Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 56

Morgunblaðið - 15.07.2001, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. LANGIR biðlistar eru nú eftir vist- unarrými á hjúkrunar- og dvalar- heimilum aldraðra á höfuðborgar- svæðinu. Hjá DAS, sem rekur Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði, er biðtími eftir vistun um eitt til eitt og hálft ár og um þúsund manns á biðlista eftir rými. Inntökustjóri Hrafnistuheimilanna lýsir ástandinu sem skelfilegu. Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að alls hafi rétt ríf- lega eitt þúsund aldraðir sótt um rými, en aðeins hluti þess hóps njóti þó forgangs vegna brýnnar eða mjög brýnnar vistunarþarfar. „Við segjum að það sé eitt til eitt og hálft ár í bið fyrir þá sem eru í hvað mestri þörf. Við tökum fólk inn í ákveðinn forgangshóp og vinnum umsóknir úr honum,“ segir Sveinn við Morgunblaðið. „Þetta er auðvitað skelfilegt ástand og við eigum í erfiðleikum með að skýra þetta út fyrir fólkinu og að- standendum þess. Þetta fólk og fjöl- skyldur þess búa oft við alveg ótrú- legar aðstæður og þeir sem sinna þeim starfa að meta umsóknir eru ekki í skemmtilegri aðstöðu, einkum þegar velja þarf milli tveggja einstak- linga sem báðir eru í mjög brýnni þörf en aðeins eitt rými hefur losnað.“ Að sögn Sveins losna aðeins nokkr- ir tugir rýma á ári hverju og ekki sé sjálfgefið að þeir sem eru á biðlistum komist þá á hjúkrunarheimilin þar sem blönduð starfsemi sé á Hrafn- istu. „Þegar einhver fellur frá á hjúkrunarheimilum er fyrst kannað hvort einhver inni á dvalarheimilinu er í þörf fyrir að komast á hjúkrunar- heimili. Þess vegna getur oft liðið langur tími án þess að við tökum nokkurn af biðlista beint inn á hjúkr- unarheimili,“ segir hann, en leggur áherslu á að hrein, fagleg ákvörðun ráði inntöku á heimilin. Aðrir þættir komi þar ekki nærri. Anna Björg Sigurbjörnsdóttir, inntökustjóri á Hrafnistu, segir ástandið að undan- förnu hafa verið mjög erfitt, mun erf- iðara en áður. „Biðtíminn er slíkur að fólk verður mjög óttaslegið. Sumir eru jafnvel orðnir mjög veikir loksins þegar þeir komast að. Af þessum sökum erum við farin að sjá mun yngra fólk á bið- listunum en áður.“ Að sögn Önnu teljast virkir um- sækjendur á biðlistum Hrafnistu- heimilanna nú vera 578. Alls séu hins vegar 1.008 á biðlistunum, alls staðar að af landinu. Langir biðlistar eftir vistun á hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra Biðtími allt að eitt og hálft ár STEYPUVINNA við stóra dekkið á brúnni yfir Reykjanesbraut í Mjódd var hafin klukkan fimm á laugar- dagsmorgun og Reykjanesbraut lokað. Brynjar Brjánsson, yfirverk- fræðingur hjá Ístaki, sagði að um- ferð yrði hleypt á aftur síðla laug- ardags. Hann sagði verkið sækjast vel og 100 rúmmetrar hafi verið steyptir á klukkustund síðan vinna hófst. „Það fara 12 til 13 hundruð rúm- metrar í þetta,“ sagði hann og bætti við að alls kæmu um 40 til 50 manns að verkinu, 30 hjá þeim sjálfum og svo mannskapur steypustöðvar- innar BM Vallár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Steypt af krafti í Mjóddinni Afurðaverð fyrir lýsi og mjöl hefur verið að hækka á erlendum mörkuð- um og gengisþróunin verið hagstæð. Um 7 þúsund krónur hafa fengist fyr- ir tonn af kolmunna og 8 þúsund fyrir sama magn af loðnu. Um 500 dollarar fást erlendis fyrir tonn af lýsi og svo- kallað standard-mjöl selst nú á 400– 450 pund en aðallega er unnið mjöl úr kolmunna. Þá er talið að verð til sjómanna hafi tvöfaldast frá því á sama tíma í fyrra. Dæmi eru um að hásetahlutur fyrir þúsund tonn af kolmunna eftir 3–4 daga túr sé um 100 þúsund krón- ur. Gullgrafarastemmning Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir sannkallaða gullgrafara- stemmningu vera í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski um þessar mundir. Bjartsýni sé ríkjandi um góðar veiðar og gott verð á mörkuðum. Síldar- vinnslan afkastar upp undir þúsund tonnum á sólarhring af kolmunna í Neskaupstað og loðnuvinnslan í LANDBURÐUR hefur verið af loðnu og kolmunna á miðunum að undanförnu og sannkölluð gósentíð hjá sjómönnum og starfsfólki fiski- mjölsverksmiðjanna. Bræðslur um allt land, þó einkum frá Vestfjörðum til Austurlands, hafa varla haft undan og unnið er á vöktum allan sólar- hringinn. Sandgerði á vegum fyrirtækisins er einnig á fullri keyrslu. „Við getum ekki annað en verið ánægðir eins og staðan er í dag. Einn- ig hjálpar staða krónunnar í sölumál- unum,“ segir Björgólfur. Elfar Aðalsteinsson, forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, segir að alveg frá því að verkfalli sjómanna lauk hafi verið mjög góð veiði á kol- munna úti fyrir Austurlandi og bræðslurnar gengið stöðugt. Aðeins 6 tíma sigling sé á miðin og mikilvægt sé að afla sér veiðireynslu á kolmunna áður en samið verði um aflahlutdeild strandríkja við NA-Atlantshaf. Tekið hefur verið á móti ríflega 15 þúsund tonnum í Hraðfrystihúsinu en að sögn Elfars er verksmiðjan keyrð á hámarksafköstum. Í landi eru 22 starfsmenn við bræðsluna og á sjó eru 15–16 manns á vegum fyrirtæk- isins. Elfar segir engin vandamál hafa verið í mönnuninni nú á miðju sumri. „Ástandið hefur verið þannig að löndunarbið er hjá skipunum, upp undir tíu tíma í sumum tilvikum. Þessi vertíð hefur gengið framar von- um og er ágæt viðbót við loðnuna. Markaðirnir líta út fyrir að vera sterkir vel fram á næsta ár og ég sé ekki í hendi mér að verð muni lækka á næstunni,“ segir Elfar. Gunnþór Ingvarsson, löndunar- stjóri SR-mjöls á Siglufirði, segir loðnuvinnsluna í verksmiðjunum á Siglufirði og Raufarhöfn og kol- munnavinnslu á Seyðisfirði hafa verið stöðuga frá síðustu mánaðamótum. Á Siglufirði er verið taka við um 1.400 tonnum af loðnu á sólarhring og verk- smiðja SR-mjöls þar hefur unnið úr tæplega 15 þúsund tonnum á vertíð- inni. Elías Jónatansson hjá loðnuverk- smiðjunni Gná í Bolungarvík, sem hóf vinnslu fyrir skömmu, segir starf- semina hafa farið vel af stað og nú sé unnið á vöktum allan sólarhringinn. Verksmiðjan er í hámarksafköstum, eða 700–800 tonnum á sólarhring og þar starfa 15 manns. „Þetta hefur gengið mjög vel og við höfum í raun þurft að vísa skipum frá sem hafa viljað landa hjá okkur,“ seg- ir Elías. Fiskimjölsverksmiðjur á Norður- og Austurlandi hafa vart undan Landburður af loðnu og kolmunna og hærra verð Átta manna sendinefnd Íslands á ársfund Al- þjóðahvalveiðiráðsins Athuga- semd frá Áströlum ÁRSFUNDUR Alþjóðahvalveiði- ráðsins hefst í London 23. júlí nk. og stendur í viku. Ísland tilkynnti inngöngu í ráðið að nýju í byrjun júní sl. en frá því að landið sagði sig úr ráðinu árið 1992 hafa 1–2 fulltrú- ar Íslands setið ársfundina með áheyrnarrétt. Átta manna sendi- nefnd fer á ársfundinn fyrir Ísland og formaður hennar er Stefán Ás- mundsson, þjóðréttarfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu. Stefán sagði í samtali við Morg- unblaðið og nú þegar hefði borist athugasemd frá Ástralíu við inn- göngu Íslands í ráðið og vænta mætti fleiri athugasemda frá aðild- arríkjum innan ráðsins sem teljast til hörðustu hvalfriðunarríkja. Stef- án sagði þessar athugasemdir ekki geta komið í veg fyrir inngöngu Ís- lands í ráðið, þær væru meira sett- ar fram formsins vegna og hefðu að sínu mati ekki lagastoð. Auk Stefáns eru í sendinefndinni frá stjórnvöldum þeir Þórður Ás- geirsson fiskistofustjóri, Eiður Guðnason sendiherra, Albert Jóns- son, skrifstofustjóri í forsætisráðu- neytinu, Tómas Heiðar, þjóðréttar- fræðingur í utanríkisráðuneytinu, og Gísli Víkingsson, hvalasérfræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, sem nú situr fund vísindanefndar ráðsins í London. Stefán og Þórður fara með atkvæðisrétt Íslendinga. Þá eru í sendinefndinni tveir fulltrúar hagsmunaaðila, þeir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, og Jón Gunnarsson, formaður Sjáv- arnytja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.