Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 17

Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 17
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 17 GEISLAPLATA Nínu Margrétar er sú fyrsta sem inniheldur öll píanóverk Páls Ís- ólfssonar, það er Þrjú píanóstykki ópus 5, Glettur, Svipmyndir og Tilbrigði um sönglag eftir Ísólf Pálsson. Platan gefur góða yfirsýn yfir þennan ákveðna þátt í höfundarverki Páls, enda eru verkin samin á mismunandi skeiði ævi tónskáldsins. Þrjú píanóstykki og Glettur bera það með sér að vera samin snemma á tónskáldaferlinum þegar Páll hafði nýlega lokið námi við Konunglega tónlistar- skólann í Leipzig, og eru jafnframt þau píanó- verk hans sem hvað best eru þekkt. Svip- myndir er á hinn bóginn safn laga frá ólíkum tímabilum í lífi Páls, sem hann bjó sjálfur til útgáfu, en kom ekki út fyrr en árið 1994 í kjöl- far aldarafmælis tónskáldsins. Tilbrigði um sönglag felur í sér 17 tilbrigði við stef eftir Ís- ólf, föður Páls, og telur Nína Margrét verkið, sem er persónulegt og tilfinningaþrungið, marka hápunktinn í píanótónsmíðum hans. Síðrómantísk píanótónlist Um þessar mundir er Nína Margrét að ljúka við doktorsritgerð um píanótónlist Páls Ísólfssonar sem hún hefur unnið að undan- farna vetur við City University of New York. Hún segir ýmsa þætti hafa valdið því að hún gerði verk Páls að viðfangsefni ritgerðar sinnar og ákvað að ráðast í upptökur á þeim. „Ég hef unnið talsvert í sambandi við íslensk píanóverk og skrifaði m.a. mastersritgerðina mína á því sviði,“ segir Nína Margrét, sem jafnframt hefur lagt mikla áherslu á að flytja íslenska tónlist í starfi sínu. „Ég komst að því að píanótónlist Páls er í sérflokki í íslenskri tónlistarsögu, þar sem hún er samin í stíl þýskrar síðrómantíkur og á rætur að rekja til tónhefða 19. aldar. Þar sem flest íslensk pí- anóverk eru samin undir 20. aldar áhrifum, fannst mér það spennandi verkefni að kafa dálítið nánar ofan í þennan rómantíska stíl sem Páll færði með sér inn í íslenska tónlist- arsögu. Þá var ekki síst kjörið tækifæri að taka þennan þátt tónsmíða hans fyrir, þar sem þau lágu fyrst fyrir í heild sinni árið 1994, þegar Íslensk tónverkamiðstöð gaf Svip- myndir út fyrir tilstuðlan Arnar Magnússon- ar píanóleikara og Þuríðar Pálsdóttur söng- konu og dóttur tónskáldsins.“ Nína Margrét bætir því við að píanótónlist- in dragi ekki síður fram nýjar hliðar á Páli Ís- ólfssyni sem tónskáldi. „Píanóverkin er mjög vönduð og „píanistísk“ og bera þess merki að Páll hafi haft mikla þekkingu á píanóinu sem hljóðfæri. Sama á við um píanóhlutann í söng- lögunum sem er afskaplega vandaður, og jafnast fullkomlega á við söngraddirnar. Þetta var það sem kom mér mest á óvart þeg- ar ég fór að kynna mér verkin fyrst, enda var Páll fyrst og fremst einleikari á orgel. Þannig fólst sérstaða Páls ekki síst í því hversu vel menntaður hann var á sviði tónlistar og er greinilegt af verkum hans að hann hefur verið í miklum tengslum við það sem var að gerast í heiminum.“ Nína Margréti bætir því við að þessi bálkur í höfundaverki Páls sé einkar verðugt rann- sóknarverkefni, ekki síst vegna þess hversu mikið starf er óunnið við að kanna íslenska tónlistarsögu. „Mér finnst sérstök ástæða til að vekja á því athygli að íslenskur tónlistar- arfur er ekki síður mikilvægur en bók- mennta- eða myndlistararfurinn.“ Kynning á íslenskri tónlist Útgáfa Nínu Margrétar á píanóverkum Páls er sannarlega mikilvægt innlegg í kynn- ingu á íslenskum tónlistararfi, bæði hér heima og erlendis. Geislaplötunni er dreift hér á landi á vegum Japis, en er sem fyrr seg- ir gefin út af sænska útgáfufyrirtækinu BIS, en útgáfan naut auk þess stuðnings Tón- skáldasjóðs Ríkisútvarpsins, Þjóðhátíðar- sjóðs og The American-Scandinavian Society í New York. BIS-útgáfan hefur getið sér gott nafn í hinum alþjóðlega útgáfuheimi og hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar, bæði fyrir gæði og verkefnaval, þar sem hún hefur þótt draga athygli að verðugum verkefnum. Fyr- irtækið hefur nokkuð einbeitt sér að skandin- avískri tónlist, og hefur m.a. gefið út verk Jóns Leifs. Nína Margrét segir BIS hafa staðið einkar vel að útgáfu disksins „Þeir hafa t.d. lagt mikið í hönnun bæklingsins í kápu, en þar er texti sem felur í sér umfjöllun um tón- skáldið og píanóverk hans, auk annarra upp- lýsinga, prentaður á fjórum tungumálum, þar á meðal íslensku. Þeir hafa því ekki sparað kostnaðinn á því sviði og finnst mér það til fyrirmyndar, því þetta er ekki síst mikilvæg- ur hluti af útgáfunni, hvað kynningu tónlist- arinnar á erlendum markaði varðar. Diskur- inn var tekinn upp í Stokkhólmi á fjórum dögum og sá þýski tónmeistarinn Martin Nagorni um hljóðritun og tæknivinnslu. „Við áttum mjög gott samstarf, sem kom sér vel, því upptakan reyndi mikið á. Þetta var erfitt, tónlistin reynir mikið á tækni og úthald. Ég hugsa að ég hafi verið allt að því viku að jafna mig á eftir,“ segir Nína Margrét. „Eftir á er ég mjög fegin að hafa gert þetta og vona að diskurinn verði til þess að kynna Pál Ísólfsson sem tónskáld,“ segir Nína Margrét að lokum. Ljósi varpað á nýjar hliðar tónskáldsins Á dögunum kom út hjá hinni virtu BIS-útgáfu í Sví- þjóð geislaplata með flutningi Nínu Margrétar Gríms- dóttur píanóleikara á heildarsafni píanóverka Páls Ís- ólfssonar. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Nínu Margréti um kynni hennar af tónlist Páls. Nína Margrét Grímsdóttir heida@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.