Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 28

Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 28
UMRÆÐAN 28 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORTÉL Sjá nánar í sjónvarpsþættinum Kokkur án klæða Klapparstíg 44 sími: 562 3614 NUDDPOTTAR TILBOÐ Nuddpottur með húsi. Vatns- og loftnudd. Einangrunarlok, ozone, vetrar-yfirbreiðsla, trappa, höfuðpúðar, ljós o.fl Tilboðsverð kr. 590 þús. stg. VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi, símar 554 6171 og 898 4154. Tilbúnir til afhendingar Í STUTTRI ramma- grein í Morgunblaðinu hinn 26. júlí sl. telur Árni Tómas Ragnars- son áberandi þögn vera hjá ráðamönnum um það sjónarmið óperu- unnenda að í hinu væntanlega tónlistar- húsi, sem til stendur að hér rísi, ætti að gera ráð fyrir óperuflutn- ingi. Fylgjendur óperu- aðstöðunnar hafa talið það vera sjálfgefið að í væntanlegu tónlistar- húsi eigi að vera að- staða til óperuflutnings og geta ekki skilið að nokkur maður skuli vera ósammála jafnsjálfsögðum hlut. Sannleikurinn er sá að um er að ræða margfalt flóknara mál en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Ég tilheyri ekki þeim hópi ráðamanna sem Árni beinir orð- um sínum að en tel mig hinsvegar þekkja það vel til málsins að ég geti bent á hvað það er sem gerir málið svo illsamrýmanlegt sem raun ber vitni og reynslan um allan heim hef- ur sannað. Með stofnun Samtaka um bygg- ingu tónlistarhúss (SBTH) fyrir tutt- ugu árum vöknuðu vonir manna um að loks kæmist hreyfing á byggingu húss sem væri hannað til tónlistar- flutnings með réttum hljómburði og boðlegri aðstöðu fyrir listamenn jafnt sem áheyrendur. Þeir sáu að þörfin fyrir tónlistarhús var orðin svo brýn vegna hinnar miklu aðsóknar að tón- leikahaldi sem orðin er hér í borg að ekki var við þetta ástand unað lengur. Nú var lag – rekstrargrundvöllur væri fyrir tónlistarhús og nýtingarmöguleikar slíks húss miklir. Í væntanlegu tónlistar- húsi væri hægt að standa fyrir marghátt- uðum atburðum – tón- leikum í hvaða mynd sem var, sinfóníu-, og kammermúsík-, popp-, lúðrasveita- og kóratónleikum, ballettsýningum og ráðstefnum, ennfremur vörusýn- ingum, skákkeppnum og veitinga- rekstri í anddyrinu. Þessar hug- myndir og margar fleiri voru ræddar því menn hugsuðu stórt og gerðu sér miklar væntingar. Það er því alls ekki rétt sem heyrst hefur að mark- miðið með byggingu tónlistarhúss hafi verið til þess eins að þjóna þörf- um Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Alla þessa þætti töldu menn að nauð- synlegt væri að sameina í bygging- unni en ein spurning var brennandi og þurfti að taka afstöðu til: – á að vera aðstaða til óperusýninga þarna eða ekki? Þegar horft er raunsæjum augum á málið kemur í ljós að sú spurning myndi gjörbreyta dæminu fjárhagslega og að stórum hluta rekstrarlega svo niðurstaðan varð sú að hugmyndinni var hafnað. Hver er þá vandinn – hvað er það sem gerir þessa tvo rekstrarþætti, rekstur tónleikahúss og óperuhúss, svona illsamrýmanlega? Skoðum fyrst vinnuumhverfið. Grundvallar- skilyrði fyrir óperuhús er að þar sé stórt leiksvið (helst færanlegt hring- svið), stór hljómsveitargryfja, saumastofa, smíðaverkstæði, leik- tjaldageymsla, búningsherbergi fyr- ir einsöngvara og kórfólk og flókinn ljósabúnaður ef mæta á eðlilegum aðstæðum til óperuflutnings. Tón- listarhús þarf ekki leiksvið í líkingu við það sem óperan þarf, enga hljóm- sveitargryfju, hvorki saumastofu, smíðaverkstæði, leiktjaldageymslu né flókinn ljósabúnað. Auðvitað væri hægt að fella marga þessara þátta inn í tónleikahúsbyggingu svo að hægt yrði að mæta lágmarksþörfum óperustarfseminnar en það myndi hækka byggingarkostnaðinn nær tvöfalt (eða úr tveimur milljörðum á sínum tíma (fyrir tuttugu árum) upp í tæpa fjóra milljarða). Þótt farið væri út í þann mikla viðbótarkostnað sem nauðsynlegur er til að mæta þörfum óperuaðstöðunnar væri vandinn samt sem áður ekki þar með leystur því þrjú mikilsverð atriði væru samt óleyst sem gerir samnýt- inguna nánast óframkvæmanlega. Fyrst ber að nefna hljómburðinn. Sú „hljómun“ sem nauðsynleg er fyr- ir óperusal fer engan veginn saman við þarfir tónleikasala. Með gífur- lega dýrum útbúnaði er mögulegt að skapa breytilega „hljómun“ í salnum þannig að hún nálgist það að mæta þörfum beggja en að mjög takmörk- uðu leyti. Því næst ber að líta á lögun salarins. Óperusalur þarf „nánd“ við sviðið fyrir áhorfendur en tónleika- salur þarf hið gagnstæða, hæfilega fjarlægð. Í öllum hinum þekktari óp- eruhúsum er áhorfendasviðið „skeifulaga“ með svölum upp með veggjum til að skapa nánd. Lögun tónleikasala er algjörlega gagnstætt þessu („skókassalaga“) því þeir þurfa að skapa meiri fjarlægð svo að tónlistin fái notið sín. Þegar þessi grundvallaratriði eru skoðuð sést að allar aðstæður eru þær sömu fyrir leikhús og óperuhús en þær henta engan veginn fyrir tónleikahús. Hér hafa tvö mikilsverð atriði ver- ið rædd en það þriðja er ónefnt, en það snertir nýtingu hússins. Sam- nýting óperu- og tónleikahaldara á einu og sama sviði myndi skapa vandræði og árekstra sem gerði báð- um aðilum erfitt fyrir og myndi skaða vinnu beggja. Það er vitað mál að óperustjórar annars vegar og skipuleggjendur tónleikahalda hins vegar sem þurfa að búa við svona sambýli hrópa á hjálp og hafa sín á milli eitt orð yfir slík fjölnotahús: „good-for-nothing-houses“. Eina lausnin sem séð er að gæti leyst vandann er að í hinum fyrir- hugaða ráðstefnusal tónlistarhússins verði sköpuð aðstaða til óperuflutn- ings því í slíkum sal færu þarfir beggja saman. Það myndi skapa að- stöðu til samnýtingar skrifstofu, miðasölu, anddyris og bílastæða. Það er eina raunhæfa lausnin sem allir geta sætt sig við. Óperuunnendur og tónleikaunnendur ættu að sameina krafta sína að því að slík lausn fáist svo að forða megi því slysi að upp rísi hús sem allir væru óánægðir með. Það er þjóðinni ekki sæmandi að Sinfóníuhljómsveit Íslands skuli þurfa að vera með sína tónleika í Há- skólabíói og að sama skapi er það ekki boðlegt að okkar frábæru óperusöngvarar skuli þurfa að not- ast við Gamla bíó fyrir sína starf- semi. Nauðsynlegt er að bæta úr þessu tvennu og það sem fyrst en fyrir alla muni: Reynið ekki að koma óperu- og tónleikasal fyrir í einu og sama rýminu. Það myndi stórskaða báðar listgreinarnar um ókomna áratugi. Tónlistarhús – óperuaðstaða Gunnar Egilson Tónlist Sú „hljómun“ sem nauð- synleg er fyrir óperusal, segir Gunnar Egilson, fer engan veginn saman við þarfir tónleikasala. Höfundur er klarínettleikari og fv. stjórnarmaður í SBTH. BIRGIR Guðjónsson hefur sagt af sér sem formaður heilbrigðis- ráðs ÍSÍ, að sögn vegna ágreinings við forseta og framkvæmdastjórn ÍSÍ um framkvæmd lyfjaeftirlits og með- höndlun mála er varða brot á lyfjareglum ÍSÍ. Hefur hann tekið dæmi af fjórum nýlegum mál- um af þessu tagi, en hann var ósáttur við málalok þeirra. Í máli Birgis hefur komið fram fjölmargt sem þarfnast leiðréttingar. Frávísun Lyfjadómstóll ÍSÍ vísaði frá máli gegn erlendum ísknattleiksmanni, sem lék með íslensku liði áður en keppnisbann hans fyrir lyfjamisnotk- un erlendis hafði verið afplánað. Dómstóllinn rökstuddi frávísunina með því að sá dómur hefði verið lokaniður- staða í málinu, sem hann væri ekki bær til að endurskoða. Birgir hefur vísað til þess að íslenskur hand- knattleiksmaður lék í Þýskalandi þrátt fyrir að vera í keppnisbanni vegna lyfjamisnotkun- ar. Þegar það komst upp voru leikir sem hann lék í Þýskalandi dæmdir tapaðir. Í báð- um málunum léku leik- mennirnir þrátt fyrir að vera í keppnisbanni og voru því óhlutgengir. Leikir íslenska leikmannsins í Þýska- landi voru hins vegar ekki dæmdir tapaðir vegna þess að hann hefði ver- ið kærður fyrir brot á lyfjareglum. Þýska handknattleikssambandið dæmdi þá tapaða vegna þess að lið hans var kært fyrir að hafa teflt fram óhlutgengum leikmanni. Eins hefði Skautasamband Íslands átt að fjalla um hlutgengi ísknattleiksmannsins og refsa liði hans með því að dæma leikina sem hann tók þátt í tapaða. Ályktun Birgis, að íþróttamenn sem hafa verið dæmdir í keppnisbann annars staðar geti komið hingað og keppt, stenst ekki, því rétt málsmeð- ferð mun hér eftir sem hingað til geta komið í veg fyrir það. Fyrir Lyfja- dómstóli ÍSÍ var þetta mál hins vegar rekið á röngum vettvangi og á röng- um forsendum. Það var ákvörðun Birgis Guðjónssonar. Vægir dómar Lyfjadómstóll ÍSÍ dæmdi tvo körfuknattleiksmenn til útilokunar í einn mánuð, vegna neyslu efedríns. Hámarksviðurlög við fyrsta broti er varðar neyslu efedríns er útilokun í þrjá mánuði og hefði refsingin því aldrei getað orðið þyngri en svo. Dómstóllinn rökstuddi niðurstöðuna með tilvísun til kröfugerðar í ákæru. Þar var dómstólnum látið eftir að meta umfang refsingar, með tilvísun til ákvæðis um að refsing geti orðið vægari ef mildandi ástæður eru fyrir hendi. Dómstóllinn taldi sig verða að skýra þessa kröfugerð hinum ákærðu í hag. Þessi mál snerust um neyslu fæðu- bótarefna sem ítrekað hefur verið varað við, enda nær öruggt að þeirra sé neytt í þeim tilgangi að bæta ár- angur í íþróttum. Eðlilegt hefði verið að fara fram á hámarksrefsingu og má telja líklegt að dómstóllinn hefði orðið við því. Of vægir dómar í þess- um málum skrifast á ófullnægjandi kröfugerð í ákærunni. Hana samdi Birgir Guðjónsson. Í þessum málum tók dómstóllinn ekki mið af magni efedríns í sýnunum við ákvörðun refsingar, eins og Birgir virðist halda. Ályktun hans um að magn efedríns þurfi að vera nálægt lífshættumörkum til að íþróttamenn fái dóm, sem skiptir einhverju máli, stenst því ekki. Sýkna Lyfjadómstóll ÍSÍ sýknaði körfu- knattleikskonu af því að hafa brotið lyfjareglur ÍSÍ með því að nota til- tekið innöndunarlyf við astma. Í bannlista Alþjóða ólympíunefndar- innar, sem birtur er í Handbók ÍSÍ um lyfjaeftirlit, segir að umrætt lyf sé leyft til að fyrirbyggja og/eða með- höndla astma eða áreynsluastma, en nauðsynlegt sé að leggja fram skrif- legt vottorð um slíkt. Ekki er gerð krafa um að vottorð sé lagt fram fyrir lyfjaeftirlit eða samtímis því. Hin ákærða lagði fyrir dómstólinn lækn- isvottorð sem staðfestu að hún hefur tekið lyfið vegna áreynsluastma. Komst dómstóllinn að þeirri niður- stöðu að hún hefði uppfyllt kröfu um læknisvottorð og sýknaði hana af ákærunni. Varðandi tilkynningaskyldu astmalyfja eru lyfjareglur ÍSÍ í sam- ræmi við reglur á hinum Norðurlönd- unum, sem einnig leyfa að læknis- vottorð sé lagt fram eftir lyfjaeftirlitið. Þetta gerir sama gagn hvað varðar læknisfræðilegan rök- stuðning fyrir notkun lyfjanna og ef læknisvottorð væri afhent fyrirfram, en einfaldar og sparar vinnu fyrir framkvæmdaraðila lyfjaeftirlitsins. Jafnframt er lögð á það rík áhersla við íþróttamenn þessara landa, sem keppa undir lögsögu annarra eftir- litsaðila (t.d. erlendis), að þeir hafi þá varann á og tilkynni fyrirfram um notkun sína á tilkynningaskyldum lyfjum. Birgir telur að þessi málsmeðferð sé ekki í samræmi við reglur alþjóð- legra sérsambanda og standist því ekki. Eins og hér er bent á eru þó for- dæmi fyrir henni í lyfjareglum landa, sem njóta alþjóðlegrar viðurkenning- ar á sviði lyfjaeftirlits. Í málum sem rekin eru fyrir Lyfjadómstóli ÍSÍ er bæði ákært og dæmt eftir lyfja- reglum ÍSÍ, en ekki reglum alþjóð- legra sérsambanda. Með núgildandi lyfjareglur ÍSÍ að leiðarljósi gat dóm- stóllinn ekki komist að annarri nið- urstöðu. Af sömu ástæðu hlyti nið- urstaðan alltaf að verða sú sama yrði málinu áfrýjað. Birgir hefur í þessu máli sýnt van- þekkingu á gildandi lyfjareglum ÍSÍ. Hann hefur auk þess reynt að firra sig ábyrgð á þeim, þegar honum varð ljóst að þær væru ekki í samræmi við skoðanir hans sjálfs. Því er rétt að hafa í huga að þessar reglur voru samdar á vegum heilbrigðisráðs ÍSÍ, undir faglegri forystu Birgis, og stað- festar af framkvæmdastjórn ÍSÍ þar sem hann á sæti sem varastjórnar- maður. Hann ber því fulla ábyrgð á innihaldi þeirra. Heimild til notkunar lyfja á bann- lista gegn læknisvottorði einskorðast við nokkur astmalyf og insúlín. Álykt- un Birgis um að íþróttamenn geti komið eftir á með læknisvottorð eftir misnotkun flestra lyfja og verið sýkn- aðir stenst því ekki. Lokaorð Niðurstöður Lyfjadómstóls ÍSÍ í þeim málum sem hér hafa verið rædd eru í samræmi við núgildandi lyfja- reglur ÍSÍ, almennar réttarfarsvenj- ur og kröfugerð í ákærum. Aðal- ástæða þess að málalok urðu Birgi Guðjónssyni ekki að skapi var mála- tilbúnaður hans sjálfs. Ásakanir hans á hendur forseta og framkvæmda- stjórn ÍSÍ hitta hann því sjálfan fyrir af fullum þunga. Lyfjareglur ÍSÍ verða endurskoð- aðar á næstu vikum og verða þau atriði sem ágreiningur hefur risið um í þessum málum gaumgæfð sérstak- lega í því sambandi. Vegna afsagnar Birgis Guðjónssonar Sigríður Jónsdóttir Lyfjamisnotkun Lyfjareglur ÍSÍ, segir Sigríður Jónsdóttir, verða endurskoðaðar á næstu vikum. Höfundur er varaforseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Veistu að þ að er útsala í Kr ílinu? Já það er 30-70 % afslátt ur af ö llu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.