Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 53
DAGBÓK
SUÐUR spilar fimm tígla
eftir opnun vesturs á 13–
15 punkta grandi:
Norður
♠ ÁK74
♥ G8765
♦ KG3
♣ 10
Vestur Austur
♠ D853 ♠ G109
♥ Á2 ♥ D1094
♦ 8764 ♦ –
♣ÁK3 ♣987652
Suður
♠ 62
♥ K3
♦ ÁD10952
♣DG4
Útspilið er laufkóngur
og tígull í öðrum slag. Við
borðið myndu flestir sætta
sig við að spila hjarta á
kónginn í þeirri veiku von
að vestur hafi teygt sig í
grandopnun á 12 punkta,
enda vandséð hvar ætti að
reyna við ellefta slaginn
annars staðar. Eða hvað
segir lesandinn um það?
Stigakóngur Indverja,
Orlando Campos – kallað-
ur Orly – sá annan mögu-
leika og lét reyna á hann.
Hann trompsvínaði fyrir
laufás, stakk eitt lauf og
tók alla tíglana. Þetta var
staðan þegar hann átti eitt
tromp eftir:
Norður
♠ Á7
♥ G8
♦ –
♣ –
Vestur Austur
♠ D8 ♠ G10
♥ Á2 ♥ D10
♦ – ♦ –
♣ – ♣ –
Suður
♠ 6
♥ K3
♦ 2
♣ –
Þegar tígultvistinum er
spilað kemur upp afar
óvenjulegt afbrigði af tvö-
faldri kastþröng. Vestur
má auðvitað ekki henda
hjarta, því þá spilar suður
þristinum og ásinn slær
vindhögg. Svo vestur
hendir spaða tilneyddur.
Og úr blindum fer líka
hjarta, því spaðasjöan er
nauðsynleg þumalskrúfa á
austur og neyðir hann til
að kasta hjartatíu. Orly
tók nú spaðaásinn, spilaði
hjartagosa úr borði og
vestur fékk feitan slag á
ásinn sinn. En átti nú bara
hjartatvistinn eftir og Orly
fékk úrslitaslaginn á þrist-
inn! Þetta er alvöru þving-
un.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson.
LJÓÐABROT
ÍSLAND
Ó, fögur er vor fósturjörð
um fríða sumardaga,
er laufin grænu litka börð
og leikur hjörð í haga,
en dalur lyftir blárri brún
mót blíðum sólar loga,
og glitrar flötur, glóir tún
og gyllir sunna voga.
Og vegleg jörð vor áa er
með ísi þakta tinda,
um heiðrík kvöld að höfði sér
nær hnýtir gullna linda
og logagneistum stjörnur strá
um strindi, hulið svellum,
en hoppa álfar hjarni á,
svo heyrist dun í fellum.
Jón Thoroddsen.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 5. júlí,
verður sjötug Dýrfinna
H.K. Sigurjónsdóttir, ljós-
móðir, Hraunbæ 75,
Reykjavík. Af því tilefni
taka Dýrfinna og eiginmað-
ur hennar, Sigurður I. Jóns-
son, á móti ættingjum og
vinum á afmælisdaginn frá
kl. 19 í Frímúrarahúsinu við
Ljósutröð 2, Hafnarfirði.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, 5. júlí,
Ingólfur H. Jökulsson, mál-
arameistari, Engihjalla 81,
Kópavogi. Hann og eigin-
kona hans, Margrét Schev-
ing Kristinsdóttir, taka á
móti gestum í félagsheimili
Orkuveitu Reykjavíkur í
Elliðaárdal eftir kl. 19 í dag.
60 ÁRA afmæli. Í dag 5.júlí verður sextugur
Atli Hraunfjörð Yngvason,
málari, sýningarmaður og
mælingamaður, Marar-
grund 5, Garðabæ. Eigin-
kona hans er Sigríður Guð-
mundsdóttir.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun 6. júlí verður
fimmtugur Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasam-
bands Íslands, Vallarhúsum
65, Reykjavík. Af því tilefni
taka Eiríkur og eiginkona
hans, Björg Bjarnadóttir, á
móti gestum á afmælisdag-
inn 6. júlí milli kl. 17-19.30 í
Rúgbrauðsgerðinni, Borg-
artúni 6, Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun 6. júlí verður
fimmtugur Þröstur Karls-
son, verslunarstjóri í Sam-
kaupum og forseti bæjar-
stjórnar í Mosfellsbæ,
Bugðutanga 3, Mosfellsbæ.
Af því tilefni ætla hann og
eiginkona hans, Anna
Hjálmdís Gísladóttir, að
taka á móti gestum á afmæl-
isdaginn milli kl. 18 og 21 í
félagsheimilinu Hlégarði,
Mosfellsbæ.
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga er lauk fyrir
skömmu í Ohrid í Makedón-
íu. Jón Viktor Gunnarsson
(2366) hafði hvítt gegn Rom-
an Slobodjan (2529).
21.Ref6+! gxf6
22.Hxe8+ Dxe8
23.Rxf6+ og
svartur gafst upp
enda drottningin
fallin í valin. Skák-
in tefldist í heild
sinni: 1.e4 e5 2.Rf3
Rc6 3.Bc4 Rf6 4.d3
Bc5 5.O-O d6 6.c3
a6 7.Bb3 Ba7
8.Rbd2 Re7 9.He1
Rg6 10.Rf1 O-O
11.Rg3 Be6 12.Bc2
He8 13.h3 d5
14.Rg5 Bc8
15.exd5 h6
16.R5e4 Rxd5 17.Df3 Be6
18.Bb3 Rdf4 19.Bxf4 exf4
20.Rh5 Bxb3 o.s.frv. Jón
Viktor stóð sig með mikilli
prýði á mótinu en hann fékk
6 vinninga af 13 mögulegum.
Hann lagði margan stór-
meistarann að velli sem von-
andi er merki um að biðin
fari að styttast í að hann
verði það sjálfur.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þótt þú myndir spjara þig
vel í sviðsljósinu, kanntu
betur við þig í rólegheitum
að tjaldabaki.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhverjir eru að reyna að
koma höggi á þig, en það
munu reynast þeim tóm
klámhögg. Þú munt komast
að því hverjir eru vinir og
hverjir ekki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt ekki að láta aðra kom-
ast upp með það að standa
ekki við gefin loforð. Þótt
málefnin séu ekki stórvægi-
leg eiga menn að standa við
orð sín.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér finnast samstarfsmenn
þínir flækjast fyrir þér. Tal-
aðu við hvern og einn og
farðu í gegn um málin til að
hreinsa andrúmsloftið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur látið hlutina danka
heima fyrir, en verður nú að
bretta upp ermarnar og gera
eitthvað. Láttu aðra ekki
stjórna lífi þínu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur virkað þreytandi á
aðra að hlusta stöðugt á þínar
hliðar á málum. Gefðu öðrum
færi á að leggja orð í belg og
sýndu þeim tillitssemi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu engan ræna þig af-
rakstri vinnu þinnar. Þeir eru
margir sem vilja ræna þig
heiðrinum svo þú skalt ekki
treysta neinum í þeim efnum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að leggja fortíðina til
hliðar. Þú situr uppi með
hana því þú getur engu
breytt. Einbeittu þér að nú-
tíðinni og því sem framundan
er.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Lestu vandlega alla texta,
sem þú ert beðinn að skrifa
undir, og leggðu ekki nafn
þitt við neitt, sem þér finnst
rangt að einhverju leyti.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu ekki freistast til þess
að eyða fé þínu í einhverja
hluti, sem þú þarft ekkert á
að halda. Mundu að vinur er
sá sem til vamms segir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu engan bilbug á þér
finna, þótt einhverjir erfið-
leikar skjóti upp kollinum.
Þeir eru bara til að sigrast á
og þú hefur alla burði til þess.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að endurskoða líf-
erni þitt og taka meira mið af
því sem er hollt og heilsu-
samlegt. Mundu að maðurinn
er það sem hann neytir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hikaðu ekki við að leita
hjálpar hjá vinum þínum.
Þeir hafa notið liðsinnis þíns
og munu gleðjast yfir því að
geta endurgoldið þér með
hjálparhönd.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
T ILBOÐ
www.oo.is
TOMY
Walkabout
Classic
Verð kr.
4.990
Hlustunar-
tæki með
ljósiFreeway 9-18 kg.Tilboðsverð
12.990 kr.
Verð
4.990 kr.
TOMY
Walkabout
Classic
Hlustunar-
tæki
með ljósi
.
- úrvalið er hjá okkur
Laugavegi 54 - s. 552 5201
Útsalan
í
fullum
gangi
30-70%
afsláttur
Opið til
kl. 20 í
kvöld
Ertu haldin síþreytu,
svefntruflunum eða sjúkdómum
sem læknavísindin ráða illa við?
Losaðu þig við rafbylgjur og ryk í íbúðinni. Árangurinn
gæti komið þér á óvart.
Júlí – síðasti möguleiki á tilraunaverðinu.
Upplýsingar í síma 581 1008 eða 862 6464,
Hreiðar Jónsson.
Brekkubær
Gott 254 fm raðhús á þremur hæðum
í neðstu röð við Fylkisvöllinn. 23 fm
bílskúr. Möguleiki á séríbúð í kjallara.
V. 24,5 m. 620
Hagamelur -
gullfalleg hæð
Erum með í einkasölu gullfallega 4ra her-
bergja 97 fm efri hæð í fallegu og reis-
ulega hvítmáluðu steinhúsi á besta stað
við Hagamel. Íbúðin er í mjög góðu
ástandi og er með parketi á gólfum. Hús-
ið er í mjög góðu standi með nýlega end-
urnýjuðu þaki. V. 14,8 m. 1615