Morgunblaðið - 15.07.2001, Page 49
FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 49
Tregi tryllta mannsins
(Wild Man Blues)
H e i m i l d a r m y n d
Leikstjórn Barbara Kopple. Fram
koma Woody Allen, Soon-Yi Previn.
(106 mín.) Bandaríkin 1997. Mynd-
form. Öllum leyfð.
EINS OG SANNIR unnendur
grínistans og kvikmyndagerðar-
mannsins Woodys
Allens vita þá er
tónlistin helsta
ástríðan í lífi hans.
Aðdáun hans á
New Orleans-
djassi dreif hann
til þess að læra á
klarínettið á 7.
áratugnum og
undanfarna ára-
tugi hefur hann
verið upptekinn á hverjum mánu-
degi við spilamennsku ásamt hljóm-
sveit sinni í litlum látlausum djass-
klúbbi í New York. Hann lætur líka
ekkert koma í veg fyrir þá helgi-
stund. Ekki einu sinni Óskar litla
gyllta og glansandi.
Þessi „fluga á vegg“-heimildar-
mynd segir frá Evrópureisu sem
Allen fór með hljómsveit sína í eftir
margítrekaðar áskoranir um að
gefa sínum helstu unnendum inn-
sýn í hvað hann hefur verið að
bauka á mánudagskvöldum. Með
honum í för var unnusta hans Soon-
Yi Previn, fósturdóttir Miu Farrow,
fyrrum samferðarkonu Allens til
fjölda ára. Þeim sem fylgdust með
því hneykslismálinu þegar þau
Farrow slitu samvistum og hann
tók saman við Soon-Yi ætti að
þykja forvitnilegt að rýna í eðli
þessa umdeilda sambands. Fyrir
hina sem dáðst hafa af Allen sem
listamanni er myndin jafnvel ennþá
bitastæðari því hér er reynt að
draga upp mynd af hinum „sanna“
Allen og hafi það lánast verður
bara að segjast sem er að hann er
ótrúlega lítið frábrugðinn þeim
ávallt áhugaverða og yndislega
nöldursegg sem hann hefur „leikið“
í svo mörgum myndum sínum. Bón-
usinn er síðan alveg guðdómlega
skemmtilegur djass, sem ætti að
heilla alla unnenndur rótgróinnar
djasstónlistar upp úr inniskónum.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Klarínett-
leikarinn
Woody
DILBERT
mbl.is