Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 11
Útsalan er hafin
K r i n g l u n n i - S í m i 5 8 8 8 0 8 0
30-40%
afsláttur
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra sagði á ársfundi
Byggðastofnunar á Selfossi á
þriðjudag að margt hefði tekist
ágætlega við framkvæmd núgild-
andi byggðaáætlunar en ef viðun-
andi árangur ætti að nást í byggða-
stefnu á Íslandi þyrfti að gera mun
betur.
„Í núgildandi byggðaáætlun er
að ýmsu leyti að finna skýrari
stefnumörkun en áður hefur tíð-
kast í þessum málaflokki hér á
landi. Þar er að finna nokkuð skýr-
ar tillögur um aðgerðir sem skipt
er í fjóra flokka.
Í fyrsta lagi aðgerðir sem stuðla
eiga að nýsköpun í atvinnulífinu, í
öðru lagi eru aðgerðir á sviði
menntunar og menningar, í þriðja
lagi aðgerðir til jöfnunar lífskjara
og bættra samkeppnisstöðu og loks
aðgerðir um bætta umgengni við
landið.
Af skýrslu Byggðastofnunar um
framkvæmd gildandi byggðaáætl-
unar er ljóst að framkvæmd henn-
ar hefur í ýmsum liðum tekist vel.
Má þar til dæmis nefna uppbygg-
ingu fjarkennslu- og símenntunar-
stöðva og aukna jöfnun náms- og
húshitunarkostnaðar. Auk þessa
hefur umtalsverðum fjárhæðum
verið varið til eignarhaldsfélaga og
atvinnuþróunarfélögin hafa einnig
fengið aukið fjármagn. Þrátt fyrir
þennan og annan árangur sem
náðst hefur við framkvæmd gild-
andi byggðaáætlunar er ljóst að
mun betur þarf að gera eigi að nást
viðunandi árangur við framkvæmd
byggðastefnu á Íslandi,“ sagði Val-
gerður.
Framtíð byggðarlaga mótast
af menntunarmöguleikum
Hún minnti á þá vinnu sem
kynnt var sl. vor við mótun nýrrar
byggðaáætlunar sem á að gilda ár-
in 2002–2006. Markaðist sú vinna
af öðrum vinnubrögðum en áður
hefðu þekkst við slíka stefnumótun
hér á landi. Verkefnisstjórnin, sem
er undir forsæti Páls Skúlasonar
háskólarektors, á að skila tillögum
til Valgerðar um stefnumörkun
nýrrar byggðaáætlunar. Þrír
vinnuhópar eiga síðan að fjalla um
atvinnumál, alþjóðasamvinnu og
fjarskipta- og upplýsingatækni.
„Sú leið sem nú er valin við mót-
un byggðaáætlunar felur í sér nýja
hugsun. Sú hugsun byggist á því að
kalla til samstarfs fólk úr atvinnu-
lífinu og menningarlífi víðs vegar
um land, auk sérfræðinga í
byggðamálum og á fleiri sviðum.
Það hefur komið æ betur í ljós á
undanförnum árum að byggðamál
eru margþætt og nauðsynlegt er að
nálgast þau úr mörgum og ólíkum
áttum. Því er nauðsynlegt að fá
fólk með ólíka þekkingu og reynslu
til að samræma hugmyndir sínar
og krafta í þeim tilgangi að skapa
sem árangursríkastar lausnir,“
sagði Valgerður.
Til að koma í veg fyrir ójafnvægi
í búsetuskilyrðum milli lands-
byggðarinnar og höfuðborgar-
svæðisins nefndi Valgerður
menntamálin sérstaklega. Leita
þyrfti allra leiða til að efla aðgang
landsbyggðarfólks að menntun,
hvort sem það væri framhalds-
skólamenntun, verkmenntun, há-
skólamenntun eða símenntun.
Framtíð byggðarlaga myndi í sí-
vaxandi mæli ráðast af þeim
menntunarmöguleikum sem þau
gætu boðið börnum og fullorðnum.
Hún sagði menntað fólk þann þjóð-
félagshóp sem drífa myndi áfram
nýsköpun í atvinnulífinu og öðrum
sviðum samfélagsins í byrjun 21.
aldar.
Valgerður Sverrisdóttir á ársfundi Byggðastofnunar um byggðaáætlun
Betur má
gera ef viðun-
andi árangur
á að nást
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti ávarp á
ársfundi Byggðastofnunar á Selfossi.
BREYTINGAR urðu á stjórn
Byggðastofnunar, sem kom
saman fyrir ársfund stofnunar-
innar á Selfossi á þriðjudag.
Einar K. Guðfinnsson gaf ekki
kost á sér og í hans stað kemur
Drífa Hjartardóttir, þingmaður
á Suðurlandi. Þá er Gunnlaugur
Stefánsson kominn inn í stjórn-
ina að nýju eftir leyfi frá því í
haust en á meðan gegndi vara-
maður hans, Anna Kristín
Gunnarsdóttir, stjórnarstörfum.
Fyrr á árinu kom Örlygur Hnef-
ill Jónsson inn í stjórnina í stað
Karls V. Matthíassonar sem
sagði af sér er hann tók sæti á
Alþingi.
Áfram í stjórn Byggðastofn-
unar, sem skipuð er til eins árs í
senn, eru Kristinn H. Gunnars-
son, formaður, Arnbjörg Sveins-
dóttir, Guðjón Guðmundsson og
Orri Hlöðversson. Varamenn í
stjórn eru Elísabet Benedikts-
dóttir, Kristján Pálsson, Tómas
Ingi Olrich, Anna Kristín Gunn-
arsdóttir, Svanhildur Arnar-
dóttir, Þorgerður Jóhannsdóttir
og Ólafía Ingólfsdóttir.
Aðspurður um ástæðu þess að
hafa ekki gefið kost á sér áfram í
stjórn sagði Einar K. Guðfinns-
son við Morgunblaðið að tími
hefði verið kominn til að breyta
til eftir sex ára stjórnarsetu og
hleypa nýju fólki að. Einar sagði
setu í annarri stjórn ríkisstofn-
unar ekki taka við.
Breyting-
ar á stjórn
Byggða-
stofnunar