatorg. Kl. 9.30 gler-
skurður, myndlist og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13 handmennt og kera-
mik, kl. 14 félagsvist.
Hana-nú Kópavogi. Í
dag er síðasti skráning-
ardagur í ferðina á
Njáluslóðir sem farin
verður þriðjudaginn 29.
maí. Upplýsingar í Gjá-
bakka 554-3400 og Gull-
smára 564-5260. Allir
velkomnir með í för.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552 6644 á
fundartíma.
Eineltissamtökin halda
fundi á Túngötu 7 á
þriðjudögum kl. 20.
Heilsuhringurinn held-
ur aðalfund sinn þriðju-
daginn 22. maí í Nor-
ræna húsinu kl. 20. Að
loknum aðalfund-
arstörfum kl. 21 flytur
Kári Einarsson raf-
magnsverkfræðingur
erindi er nefnist Hefur
rafgeislun og öflug jarð-
geislun áhrif á heilsu
fólks. Öllum velkomið að
hlusta á erindið.
Í dag er þriðjudagur 22. maí, 143.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Verð þú aftur róleg, sála mín, því að
Drottinn gjörir vel til þín.
(Sálm. 116, 7.)
UNDIRRITAÐUR var í
sakleysi sínu að hlusta á
Þingmálaþátt Ríkisút-
varpsins á laugardags-
morgni 19. maí sl. og heyrði
þá eftirfarandi: Landbún-
aðarráðherra, hæstvirtur,
Guðni Ágústsson: „... og
þessi maður er formaður
þessa aumingja flokks!“
Forseti þings sagði þá eitt-
hvað í þessa átt: Þingmenn
eru vinsamlegast beðnir að
tala kurteislega um þing-
flokkana og halda almenn-
ar kurteisisvenjur! Össur
Skarphéðinsson, þingmað-
ur númer eitthvað í
Reykjavík – hæstvirtur
líka, sagði svona um það bil
þetta: Þessi ráðherra hefur
aldrei kunnað mannasiði og
þegar hann þrýtur rök
grípur hann til skítkasts!
Landbúnaðarráðherra,
hæstvirtur, Guðni Ágústs-
son: „...Ég sagði ekki „aum-
ingja“!“ Össur þingmaður,
ekki hæstvirtur þar sem
hann kallar framí: „Víst!“
Landbúnaðarráðherra,
hæstvirtur, Guðni Ágústs-
son: „Nei!“ Össur: „Víst!“
Landbúnaðarráðherra,
hæstvirtur, Guðni Ágústs-
son: „Það er ekki rétt!“
Og svona var kallast á
dálitla stund!
Hvers eigum við Íslend-
ingar að gjalda að kjósa yfir
okkur svona þingmenn og
gera þá meira að segja að
ráðherrum! Ráðherrann
tekur ekki rökum þótt hann
viti að allt sem hann segir
sé hljóðritað og verði flutt í
morgunskemmtiþætti
þingmála á laugardags-
morgni! Rífst og þrætir við
samþingsmenn sína á plani
sem kallað er „leikskóla-
plan“! Er nema von að ekki
sé allt í stakasta lagi í þjóð-
félaginu! Það væri annars
gaman að heyra frá ráð-
herranum – og jafnvel Öss-
uri einnig – í hvaða leik-
skóla þeir fá þjálfun til að
stjórna landinu og hvort
þeim hafi ekki boðist starf
sem hæfði þeim betur? Þá
mætti spyrja hvort þessi
6,9% launahækkun sem
þeir fengu nýverið sé þarna
að skila sér í meiri ræðu-
snilld og hvort við sem er-
um öryrkjar getum vænst
þess að geta kríað út svolít-
ið líka með svona snilldar-
töktum? Kveðja,
Ragnar Eiríksson,
Sauðárkróki,
kt. 220145-7869.
Húsráð um
hunangsflugu
ÞEGAR hin meinlausa
hunangsbýfluga er komin
inn í hús og ratar ekki út
aftur: Réttið blóm/salat-
stilk að hunangsflugunni og
hún sest á gróðurinn. Svo
er haldið á gróðrinum með
flugunni á og henni hjálpað
að útgönguleið, þá ratar
hún út.
Edda.
Tapað/fundið
Glitra daggir,
grær fold
ÉG er að athuga hvort ein-
hver eigi á myndbandi
sænsku myndina „Glitra
daggir, grær fold“. (Driver
dagg faller regn). Þessi
mynd var sýnd hér í sjón-
varpi fyrir 10–15 árum. Ég
hef leitað bæði hér og í Sví-
þjóð en án árangurs. Ef
einhver á hana vildi ég
gjarnan fá hana lánaða til
að taka eftir. Takk fyrir.
Hrefna sími 565-6404 eða
694-3147.
Silfurarmband
tapaðist
FALLEGT breitt silfur-
armband með bláum stein-
um tapaðist í miðbæ
Reykjavíkur fyrir um það
bil mánuði. Armbandið hef-
ur persónulegt gildi fyrir
eigandann. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 551-
9738.
Gleraugu töpuðust
GLERAUGU töpuðust
sunnudaginn 20. maí sl. í
nágrenni við Fróðengi.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 567-0764 eða
698-3473.
Hjól hvarf úr
hjólageymslu
NÝLEGT silfurlitað
Bronco Style-hjól hvarf úr
hjólageymslu í Völvufelli
50, fimmtudaginn 17. maí
sl. Fundarlaun. Upplýsing-
ar í síma 896-8560.
Dýrahald
Páfagaukur óskast
ÓSKA eftir dísarpáfagauk,
helst gulum. Upplýsingar í
síma 555-3041.
Læða hvarf úr bíl
KOLSVÖRT læða með
rauða ól, stökk út úr bíl í
Mjódd, fimmtudaginn 17.
maí sl. Ef einhver veit um
ferðir hennar, vinsamleg-
ast hafið samband í síma
557-2405.
Páfagaukur í óskilum
LÍTILL páfagaukur fannst
fyrir nokkrum dögum á
horninu á Hverfisgötu og
Snorrabraut. Upplýsingar í
síma 587-2245 eftir kl. 19.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Með fullu viti –
eða hvað?
Víkverji skrifar...
ÞAÐ var gaman að fylgjast meðbeinni útsendingu Sjónvarpsins
frá úrslitaleiknum um þýska meist-
aratitilinn í handknattleik á sunnu-
dag. Ekki aðeins vegna þess að þar
fóru Magdeburg og Flensburg, tvö
bestu lið Þýskalands, heldur fyrst og
fremst vegna íslensku tengingarinn-
ar, en Alfreð Gíslason er þjálfari
Magdeburgar og landsliðsmaðurinn
Ólafur Stefánsson er í lykilhlutverki
hjá liðinu. Og Magdeburg brást ekki
stuðningsmönnum sínum, þó útlitið
hafi ekki verið sem best til að byrja
með. Alfreð sannaði enn einu sinni
þjálfara- og stjórnunarhæfileika
sína og Ólafur lék við hvern sinn
fingur og var maðurinn á bak við
öruggan sjö marka sigur, 30-23.
Hafa ber í huga að þýska deildin er
sú sterkasta í heimi og þar fæst ekk-
ert á silfurfati. Mikið þarf að hafa
fyrir því að ná árangri og það vita
Alfreð og Ólafur, sem fögnuðu jafn-
framt Evrópumeistaratitli með liði
sínu á dögunum. Magdeburg stóð oft
á hæsta palli í Austur-Þýskalandi en
hefur ekki áður orðið þýskur meist-
ari í handknattleik. Titillinn er enn
sætari fyrir vikið og íslensku tví-
menningarnir eiga stóran þátt í ár-
angrinum, rétt eins og þegar þeir
gegndu lykilhlutverkum hjá íslensk-
um meistaraliðum á nýliðnum ára-
tug, Alfreð hjá KA og Ólafur hjá Val.
Þeir hafa alla tíð sett stefnuna á
toppinn, sætta sig ekki við annað og
hafa svo sannarlega uppskorið ríku-
lega. Ólafur er talinn einn af bestu
handknattleiksmönnum heims og
Alfreð var það áður en hann sneri
sér að þjálfun, en hann var lykilmað-
ur hjá Essen þegar liðið var Þýska-
landsmeistari 1986 og 1987, seinna
árið undir stjórn Jóhanns Inga
Gunnarssonar, og um helgina fagn-
aði hann því þýska meistaratitlinum
í þriðja sinn.
x x x
VÍKVERJI er ekki síður ánægð-ur með frammistöðu Guðna
Bergssonar, fyrirliða enska knatt-
spyrnuliðsins Bolton, en hann á stór-
an þátt í því að Bolton getur end-
urheimt sæti sitt í úrvalsdeildinni í
næstu viku. Á dögunum var Guðni
útnefndur leikmaður ársins hjá
Bolton. Ýmsir hópar tengdir Bolton
velja mann ársins og var Guðni út-
nefndur á fimm stöðum, þar á meðal
hjá þremur þeim veigamestu annað
árið í röð, þ.e. hjá stuðningsmönnum
félagsins, hjá leikmönnum liðsins og
hjá sérstökum styrktarmönnum
Bolton. Þetta er frábær árangur hjá
Guðna, sem byrjaði í atvinnu-
mennsku hjá enska félaginu Totten-
ham 1988, hefur verið hjá Bolton síð-
an 1994 og verður 36 ára í sumar.
x x x
VÍKVERJI fylgist einnig með ís-lensku knattspyrnunni og gera
má því skóna að keppni í efstu deild
karla, Símadeildinni, verði spenn-
andi miðað við byrjun Íslandsmóts-
ins. Þeir sem eru fastir í spám, undr-
ast eflaust að Breiðablik, Keflavík
og Valur skuli vera á toppnum með
fullt hús stiga eftir tvær umferðir,
en það er ekkert öruggt í þessari
deild frekar en öðrum, leikir vinnast
ekki á pappírum og ef að líkum lætur
á margt eftir að koma á óvart í deild-
inni. Byrjun keppninnar lofar góðu
varðandi spennuna og enn eitt árið
geta unnendur knattspyrnunnar bú-
ið sig undir skemmtilegt tímabil.
Hvað sem öllum vangaveltum líður
er ljóst að Íslandsmeistari verður
ekki krýndur fyrr en 22. september í
haust.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 örlæti, 8 hirðuleysingj-
ar, 9 ótti, 10 fag, 11 nytja-
lönd, 13 líffærin, 15
sneypa, 18 fjandsamlegt
hugarfar, 21 keyra, 22
siðprúð, 23 ljúka, 24 hólp-
inn.
LÓÐRÉTT:
2 Gyðingar, 3 á undan, 4
gyðja, 5 atgerfi, 6 fjall, 7
fall, 12 vesæl, 14 fiskur,
15 verst, 16 nabbar, 17
slög, 18 handfang, 19
glötuðu, 20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 storm, 4 fundu, 7 eykur, 8 skinn, 9 ask, 11 tind,
13 saur, 14 ýsuna, 15 smár, 17 lekt, 20 odd, 22 eimur, 23
ólmur, 24 tunna, 25 akrar.
Lóðrétt: 1 svert, 2 orkan, 3 mæra, 4 fúsk, 5 neita, 6 unn-
ur, 10 stund, 12 dýr, 13 sal, 15 stert, 16 álman, 18 ermar,
19 tærar, 20 orða, 21 dóla.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16