Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 29

Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 29 átti hann að baki mikinn feril í tónlistarmálum í Þýzkalandi og Austurríki. En örlög hans voru ráðin, þegar hann gekk að eiga konu af gyðingaættum. Eftir að Austurríki var inn- limað í Þýzkaland Hitlers gátu þau ekki leng- ur búið í Austurríki. Dr. Urbancic var einn þeirra manna, sem, lögðu grundvöll að fjölskrúðugri kórmenningu á Íslandi. Þar kom Róbert Abraham Ottósson einnig við sögu, Páll Ísólfsson og síðar Ing- ólfur Guðbrandsson. Um þennan þátt í starfi dr. Urbancic segir Árni Heimir Ingólfsson í grein sinni í Lesbók Morgunblaðsins fyrir viku.: „Starf Victors Urbancic sem kórstjóra verð- ur seint ofmetið. Fyrstu áratugi 20. aldarinnar var enginn blandaður kór starfandi á landinu, sem staðið gat undir nafni. Stöku sinnum var þó hægt að koma saman þokkalegum sönghóp til að glíma við stærri verkefni, hvort sem var fyrir einskæran stórhug einstakra manna (eins og þegar Páll Ísólfsson stjórnaði þáttum úr Þýzku sálumessunni eftir Brahms í Dómkirkj- unni 1926) eða vegna merkisatburða á inn- lendum vettvangi t.d. Alþingishátíðarinnar 1930... Urbancic var einn þeirra kórstjóra, sem gerbreyttu viðhorfi landsmanna til blandaðs kórsöngs, enda réðst hann ekki á garðinn, þar sem hann var lægstur. Strax árið 1940 stjórn- aði hann flutningi á Messíasi Händels og voru Páll Ísólfsson, Árni Kristjánsson, Björn Ólafs- son og Heinz Edelstein meðal einleikara í hljómsveitinni. Eftir þetta urðu kórtónleikar undir stjórn Urbancic að árvissum menningar- viðburði í höfuðstaðnum. 1941 stjórnaði hann Stabat mater eftir Pergolesi og fjórum köflum úr h-moll messu Bachs og ári síðar stjórnaði hann Sálumessu Mozarts. Eitt metnaðarfyllsta verkefnið og kannski einnig það bíræfnasta, tók við árið 1943. Það ár stóð Urbancic fyrir flutningi Jóhannesarpassíunnar (í styttri út- gáfu) á fernum tónleikum í Fríkirkjunni.“ Þegar hugsað er til þess að Íslendingar voru á þessum tíma helmingi færri en nú og mennt- aðir tónlistarmenn fáir er flutningur þessara tónverka náttúrlega ótrúlegt afrek og nánast óskiljanlegt að það hafi tekizt. En jafnframt er ekki erfitt að gera sér í hugarlund hvers konar áhrif þessi starfsemi hefur haft á menningar- lífið á Íslandi. Raunar stóð starfsemi Tónlist- arfélagsins undir forystu manna eins og Páls Ísólfssonar og Ragnars í Smára með miklum blóma á þessum tíma en það er önnur saga. Í grein Árna Heimis um dr. Urbancic er vik- ið að einum þætti í starfi hans, sem lítið hefur verið fjallað um hér. Greinarhöfundur segir: „Tónsmíðum sínum hélt Urbancic ekki mjög á lofti í lifanda lífi og ekki hafa þær heldur eign- ast öflugan málsvara að honum látnum. Það kann því að koma ýmsum á óvart að verkaskrá hans telur yfir 40 verk. Flest voru þau samin á árunum 1919–1938, þ.e.a.s. á námsárum hans og fyrstu starfsárum í Þýzkalandi og Aust- urríki... Eftir komuna til Íslands varð tón- smíðastarfið stopulla, enda gáfu tónsmíðar lít- ið í aðra hönd, auk þess sem hér var í mörgu að snúast og lausar stundir til tónsmíða af skornum skammti.“ Það væri verðugur minnisvarði um störf dr. Victors Urbancic að öll tónverk hans yrðu smátt og smátt gefin út í handriti, flutt hér og gefin út á diskum. Morgunblaðið hefur áður vikið að því, að það er í raun og veru skylda okkar að varðveita tónlistararf 20. aldarinnar á Íslandi með þeim hætti og gefa út í hand- ritum og á diskum smátt og smátt öll verk helztu tónskálda þjóðarinnar. Menn á borð við dr. Urbancic eiga heima í þeim hópi. Afstaðan til fólks af erlend- um uppruna Hér hefur verið vikið að tveimur þeirra þriggja tónlistar- manna, sem um er fjallað í greinaflokki Lesbókar um þessar mundir, en greinin um dr. Róbert Abraham Ottósson mun birtast að viku liðinni. Það er gert m.a. til þess að minna Íslendinga á, hvað framlag fólks sem flytur hingað frá öðrum löndum, til samfélags okkar og menningar get- ur verið gífurlega mikilvægt. Við erum svo fámenn þjóð, að við höfum í raun einstakt tækifæri til að byggja hér upp þjóðfélag, sem er til fyrirmyndar á nánast öll- um sviðum. Íslenzka þjóðin er betur menntuð en flestar aðrar. Íslendingar ferðast meira en flestir aðrir. Íslendingar eru í hópi upplýst- ustu þjóða heims. Þjóð, sem hefur komið sér svo vel fyrir, get- ur ekki verið þekkt fyrir að láta fordóma í garð fólks af öðru þjóðerni festa hér rætur. Gróðrarstía kynþáttafordóma er menntunar- leysi, einangrun, atvinnuleysi og fátækt. Ekk- ert af þessu einkennir samfélag okkar. Og gleymum því ekki að við höfum sjálf árum og áratugum saman leitað eftir því að fólk komi hingað frá öðrum löndum til þess að vinna í fiskvinnslustöðvum okkar. Við getum ekki bú- izt við því að það búi hér bara þegar okkur hentar. Í þessari eftirsókn eftir erlendu vinnu- afli felst skuldbinding um að taka vel á móti þeim úr þessum hópum, sem vilja setjast hér að. Við erum stolt af sögu okkar og menningar- legri arfleifð. Við erum stolt af fegurð lands okkar. Ekkert af þessu er tilefni til þjóðremb- ings af neinu tagi. Aðrar þjóðir eiga sér merka sögu, mikla menningu og fallegt land. Mennt- uð og upplýst þjóð hefur áhuga á að kynna sér þá sögu. Alveg með sama hætti getum við gengið út frá því sem vísu, að þeir sem hingað flytja frá öðrum löndum hafa áhuga á að kynn- ast sögu okkar, menningu og náttúru lands okkar. Dr. Edelstein ferðaðist um óbyggðir Íslands (og það voru raunar ekki margir Íslendingar, sem gerðu það á þeim tíma) og Árni Heimir segir að Páll Ísólfsson hafi sagt eftir að hlusta á frásagnir hans af þeim ferðum, að það hafi verið „eins og að hlusta á ævintýri og tignar- legt bros færðist upp ásjónu hans er hann lýsti sumarnóttinni íslenzku eða litagliti fjallanna og fjörlegum bláma þeirra“. Victor Urbancic bar slíka virðingu fyrir ís- lenzkri menningu, að þegar hann stjórnaði flutningi Jóhannesarpassíunnar tók hann ákvörðun um að fara „nýja leið og ...fella sálmatexta Hallgríms Péturssonar og annarra 17. aldar skálda að tónum Bachs...“ Fyrir skömmu var leikverk Brynju Bene- diktsdóttur um Guðríði sýnt fyrir fullu húsi. Í áhorfendahópnum voru nánast eingöngu er- lendir vísindamenn og aðrir starfsmenn Ís- lenzkrar erfðagreiningar. Við þurfum á þeim að halda ásamt íslenzkum vísindamönnum til þess að vinna það merka starf, sem fram fer á vegum þess fyrirtækis. Það eru engar mótsagnir í því að rækta og halda í heiðri sögu þjóðar okkar og menningu og ást á náttúru lands okkar og taka jafnframt opnum örmum fólki af erlendu bergi brotnu, sem vill flytja hingað og taka sér búsetu á Ís- landi. Morgunblaðið/RAXLangisjór Framlag þessara þriggja manna til uppbyggingar þjóð- félags okkar á fyrstu árum lýðveld- isins var mikið og það sama má segja um nokkra aðra út- lendinga, sem hing- að komu á sömu for- sendum og þeir. Nú á tímum, þegar töluverðar umræð- ur eru um það, hvort kynþátta- fordómar séu að skjóta hér rótum, er bæði hollt og gagn- legt að minna á, að fólk, sem hingað kemur frá öðrum löndum, á mikinn þátt í að skapa hér fjölbreyttara og auðugra samfélag. Laugardagur 14. júlí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.