Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 19
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 19 SUMARÚTSALA 40-50% afsláttur Frí snið fylgja                      Laugavegi 71, sími 551 0424 ERU ekki allir orðnir leiðir á að tala um Íslendingasögurnar? Er hugmyndaheimur þeirra og lífsspeki um sæmd og sjálfstæði sem vísað er í á tyllidögum ekki löngu úrelt karla- grobb? Eru þær ekki bara draugar fortíðar? Nei, svo virðist sem saga á borð við Njálu lifi ennþá góðu lífi. Það er sennilega vegna þess að sam- mannlegt og sígilt efni hennar (ást, afbrýði, ætt og fjölskyldubönd) er í sífelldri endurvinnslu með hverjum lesanda og túlkanda sem gefur því nýtt líf og nýja merkingu. Þetta er útgangspunkturinn í bók Jóns Karls Helgasonar, Höfundar Njálu, en hún snýst um framhaldslíf þessarar forn- frægu og lífseigu sögu í nútímanum – s.s. bók um bókmenntir sem byggj- ast á Njáls sögu. Ljóst er að Njála til- heyrir heimsbókmenntunum en Jón Karl beinir sjónum einkum að njálu- lífi á Norðurlöndum, Bretlandi og Þýskalandi. Hann fjallar t.d. um þekkta, enska þýðingu George Webbe Dasents frá árinu 1861, The Story of Burnt Njal, en þessi þýðing lá mörgum öðrum Njáluþýðingum og túlkunum til grundvallar í heila öld; amerísku skáldsöguna Fire in the Ice eftir Dorothy James Roberts sem kom út hundrað árum síðar; og leik- ritin Nial den Vise og The Riding to Lithend. Einnig eru ljóð sem tengj- ast Njálu tekin til skoðunar, t.d. þýskt, rómantískt söguljóð sem heit- ir Gunnar von Hlidarendi þar sem skáldkonan von Engelhardt-Pabst leggur út af stormasömu hjónabandi þeirra Hallgerðar. Þá skoðar Jón Karl myndskreytingar Njálu í hinum ýmsu útgáfum en í raun eru þær enn ein ný þýðing eða túlkun sögunnar (sbr. 115). Ótrúlega mörg erlend bókmenntaverk byggjast á atburð- um og persónum Njáls sögu svo hægt er með sanni að tala um t.d. enska Njáluhefð (48). Mark Njálu má því víða kenna í vestrænni menningu. Bók Jóns Karls er bæði skemmti- lega skrifuð og lifandi. Lesandinn er leiddur inn í fræðin með myndræn- um sviðsetningum, sbr. t.d. upphaf kaflans Útgefandinn. Það er alltaf ánægjulegt að lesa fræðibók sem er blátt áfram og yfirlætislaus. Textinn er auk þess sérlega vel upp byggður og tengingar allar vel ígrundaðar. Bókin skiptist í átta kafla sem heita t.d. Sagnaskáldið, Barnabókahöf- undurinn og Ferðalangurinn. Í kafl- anum um Sagnaskáldið eru nefndar nokkrar af þeim skáldsögum sem skrifaðar hafa verið út frá efni Njálu. Þar eru Hlíðarendahjónin í brenni- depli og m.a. kynnt sú forvitnilega hugmynd að Makbeð og lafði hans séu þeim skyld. Hallgerður er síung og breytni hennar eilíf uppspretta kenninga um kveneðlið. Hafa ýmis sagna- og leikritaskáld túlkað hana með misjöfnum árangri. Hún er ým- ist drykkfelld og útlifuð eins og Hollywood-leikkona, valdasjúkt tál- kvendi eða fegurðin uppmáluð, stolt og sjálfstæð, kyntákn allra tíma. Forvitnilegt er að lesa um barna- bókahefð Njálu en endursagnir úr sögunni voru kenndar í t.d. breskum og þýskum skólum. Í Þýskalandi nas- ismans tók æskan sér hinn hrein- lynda og germanska Gunnar til fyr- irmyndar, víkinginn frækna sem sigldi um sólroðinn sæ í ævintýraleit. Í kaflanum sem kallast Ferðalang- urinn eru viðraðar kenningar um margbrotin áhrif Njálu á ferðabækur breskra nítjándu aldar höfunda. Þessum áhugaverðu pælingum lýkur með tengingu við Íslandsför Guð- mundar Andra Thorssonar sem út kom 1996. Bókinni fylgir margmiðlunardisk- urinn Vefur Darraðar sem inniheld- ur m.a. fjölda ljóða um persónur og atburði Njálu og myndskreytingar ýmissa útgáfna sögunnar heima og erlendis; hljóðupptökur, t.d. af frægri túlkun Laxness á Gunnars- hólma; og kvikmyndir. Diskurinn er vel hannaður og þægilegur í notkun, hreinlega hvalreki fyrir kennara, nemendur og alla áhugamenn um Njáls sögu. Höfundar Njálu er stór- gott og alþýðlegt fræðirit sem sannar áframhaldandi langlífi eða jafnvel ei- lífð Njálu. Á henni virðast engin elli- mörk vera. BÆKUR F r æ ð i r i t eftir Jón Karl Helgason. Þræðir úr vestrænni bókmennta- sögu. Heimskringla, Háskólaforlag Máls og menningar 2001. HÖFUNDAR NJÁLU Að eilífu Njála Steinunn Inga Óttarsdótt ir GARÐAR Pétursson teiknari opn- ar sýningu á vatnslitamyndum á Hótel Dalvík í dag undir yfirskrift- inni Djúpavík á Ströndum. Garðar útskrifaðist úr auglýs- ingadeild Myndlista- og handíða- skóla Íslands árið 1982. Hann hef- ur haldið nokkrar einkasýningar, nú síðast árið 2000 í Galleríi Fold, og tekið þátt í samsýningum. Fyrirmyndir listamannsins eru flestar sóttar til fortíðarinnar – gjarnan í búrhilluna eða eldhús- skápinn hjá ömmu þar sem hver dós og kassi átti sinn sérstaka stað, sinn sérstaka ilm og innihald. Einnig má líta myndir af ýmsum hlutum nátengdum Djúpuvík. Sýningin á Hótel Djúpuvík stendur til 31. ágúst. Málverka- sýning á Hótel Dalvík Siglufjarðarkirkja, kl. 11. Þjóð- lagamessa. Kl. 14. Sálmaspuni. Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson. Þjóðlagahátíð á Siglufirði FORSAL Hallgrímskirkju prýða um þessar mundir nokkur ný mál- verk eftir Valgarð Gunnarsson, sem sækir viðfang sitt í helgar bækur. Valgarður hefur löngu haslað sér völl í íslenzkri málaralist fyrir sínar vel unnu og nostursamlega útfærðu málverk og ekki hefur hann dregið af sér að þessu sinni. Frekar gengið til verks af elju og alúð líkt og svo margir sem átt hafa myndverk á staðnum og unn- ið þau gagngert fyrir hið afmark- aða rými, enga fyrirhöfn sparað til að verkin féllu að helgi staðarins, mettaði enn frekar andrúmið upp- höfnum straumum. Framtakið löngu einstakt, því hér hafa margir af fremstu myndlistarmönnum þjóðarinnar lagt margra mánaða vinnu í að gera hlut sinn sem marktækastan, þó án nokkurs sýnilegs rembings í þá átt að einn vilji yfirgnæfa annan eins og stundum vill gerast. Valgarður byggir myndheildir sínar upp á einföldum táknum sem skara frásögur úr helgum bókum og eru nöfnin hér upplýsandi veg- vísar, svo sem; Víngarður Nabóts. Dýr merkurinnar. Meríbavötn. Salur Sáls o.s.frv. Allt eru þetta olíumálverk af stærri gerðinni ut- an tvö minni sem eru sér á báti um hlutvakið ferli. Í hinum ráða tákn- in og átökin við innri lífæðar myndflatarins en þó á stundum erfitt að greina inntakið í einslitri heildinni eins og hinum tveim fyrstnefndu sem njóta sín að auk naumast á staðnum. Bein lýsing á myndverkin mætti vera betri og stillanlegri og umgjörð sýn- ingarinnar markvissari. Varla til of mikils mælst, að listafélag kirkj- unnar komi til móts við metnað sýnenda með kynningu á þeim og verkunum þeirra hverju sinni. En hér er litlu kostað til og gestir fá engar upplýsingar á milli hand- anna hvað þá rýnendur sem skapar þeim mun meiri ómak og vinnu en skyldi. Hér mætti taka Hannes Sigurðsson listsögufræð- ing til fyrirmyndar, sem sendi jafnaðarlega ítarlegar upplýsingar til þeirra um sýnendur á Mokka, er hann var þar sýningastjóri. Upplýsingafátækt til gagnrýnenda og tilætlunarsemi við mynd- listarmenn er með ólíkindum hér á landi og í þessu tilviki væri meira en sanngjarnt að kirkjan festi sér eitt myndverk hverju sinni sem yrði svo vísir að listaverkasafni… Rétt að geta þess, að á kirku- degi var í Turnkapellu lítil en at- hyglisverð sýning á höklum eftir Hildigunni Smáradóttur ásamt leirlist eftir Ólöfu Erlu Bjarna- dóttur, Helgu Kristínu Unnars- dóttur og Elísabetu Haraldsdótt- ur. Afar einfaldir og formheilir hlutir er augu glöddu, en upplýs- ingastreymið einnig í algjöru lág- marki. Af helgum bókum MYNDLIST H a l l g r í m s k i r k j a Opið alla daga á tíma kirkjunnar. Til 31. ágúst. Aðgangur ókeypis. MÁLVERK VALGARÐUR GUNN- ARSSON Bragi Ásgeirsson Morgunblaðið/Bragi Eitt verka Valgarðs Gunnarssonar á sýningunni. MENNINGARSJÓÐUR Lands- banka Íslands hf. hefur úthlutað styrkjum til 12 verkefna. Þeir sem hlutu styrk að þessu sinni eru: Kvik hf. kvikmyndagerð fékk 350.000 kr. styrk vegna gerð- ar heimildamyndar um Jóhannes Sveinsson Kjarval. Astma- og ofnæmisfélagið fékk 150.000 kr. styrk til útgáfu á fræðslubæklingi og gerðar á heimasíðu. Minningarsjóður Björgvins Guð- mundssonar tónskálds fékk 150.000 kr. styrk vegna útgáfu á lögum hans á geisladisk. Systkinasmiðjan fékk 150.000 kr. styrk til að halda námskeið fyr- ir systkini fatlaðra barna. Samstarfshópur um líkn fékk 150.000 kr. styrk vegna námskeiðs sem þau héldu fyrir starfsfólk sjúkrahúsa og félaga sem sinna sérstaklega sorgarvinnu. Unglingakór Selfosskirkju fékk 150.000 kr. styrk vegna þátttöku kórsins í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni sem fram fer í lok júlí. Blái herinn fékk 100.000 kr. styrk vegna hreinsunar á höfnum á Suðurnesjum. Blátindur fékk 100.000 kr styrk vegna endurbygg- ingar á vélbátnum Blátindi VE21. MS félag Íslands fékk 100.000 kr. styrk vegna gerðar á úti- listaverkinu STOÐ. Verkið mun verða staðsett á lóð félagsins. Samtökin Sókn gegn sjálfsvígum fengu 100.000 kr. styrk til reksturs samtakanna. Barnablaðið Æskan fékk 100.000 kr. styrk vegna útgáfu blaðsins. AA-samtökin á Akureyri fengu 100.000 kr. styrk vegna kaupa á stólum í fundarsal samtakanna. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Styrkþegar Menningarsjóðs Landsbanka Íslands 2001. Úthlutað úr Menningar- sjóði Landsbankans ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.