Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Útsalan
er hafin
Laugavegi 68 - sími 551 7015
Útsalan
er hafin
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, undirritaði
fyrradag á Selfossi árangursstjórn-
unarsamning við stjórnendur Heil-
brigðisstofnunarinnar á Selfossi og
gildir hann til ársloka 2003.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir m.a að til þess að sinna verk-
efnum sem samningurinn kveður á
um muni heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið beita sér fyrir að
árlegar fjárveitingar til starfsem-
innar verði tæpar 570 milljónir
króna miðað við fjárlög ársins.
Heilbrigðisstofnunin á Selfossi
heyrir undir heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið og þjónar hún
einkum íbúum Suðurlands og ná-
grennis.
Ráðherra hefur einnig gert sam-
komulag við Heilbrigðisstofnunina á
Selfossi um heilbrigðisþjónustu við
fanga á Litla-Hrauni og tekur
samningurinn til læknisþjónustu í
fangelsinu svo og fésýslu. Mun heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
ið beita sér fyrir því að árlegar fjár-
veitingar til starfseminnar verði
rúmar 19 milljónir á ári.
Í gær gekk heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra einnig frá sam-
komulagi við stjórnendur Heilbrigð-
isstofnunar Selfoss. Það felur m.a. í
sér að heilbrigðisstofnunin fær 8
milljóna króna viðbótarframlag
vegna reksturs á árinu 2001 í sam-
ræmi við samkomulag um árang-
ursstjórnun, endurskoðun á sam-
komulagi um ferliverk og vegna
aukins kostnaðar við heilbrigðis-
þjónustuna á Litla-Hrauni.
Jafnframt fær stofnunin 3,2 millj-
ónir í framlag vegna rekstrarhalla á
árinu 2000 og 2,9 milljónir upp í
uppsafnaðan rekstrarhalla fyrri
ára.
Samningur um árangursstjórnun
Selfoss
UM ÞESSAR mundir eru liðin 35
ár síðan Valþjófsstaðarkirkja var
vígð af þáverandi biskupi Íslands
herra Sigurbirni Einarssyni.
Af því tilefni var efnt til hátíð-
armessu þar sem prófasturinn í
Múlaprófastsdæmi, síra Sigfús J.
Árnason á Hofi í Vopnafirði pré-
dikaði en sóknarpresturinn, séra
Lára G. Oddsdóttir þjónaði fyrir
altari.
Í tilefni af afmælinu var gler-
listakonan Halla Haraldsdóttir
fengin til að gera steinda glugga í
kór kirkjunnar sem hún vann á
verkstæði dr. M. Oidtmann í
Þýskalandi. Í fyrsta glugganum
er eitt algengasta tákn heilagrar
þrenningar – þríhyrningurinn
með „auga Guðs“ í miðjunni.
Annar glugginn sýnir dúfuna
koma að ofan og þannig er hún
tákn heilags anda. Þriðji glugginn
sýnir krossfestinguna. Á fjórða
glugganum má sjá kornið og vín-
viðinn og í krossi er bikar. Þarna
er að finna tákn kvöldmáltíðar,
tákn friðar og endurlausnar.
Þá voru tvær handverkskonur
frá Egilsstöðum, þær Anna Guðný
Helgadóttir og Lára Vilbergs-
dóttir, fengnar til að hanna og
sauma nýjan hátíðahökul og stólu.
Í skrúðanum er hvítt þunnt
ullarefni ísaumað með ull og
marlittþræði í grænum og hvítum
litum og gylltum þræði. Ísaumur
er afbrigði af refilsaumi í krossi en
í stöflum er blómstursaumur.
Að kirkjuathöfn lokinni bauð
sóknarnefnd og sóknarprestur
öllum til veislu í félagsheimilinu
Végarði.
Valþjófsstaðarkirkja
Morgunblaðið/Guttormur
Listafólkið ásamt prófasti og
sóknarpresti.
Hátíðleg
stund í Val-
þjófsstað-
arkirkju
Geitagerði
SEX tilboð bárust í endurbyggingu
og breytingu á vegarhluta frá Búðaá
að Hvannabrekku á Hringveginum.
Lægsta tilboðið áttu S.G. Vélar
ehf., 75 milljónir, en kostnaðaráætl-
un Vegagerðarinnar, sem er verk-
kaupi, hljóðar upp á 99,8 milljónir
króna.
Næstlægsta tilboðið var frá Þ.S.
Verktökum ehf., 79,7 milljónir, og
það þriðja lægsta var frá Héraðs-
verki ehf., 84,6 milljónir króna.
Hæsta tilboð sem barst átti Rósa-
berg ehf., 87,3 milljónir, næsthæsta
tilboðið átti Dal-Björg ehf., 87 millj-
ónir, og þriðja hæsta tilboð átti Myll-
an ehf. en tilboð þeirra hljóðaði upp á
86,9 milljónir króna.
Að sögn Guðjóns Magnússonar,
deildarstjóra framkvæmdadeildar
Vegagerðarinnar á Austurlandi,
gætu framkvæmdir hafist í þessum
mánuði en stefnt er að því að ljúka
við að klæða 4 km vegarhluta á þessu
ári. Verkinu á að vera að fullu lokið 1.
júlí 2002.
Vegaframkvæmdir
á Austurlandi
Sex tilboð
bárust
UNDANFARNA daga hafa verið
síðdegisskúrir á víð og dreif um
sveitina, milt veður og stillt, mikil
gróðrartíð og var tími til kominn. Á
þriðjudag gerði skýfall yfir Náma-
fjall og skolaði það með sér miklu af
leir niður á jafnsléttu þar sem mynd-
uðust stórar tjarnir og landið litaðist
ljósbrúnt af leirnum þegar misstórir
farvegir fylltust galsafullum lækjum
sem ólmuðust í endurnýjun lífdaga.
Skýfall yfir
Námafjall
Mývatnssveit
Morgunblaðið/BFH
MILDI þykir að ekki fór
verr þegar eldur kviknaði í
kjallara íbúðarhúss úr
timbri á bænum Hólum í
Stokkseyrarhreppi að-
faranótt laugardags.
Helgi Ívarsson sjötugur
bóndi á bænum varð elds-
ins var klukkan hálf tvö og
náði að vekja ráðskonu og
vinnumann áður en ólíft
varð inni vegna reyks. Var
að hans sögn hin mesta
raun að opna útidyr sem
eru nálægt eldsupptökum.
Eldurinn kom upp í
kjallara og segir lögregla
eldsupptök rakin til
hleðslutækis sem var í
notkun. Húsið er allt und-
irlagt af sóti en líklegt er
að eldur hafi kafnað að
mestu vegna súrefnis-
skorts. Brestur kom í
kjallararúður þannig að
litlu mátti muna. Hefðu
þær brotnað er víst að súr-
efni hefði streymt inn og
eldurinn magnast.
Helgi náði að hringja í
slökkvilið úr farsíma er út
var komið.Gisti hann á
sjúkrahúsi um nóttina
vegna gruns um reykeitr-
un en fékk að fara heim
um morguninn.
Eldur kom upp í kjallara
Hólar í Stokkseyrarhreppi.
Gaulverjabær
Hólar í Stokkseyrarhreppi