Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Dundee-leikur á vísi.is
Hann heyrði að
það væri villt í LA.
hann vissi ekki hversu villt!
Geggjuð gamanmynd
frá leikstjóra Ghostbusters!
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu. r , i r r i lífi irr ilíf .
Sýnd kl. 3.45 og 6. Vit 234
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
Sýnd kl. 2 og 6.
Mán 4 og 6. Vit 236.
Sýnd kl. 1.45. Íslenskt
tal. Vit nr. 231
Sá snjalli er
bxunalaus!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 242.
Kvikmyndir.com
Frumsýning
Hausverk.is
Nýi Stíllinn
Keisarans
Sýnd kl. 2 og 4.
Mán kl. 4. Vit 213
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Mán. kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 249Forsýning kl. 4 með ísl. tali. Vit 245
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 4, 6, 8 og 10. Vit 243.
Sýnd kl. 8.15. Vit 235. B.i. 12.
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn frá
framleiðendum Notting Hill & Four Weddings And
A Funeral. Með Renée Zelweger (Jerry Maguire,
Nurse Betty), Hugh Grant (Notting Hill, Four
Weddings And A Funeral) og Colin Firth
(Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.10. Vit nr. 250
Kvikmyndir.com
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16.
Keanu Reeves og
James Spader
Sýnd kl. 8 og 10. Mán kl. 8
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
Loksins ný mynd frá
leikstjóra Fucking Ámal.
Sænsk snilld og óborganlegur
húmor sem kemur öllum í gott
skap. Tékkið á þessari.
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mán. kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mán. kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6.
RIEN SUR ROBERT
SV Mbl
Vegna fjölda
áskorana verður
kínverska myndin
Vegurinn heim
sýnd í nokkra daga
Sýnd kl. 6.
Frumsýning
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn frá
framleiðendum Notting Hill & Four Weddings And
A Funeral. Með Renée Zelweger (Jerry Maguire,
Nurse Betty), Hugh Grant (Notting Hill, Four
Weddings And A Funeral) og Colin Firth
(Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mánudag kl. 6, 8 og 10.
Forsýning kl. 4 með íslensku tali. Mán. kl. 10.30.
Kvikmyndir.com
Nemaafsláttur 15%
DJASSPÍANISTINN Agnar Már
Magnússon hefur gefið út diskinn 01
hjá spænska útgáfufyrirtækinu
„Fresh Sound New Talent“.
„Margir ungir djassarar sem eru
farnir að gera góða hluti í dag, og
eru nú gefnir út af stærri fyrirtækj-
um, hafa byrjað hjá þeim. Út á við
fyrir mig er því gott að vera þarna
og vonandi get ég gefið út meira í
framhaldi af þessu,“ segir Agnar
Már.
Hann er einmitt nýkominn heim
eftir ársdvöl í New York þar sem
hann var í einkatímum hjá píanist-
anum og djassorganistanum Larry
Goldings, en áður nam hann við
Tónlistarskóla FÍH og við Con-
servatorium van Amsterdam.
Djass fyrir spaghettídisk
„Ég fæ dreifingu í Bandaríkjun-
um, Japan og Evrópu, og núna fæst
diskurinn einnig í versluninni Tólf
tónum við Skólavörðustíg.
„Það var mikið ævintýri að vera í
New York, og ég var byrjaður að
spila opinberlega. En það er of mik-
ið framboð af djössurum þar og ekki
hægt að lifa á djassspilamennsku,
nema fyrir stærstu karlana. Fólk að
rífast um spilamennsku fyrir 20
dollara eða jafnvel spaghettídisk,“
segir Agnar Már, en hann fékk stór
nöfn, eða Bill Stewart og Ben
Street, til að leika með sér á diskn-
um, en þeir voru efstir á lista hjá
Agnari Má. „Ég hafði hitt Bill í Hol-
landi og hann mundi eftir mér og
Ben hafði eitthvað heyrt af mér,
þannig að ég var ekki alveg óskrifað
blað hjá þeim, og ég gat leyft mér að
hringja í þá. Þetta var samt svolítið
stress því þetta eru stórir karlar í
mínum augum og það tók svolítið á
að kýla þetta í gegn, en konan mín
hvatti mig áfram,“ segir Agnar Már
brosandi.
Lagræn og auðmeltanleg
„Á disknum er tónlist sem ég hef
verið að semja seinustu ár, og það
tók svolítinn tíma til hafa þetta
tilbúið fyrir stóru karlana. Þetta eru
tíu lög eftir mig og einn standard í
minni útsetningu,“ segir Agnar Már
sem á í smá vandræðum með að
skilgreina tónlist sína:
„Hún er ekki ósvipuð mörgu af
því sem er í gangi í dag, ég gæti
kallað hana módern, en hún er samt
bæði lagræn og auðmeltanleg fyrir
hvern sem er og rennur ljúflega í
gegn fyrir óvana hlustendur.
Hún er upplögð sem dinnertón-
list, en ef maður leggur við hlustir
þá er margt í gangi í tónlistinni.
Hljómurinn er nútímalegur, ég er
ekki að að reyna að endurskapa
eldri stemmningu.“ Nokkrir erlend-
ir tónlistarmenn hafa sagst heyra ís-
lenskan blæ í lögunum hans Agnars
Más. „Maður ber auðvitað alltaf
með sér áhrif frá umhverfinu.“
Agnar Már segir New York dvöl-
ina hafa haft mikil áhrif á sig sem
tónlistarmann. „Í Ameríku eru aðr-
ar áherslur og ég hef nálgast djass-
hefðina meira, kynnst henni betur,
þótt það sé ekki að heyra í tónlist-
inni minni. En ég hef mikinn áhuga
á hefðinni og vil hafa hana í bak-
höndinni. En í Evrópu er meira ver-
ið að skapa út frá hefðinni, þannig
að það er gott að kynnast báðum
hliðum.
Þegar maður hefur lært í Evrópu
þá er New York skýjaborg sem
maður sér í hyllingum, og ég held að
ég hafi komið til baka með tvo fætur
á jörðinni. Ég er búinn að gera allt
sem ég ætlaði mér, og það er hálf-
gerður bónus að hafa tekið upp
plötu, fá hana gefna út og hvað þá
með þessum mönnum. Það breytir
miklu hvernig ég lít á sjálfan mig.
Ég hef farið yfir vissan þröskuld og
get haldið rólegur áfram. Búinn að
koma þessu frá mér og get byrjað
aftur frá grunni. Það er rosalega
góð tilfinning,“ segir djasspíanist-
inn, og tónskáldið Agnar Már.
Í haust verða tónleikar með tón-
listinni af 01 á djasshátíðinni þar
sem Gunnlaugur Guðmundsson
bassaleikari og Erik Qvick tromm-
ari leika með Agnari Má. En fyrir
óþolinmóða þá leikur hann með Jóeli
Pálssyni saxófónleikara og Einari
Scheving trommara á Ozio í kvöld
kl. 21.30 þar sem Agnar Már ætlar
að sýna takta sem Larry Goldings
kenndi honum á orgelið í New York.
Þar má einnig nálgast nýja diskinn.
Agnar Már gefur út djassdiskinn 01
Morgunblaðið/Billi
Djasspíanóleikarinn Agnar Már Agnarsson ætlar að spila á Ozio í kvöld
ásamt valinkunnum hljóðfæraleikurum.
Góð til-
finning
NETVERSLUN Á mbl.is
Drykkjarbrúsi
aðeins kr. 400
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar