Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
ÞESSIR erlendu ferðamenn horfðu
löngunaraugum á póstkort prýdd
myndum af sólbökuðu landslagi í
rigningunni í Reykjavík í gær. Und-
ir dynjandi nið regndropanna hafa
þau eflaust spurt sig hvort aldrei
væru teknar myndir í rigningu og
látið sig dreyma um betra veður.
Útlit er fyrir að þau sleppi regnhlíf-
inni ekki í bráð, a.m.k. haldi þau sig
í höfuðborginni þar sem gert er ráð
fyrir rigningu og súld fram á næstu
helgi. Vilji þau komast í sólina ættu
þau að huga að því að fara til Norð-
ur- eða Austurlands en þar eru
mestar líkur á þurru veðri.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Rigning –
þótt póstkort-
in segi annað
FORELDRAR þroskaheftra
barna sem eru í dagvistun á
Lyngási komu saman síðdegis í
gær til að ræða stöðuna sem upp
er komin í kjaradeilu þroska-
þjálfa sem starfa hjá ríkinu, en
samningaviðræður hafa siglt í
strand og er næsti fundur boð-
aður 11. júlí næstkomandi.
Á morgun ætla aðstandendur
þroskaheftra og aðrir sem láta
sig málefni þeirra varða að hitt-
ast á Austurvelli og ganga þaðan
í félags- og fjármálaráðuneyti til
að knýja á um lausn deilunnar.
Börn orðin kreppt og leið á
að vera heima allan daginn
Þeir foreldrar sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær sögðu að
börn þeirra væru farin að láta á
sjá, bæði líkamlega og andlega.
Þeim sem er hætt við að fá önd-
unarsjúkdóma og ekki fá lungna-
bank, er orðið erfitt um and-
ardrátt. Einnig séu börnin orðin
kreppt, þar sem þau hafi ekki
komist í sjúkraþjálfun þar sem
stofnanir séu lokaðar vegna
verkfalls þroskaþjálfa. Sömuleið-
is sögðu foreldrarnir að börnin
væru leið á að vera heima við all-
an daginn.
Þau sögðu það erfitt fyrir
börnin að vera rifin burt úr sínu
daglega umhverfi og að langan
tíma taki að vinna upp þann tíma
sem tapist í þjálfun.
Foreldrarnir sögðu það lítils-
virðingu við þroskahefta og að-
standendur þeirra að viðræðun-
um væri frestað um átta daga.
Eitt foreldrið hafði á orði að
ástandið væri það slæmt að
ástæða væri til að læsa samn-
inganefndirnar inni í herbergi og
hleypa þeim ekki út fyrr en
samningar væru í höfn.
Landssamtökin Þroskahjálp
hafa sent yfirlýsingu til fjölmiðla
þar sem þau lýsa yfir vonbrigð-
um sínum með að viðræðurnar
hafi siglt í strand. „Daglegt líf
fólks með þroskahömlun og fjöl-
skyldna þeirra er úr skorðum
gengið og ástandið víða mjög al-
varlegt vegna álags og óvissu,“
segir í yfirlýsingunni. Þar segir
einnig að búast hefði mátt við að
samningar milli þroskaþjálfa og
sveitarfélaga myndu flýta fyrir
gangi samningaviðræðna þroska-
þjálfa og ríkisins. Þess í stað hafi
viðræðunum verið slegið á frest í
átta daga. „Sú niðurstaða er fólki
mikil vonbrigði og þeim sem þar
bera ábyrgð til lítils sóma.
Landssamtökin Þroskahjálp
skora á samningsaðila að setjast
sem fyrst að samningsborði á
nýjan leik og vinna þá vinnu sem
þarf til þess að líf þess fólks, sem
verkfallið bitnar á verði sem eðli-
legast á ný.“
Foreldrar þroskaheftra gagnrýna seinagang
Börnin farin að láta á sjá
Morgunblaðið/Billi
Foreldrar þroskaheftra barna funduðu í húsi Þroskahjálpar.
20% fleiri eru skráðir atvinnulausir
hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæð-
isins nú en á sama tíma í fyrra, eða
um 1.410 miðað við 1.170 fyrstu vik-
una í júlí í fyrra.
„Það eru greinilegar blikur á lofti
og fjöldi skráðra atvinnulausra hef-
ur farið stigvaxandi á allra síðustu
vikum,“ segir Hugrún Jóhannes-
dóttir, forstöðumaður Vinnumiðlun-
ar höfuðborgarsvæðisins. Spurð
innan hvaða starfsstétta uppsagnir
séu mest áberandi segir hún að fyr-
irtæki úr öllum geirum atvinnulífs-
ins séu að segja upp fólki og nefnir
sem dæmi hugbúnaðarfyrirtæki,
verslanir, bílasölur og smærri
byggingarfyrirtæki.
„Þetta er fólk á öllum aldri og
innan allra starfsstétta en það sem
er að gerast nú í fyrsta skipti er að
ungt og vel menntað fólk, sem áður
hefur gengið að góðum störfum vís-
um, hefur misst vinnuna og er kom-
ið á atvinnuleysisskrá. Áður var það
aðallega ungt og ómenntað fólk sem
var á skrá og fólk, einkum konur,
yfir fimmtugt sem átti erfiðast með
að finna vinnu en þetta mynstur er
ört að breytast.“
Að sögn Hugrúnar ber síst á að
fólk frá opinberum þjónustustofn-
unum komi á atvinnuleysisskrá.
„Það er alltaf eftirspurn eftir
starfsfólki á ríkisrekna leikskóla og
skóla en einkafyrirtæki eru greini-
lega mikið að draga saman seglin,“
segir Hugrún og bætir við að al-
menn eftirspurn eftir starfsfólki
virðist einnig mun minni nú en árið
2000. Atvinnuleysi á höfuðborgar-
svæðinu er nú um 1,5% sem telst að
sögn Hugrúnar afar lágt miðað við
nágrannalöndin en miðað við
óbreytt ástand eigi sú tala eftir að
hækka.
Þessi þróun atvinnuleysis er í
samræmi við orð Magnúsar L.
Sveinssonar, formanns Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, í Morg-
unblaðinu fyrir um mánuði þar sem
hann sagði uppsagnir félagsmanna
vera farnar að skipta tugum þar
sem mest bæri á uppsögnum skrif-
stofufólks í kjölfar samdráttar í fyr-
irtækjum og gjaldþrota.
Fjöldi atvinnulausra hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins fer stigvaxandi
20% fleiri skráð-
ir atvinnulausir
nú en í fyrra
RÚMLEGA tvítug stúlka slasaðist
alvarlega í bifhjólaslysi í miðbæ
Keflavíkur á níunda tímanum í gær-
kvöldi og var flutt á slysadeild í
Fossvogi.
Að sögn vakthafandi læknis á
slysadeild er líðan hennar eftir atvik-
um. Hún er á gjörgæslu og haldið
sofandi í öndunarvél. Óhappið átti
sér stað á Hafnargötunni í Keflavík.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
virðist stúlkan hafa misst vald á bif-
hjóli sínu og dottið af því eftir að hafa
ekið utan í gangstéttarkant.
Bílvelta í Skagafirði
Bílvelta varð á veginum fyrir neð-
an bæinn Skefilsstaði á Skaga í gær.
Þrennt var í bílnum, hjón með son
sinn, og voru þau flutt á sjúkrahúsið
á Sauðárkróki. Meiðsli þeirra voru
ekki talin alvarleg og fengu þau að
fara heim að lokinni skoðun.
Alvarlegt
bifhjólaslys
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Frá slysstað á Hafnargötunni.