Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 38
FRÉTTIR
38 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Um er að ræða rúmgóða 4ra herbergja
101 fm íbúð á 1. hæð t.v. í góðu 4ra
hæða fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta
stað í vesturbænum. Íbúðin skiptist í 2
rúmgóðar stofur sem má skipta, 2 góð
svefnherbergi, bað-herbergi með
glugga o.fl. Góðar svalir í austur. Stutt
í skóla. Laus strax. Verð 12,3 millj.
Gjörið svo vel að líta inn. María
Baldursdóttir tekur vel á móti ykkur.
HJARÐARHAGI 64
LAUS ÍBÚÐ Í VESTURBÆNUM
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 17.
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
FÍFULIND 15 - Á 2 HÆÐUM
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15-17
Þetta er gullfalleg ca 160 fm íbúð á 3. hæð til hægri með sérinngangi af
svölum. Íbúðin er á 2 hæðum. Á neðri hæðinni er m.a. eldhús, stofa og
borðstofa ásamt 3 herbergjum og góðu baðherbergi en á efri hæð er sjón-
varpsskáli, 1 herbergi, snyrting og geymslur. Stórar suðursvalir eru út úr
stofu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og vandaðar. Gegnheilt parket og
flísar á gólfum. Halogen-lýsing. Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegri
hjóla- og vagnageymslu. Verð tilboð.
KRISTÍN OG MAGNÚS SÝNA ÍBÚÐINA Í DAG MILLI KL. 15 OG 17.
! !
" # #
$ %&"' ( )" # ! * (
#
!
" """
Sími 530 4500
Stórglæsileg 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í nýviðgerðu fallegu fjölbýli í
vesturbænum. Falleg birkiinnrétting í eldhúsi, stálháfur, parket á öllum gólfum
og flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. Björt og rúmgóð stofa með stórkostlegu
útsýni yfir sjóinn og til Snæfellsjökuls. Verð 14,5 millj.
VESTURGATA 73
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18
Halla og Björn taka vel á móti ykkur í dag frá kl. 16-18.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn í síma 561 1069.
Mjög góð 2ja herb. íb. á 1.
hæð. Góðar innr. Rúmg.
svefnherb. Parket. Þvottahús á
hæðinni. Verð 8,6 millj. Góð
staðsetning og sérlega góður
garður. 1649.
Halldór og Susana bjóða
ykkur velkomin milli kl. 14 - 16
í dag.
OPIÐ HÚS
í dag frá kl 14-16
á Meistaravöllum 17, Reykjavík.
1. hæð til hægri
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
Nýkomin í sölu á þessum eftirsótta
stað góð 3ja herb. 61 fm íbúð á
neðri hæð í tvíbýli ásamt 17 fm
aukaherbergi í kjallara með aðgangi
að sameiginlegu baðherbergi með
sturtu. Í kjallara er rúmgott
þvottahús. Áhv. 3,7 millj. Verð 9,6
millj., brunabótamat 10,4 millj.
Elfa tekur á móti ykkur í dag frá
kl. 14-17.
OPIÐ HÚS SUNNUD. 15.JÚLÍ
Meðalholt 3 - neðri hæð með aukaherb.
Heilsársbústaður
Sérlega vandaður 60 fm
heilsársbústaður til sölu.
Vandaðar innréttingar,
eldavél og ísskápur.
Til sýnis að Helluhrauni 22,
Hafnarfirði.
Á útsöluverði.
Kanada Hús ehf., s. 555 7177 www.kanadahus.is
Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali.
Jón Kristinsson sölustjóri.
Svavar Jónsson sölumaður.
Sími 551 8000 - Fax 551 1160
Vitastíg 12 - 101 Reykjavík
Mávanes 2 - Garðabær
Verið er að endurbyggja glæsilegt einbýlishús sem er til sölu.
Eignin er tilbúin að utan, fokheld að innan
eða lengra komin samkvæmt nánara samkomulagi.
Frábær staðsetning og fallegur garður.
GÍSLI S. Einarsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, skrifaði á föstu-
dag svohljóðandi bréf til forseta Al-
þingis.
„Ég undirritaður fer fram á að
gerð verði bókhalds- og stjórnsýslu-
úttekt á fjárveitingu til Þjóðleik-
hússins, nýframkvæmda og viðhalds,
vegna yfirstandandi fjárlagaárs og
liðinna ára frá skipun starfandi
byggingarnefndar. Gerð verði grein
fyrir útboðum, eftirliti, verksamn-
ingum, fundargerðum bygginga-
nefndar Þjóðleikhússins og áritun
reikninga vegna ráðstöfunar þeirra
fjármuna eftir verknúmerum eða
heitum á hverju verki fyrir sig.
Ástæða þessarar beiðni er frétt í
DV í dag varðandi efnisúttekt hjá
fyrirtækinu BYKO vegna Leik-
munageymslu Þjóðleikhússins sem
samkvæmt sömu frétt hefur ekki
enn verið ákveðið að ráðast í en þó er
verkheiti orðið skráð hjá umræddu
fyrirtæki.
Mér hefur ekki verið ljóst fyrr en
nú að meðnefndarmaður minn í fjár-
laganefnd og áhrifamaður á skipt-
ingu fjármuna til verkefna m.a. í
Þjóðleikhúsinu, væri svo sjálfur for-
maður og ákvörðunaraðili um ráð-
stöfun úthlutaðra fjármuna.
Nauðsyn er að þessi úttekt verði
unnin mjög skjótt, vegna þeirra sem
aðild eiga að málinu.“
Óskar eftir
stjórnsýsluúttekt
Gísli S. Einarsson, þingmaður
Samfylkingar
Á ÁRUNUM 1998 fram til miðs árs
2000 urðu engin drukknunarslys á
börnum en síðan þá hafa orðið 5
drukknunarslys. Tvö börn hafa látist
en 3 komist heil heilsu frá slysunum.
Vegna þessa vill Árvekni, verk-
efnastjórn um slysavarnir barna og
unglinga, koma eftirfarandi á fram-
færi til foreldra og forráðamanna
barna: Að leyfa ekki ósyndum börn-
um að fara einum í sund, þrátt fyrir
að aldurstakmarkið sé átta ára. Að
fylgjast sérstaklega vel með börnum
í og við setlaugar og að þeim sé taf-
arlaust lokað eftir notkun. Skilja
aldrei lítil börn ein eftir í baði. At-
huga að grunnir pollar geta valdið
drukknun hjá börnum yngri en 4 ára.
Gæta þess að miklar hættur eru þeg-
ar börn eru ein að leik við ár, vötn og
sjó. Þá er einnig mikilvægt að börn
noti ekki hringlaga kúta í sundlaug-
um heldur annan búnað sem ætlaður
er til sundkennslu eins og armkúta
og sundjakka.
Drukkn-
unarslysum
á börnum
fjölgar
SAMKVÆMT nýjum tóbakslögum
þurfa verslanir og aðrir þeir sem selja
tóbak að vera búnir að sækja um tób-
akssöluleyfi fyrir 1. ágúst næstkom-
andi, en gjöld vegna tóbakssöluleyfa
verða mjög mishá milli einstakra
svæða.
Í Reykjavík þurfa verslanir og aðr-
ir sölustaðir að greiða 12.250 krónur, í
Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði
verður innheimt 5.300, í Reykja-
nesbæ verður gjaldið 5.800 en á Ak-
ureyri hefur enn ekki verið tekin
ákvörðun um hvert gjaldið verður. Í
Reykjavík verður auk þess innheimt
gjald að upphæð 7.350 vegna undan-
þágubeiðna um að fólk yngra en 18
ára fái að afgreiða tóbak og einnig
sérstakt þjónustugjald að upphæð
4.900 á tímann vegna ráðgjafa og leið-
beininga.
Gjaldskráin fyrir Reykjavík var
samþykkt á fundi Umhverfis- og heil-
brigðisnefndar Reykjavíkur en
fulltrúi Samtaka verslunar og þjón-
ustu og Samtaka atvinnulífsins í
nefndinni mótmælti gjaldtökunni á
þeim forsendum að hún væri of há.
Samtök verslunar og þjónustu benda
á að gjaldinu sé ætlað að endurspegla
raunverulegan kostnað við leyfisveit-
ingu og eftirlit og því telja þau að
vandséð sé í hverju mismunur á milli
einstakra svæða er fólginn.
Samtök verslunar og þjónustu hafa
einnig gagnrýnt það ákvæði tóbaks-
laga sem bannar fólki yngra en 18 ára
að afgreiða tóbak. Telja samtökin að
bannið muni hafa alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir sumar versl-
anir og sé einnig slæmt fyrir unglinga
sem hafa sinnt afgreiðslustörfum.
Mishá
gjöld milli
svæða
Gjaldskrá vegna
tóbakssöluleyfis
BLINDRAFÉLAGIÐ og Einka-
klúbburinn hafa í samstarfi við
Skeljung hafið sölu á Einkaklúbbs-
kortum í Select-verslunum til styrkt-
ar starfsemi félagsins. Samstarfið er
fólgið í því að Skeljungur selur kort-
in án þóknunar.
Einkaklúbbskort er afsláttarkort
og ársáskrift kostar 2.900.- kr. og
fær Blindrafélagið 70% af andvirði
þess til að fjármagna starfsemi sína.
Hjá Blindrafélaginu fer fram
margþætt þjónusta í þágu blindra og
sjónskertra.
Styrkja
Blindrafélagið
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Rás 1
Djass
öll laugardagskvöld