Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 39
UMHYGGJU, félagi til stuðnings
langveikum börnum, hefur borist
veglegt garðhús/dúkkuhús að
gjöf. Það er Þórarinn Þórar-
insson húsasmiður sem hefur
smíðað þetta hús og gefið Um-
hyggju.
Húsið verður selt hæstbjóðanda
í fjáröflunarskyni fyrir Styrkt-
arsjóð Umhyggju. Styrktarsjóð-
urinn veitir styrki til fjölskyldna
langveikra barna sem lent hafa í
fjárhagserfiðleikum vegna veik-
inda barna sinna. Formaður Um-
hyggju, Ragna Marinósdóttir,
mun taka við tilboðum í húsið til
10. júlí í síma 561-2302 eða 698-
2302 eða í tölvupóstfanginu rag-
bjarn@vortex.is
Dúkkuhúsið sem Þórarinn gaf
Umhyggju.
Fékk dúkku-
hús að gjöf
Á FUNDI stjórnar LÍN nýlega lagði
fulltrúi Stúdentaráðs HÍ í stjórn
LÍN fram tillögu þess efnis að
stjórnin skipi starfshóp til að endur-
skoða þær verklagsreglur sem gilda
um undanþágur frá endurgreiðslur
námslána, í ljósi úrskurðar Umboðs-
manns.
„Fulltrúi Stúdentaráðs fagnar því
að vel sé tekið í tillögu um stofnun
starfshóps því Umboðsmaður Al-
þingis hafi kveðið skýrt á um að
verklagsreglur sjóðsins brjóti í bága
við lög og því ótækt að halda þeirri
framkvæmd áfram. Mikilvægt er að
LÍN taki álit Umboðsmanns alvar-
lega og endurskoði stafshætti sína
hið fyrsta í ljósi þess. Umboðsmaður
hefur nú í þrígang gert athugasemd-
ir við málsmeðferð yfirstjórnar
Lánasjóðsins. Tilgangur sjóðsins er
að vera félagslegur jöfnunarsjóður
og því hefur Stúdentaráð ítrekað
krafist þess að sjóðurinn sýni náms-
mönnum aukið félagslegt tillit,“ seg-
ir m.a. í frétt frá Stúdentaráði.
Stúdentaráð vill
endurskoðun
starfshátta LÍN
LAUGARDAGINN 7. júlí kl. 10.00
verður boðið upp á leiðsögn um nýleg-
an nytjajurtagarð Grasagarðs
Reykjavíkur í fylgd Jóhönnu Þormar
garðyrkjufræðings og Evu G. Þor-
valdsdóttur forstöðumanns.
„Þessi hluti Grasagarðsins var tek-
inn í notkun sl. sumar og eru rækt-
aðar þar allar algengustu matjurtir,
en auk þess kryddjurtir og berja-
runnar.
Sýnishorn eru af algengum fóður-
Lækningaplöntur
og nytjajurtir
jurtum sem ræktaðar eru hér á landi,
til dæmis grös, bygg og hafrar.
Í nytjajurtagarðinum eru einnig
sýnishorn af nokkrum vel þekktum
lækningajurtum, en í Grasagarðinum
vex fjöldi plantna sem notaðar hafa
verið til lækninga um aldir og eru not-
aðar enn í grasalækningum og smá-
skammtalækningum.
Mæting er í lystihúsinu gegnt garð-
skálanum,“ segir í fréttatilkynningu.
♦ ♦ ♦SKÓGAR- og útivistardagur og
fjölskylduskemmtun verður laug-
ardaginn 7. júlí við Hvaleyrarvatn.
Dagskráin verður svohljóðandi:
Dagskráin hefst með helgistund
kl. 13 í Bænalundi sem er örstutt
frá skógræktarstöðinni í Höfða.
Séra Þórhallur Heimisson flytur
hugvekju.
Klukkan 13.20 hefst útsýnis-
ganga um Selhöfða og Seldal í
fylgd Jónatans Garðarssonar. Far-
ið frá Höfða og endað við skáta-
lund við skátaskálann og tekur
ferðin rúmlega 1 klst.
Létt fræðsluganga verður um
Höfðaskóg klukkan 15.30 í fylgd
Steinars Björgvinssonar garð-
yrkjufræðings. Farið verður frá
sandvíkinni við vatnið og tekur
ferðin um 30 mín. Að lokinni
göngu gefst þátttakendum kostur
á að svara laufléttum spurningum
tengdum náttúrunni og verður
dregið úr réttum svörum og
verðlaun veitt í Höfða um kl.
16.15.
Ókeypis bátsferðir verða farnar
og veiðileyfi eru í Hvaleyrarvatni
allan daginn. Sumarratleikur verð-
ur fyrir fjölskylduna við Hvaleyr-
arvatn kl. 13–17 í umsjá Upplýs-
ingamiðstöðvar Hafnarfjarðar.
Gögn um ratleikinn verða afhent á
sandvíkinni við vatnið.
Gildisskátar kynna starfsemi
sína við Skátalund (Skátaskálann)
klukkan 14 til 15.30 og hafa um-
sjón með leikjum fyrir börnin ef
tækifæri gefst.
Grillað við vatnið frá kl. 15.30.
Heitt verður í kolunum og getur
hver og einn komið með eitthvað á
grillið. Pappadiskar, áhöld og djús
verður á staðnum. Þórður verður á
nikkunni.
Íshestar og Sörli verða með
hesta og teyma undir börnunum
við hestamiðstöð Íshesta og
Sörlastaði frá klukkan 14.30–
15.30.
Útivistar-
dagur við
Hvaleyr-
arvatn