Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 55
ÚTSALAN
HEFST Í DAG kl. 10.00
í eftirtöldum verslunum
í Kringlunni
Allt að 50% afsláttur
s. 533 1740
s. 533 1730
s. 588 0079
Opið til kl. 21.00
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til
Benidorm 13. júlí í vikuferð. Miðað við heimflug þann 20. júlí.
Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú
gistir.
Verð kr. 39.985
Verð á mann miðað við hjón
með 2 börn, 2–11 ára, flug, gist-
ing, skattar,
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
Stökktu til
Benidorm
13. júlí
í viku
frá kr. 36.985
Verðdæmi:
KANNSKI ekki
alveg hljómsveit
árþúsundsins eins
og segir á heima-
síðu hennar en
alla vega er hér
kominn fyrsti
hljómdiskur hins
glannalega
nefnda dúetts
Jóns forseta og
er innihaldið sjö
frumsamin lög,
öll eftir með-
limi.
Jón forseti er
teymi tveggja manna, þeirra Ara
Baldurssonar og Þrastar Harðar-
sonar, og leika þeir dans- og af-
þreyingartónlist að eigin sögn og
gera þ.a.l. út á dansleikjamark-
aðinn. Það er því að vonum for-
vitnilegt er slíkar sveitir leggja á
skáldamiðin.
Fyrsta lagið, „Ég heiti Ingi“
angar lítið eitt af sveitatónum;
settlegt og ljúft dægurlag sem
gæti hæglega hafa runnið undan
rifjum Brimklóar sálugu. Spila-
mennskan er nett og fagmannleg,
textinn glettinn en harla ómerki-
legur þó.
Þriðja lagið, „Við Skagafjörð“ er
gott dæmi um hversu „íslenskur“
diskurinn er – lagið er undir áhrif-
um frá og minnir um leið á flestar
lagasmíðar þeirra söngvasmiða,
sem „þjóðin öll þekkir“. Sérkenna-
laust en virkar þó svo sem ágæt-
lega.
Ég er samt ekki frá því að for-
setinn sé í essinu sínu er hann
slær ljúfsárari tóna. „Drauma-
heimur“ er harmrænt og stórt og
„Öldin er liðin“ sem er tilrauna-
kenndasta smíðin, gerir sig vel og
er alveg prýðisvel sungin af Þresti.
Lokalagið er og afbragð.
Söngurinn er þó án efa veikasti
hlekkur hljómdisksins; veikburða,
eintóna og vélrænn. Fallegt er
a.m.k. ekki orðið sem á við hér.
Textar eru flestir burðarlitlir og
hnoðkenndir, fullir af margtuggð-
um klisjum. Umfjöllunarefni lags-
ins „Bernskuminning“ er þó eft-
irtektarvert, óhugnanlegt og
ægisorglegt.
Spilamennskunni ber þó að
hrósa. Allt í fína á þeim bænum,
hvergi of eða
van og hverri
lagasmíð
fenginn réttur
kostur.
Umslags-
hönnunin
svona rétt
sleppur frá því
að vera stór-
slys. Einfald-
leiki þess er svo
sem lítt ámælis-
verður, en því
miður ráða hall-
ærisheitin einum
of miklu.
Það mætti svo sem setja út á
nafngift teymisins. Kannski í vafa-
samara lagi að dægurdúett, sem
fæst alla jafna við gömlu dansana
og sveitatónlist, nefni sig í höfuðið
á óskabarni Íslands. En er það
nokkuð verra en að gefa hljóm-
sveitinni sinni nafnið Forgarð Hel-
vítis, kalla plötuna sína Drap
mann með skóflu, já og gospel-
sveitina sína Christ Gospel Band?
Má ekki annars allt á þessum van-
helgu tímum?
Dansleikurinn klikkar kannski
ekki með Jóni forseta en hér sigla
menn lygnan sjó; og á stundum er
hann í ósaltara lagi. Engum verð-
ur þó meint af volkinu, hvorki
hlustendum né sveit.
Herra forseti…
TÓNLIST
G e i s l a d i s k u r
Öldin er liðin, geisladiskur Jóns for-
seta, sem er skipaður þeim Ara
Baldurssyni og Þresti Harðarsyni
ásamt vinum þeirra, þeim Bjarna
Helgasyni, Grími Sigurðssyni, Har-
aldi J. Baldurssyni og Kristjáni
Guðmundssyni. Þeir Ari og Þröstur
sjá um söng en njóta aðstoðar For-
setakórsins í tveimur lögum. Lögin
eru eftir Ara og Þröst en textar eft-
ir Ara, Þröst og Pétur Stefánsson.
Útsetningar eru í höndum Ara og
Þrastar. Upptökum stjórnuðu Ari,
Þröstur og Rafn R. Jónsson. 25,37
mín. Japis gefur út.
ÖLDIN ER LIÐIN
Arnar Eggert Thoroddsen