Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 16

Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 16
LISTIR 16 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ GÍTARLEIKARARNIR Símon H. Ívarsson og Jörgen Brilling frá Þýskalandi eru um þessar mundir á tónleikaferð um Norðurland. Í vetur ferðuðust þeir um Þýskaland og léku í mörgum stærstu borga landsins við góðar undirtektir. Símon H. Ívarsson segir að eftir Þýskalandsferðina hafi þeir ákveð- ið að efna til annarrar slíkrar um Ísland. Þeir hafa þegar leikið á Hvammstanga og Akureyri og í gærkvöldi léku þeir í Reykjahlíð- arkirkju við Mývatn. Í kvöld leika þeir í sal Borgarhólsskóla á Húsa- vík, en á þriðjudagskvöldið verða þeir félagar komnir til Reykjavík- ur og leika á Sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. „Það sem við erum að spila, er annars vegar íslensk tónlist, en hins vegar þýsk og austurrísk,“ segir Símon H. Ívarsson. „Við leik- um dúetta eftir Gunnar Reyni Sveinsson, en í þeim má finna áhrif úr ýmsum áttum, meðal ann- ars frá blústónlist, djassi og þjóð- lagatónlist, og hins vegar leik ég tvo þætti úr einleiksverki sem Gunnar Reynir tileinkar Django Reinhardt. Verkið heitir Homage a Django, en Django var í miklu uppáhaldi hjá Gunnari Reyni. Um leið erum við Gunnar Reynir að fagna 10 ára samstarfi, og þessi verk eru meðal þeirra sem hafa orðið til í þessu samstarfi okkar.“ Þetta er nýjasta verk Gunnars Reynis og samið sérstaklega fyrir Símon. Verkið sem Gunnar Reynir samdi fyrir tvo gítara heitir Dag skal að kveldi lofa, og er það til- einkað minningu Dags Sigurðarsonar skálds. Símon leikur svo aftur einleik í Þremur þjóð- lögum eftir Jón Ás- geirsson. „Þetta eru þrjú lög úr tíu laga þjóðlagasafni sem Jón gaf út fyrir tveimur ár- um, en lögin sem ég hef valið eru Stúlkurn- ar ganga sunnan með sjó, Þrjú kvæðalög og Einum unni ég mann- inum.“ „Barmúsík“ Beethovens Þótt Beethoven hafi gert Óðinn til gleðinn- ar ódauðlegan í níundu sinfóníu sinni, dettur sennilega fáum Beethoven-unnendum gleðimúsík og kráarstemmning í hug þegar tónlist hans er annars vegar. Óð- urinn til gleðinnar var af allt öðru og æðra tagi. En Beethoven átti líka til sínar kátu hliðar þótt þær séu minna þekktar en þær alvöru- gefnu og þungbrýndu. Símon og Jörgen leika verk eftir Beethoven í Heurigen-stíl. „Hann samdi þetta í einhverju léttúðarkasti; en Heurigen-tónlist er tónlist sem samin er í kringum vínbændur, vínuppskeru og þessháttar: Heur- igen er staðurinn þar sem þú kaupir nýtt vín, og Beethoven spil- aði einhvern tíma á svona stað, og þetta verk sem við leikum er undir sterkum áhrifum af þessari tegund tónlistar. Beet- hoven samdi þetta fyrir mandólín og sembal og tileink- aði vinkonu sinni sem var frábær mandólínleikari, og það þarf ekki mikið að hafa fyr- ir því að flytja þetta yfir á tvo gítara – það ligg- ur vel fyrir gít- arnum.“ Þeir Símon og Jörgen leika einn- ig forleik að óp- erunni La clem- enza di Tito eftir Mozart. „Það var samtímamaður Mozarts í Vínarborg, Mauro Giul- iani, sem útsetti þetta fyrir tvo gít- ara, þannig að það gæti vel verið að Mozart hafi heyrt þetta í út- setningu fyrir tvo gítara. Eftir þetta leikur Jörgen eitt einleiks- verk.“ Símon Ívarsson segir að tónleikum þeirra Jörgens hafi ver- ið vel tekið í Þýskalandi og að Þjóðverjarnir hafi verið sérstak- lega hrifnir af tónlist Gunnars Reynis Sveinssonar og hafi vel kunnað að meta hann. „Einn gagn- rýnandi sagði meira að segja að Gunnar Reynir væri meistari plokkuðu hljóðfæranna; meistari gítarsins,“ sagði Símon H. Ívars- son. Hámenntaðir gítarleikarar Símon lauk fullnaðarprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar og einleikaraprófi frá Hochschule für Musik und Dar- stellende Kunst í Berlín. Að námi loknu starfaði hann við Tónlistar- skólann í Luzern í Sviss, en hefur síðastliðin 20 ár kennt við Tón- skóla Sigursveins D. Kristinsson- ar. Símon hefur sótt fjölmörg nám- skeið, m.a. til Spánar, Ítalíu, Sviss og Austurríkis. Jafnframt hefur hann sérhæft sig í flamenco-tónlist og farið sérstakar námsferðir til Spánar í þeim tilgangi. Jörgen Brilling lauk masters- prófi í tónlistar- og listfræði frá Háskólanum í Hamborg og er auk þess lærður tónlistarkennari. Hann stundaði auk þess fram- haldsnám í klassískum gítarleik í Hamborg og Moskvu. Brilling hef- ur leikið með Sinfóníuhljómsveit Hamborgar, ýmsum kammersveit- um og komið fram á tónlistarhátíð- um. Hann hefur verið ötull við að flytja verk nútímatónskálda. Jörg- en Brilling hefur leikið inn á þrjár hljómplötur við mikið lof gagnrýn- enda. Gítarleikararnir Símon H. Ívarsson og Jörgen Brilling á Sumartónleikum í Sigurjónssafni Jörgen Brilling og Símon H. Ívarsson leika á Sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á þriðjudagskvöldið kemur. „Gunnar Reynir er meistari gítarsins“ Morgunblaðið/Þorkell Þ AÐ er kannski að bera í bakkafullan lækinn að ræða ís- lenskar listir erlend- is, að þessu sinni skáldskap. Við vit- um að íslensk tón- list, myndlist og leiklist fara margar sigurferðir um heiminn og að halda öðru fram væri eins konar guðlast, enda stendur það ekki til hér. Fyrir ævalöngu, líklega á liðinni öld var talað um að íslenskar bók- menntir væru grundvöllur íslenskr- ar menningar, jafnvel sjálfrar þjóð- arinnar. Enn geta menn verið sammála um þetta, að minnsta kosti hvað varðar fornbókmenntirnar. Íslenskir samtímahöfundar hafa orðið kunnir er- lendis og nefna menn þá fyrst nafn Halldórs Laxness sem fékk Nóbels- verðlaunin 1955. Nokkrir íslenskir höfundar hafa fengið Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Ólafur Jóhann Sigurðsson fyrir ljóðasafnið Að brunnum, Snorri Hjartarson fyrir ljóðabókina Hauströkkrið yfir mér, Thor Vilhjálmsson fyrir skáldsög- una Grámosinn glóir, Fríða Á. Sig- urðardóttir fyrir skáldsöguna Með- an nóttin líður og Einar Már Guðmundsson fyrir skáldsöguna Engla alheimsins. En nægir þessi frami til að festa höfunda í sessi heima og erlendis? Svarið hlýtur að verða já á heima- velli en erlendis nei. Bækur Halldórs Laxnesseru þýddar á fjöldatungumála og komareglulega út í nýjum þýð- ingum, t. d. í Þýskalandi. Á Halldór er litið sem sagnameistara og verk hans falla ekki úr gildi þótt sjaldan núorðið sé hann nefndur meðal helstu höfunda í erlendum fjöl- miðlum. Norðurlandaráðs- verðlaunahöfundarnir eru þýddir á norræn mál og sumir á tungur ann- arra Evrópuþjóða og jafnvel fleiri. Verðlaunin eru þekkt utan Norð- urlanda og hafa m. a. vakið athygli og greitt fyrir verðlaunahöfundum Noregs daginn sem hann fékk að vita um niðurstöður dóm- nefndarinnar. Gleðin var óhamin og náði einnig til lesenda svo að rithöfundurinn hafði nóg að gera lengi á eftir að taka við árnaðaróskum. Hann er spurður um verðlaunin sem slík og hrifninguna vegna einmitt þeirra (Nord- isk litteratur 2001) og svarar: „Vegna þess að þau eru einfaldlega mesti heiður sem norræn- um rithöfundi getur hlotnast. Nóbels- verðlaunin undan- skilin, en ég segi hreinskilnislega að enginn norrænn rit- höfundur í samtím- anum er verður Nób- elsverðlauna.“ Ég veit af gamalli reynslu að Norðmenn fylgjast vel með verðlaununum og ókyrrast renni þau ekki reglulega til norskra höfunda. Hið síðastnefnda í tilvitn-uðu svari Kjærstad ervitanlega umdeilanlegt.Margir telja að þær óvæntu tafir sem urðu á ákvörðun sænsku akademíunnar um Nób- elsverðlaun í fyrra hafi stafað af því að allt benti til þess að fyrir valinu yrði sænskur höfundur, skáldið Tomas Tranströmer. M. a. vegna þjóðernis hans hafi hinir átján verið í vafa og kosið kínverskan höfund í staðinn. Með því vali var m. a. komið til móts við landafræði- og tungu- málakröfur auk þess sem höfund- urinn þótti ágætur. Það eru að sjálfsögðu til margir merkir rithöfundar utan Norð- urlanda, ekki bara Salman Rushdie sem Kjærstad nefnir. Hvað til dæmis um höfunda spænskumæl- andi þjóða á Spáni og í Rómönsku Ameríku? Afríka hefur líka að mestu setið hjá. Skáldskapur meðal þjóða AF LISTUM Eftir Jóhann Hjálmarsson johj@mbl.is Teikning/Andrés Þetta mætti bæta með því að stórefla Bókmenntakynningarsjóð sem hefur færst nær norrænu höf- undamiðstöðvunum og gæti smám saman orðið sambærilegur. Þá verða ráðamenn að viðurkenna að bókmenntirnar séu ekki til þess eins að vera áframhaldandi horn- rekur íslenskrar menningar. Kynning íslenskra bókmennta þarf að vera sem fjölbreyttust. Allir vita að verðlaun og við- urkenningar hafa mikið gildi fyrir höfunda og bækur þeirra. Dæmi má nefna hér heima, ekki síst verð- launahafa Norðurlandaráðs, þá Thor Vilhjálmsson, Fríðu Á. Sigurð- ardóttur og Einar Má Guðmunds- son. Það var gagnrýnt í Noregiað skáldsaga Jans Kjær-stad, Opdageren sem varverðlaunuð á þessu ári, skyldi ekki vera tilnefnd fyrr. Kjærstad er upp með sér og viss um mikilvægi Norðurlandaráðs- verðlauna. Hann lýsti því yfir að hann væri hamingjusamasti maður menntum erlendis og hafa oft gert það. Það er þó sárgrætilegt hve Bókmenntakynningarsjóður er lítils megnugur vegna þess að honum er fjárhagslega sniðinn þröngur stakk- ur, en vilji til að gera vel greinilega töluverður. Auk þessara sjóða er almennur Þýðingarsjóður sem styrkir þýð- ingar erlendra bókmennta (ekki bara norrænna) á íslensku. Þessi sjóður hefur reynst afar gagnlegur. Á bókastefnum erlendis, Frank- furt og Gautaborg til að mynda, er ljóst að mikið starf er unnið í ná- grannalöndum okkar til að koma bókmenntum á framfæri og kynna einstaka höfunda. Þetta hefur borið árangur, einkum vegna höf- undamiðstöðva þar sem unnið er markvisst að efninu. Talað hefur verið um norræna bylgju. Bók- menntakynningarsjóður er vissu- lega eins konar höfundamiðstöð en án sýningaraðstöðu á bókastefnum. Íslenskir útgefendur sjá um að vera höfundamiðstöðvar þar sem ein- ungis er haldið fram eigin höf- undum eða nær eingöngu að ég tel. meðal Frakka og Pólverja. Skáldsagnahöfundarnir geta vænst að eftir þeim sé tekið víða og meira að segja ljóðskáldin, en ólík- legt er að verðlaunabækur þeirra komi út í heild. Sá möguleiki er aft- ur á móti fyrir hendi að stök ljóð rati í sýnisbækur. Ólafur Jóhann Sigurðssonog Snorri Hjartarsonhafa ekki náð því að verðaverulega þekkt ljóðskáld á Norðurlöndum. Thor Vilhjálms- son, Fríða Á. Sigurðardóttir og Ein- ar Már Guðmundsson eru kunnir skáldsagnahöfundar sem ekki hafa slakað á og vekja áhuga. Kvikmynd eftir verðlaunaskáldsögu Einars Más á sinn þátt í velgengni hans þótt hann hafi getað verið án henn- ar. Hvað er það sem auk verðlauna getur stuðlað að útgáfu verðlauna- bóka og annarra bóka erlendis? Helst er að nefna Norræna þýð- ingarsjóðinn og Bókmenntakynn- ingarsjóð. Þessir sjóðir geta hjálpað til að greiða fyrir íslenskum bók-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.