Morgunblaðið - 05.07.2001, Page 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ný 6 manna fullbúin bandarísk fellihýsi á 12“ hjólbörðum
Aðeins kr.
Opnunartími
Virka daga frá kl. 10 - 18
Laugardaga frá kl. 10 - 14
Tökum pantanir núna.
Takmarkað magn á þessu verði.
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 544 4210/565 6241
Fax 544 4211
Innifalið í verði:
Gluggatjöld
Kælibox
Gaseldavél
Gaskútur
Trappa
48 lítra vatnstankur
Gasviðvörunarkerfi
Rafgeymabox
Útiljós
Varadekk með festingu
og hlíf (cover)
50 mm kúlutengi
Öflugir stigalausir stál-
tjakkar á hverju horni (4)
Rafleiðslur í kapalhólkum
Sleðar á hjólum á
útdregnum rúmum
Franskur rennilás vindver
rúmstæði
Krossviður í rúmbotnum
E-coat ryðvörn á undir-
vagni, vatnsvarinn botn
Aðgengi í kæli þó
húsið sé lokað/fellt
o.m.fl.
Sólarrafhlaða á fellihýsið, það er lausnin.
Verðbylting á 50w sólarrafhlöðum aðeins kr. 46.500 með stjórnstöð.
Lúxus fortjöld með gluggatjöldum og ál súlum aðeins kr. 89.000.
Svefntjöld kr. 9.900 stk.
Sértilboð á pakka: Fellihýsi, fortjald, 2 svefntjöld, 50w sólarrafhlaða með
stjórnstöð, rafgeymir, gasfylling og skráning kr. 699.000.
HREINLÆTISVÖRUDEILD
Sjafnar hf. á Akureyri, Sámur hf. í
Kópavogi og Mjöll ehf. í Reykjavík
hafa sameinast í eitt fyrirtæki
undir nafni og merkjum Mjallar.
Samruninn tók gildi 1. júlí síðast-
liðinn.
Fyrirtækin eru öll rótgróin á
hreinlætisvörumarkaði og eiga sér
langa sögu. Sjöfn er þeirra elst,
stofnað árið 1932, Mjöll árið 1942
og Sámur árið 1964. Sjöfn á meiri-
hluta í hinu nýja fyrirtæki, 60%,
Ásbjörn Einarsson, aðaleigandi
Mjallar, á 30% og Sámur 10%.
165 ára reynsla
Yfirstjórn félagsins verður á Ak-
ureyri og mun Baldur Guðnason
framkvæmdastjóri Sjafnar verða
framkvæmdastjóri hins nýja
félags.
„Þetta er stór dagur í íslenskum
iðnaði, nú þegar við sameinum
þessi þrjú fyrirtæki í sápu- og
hreinlætisiðnaði í eitt,“ sagði Bald-
ur, en hann lét þess getið að sam-
eiginleg reynsla fyrirtækjanna
næði yfir 165 ár.
Mjöll mun verða með starfs-
stöðvar á Akureyri og í Reykjavík
og starfsfólk verður á bilinu 20 til
30 talsins. Syðra verður fram-
leiðsla á ákveðnum vörutegundum,
átöppun, lager, dreifing, auk sölu-
og markaðssetningar á höfuðborg-
arsvæðinu, Reykjanesi, Suður- og
Vesturlandi. Á Akureyri verður,
auk yfirstjórnar, fjármálastjórn,
vöruþróun, framleiðsla á stórum
hluta framleiðslunnar, innkaup,
lager, sala og markaðssetning á
vörum fyrirtækisins á Norður-
landi, Austurlandi og Vestfjörðum.
Aukin umsvif munu skapast hjá
Sjöfn á Akureyri vegna samrun-
ans.
Baldur sagði
að fyrirtækin
hefðu ekki verið
þvinguð til sam-
einingar, heldur
hefðu forsvars-
menn þeirra
svipaða framtíð-
arsýn og menn
hefðu séð sér
hag í því að
vinna saman.
Markmiðið með
sameiningunni
væri að auka
samkeppnis-
hæfni og stuðla
að hagræðingu.
Þá hefði félagið
meiri möguleika til vaxtar á innan-
landsmarkaði auk þess sem ætl-
unin væri að leita eftir nýjum
tækifærum til útflutnings.
Gert er ráð fyrir að velta Mjall-
ar verði um 300 milljónir króna á
þessu ári og framleiðslan verði 4-5
milljónir lítra af hreinlætisvörum.
Burðir til að sækja
inn á markaði erlendis
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra, sem viðstödd var und-
irritun samnings um samruna fyr-
irtækjanna, sagði að fyrirtækin
þrjú hefðu með sameiningu skapað
sér samkeppnishæfa einingu og
hún sæi fyrir sér að þau hefðu
burði til að sækja inn á erlenda
markaði.
Íslenskur sjávarútvegur væri
þekktur víða um heim og fyrir
hendi ættu að vera sóknarfæri fyr-
ir hreinlætisvörur sem honum
tengdust. „Það tækifæri er sjálf-
sagt að nýta,“ sagði Valgerður.
Sameining þriggja fyrirtækja í hreinlætisiðnaði var staðfest með undirskrift á Akureyri. Fremri röð frá vinstri:
Einar Sæmundsson stofnandi Mjallar, Baldur Guðnason fyrir Sjöfn, iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir,
Dr. Ásbjörn Einarsson fyrir Mjöll, Grétar E. Ingvason fyrir Sám og að baki standa bræðurnir Brynjólfur og
Ágúst Grétarssynir, Sámi.
Gamlir samkeppnisaðilar, Einar Sæmundsson
stofnandi Mjallar og Aðalsteinn Jónsson fyrrver-
andi forstjóri Sjafnar ræða málin að lokinni undir-
skrift samnings um samruna fyrirtækjanna.
Sjöfn, Mjöll og Sámur
hafa verið sameinuð
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Breytingar á rekstri fyrirtækja á hreinlætisvörumarkaði
FYRSTA skóflustunga að nýju
félagsheimili Náttúrulækninga-
félags Akureyrar hefur verið tekin
og þess skammt að bíða að fram-
kvæmdir hefjist af fullum krafti.
Áslaug Kristjánsdóttir frá Hrísey
tók fyrstu skóflustungu hins nýja
félagsheimilis, en það mun rísa á
lóð sem félagið á skammt norðan
Kjarnalundar í Kjarnaskógi.
Félagið reisti Kjarnalund á sín-
um tíma en Akureyrarbær hefur
húsið á leigu til ársins 2004. Félag-
ið hefur ekki haft aðstöðu fyrir
starfsemi sína frá því húsið var
leigt bænum fyrir nokkrum árum
en þar er rekið dvalarheimili fyrir
aldraða.
Það er félagsmönnum því mikið
kappsmál að bæta úr brýnni þörf
og koma sér upp aðstöðu fyrir
félagsstarfið.
Náttúrulækningafélag Akureyrar
Félagsheimili reist
í Kjarnaskógi
GANGA yfir Hjaltadalsheiði heim að
Hólum hefur verið skipulögð í tilefni
af Íslenska safnadeginum sem er á
sunnudag, 8. júlí. Minjasafnið á Ak-
ureyri hefur skipulagt þessa göngu í
samvinnu við Ferðafélagið Hörg og
Prestafélag Hólastiftis hins forna.
Farið verður með rútu frá Minja-
safninu á Akureyri, Aðalstræti 58,
kl. átta að morgni sunnudagsins.
Tekið verður á móti hópnum á Bæg-
isá og í Myrkárkirkjugarði. Síðan
verður gengið fram Hörgárdal yfir
Hjaltadalsheiði að Reykjum í Hjalta-
dal en ekið þaðan að Hólum þar sem
hægt verður að fá kvöldverð og
bregða sér í sund. Áður en lagt verð-
ur af stað aftur til Akureyrar verður
helgistund í Hóladómkirkju.
Upplýsingar eru veittar á Minja-
safninu á Akureyri og þar er einnig
hægt að skrá sig í ferðina.
Leiðsögurmaðurinn, Bjarni Guð-
leifsson, er þaulkunnugur staðhátt-
um á Tröllaskaga.
Pílagríms-
ganga að
Hólum
STEFÁN Ingólfsson kallar vaska
djassara með sér til leiks á Tuborg-
djassi, heitum fimmtudegi í kvöld,
fimmtudagskvöldið 5. júlí, í Deigl-
unni.
Kapparnir sem um ræðir eru:
Kjartan Valdimarsson á píanó, Ómar
Einarsson á gítar og Benedikt Bryn-
leifsson á trommur. Kvartettinn
STING verður í sviðsljósinu með lög
frá ýmsum löndum og tímum.
Djass í
Deiglunni
♦ ♦ ♦