Morgunblaðið - 05.07.2001, Qupperneq 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„VIÐ rannsókn kom í ljós að George
er illa gefinn, flogaveikur og með
heilaskaða, svo hann á erfitt með að
skipuleggja hlutina. Það vakna því
óneitanlega spurningar um hvort
hann sé fær um að skipuleggja morð
sem virðist framið á jafn fagmann-
legan hátt og raun ber vitni,“ segir
Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur
við Institue of Psychiatry í samtali
við Morgunblaðið. Gísli hefur verið
viðriðinn rannsókn á morðinu á sjón-
varpskonunni Jill Dando, en dæmt
var í málinu fyrir helgi.
„Ég hef unnið í fimmtán ár í
tengslum við glæpi og ég veit því
betur en flestir aðrir hvað þetta er
óvenjulegt,“ sagði Nick Ross, dag-
skrárgerðarmaður við BBC-sjón-
varpsstöðina, í samtali við Guardian
26. apríl 1999, sama dag og sam-
starfskona hans Jill Dando fannst
myrt á tröppunum heima hjá sér í
Fulham, rólegu hverfi skammt frá
miðborg London. Tíðni morða í
London er lág og morð því enn
fréttaefni, ekki síst þegar í hlut á víð-
fræg sjónvarpskona.
Þau Ross og Dando sáu um vin-
sælan þátt, Crimewatch, þar sem
tekin eru fyrir óupplýst glæpamál og
fólk hvatt til að hafa samband við
lögregluna ef það býr yfir hugsan-
legri vitneskju. Auk þess sá Dando
um aðra þætti.
Ímynd hennar var eins og stelp-
unnar í næsta húsi, hress og jákvæð,
en þegar hún dó bárust kveðjur frá
Elísabetu Bretadrottningu, Tony
Blair forsætisráðherra, William
Hague, þáverandi leiðtoga Íhalds-
flokksins og fleiri stjórnmálamönn-
um. Athygli fjölmiðlanna á morðinu
endurspeglar áhuga á frægu fólki, en
líka hvað fjölmiðlarnir eru uppteknir
af sér og sínum.
Eftir ótal getgátur, jafnvel um
serbneskt samsæri, því Dando hafði
tjáð sig um ástandið á Balkanskaga,
var náungi að nafni Barry Michael
George handtekinn þrettán mánuð-
um eftir morðið. George kallar sig
reyndar Barry Balustra, sem er nafn
látna poppsöngvarans Freddie
Mercury úr Queen.
Nafnaskiptin endurspegla sjúk-
legan áhuga George á frægu fólki.
Eftir 31 tíma bollaleggingar yfir
fimm daga úrskurðuðu tíu meðlimir
kviðdómsins að hann væri sekur,
einn var á móti. Dómurinn var lífs-
tíðarfangelsi, en málinu hefur verið
áfrýjað.
Í kjölfar dómsins var skýrt frá því
að George átti að baki feril ofbeldis
gagnvart kvenfólki. En hann hefur
þó ekki brotið af sér síðan 1983, sem
ekki er ljóst af fréttaflutningnum.
Ekkert af þessu var upplýst áður til
að hafa ekki áhrif á kviðdóminn. En
bæði fjölskylda Georges og verjandi
halda því fram að hér hafi verið
framið réttarmorð á manni, sem ekki
geti varið sig sjálfur. George hefur
ekki borið vitni fyrir dómi og ekki
annað en staðfest nafn sitt. Þá vakn-
ar líka spurningin hvort meiri þrýst-
ingur sé á lögregluna að finna ein-
hvern af því málið vakti ofurathygli.
Óheilbrigður áhugi á vopnum
og frægu fólki
Dando var ekki laus við áhuga
ókunnugra, sem elta frægt fólk á
röndum, ýmist í eigin persónu eða
með því að skrifa og hringja. Þeir
kallast „stalker“ á ensku. Eftir árs-
rannsókn hafði lögreglan fundið 140
manns, sem höfðu „óheilbrigðan
áhuga eða áráttu“ tengda henni og
George var í þeim hópi. Heima hjá
honum fann lögreglan blöð með and-
liti Dando á forsíðunni ásamt fullt af
öðru efni um frægt fólk. En hann
hafði einnig annað áhugamál, skot-
vopn. Og svo vildi til að hann bjó
skammt frá Dando.
Morð með yfirbragði aftöku
Það var undir hádegi á mánudegi
að Dando var að koma heim úr helg-
ardvöl hjá kærastanum. Þegar farið
var að kortleggja leiðir hennar þenn-
an morgun kom í ljós að hún var á
myndbandi í búð í nágrenninu. Ekk-
ert benti til að hún hafi verið elt.
Einn nágranni Dando heyrði hróp,
en sinnti því ekki frekar.
Nágrannakona Dando sá bílinn
hennar, nettan BMW sportbíl og
datt í hug að líta við hjá henni. Hún
kom að Dando nýlátinni, þar sem
hún lá í blóði sínu á
dyraþrepinu, skotin
til bana. Allt bendir
til að Dando hafi
kropið niður, morð-
inginn beint byssu-
hlaupinu að gagn-
auga hennar og
skotið þessu eina
banaskoti. En
spurningin er hvort
þetta var svo þræl-
skipulagt að enginn
sást koma eða fara –
eða hvort það var til-
viljun.
Fréttaflutningur-
inn var yfirþyrm-
andi. Fremst í flokki
var BBC, enda
Dando þeirra mað-
ur. Blöð sem taka sig alvarlega, eins
og Times, Guardian og Daily Tele-
graph fjölluðu um morðið á fjórum
síðum daginn eftir og síðdegisblaðið
Sun teygði umfjöllun sína yfir sautj-
án blaðsíður, meðan Daily Mail lét
sér nægja ellefu síður. Jafnvel Fin-
ancial Times birti andlátsfréttina á
forsíðu.
Umfangið minnti helst á andlát
annarrar ljóshærðrar stúlku, sem dó
á besta aldri, Díönu prinsessu og
Dando var líkt við hana. Sjónvarps-
áhorfendur létu sig heldur ekki
vanta við kvöldfréttirnar á morðdag-
inn, en ellefu milljónir horfðu á þær,
og er það met. Það fylgdust 10,4
milljónir Breta með fréttunum dag-
inn sem Díana prinsessa dó.
Ofuráhersla á að upplýsa málið
Athyglin hélt áfram, vangavelt-
urnar voru ófáar og ýmsar samsær-
iskenningar uppi. Lögreglan var
undir miklum þrýstingi. Tveir
Crimewatch þættir voru helgaðir
Dando-rannsókninni. Sumir tautuðu
eitthvað um hvort 45 lögreglumenn
og tvær milljónir punda væru lagðar
í venjulega morðrannsókn. Rætt var
við þrjú þúsund manns, teknir niður
þúsund vitnisburðir, farið í gegnum
fjögur þúsund bréf og 13.700 tölvu-
skeyti er bárust eftir morðið.
Lögreglan fór fljótlega að tala um
að líklegast væri morðinginn einfari.
Eftir þrettán mánuði var George
handtekinn, sonur lögreglumanns og
upp á félagslega kerfið kominn.
Dómsmálinu hefur verið fylgt ná-
kvæmlega í fjölmiðlum og helstu
fjölmiðlarnir haft fasta fréttamenn í
réttinum. Við réttarhöldin kom fram
að hvorki liggur fyrir játning, morð-
vopn né ástæða. Hann hegðaði sér
undarlega eftir morðið, bauðst til að
hjálpa lögreglunni við að upplýsa
málið því hann hefði verið á staðnum
og heyrðist tauta eitthvað um sekt
sína. Vitni sáu mann, líkan George
nálægt morðstaðnum og eitt vitni
bar kennsl á hann. Tromp lögregl-
unnar er ein ögn, ósýnileg berum
augum, af sömu kúlu og grandaði
Dando, sem fannst í vasa George.
Mörgum spurningum ósvarað
Gísli Guðjónsson var fenginn til að
rannsaka George fljótlega eftir að
hann var handtekinn í febrúar. Gísla
grunaði strax að George væri með
heilaskaða og George var því sendur
í ítarlega rannsókn. Í ljós kom að
hann er flogaveikur, hefur litla
greind og heilaskaði var staðfestur.
Sköddun hans kemur meðal ann-
ars fram í því að hann á, að sögn
Gísla, erfitt með að skipuleggja hlut-
ina. En hreyfingar hans eru einnig
hægar og hann þjáist af minnistrufl-
unum. „Spurningin er því hvort Ge-
orge var fær um að skipuleggja
morð, framkvæma það án þess hann
sæist og halda því síðan leyndu,“
segir Gísli.
Það vekur auðvitað miklar efa-
semdir um hvort George hafi í raun
getað skipulagt morð, sem að mörgu
leyti virtist unnið af fagmanni, bæði
sjálft morðið, sem líkist aftöku og
eins að ekkert sást til morðingjans.
Aðstæðurnar gætu þó allt eins
verið tilviljanir, en um þetta segist
Gísli ekki vilja vera með neinar get-
gátur. Hann geti aðeins sagt að hann
hafi komist að ofangreindum niður-
stöðum um George, sem hann rakti
fyrir dómi, en Gísli var ekki kallaður
til að bera vitni fyrir kviðdómi.
Í umfjöllun breskra fjölmiðla um
dóminn á George hefur enn sem
komið er ekki verið velt upp miklum
efasemdum um sekt hans. Í ljósi
rannsóknar Gísla á hinum dæmda
vaknar óneitanlega sú spurning,
hvort lögreglan og saksóknari hafi
farið of geyst vegna mikillar athygli
sem málið vakti og um leið hvort þá
hafi verið framið réttarmorð á sak-
lausum manni. Gísli segist ekki hafa
neina skoðun á því. Það sé hins vegar
vitað af rannsóknum á öðrum málum
að mikil athygli geti skapað þrýsting
á þá sem starfa við málið að leysa
það sem fyrst.
Gísli leggur áherslu á að hann taki
enga afstöðu til sektar George.
„Veikleikar George samfara litlum
sönnungargögnum og engri skýrri
ástæðu, vekja spurningar um hvort
hann hafi getað framkvæmt morð,
sem virðist svo faglega staðið að.“
Er banamaður sjónvarps-
konunnar Dando fundinn?
Barry George var dæmdur á líkum fyrir
morðið á bresku sjónvarpskonunni Jill
Dando. Gísli Guðjónsson réttarsálfræð-
ingur kom að málinu og komst að því að Ge-
orge er skaddaður og á erfitt með að skipu-
leggja hluti eins og Sigrún Davíðsdóttir
heyrði, er hún ræddi við Gísla.
Barry Michael Ge-
orge hefur verið
dæmdur sekur fyrir
morðið á Dando.
Sjónvarpskonan Jill
Dando, sem myrt
var í London 26.
apríl 1999.
BYSSUMAÐUR á bifhjóli
skaut 19 ára kaþólskan mann til
bana á götu í bænum Antrim á
Norður-Írlandi í gær. Engin
hreyfing lýsti morðinu á hend-
ur sér en norður-írskir stjórn-
málamenn röktu það til öfga-
manna í hverfi mótmælenda, en
þeir hafa ráðist á kaþólska íbúa
bæjarins af handahófi að und-
anförnu.
Kaþólski maðurinn varð fyrir
a.m.k. tveimur skotum. Tals-
maður lögreglunnar sagði að
tveir menn á bifhjóli hefðu ekið
að honum og annar þeirra hefði
skotið hann með skammbyssu
af stuttu færi.
„Djöfullegum
loftnetum“
mótmælt
KÝPVERSKUR þingmaður,
Marios Matsakis, fullyrti í gær
að fjarskiptaloftnet, sem ráð-
gert er að setja upp í breskri
herstöð á Kýpur, myndu verða
börnum að
aldurtila.
Þingmaður-
inn var
handtekinn
í fyrradag
þegar hann
stóð fyrir
mótmælum
gegn áform-
unum en hundruð manna réð-
ust inn í lögreglustöð til að
frelsa hann. Fimm óeirðaseggir
og 43 lögreglumenn særðust
þegar lögreglan reyndi að
binda enda á mótmælin.
Óeirðaseggirnir kveiktu einnig
í níu bílum í herstöðinni og
skemmdu 27 aðra. Tjónið er
metið á andvirði 50 milljóna
króna.
„Þessi djöfullegu loftnet
munu drepa börn. Ég hef gert
skyldu mína og iðrast einskis,“
sagði þingmaðurinn, sem segir
að íbúum í grennd við herstöð-
ina muni stafa mikil hætta af
geislun frá loftnetunum.
Ákærð fyrir
óeirðir í
Gautaborg
SJÖ Danir voru í gær ákærðir
fyrir að ráðast á lögreglumenn í
óeirðunum sem blossuðu upp í
Gautaborg í síðasta mánuði
þegar leiðtogafundur Evrópu-
sambandsins var haldinn í
borginni. Hinir ákærðu, sex
karlar og ein kona, eru á aldr-
inum 17-27 ára. Þau eiga yfir
höfði sér allt að tíu ára fangels-
isdóm, en þau segjast öll sak-
laus af sakargiftunum.
Hvalveiði-
stefna Ís-
lands kynnt
FRÉTTAVEFUR BBC birti í
gær viðtal við Þorstein Pálsson,
sendiherra Íslands í London,
þar sem fjallað er um þá stefnu
íslenskra stjórnvalda að hafnar
verði takmarkaðar hvalveiðar
við strendur Íslands. Haft er
eftir sendiherranum að ekki sé
búist við að íslenska stjórnin
taki ákvörðun á þessu ári um
hvenær hvalveiðarnar hefjist.
STUTT
Kaþólskur
maður
myrtur á
N-Írlandi
Marios
Matsakis
FRANSKA lögreglan handtók í gær
mann í tengslum við hvarf ellefu ára
gamallar breskrar stúlku nálægt
bænum Dieppe í Norður-Frakk-
landi. Stúlkan, Bunmi Shagaya, var
á skólaferðalagi þegar hún hvarf á
mánudag. Sást hún síðast við stöðu-
vatn nokkurt þar sem hún hafði verið
að synda og fannst poki með fötum
hennar við vatnið. Hafa franskir lög-
reglu- og björgunarsveitarmenn
slætt vatnið og ána sem rennur í það
og leitað á svæðinu í kring.
Í gær fann lögreglan mann sem
sást við vatnið á þeim tíma sem
stúlkan hvarf, en ung telpa hafði séð
hann nakinn í sendiferðabíl. Er mað-
urinn á fimmtugsaldri og býr í ná-
grenni vatnsins. Varaði franska lög-
reglan fólk við að ásaka manninn, vel
gæti verið að málin tvö, strípihneigð
hans og hvarf stúlkunnar, væru
óskyld. Jean-Marc Cruciani, lög-
reglustjóri sagði að lögreglan hefði
ekki fundið nein sönnunargögn sem
tengdu manninn við hvarfið. Cruci-
ani sagði lögregluna ekki hafa úti-
lokað neinn möguleika, stúlkan gæti
hafa drukknað, henni verið rænt eða
hún hlaupist á brott.
Rannsókn á hvarfi breskrar stúlku sem var á skólaferðalagi í Frakklandi
Nakinn maður
sást á vettvangi
Rouen. AFP.
AP
Móðir bresku skólastúlkunnar Bunmi Shagaya og þrjár frænkur hennar
komu í gær til vatnsins þar sem síðast sást til stúlkunnar.