Morgunblaðið - 05.07.2001, Page 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFram, FH og Grindavík áfram
í bikarnum / C2, C3
Ákvörðun Guðjóns kom
Bjarna mjög á óvart / C1
4 SÍÐUR
MEÐ
Morgunblaðinu
í dag fylgir blað
frá Laugavegs-
samtökunum,
„Bæjarferð“.
12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MAÐURINN sem lést í sundlaug-
inni á Skógum á mánudag hét Frank
Lillemeier, 34 ára gamall þýskur
ferðamaður, fæddur 1. september
1966. Hann var staddur hér á landi
með unnustu sinni, Ritu Leissmann,
en þau hugðust ganga í hjónaband
hérlendis hinn 13. júlí.
Tildrög slyssins eru enn í rannsókn
hjá lögreglunni á Hvolsvelli sem nýt-
ur aðstoðar heilbrigðisnefndar Suð-
urlands og Vinnueftirlits ríkisins.
Samkvæmt upplýsingum sem Rita
Leissmann gaf Morgunblaðinu í gær,
heyrði enginn til hennar á Edduhót-
elinu á Skógum þegar hún kallaði
ítrekað eftir hjálp þegar hún barðist
árangurslaust við að hjálpa meðvit-
undarlausum unnusta sínum upp úr
lauginni. Sundlauginni var lokað
strax eftir slysið.
Komu til landsins til að gifta sig
Rita Leissmann sagði við Morgun-
blaðið að hún og unnusti hennar
hefðu komið hingað til lands til að
gifta sig. „Frank hafði komið hingað
fimm sinnum og það var draumur
hans að sýna mér uppáhaldsstaðina á
Íslandi og að giftast mér hérna,“
sagði hún.
Hún sagði þau hafa fengið leyfi á
hótelinu til að fara í laugina á mánu-
dagskvöld. Þetta hafi verið í fyrsta
skipti sem þau fóru saman í sund eftir
að samband þeirra hófst. Unnusti
sinn hafi ekki verið vel syndur. Rita
sagðist hafa synt frá
grynnri enda laugarinn-
ar út í þann djúpa og
fylgdi hann á eftir. Hún
sagði honum síðan að
ekki næðist til botns og
skömmu síðar varð
hann hræddur og byrj-
aði að sökkva.
Eftir árangurslausar
tilraunir við að bjarga
honum fór hún upp á
bakkann og leitaði að
björgunartækjum en
fann ekki annað en flot-
hringi fyrir börn. Þegar
hún reyndi að koma
kútunum upp á hand-
leggi hans var hann hættur að sýna
viðbrögð. Ritu tókst að synda með
Frank út í grunnu laugina og ætlaði
að reyna björgunartilraunir.
Hún hrópaði í sífellu á hjálp, bæði á
ensku og þýsku, án þess að nokkur
heyrði. Hún reyndi að toga hann upp
úr lauginni en skorti til þess afl. Hún
reyndi blástursaðferð og kallaði
áfram eftir hjálp og hélt höfði hans
upp úr lauginni.
„Enginn heyrði til mín. Ég hugsaði
að ég yrði að grípa til einhverra ráða
og setti flothringi um háls hans og
handleggi og skorðaði hann upp við
hornið í lauginni á með-
an ég skaust upp úr og
náði loksins í hjálp. Við
hífðum hann upp úr
lauginni og reyndum
lífgun en það var of
seint. Þetta var svo
hræðilegt, það gat eng-
inn hjálpað honum,“
sagði Rita Leissman.
Sundlaugin á Skóg-
um, sem er 12,5 metra
innilaug, hefur ekki
sætt úttekt Vinnueftir-
lits ríkisins og heil-
brigðisnefndar Suður-
lands með tilliti til
starfsleyfis eftir að hún
var opnuð aftur í fyrra eftir miklar
viðgerðir, samkvæmt upplýsingum
frá heilbrigðisnefndinni. Fram að
viðgerð hefur hún verið kennslulaug
og verið góð og gild sem slík. Við út-
tektir vegna starfsleyfa er farið eftir
reglugerð frá 1998 um hollustuhætti
og öryggisþætti á sundstöðum.
Samkvæmt reglugerðinni eiga
öryggistæki, s.s. björgunarhringur,
flotbörur, öryggishnappur og örygg-
ismyndavél, að vera til staðar. Við
rannsókn eftir slysið á mánudag kom
í ljós að sundlaugin á Skógum var
ekki búin neinum þessara öryggis-
tækja. Samkvæmt upplýsingum frá
fulltrúa heilbrigðisnefndar Suður-
lands mætti í þessu ljósi líta svo á að
viðgerðum á lauginni hafi alls ekki
verið lokið fyrst ekki hafði verið
gengið frá þessum atriðum.
Starfsleyfi fyrir laugina ekki til
Heimir Hafsteinsson, formaður
heilbrigðisnefndar Suðurlands, stað-
festi við Morgunblaðið í gær að
starfsleyfi fyrir sundlaugina á Skóg-
um væri ekki til. Líkleg skýring á því
væri sú að rekstraraðilar hótelsins
hefðu ekki gert sér grein fyrir því að
sérstakt leyfi þyrfti fyrir sundlaugina
þegar hótelið sjálft fékk starfsleyfi
fyrir veitingasölu og gistingu í fyrra-
vor.
Kári Kárason framkvæmdastjóri
Flugleiðahótela, rekstraraðila Eddu-
hótelanna, sagði að sér hefði komið á
óvart þegar í ljós kom að ekki var
starfsleyfi fyrir sundlauginni. Hann
sagðist harma slysið í lauginni og
sagði að starfsleyfamál annarra
lauga í rekstri Edduhótelanna yrðu
könnuð og að hugsanlega yrði þeim
lokað þangað til þessi mál fengjust á
hreint.
Samkvæmt reglugerð um sund-
laugar eru skýr ákvæði um að hafa
eigi gæslu við laugar. Heimilt er þó
að hleypa fólki á eigin ábyrgð í gæslu-
lausar sundlaugar sé um eldri en 18
ára að ræða sem taka ábyrgð á börn-
um í fylgd þeirra þegar svo ber undir.
Harmleikur í hótelsundlaug sem var án starfsleyfis og vanbúin öryggistækjum
„Enginn heyrði til mín“
Frank Lillemeier
–segir Rita Leissmann sem reyndi að
bjarga unnusta sínum úr lauginni
UNDIRBÚNINGUR vegna hátíðar-
halda í tilefni þess að 150 ár eru lið-
in frá því að þjóðfundur Íslendinga
var settur hefur verið í fullum
gangi í Menntaskólanum í Reykja-
vík að undanförnu en hátíðarhöldin
fara fram í dag.
Við undirbúninginn fékk hátíðar-
salur Menntaskólans, þar sem þjóð-
fundurinn fór fram á sínum tíma,
andlitslyftingu. Forvörður rann-
sakaði við þetta tækifæri veggi sal-
arins og komu þá í ljós 18 lög af
málningu sem salurinn hefur verið
málaður með í gegnum tíðina og
myndin sýnir.
Að sögn Ragnheiðar Torfadótt-
ur, rektors MR, er elsta málning-
arlagið sennilega frá 1845 þegar
húsið var fyrst málað.
Morgunblaðið/Billi
18 lög af
málningu
í hátíðarsal
MR
MOGENS Lykketoft, utanríkisráðherra Danmerkur,
og eiginkona hans, Jytte Hilden, fyrrverandi mennta-
málaráðherra Danmerkur, hófu í gær þriggja daga
heimsókn hingað til lands í boði íslenzku utanrík-
isráðherrahjónanna Halldórs Ásgrímssonar og Sig-
urjónu Sigurðardóttur.
Hér sjást ráðherrarnir í skoðunargöngu um Þing-
velli síðdegis í gær undir leiðsögn Gunnars Biering
(lengst t.v.) en þeir áttu formlegar viðræður í Hótel
Valhöll og sátu síðan kvöldverðarboð í Ráðherrabú-
staðnum á Þingvöllum.
Danski utanríkisráðherrann mun í dag eiga stutta
fundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og
Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Á dagskránni er enn
fremur heimsókn í Stofnun Árna Magnússonar og Nor-
ræna húsið, auk skoðunarferðar að Gullfossi og Geysi.
Morgunblaðið/Þorkell
Lykketoft á Íslandi
FARÞEGUM í innanlandsflugi hjá
Flugfélagi Íslands hefur fækkað á
síðustu mánuðum og gildir það um
flestar stærstu áætlunarleiðir, t.d.
til Akureyrar, Ísafjarðar, Egils-
staða og Hafnar í Hornafirði.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, upplýsti þetta á
ársfundi Byggðastofnunar í vikunni
þar sem hann var meðal framsögu-
manna. Velti hann þeirri spurningu
einnig upp hvort ekki ætti að skil-
greina flugið sem hluta af þjóð-
vegakerfi landsins.
Fargjöld hafa verið að hækka og
fraktflutningar að minnka og sagði
Jón Karl ljóst að vegna hækkandi
verðlags almennt í þjóðfélaginu
hefði fólk sparað við sig í flugferð-
um og frekar ferðast á eigin bíl þótt
það væri í sumum tilvikum óhag-
kvæmara. Hann sagði einnig líklegt
að sjómannaverkfallið hefði haft
áhrif í þá veru m.a. að þjónstufyr-
irtæki sendu ekki starfsmenn sína
út á land að þjónusta útgerðarfyr-
irtækin á meðan verkfallið stóð
yfir.
Jón Karl sagði að innanlands-
flugið væri ákveðin lífæð og grund-
völlur fyrir áframhaldandi byggð í
landinu. Miklu skipti í því sambandi
að Reykjavíkurflugvöllur yrði ekki
færður. Ef innanlandsflugið flytti
til Keflavíkur þýddi það samdrátt
og vísaði Jón Karl þar til þróunar í
þá átt í Noregi. Miðað við 450 þús-
und farþega í innanlandsflugi á ári
nú sagði Jón Karl að þeir gætu far-
ið niður fyrir 300 þúsund ef völl-
urinn yrði færður til Keflavíkur.
Farþegum innanlands að fækka
Sjómannaverk-
fallið hafði áhrif
Á FIMMTUDÖGUM