Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 50

Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HANN er alveg magnaður á stund- um, allur sá fjöldi hljómleika og upp- ákoma sem á sér stað í henni litlu Reykjavík. Hipp-hopp, raftónlist, rokk og allt þar á milli er á blússandi stími um þessar mundir og þeir sem vilja hvað mest fylgjast með og sækja viðburði þar að lútandi eru vanalega fljótt komnir með fullskip- aða vikuáætlun. Menningarhamagangi þessum verður framhaldið á morgun á Gauki á Stöng en þá hyggjast tvær af efni- legri rokksveitum landsins leika, Úlpa og Náttfari. Úlpumenn eru á mála hjá Edduút- gáfunni en skífa frá þeim er vænt- anleg með lækkandi sól. Upptökur hafa verið að eiga sér stað í Gróð- urhúsinu, hvar Valgeir nokkur yfir- græðari (hefur unnið með m.a. Björk og Agli Sæbjörnssyni) hefur verið þeim piltum innan handar. Náttfari er af mörgum talin ein efnilegasta sveit landsins um þessar mundir og hafa verið að vekja verð- skuldaða athygli að undanförnu. Náttfari spilar tilraunakennt rokk, oft kallað síðrokk. DJ Kasaktan mun leika plötur um kvöldið sem hefst kl. 21.00. Aðgangs- eyrir er 500 kr. eftir kl. 22.00. Úlpa og Náttfari á Gauknum Morgunblaðið/Golli Úlpa leikur á Gauknum annað kvöld ásamt Náttfara. Gróskan endalausa BARÐI er grínaktugur að vanda er greinarhöfundur sest niður með þeim félögum. Og þótt spjallið sé í snarborulegra lagi, enda þeir félagar á miklum þeytingi þessa dagana, kemur ýmislegt athyglis- vert á daginn. Í fyrsta lagi eru það hljómleikarnir í kvöld en þeir eru tímamótatónleikar fyrir sveitina í margvíslegum skilningi. „Þetta er vegna þáttaskila,“ seg- ir Barði dimmraddað með sinni einstöku, vélrænu röddu. „Við ætl- um að leika á hljómleikum í tilefni þess að við höfum ekki leikið hér í tæpt ár. Einnig mun Margeir leika plötur. Okkur finnst kominn tími til að kveðja dagskrána sem við höfum verið að leika erlendis og ætlum að spila sum laganna í síðasta skipti á þessum tónleikum. Esther Talía syngur með Bang Gang í síðasta skipti þetta kvöld og svo vorum við að segja upp samningi hjá plötu- fyrirtækinu okkar, Skífunni.“ Barði segir svo stefnt á upp- tökur á nýrri hljómplötu í sept- ember. „Liðsskipanin verður eitthvað breytt á þeirri plötu,“ segir Barði. „Það verður fengin föst söng- kona; í franskri útgáfu plötunnar (kom út þar í desember í fyrra; ögn breytt, tónlistarlega og útlits- lega) sungu þrjár söngkonur sem hafa verið með okkur á hljómleika- ferðalögum úti til skiptis. En nú verður fundin söngkona sem verð- ur allan tímann.“ Hann segir þó að sem stendur sé engin ákveðin í sigtinu. Bang Gang er nú að þróast út í band að sögn Barða, en til þessa hefur þetta í raun verið eins manns sveit og telur hann ekki ólíklegt að einhverjir muni bætast í hóp- inn. „Þarna eru staddir innanborðs, Barði Jóhannsson,“ tjáir Barði greinar- höfundi. „Arnar Þór Gísla- son,“ bætir Arnar, trommuleikari við, „Jóhann Gunnarsson (áður Stolía) og Þór- hallur Bergmann (úr The Vinylistics).“ Arnar sjálfur hef- ur verið að leika með Súrefni en var einnig í Stolíu. Eina breiðskífa Bang Gang, You, kom út hérlendis fyr- ir þremur árum, við- urkennir Barði og hlær hálfpart- inn við. „Ég held að það sé kominn tími á aðra plötu fyrr en síðar. Nú er ég kominn í þá stöðu að geta gert hvað sem ég vil þar sem ég er laus undan samningi.“ Næsta Bang Gang-plata er áætluð haustið 2002. „Ætli verði svo ekki sumarsmellur frá okkur á Svona er sumarið 2002. Og á Pottþétt 2002 og Pottþétt 34,“ seg- ir Barði að lokum sem segist aldr- ei hafa séð það fyrir sér að hann ætti eftir að sinna tónlist í fullu starfi. „Ég hef stefnt markvisst að þessu en átti aldrei von á þessu,“ svarar hann ákveðinn. Bang Gang á Gauknum í kvöld Morgunblaðið/Sigurður Jökull Það er stutt í sprellið hjá þeim félögum Arnari og Barða úr Bang Gang. Það er ýmislegt í gangi hjá Bang Gang um þess- ar mundir. Arnar Egg- ert Thoroddsen ræddi við Barða og nafna sinn í gula sófanum goð- sögulega. arnart@mbl.is „Átti aldrei von á þessu“ ILO er róleg plata. Ekkert er hratt. Hlýóma stemningar svífa út úr hátölurum og oft er auðugt hugmynda. Þrástef eru títt notuð og hryngrindur eru flestar afar vel til fundnar. Því miður eru æði tak- markaðar upplýsingar með hulstri geislaplötunnar þannig að ekki verður hér talið annað en að höf- undur leiki sjálfur og forriti þorra tónlistarinnar. Tóndæmin á ILO eru tíu talsins og flest vel heppnuð. Platan verð- ur aldrei of syfjuleg og einóma, þrátt fyrir rólegheitin. Lausnir í útsetningum eru ánægjulega hug- myndaríkar og í flestu lausar við ofhleðslu. ILO er að mestu ósungin en undantekn- ingin er þó popp- lagið „Artificial Ingredients“ sem Jara nokkur sem- ur og flytur í félagi við Ólaf. Lagið, sem er hin þekkilegasta dægursmíð, er dreymið í ómi og minnir eilítið á tónlist Angelo Badalamenti. Jara syngur lagið loft- kennt en þokkafullt í anda Julee Cruise sem starfaði einmitt eft- irminnilega með áðurnefndum Badalamenti hér áður fyrr. Af öðr- um eftirminnilegum lögum plöt- unnar er rétt að nefna hið hryn- heita kyrrstöðulag, „Tif“, sem inniheldur allt að því óhugnanlega grípandi stef. Lagið er lengi í gang og mallar í yfir fimm mínútur áður en hið heillandi stef tekur völdin. Fyrirtak. Fimmta tóndæmið, „Sand“, er sömuleiðis afbragðssmíð og með afbrigðum hrynheit. Mér finnst sem andi síðustu verka Talk Talk svífi hér yfir vötnum, án þess þó að nokkuð hljómi beinlínis eins og sú eðal- sveit. „Sand“ er að mínu viti það athygl- isverðasta á ILO. Hér skal eins getið um „Absynth“, sem er ein af þessum smíðum með fá- gæta nánd sem fangar. Lagið samdi Ólafur með Þórdísi Claessen og tekst þeim vel til. Önnur lög á ILO skera sig minna úr. Þau rista ekkert sérstaklega djúpt en líða ósköp þægilega áfram og eru aldrei beinlínis leið- inleg. Annað lagið, „New Age“, er sennilega best þeirra og á betra nafn skilið! Þetta er fyrirtaks bak- grunnstónlist sem er á margan hátt dýpri, lagbetri og frumlegri en gengur og gerist í þessum geira tónlistar. Hljómurinn á plötunni er til fyrirmyndar og lágmiðjuvænn eins og tónlistin á skilið. ILO er hlý kyrrstaða og vel heppnuð. Hlý kyrrstaða TÓNLIST G e i s l a p l a t a ILO, geislaplata Ólafs Breiðfjörð. Ólafur stýrði sjálfur upptökum og útsetti. Hann samdi sömuleiðis tón- listina en einnig lögðu þau Jara, Þórdís Claessen og Karl Davids hönd á plóginn. Finnur Hákonar- son, Þórhallur Skúlason og Finnur Björnsson hljóðblönduðu og hljóm- jöfnuðu. Thule gefur út. ILO Orri Harðarson Ólafur Breiðfjörð MOGGABÚÐIN mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.