Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 20
NEYTENDUR
20 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í EVRÓPSKRI könnun sem hol-
lensku neytendasamtökin fram-
kvæmdu kom fram að af tíu barnabíl-
stólum sem ætlaðir eru börnum
undir 13 kg, fá aðeins fimm mið-
lungseinkunn, eða 3 af 5 mögulegum,
og fást tveir þeirra hér á landi, Bebe
Confort Elios og Britax Rock-a-tot
Deluxe. Hinir fengu lægri einkunn.
Aðrir barnabílstólar í könnuninni
sem fást hér eru Britax Rock-a-tot,
Maxi Cosi Mico, HTS BeSafe Kid,
Bebe Confort Iseos, Maxi Cosi,
Priori og Maxi Cosi Rodi og fá þeir
allir einkunnina 2.
Allir stólarnir í könnunni eru við-
urkenndir samkvæmt núgildandi
evrópskum öryggisreglum, ECE
4403, en á heimasíðu norsku neyt-
endasamtakanna www.forbrukerra-
det.no kemur fram að í könnuninni
voru notaðar strangari prófunarað-
ferðir en evrópsku reglurnar segja til
um.
Meira álag í slysum
en hefðbundnum prófunum
Aðstandendur könnunarinnar
gagnrýna evrópskar prófunarreglur
fyrir að vera ekki nógu strangar og
segja þær ekki tryggja öryggi barna
í umferðinni. Áralöng reynsla sýni að
álagið á barnabílstóla í umferðarslys-
um sé mun meira en í prófunum, í
þeim sé m.a. ekki tekið tillit til
öryggis sem bílstólar eiga að veita í
hliðarárekstrum en mjög mismun-
andi sé hvort góð bólstrun sé í hliðum
stólanna. Fram kemur að verið sé að
endurskoða evrópsku reglurnar og
að hliðarprófanir verði teknar upp.
Barn best varið snúi það baki
í akstursstefnu
„Núgildandi lágmarkskröfur um
prófanir mættu vissulega vera
strangari en ég bendi á að hér er um
að ræða stóla sem standast þær kröf-
ur sem gerðar eru samkvæmt evr-
ópskum reglum,“ segir Margrét Sæ-
mundsdóttir hjá Umferðarráði.
„Þess ber þó að geta að hér á landi er
hægt að fá leigða barnabílstóla sem
eru sérstaklega hannaðir til að þola
hliðarárekstra og bílveltu.“ Hún seg-
ir að á meðan bílaframleiðendur
keppist við að finna upp nýjan
öryggisbúnað til þess að auka öryggi
fullorðinna farþega í bílum gleymi
þeir börnunum og nefnir sem dæmi
öryggispúða sem vernda fullorðna í
bílbeltum vel í árekstrum en eru lífs-
hættulegir börnum undir 140 sm.
„Börn mega ekki sitja í sætum þar
sem öryggispúðar eru og er þar með
búið að útiloka möguleikann á að
barn geti verið í framsæti í bakvís-
andi bílstól. Auðvelt er að hafa ung-
barnabílstóla í aftursæti en stærri
gerðina af bakvísandi stólum er mun
auðveldara að hafa í framsæti. Þetta
er slæmt því barnið er best varið snúi
það baki í aksturstefnu en bakvísandi
bílstólar eru allt of lítið notaðir hér á
landi.“
Hún segir að þrátt fyrir að að-
standendur könnunarinnar gagnrýni
hönnun barnabílstóla þá skuli skýrt
tekið fram við foreldra að börn séu
auðvitað betur varin í barnabílstól,
þó að hann sé lélegur, en að vera laus.
„Börn mega ekki undir nokkrum
kringumstæðum vera laus í bíl enda
eiga börn undir 6 ára aldri að nota
sérstakan öryggisbúnað í bíl sam-
kvæmt umferðarlögum hér á landi.“
Í könnuninni kemur fram að
barnabílstólar passi ekki eins vel í
alla bíla, þannig fái þeir jákvæða um-
sögn í einum bíl en neikvæða í öðrum.
„Reynsla okkar hjá Umferðarráði er
að bráðnauðsynlegt sé að fólk máti
stólinn í bílinn áður en hann er keypt-
ur. Þá viljum við vara við því að not-
aðir bílstólar séu keyptir þar sem
kaupandi veit ekkert um sögu hans,“
segir Margrét.
Evrópsk rannsókn á öryggi barnabílstóla
75% bílstóla stóð-
ust ekki væntingar
Þrír af hverjum fjórum barnabílstólum eru
ekki nægilega öruggir ef bíll lendir í hörð-
um árekstri samkvæmt niðurstöðum evr-
ópskrar könnunar á öryggi barnabílstóla.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Aðstandendur könnunarinnar
segja evrópskar reglur um ör-
yggi barnabílstóla ekki nógu
strangar. Bílstóllinn á myndinni
tengist ekki efni greinarinnar.
Hversu góðar eru forfallatrygging-
ar sem kortafyrirtækin bjóða upp
á? Hvað með eigin áhættu og hversu
há er tryggingaruppæðin?
Forfallatryggingar er hægt að
kaupa þegar ferð er keypt á ferða-
skrifstofu. Ef að minnsta kosti helm-
ingur ferðarinnar er greiddur með
greiðslukorti fylgja forfallatrygging-
ar yfirleitt með. Þá er rétt að muna
að ef til tjóns kemur, ef ferðin er af
einhverjum orsökum ekki farin, fæst
ekki endilega fullt verð farseðlanna
endurgreitt.
Fyrst kemur til eigináhætta. Sig-
mar Scheving tryggingaráðgjafi
Tryggingarmiðstöðvarinnar sem er
tryggingaraðili Europay og VISA
segir eigináhættuna vera 8.000 kr. af
hverjum farseðli. „Þetta var alltaf
miðað við 100 dollara en í dag er
þetta orðin föst upphæð, 8.000 kr.“
Forfallatryggingar með greiðslu-
kortum eru einnig með ákveðinni há-
marksupphæð. Á ferðakortum
beggja kortafyrirtækja er hámarks-
upphæðin 60.000 kr. að sögn Sig-
mars. Á Gullkortum er hún 80.000
kr. og getur verið hærri á Platínum-
kortum og fyrirtækjakortum. Frá
þessari upphæð dregst svo eigin-
áhættan.
Ef kostnaðurinn við hvern farmiða
er hærri en hámarksupphæð sem
greiðslukortin tryggja er rétt að
kaupa sérstaklega forfallatryggingu
fyrir afganginum af upphæðinni að
sögn Sigmars: „Fólk getur tryggt
mismuninn, flestar ferðaskrifstofur
sjá um það fyrir fólk. Einnig er hægt
að gera þetta beint í gegnum trygg-
ingafélögin en það verður að gera
sama dag og farseðillinn er greiddur.
Þá er engin eigináhætta af afgangi
upphæðarinnar, einungis 8.000 kr.
sem er alltaf á kortatryggingunum.“
Kostnaðurinn við þessa auka-
tryggingu er sá sami hjá öllum
tryggingafélögunum, 3,5% af verð-
mæti þess sem tryggt er.
Spurt og svarað
um neytendamál
Verð
frá kr. 30.875,-stgr.
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is