Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 51
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 51
NÆSTA vetur verð-
ur gerð spennandi til-
raun í skólamálum
austur undir Eyjafjöll-
um. Þar verður starf-
ræktur heildstæður
grunnskóli með færri
nemendum en í nokkr-
um öðrum skólum hér-
lendis, að því er best er
vitað. Þetta er í Grunn-
skólanum í Skógum, en
þar hefur verið starf-
ræktur heildstæður
grunnskóli allt frá því
sveitarfélögin yfirtóku
rekstur grunnskólanna
í landinu. Áður starf-
rækti grunnskólinn
1.–8. bekk, en Framhaldsskólinn í
Skógum (Skógaskóli) sá um kennslu
9.–10. bekkjar. Það er því löng hefð
fyrir grunnskóla í Skógum og þar
hafa nemendur getað lokið öllu sínu
grunnskólanámi. Reynslan af skóla-
haldinu hefur námslega verið afar
góð og krakkarnir skilað frábærum
námsárangri, t.d. á samræmdum
prófum.
Nemendur á komandi vetri verða
á bilinu 15–19 (enn er fólk að flytja í
sveitina!). Þetta er heilmikil fækkun
frá því sem verið hefur, en sú fækk-
un er tilkomin af því að að nágrann-
ar okkar í Vestur-Eyjafjallahreppi
sem um langt árabil hafa sent 8.–10.
bekkinga sína til Skóga, hafa nú
ákveðið að senda þá í unglingadeild-
irnar í Hvolsskóla á Hvolsvelli, sem
er álíka langt frá þeim flestum og
Skógar. Þessi nemendafjöldi (15–19
krakkar) skiptist á alla bekki, nema
hvað enginn nemandi verður senni-
lega í 1. bekk og enginn í 6. bekk
þetta árið. (Það horfir þó til bóta – í
ár er t.d. búist við fjórum barnsfæð-
ingum í hreppnum!). Krökkunum
verður kennt í tveimur til þremur
deildum. 2.–5. bekkur verða saman í
öllum greinum, en 7.–10. bekkur
verða sennilega að mestu leyti í
tveimur hópum.
Nemendahópur af þessari stærð-
argráðu gefur margvísleg tækifæri
til að brydda upp á endurbótum og
nýjungum í skólastarfi. Meginmark-
miðið verður þó að kenna sam-
kvæmt nýrri aðalnámskrá grunn-
skóla. Þessi nemendafjöldi gefur
jafnvel enn betri möguleika til að
hrinda markmiðum hennar í fram-
kvæmd, svo sem með aukinni ein-
staklingskennslu, einstaklingsnám-
skrám og aðstoð við hvern og einn
eftir þörfum. Einnig verður auð-
veldara en víða annars staðar að
bjóða upp á heildstæðari kennslu
innan námsgreina og þvert á náms-
greinarnar, rétt eins og nýja nám-
skráin gerir ráð fyrir.
Meðal nýjunga sem skólafólk hef-
ur iðað í skinninu eftir að reyna er
t.d. kennsla í samræmi við svo-
nefnda „fjölgreindarkenningu“, en
þar er gert ráð fyrir því að nálgast
viðfangsefnin og námið út frá mis-
munandi hæfileikum barnanna.
Þetta yrði gaman að fást við í litlum
skóla á borð við Grunnskólann í
Skógum, þar sem tækifæri gefast til
að sinna þáttum sem hafa orðið út-
undan annars staðar, svo sem til-
finningum, samskiptum, sköpun og
innsæi.
Önnur knýjandi nýjung er að
nemendur fái að kynna sér hin ýmsu
lífsgildi samfélagsins og brjóta þau
til mergjar. Þetta tengist hinni nýju
námsgrein grunnskólans, lífsleikn-
inni, sem erfitt hefur
reynst í stærri skólum
að gæða aðlaðandi og
skapandi innihaldi.
Loks má nefna að
mikill áhugi er á því að
koma á við skólann
einhverju kerfi fjar-
kennslu í gegnum svo-
nefndan „fjarfunda-
búnað“ og með
tölvusamskiptum. Að
því þarf að vinna í vet-
ur og verður ákaflega
spennandi að taka þátt
í mótun þess. Slíkt
kerfi hefur verið reynt
með góðum árangri
hérlendis af Sambandi sveitar-
félaga, auk þess sem það er mjög
þróað víða annars staðar, t.d. í Nor-
egi, Færeyjum og víðar þar sem
byggð er dreifð. Samhliða þessu
þarf að leggja aukna rækt við tölvu-
þjálfun og tölvuuppeldi nemend-
anna.
Svo vill til að tímamót verða í
skólanum hvað varðar kennaralið
hans. Tveir af fjórum föstum kenn-
urum skólans höfðu sagt upp störf-
um til að leita á önnur mið. Skóla-
stjóri og kennari sem unnið hafa af
dugnaði við skólann sl. 6 ár ákváðu
að taka sér launalaust ársorlof frá
kennslu. Nú þarf að ráða 3 fasta
starfsmenn að skólanum í vetur,
skólastjóra og tvo kennara, og hafa
þau störf verið auglýst laus til um-
sóknar með umsóknarfresti til 15.
júní nk. Hér hafa undantekningar-
lítið starfað réttindakennarar eða
fólk sem langt er komið í réttinda-
námi, og á því verður ekki breyting.
Að sjálfsögðu er það svo að kennari
með fullt kennaranám að baki hefur
réttindi til að kenna hvaða náms-
grein sem er (nema sund), en skóla-
nefndin vill auðvitað fá kennara með
sem fjölbreyttasta reynslu. Aðstaða
er góð á staðnum, blómstrandi
byggðasafn, umhverfið hið fegursta
sem um getur á öllu Íslandi og gott
húsnæði í boði.
Að baki skólanum stendur mjög
samstæður hópur foreldra sem hef-
ur komið því til leiðar að skólinn
haldi áfram þrátt fyrir fámennið, og
hreppsnefnd A.-Eyjafjallahrepps
hefur heitið því að styðja vel við
skólann.
Ögrandi tilraun í skólamálum
Guðmundur
Sæmundsson
Skólar
Meðal nýjunga, segir
Guðmundur Sæmunds-
son, er kennsla í sam-
ræmi við svonefnda
„fjölgreindarkenningu“.
Höfundur er fjarkennari og fulltrúi í
skólanefnd.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050