Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Umboðsmenn: Brimborg, Akureyri og Bílasala Austurlands, Egilsstöðum.
Einföld tjöldun, mikið pláss, áfast eldhús og
fortjald auk frábærrar endingar eru eiginleikar
sem gera Camp-let tjaldvagninn einstakan.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
O
G
D
Ý
R
Ð
IN
2 svefnherbergi,
eldhús og stofa
SVALBARÐSÁ í Þistilfirði var
opnuð sunnudaginn 1. júlí og veiddi
hollið sem stóð vaktina sjö laxa og
sá talsvert af fiski víða í ánni, sér-
staklega í henni ofanverðri. Allir
voru laxarnir stórir, átta til tuttugu
punda og það var fimm ára snáði,
Ívar Sigurbjörnsson, sem setti í
þann stóra á maðk í Neðri-Eyr-
arhyl. Ívar var þarna á ferð með
fjölskyldu sinni og þurfti nokkra
aðstoð fullorðinna við að landa lax-
inum, enda lítill stærðarmunur á
þeim félögum.
Páll Sigurjónsson, hótelstjóri á
Hótel KEA fór fyrir veiðihópnum
og sagði hann að skráð væri í veiði-
bókina að Ívar litli hefði fengið „að-
stoð systur, móður og föður“ við að
ná tröllinu, en viðureignin stóð yfir
í um hálftíma. Sú gæfa fylgdi, að
við Neðri-Eyrarhyl er aðstaða
mjög góð, áin breið og bakkar
sléttir. Páll sagði enn fremur að
mjög líflegt hefði verið í ferðinni,
sjö boltafiskar hefðu náðst á land
og nokkrir sloppið. Drýgstur var
Skriðuhylur sem er þriðji efsti hyl-
ur árinnar.
Hölkná byrjaði einnig vel
Hölkná í Þistilfirði var einnig
opnuð á sunnudaginn og þar veidd-
ust strax tveir laxar, 10 og 13
punda, einhverjir tóku og sluppu
og slangur af fiski sást í ánni þrátt
fyrir að hún væri nokkuð lituð um
tíma. Jón Hólm, leigutaki árinnar,
sagði þetta góða byrjun og lofa
góðu.
Hann sagði og veiði hafa farið
hægt af stað í Sandá í Þistilfirði,
hún opnaði 20. júní og veiddi fyrsta
hollið einn lax. Síðan hefur verið
einhver reytingur. Nokkuð af
vænni bleikju, 3-4 punda, hefur
veiðst, meira en menn þekkja síð-
ustu árin. Í opnunarholli Jóns
Hólm veiddust t.d. 12 slíkir fiskar.
Sandá var einnig nokkuð lituð
framan af.
Ýmis tíðindi
Rúmlega 40 laxar hafa veiðst í
Laugardalsá samkvæmt veiði-
mönnum sem þar voru á ferð ný-
verið.
Í Blöndu hafa veiðst rúmlega 200
laxar og á efri svæðin í ánni hafa
verið að gefið laxa síðustu daga.
Mjög góð veiði hefur verið á
stundum í Veiðivötnum, veiðin er
mest í Litlasjó eins og gjarnan er.
Einn mjög mikill bolti, 12 punda,
hefur veiðst, annars er þorrinn
smærri, mest 2 til 4 pund.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Fimm ára
strákur setti
í 20 punda
hæng
Það er lítill stærðarmunur á siguvegaranum og hinum sigraða .
BROTIST var inn í og stolið úr átta
bílum á bílastæði við flugstöðina á
Reykjavíkurflugvelli aðfaranótt mið-
vikudags. Innbrotin uppgötvuðust
ekki fyrr en um morguninn og ekki
hefur náðst til þjófanna. Meðal ann-
ars var útvörpum og geislaspilurum
stolið.
Þá var brotist inn í bíl í Hjálmholti
sömu nótt og stolið tösku með golf-
kylfum og fleiru að verðmæti um
20.000 krónur.
Brotist inn í átta bíla við
Reykjavíkurflugvöll
JIM Goddard er þrítugur breskur
endurskoðandi og stýrir seglbáti
sem er hingað er kominn frá South-
ampton á Englandi. Aðrir í áhöfn
eru af ýmsu þjóðerni, einn er Ástr-
ali, tveir frá S-Afríku og einn frá
Zimbabwe. Seglbátur þeirra kom
til hafnar í Reykjavík að morgni
þriðjudags eftir 11 daga siglingu en
hvergi var stoppað á leiðinni. Skút-
an er ein sex skúta sem hafa verið í
höfninni síðustu daga og eru þær
frá Finnlandi, Bretlandi og Banda-
ríkjunum svo dæmi séu tekin.
Áhöfnin lét vel af sér og slappaði af
eftir rólegan dag í Reykjavík þar
sem meðal annars var komið við í
heitum pottum sundlauganna.
„Við lögðum af stað 23. júní frá
Southampton og því var ánægju-
legt að ná landi í Reykjavík, að sjá
Ísland birtast út úr þokunni var
frábært,“ segir Jim.
„Með ferð okkar hingað erum við
að safna fjármunum fyrir kristileg
góðgerðarsamtök er kallast Com-
passion og safna fé handa fátækum
börnum um heim allan og aðstoða
fólk á Vesturlöndum við að gerast
fósturforeldrar barna í þriðja heim-
inum. Ég á til dæmis fósturson í
Bólivíu sem ég styð fjárhagslega og
við höldum sambandi hvor við ann-
an,“ segir Jim.
„Svona ferð er auðvitað kostnað-
arsöm og fundum við styrktaraðila
til að fjármagna ferðina hingað,
Helly Hansen og fleiri fyrirtæki
styrktu okkur til að leigja skútuna
og greiða fyrir ferðina, en allt fé
sem okkur tekst að safna fyrir utan
það rennur til Compassion samtak-
anna.“
Jim segir markmiðið að safna
10.000 pundum til málefnisins og
fjölga fósturforeldrum barna í
þriðja heiminum um 50 í Bretlandi.
Siglt, hjólað og klifrað
Jim og félagar hans kalla sig
Team No Limit og á síðasta ári tók
liðið þátt í seglbátakeppni í Bret-
landi. „Þá sigldum við 400 mílur og
komum svo að höfn þar sem við tók
keppni sem fólst í að hlaupa upp á
fjallstind og aftur niður, þrisvar
sinnum. Í ár langaði okkur að gera
eitthvað svipað sem væri þó stærra
í sniðum. Því ákváðum við að leigja
seglbát og sigla honum til Íslands
og hjóla svo frá Reykjavík til
Skaftafells, en sú ferð mun taka
þrjá daga. Á laugardag hyggjumst
við svo ganga á Hvannadalshnjúk.
Þetta mun eflaust reyna á þrek
okkar, en við erum mest að þessu til
gamans og til að safna peningum
fyrir Compassion samtökin,“ segir
Jim.
Aðspurður um hvernig sé að vera
á sjó svona lengi án þess að koma
að landi segir Jim að ferðin hafi í
alla staði gengið vel. „Ég hef oft
siglt áður en hluti áhafnarinnar
hafði hins vegar enga siglinga-
reynslu og því fann ég til mikillar
ábyrgðar sem fyrirliði á leiðinni. Í
svona ferð reynir mikið á mannleg
samskipti og mikilvægt er að fólki
komi vel saman þegar það býr jafn
þétt og raun ber vitni í svona bát-
um. Vinátta milli okkar hefur verið
mjög góð og veðrið leikið við okkur
allan tímann,“ segir Jim að lokum.
Vilho Leipälä er finnskur sæfari
sem hingað er kominn ásamt tveim-
ur ferðafélögum frá Rauma í Finn-
landi. Þau hafa verið á siglingu í um
mánaðartíma og er ferðin rétt
hálfnuð. Að sögn Vilho er þetta í
fyrsta skipti sem þau koma til Ís-
lands. Ferðalangarnir hafa komið
víða við á leið sinni frá Rauma,
meðal annars á Ölandi í Svíþjóð,
Borgundarhólmi, Kaupmannahöfn,
Skagen, Akersundi, Stavangri,
Haugasundi, Hjaltlandseyjum og
Færeyjum.
„Við komum svo að landi á Seyð-
isfirði og höfum siglt umhverfis Ís-
land síðan þá og staldrað við á Ak-
ureyri og fleiri stöðum,“ segir
Vilho.
Tæknilegir örðugleikar
Vilho segir hafa verið mjög
skemmtilegt að sigla svo langa leið.
„Við höfum reyndar átt í dálitlum
tæknilegum örðugleikum með bát-
inn sem tekist hefur að leysa, en
veðrið hefur verið gott allan tímann
og höfum við verið sérlega heppin
með veður á Íslandi,“ segir Vilho.
Að hans sögn ætlar hópurinn að
staldra við í Reykjavík í nokkra
daga og þá verður stefnan tekin á
Vestmannaeyjar. Þá verður bátn-
um siglt til Skotlands og svo haldið
aftur í átt til Finnlands.
Vilho segir að þetta sé í fyrsta
skipti sem þau sigla til Íslands, en
hann hafi áður siglt frá Finnlandi
til Miðjarðarhafsins. „Ég hef því
ágæta reynslu af siglingum þó ég
hafi ekki kynnst því að sigla á
Norður-Atlantshafi fyrr en nú.“
Óvenju margir seglbátar við festar í Reykjavíkurhöfn í vikunni
Gaman að
sigla í góðra
vina hópi
Sex skútur lágu í vikunni við festar í
Reykjavíkurhöfn og komu víða að.
Óvenjulegt er að svo margar skútur séu
hér í einu, en nokkrir tugir seglbáta koma
til Reykjavíkur á sumri hverju. Elva
Björk Sverrisdóttir hitti tvo sæfaranna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hér sjást sæfararnir Vilho Leipälä og Jim Goddard við seglbátana
sem lágu við festar í Reykjavíkurhöfn á þriðjudagskvöld.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hér má sjá nokkra seglbáta
sem lágu við festar í Reykja-
víkurhöfn á þriðjudagskvöldið.
STOFNAÐUR hefur verið fyrsti
söngskólinn í Færeyjum, sem
verður fyrst um sinn rekinn sem
útibú frá Söngskólanum í Reykja-
vík.
Inntökupróf í skólann fóru fram
í síðustu viku og stóðust allir um-
sækjendurnir, 40 talsins, prófið.
Kennsla hefst 21. september og
munu þá fjórir kennarar frá Söng-
skólanum í Reykjavík fara til Fær-
eyja og kenna á fyrsta námskeið-
inu af mörgum, en öll kennslan
verður á námskeiðsformi næstu
þrjú til fimm árin, eða þar til Fær-
eyingar taka sjálfir við skólanum.
Að sögn Garðars Cortes, skóla-
stjóra Söngskólans í Reykjavík,
verða haldin 4 til 5 námskeið á
hverju námsári en hvert þeirra
verður 7 til 10 daga langt. Minnst
tveir kennarar frá Söngskólanum í
Reykjavík kenna á hverju nám-
skeiði. Kennt verður í höfuðstað
Færeyja, Þórshöfn, og verður
kennslunni háttað eins og í Söng-
skólanum í Reykjavík, nema í sam-
þjappaðra formi. Með stofnun úti-
búsins í Færeyjum verður
nemendum gert kleift að ljúka
burtfararprófi eins og í Söngskól-
anum í Reykjavík.
Hvað rekstrarhlið skólans snert-
ir hefur færeyska landstjórnin
samþykkt að gera samning við
Söngskólann í Reykjavík þar sem
kveðið er á um greiðslu fyrir
vinnuframlag kennara. Því mun
útibúið í Færeyjum verða rekstr-
arlega aðskilið frá Söngskólanum í
Reykjavík.
Garðar segir að í inntökupróf-
unum hafi prófdómurum þótt eft-
irtektarvert hversu hreinar raddir
nemendur höfðu og hversu nótna-
lestur af blaði hafi reynst þeim
auðveldur. Líkleg skýring á því
væri hin sterka kórahefð í Fær-
eyjum.
Söngskólinn í Reykja-
vík færir út kvíarnar
Fyrsti
söngskól-
inn stofn-
aður í
Færeyjum