Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÓHÆTT er að segja að úrskurð-ar skipulagsstjóra vegna Kára-hnjúkavirkjunar sé beðið meðeftirvæntingu en starfsfólk Skipulagsstofnunar hefur farið hörðum höndum yfir athugasemdir frá því í apríl. Alls bárust um fjögur hundruð athuga- semdir vegna umhverfismats þessarar langstærstu virkjunarframkvæmdar í sögu þjóðarinnar, en aðeins einu sinni hafa stofnuninni borist fleiri athugasemd- ir eftir að lög voru sett um mat á umhverf- isáhrifum. Upphaflega átti Skipulagsstofnun að kveða upp úrskurð sinn 13. júlí sl. en því var frestað m.a. vegna þess að Lands- virkjun, framkvæmdaraðili virkjunarinn- ar, tók sér lengri tíma en ætlað var til að svara innkomnum athugasemdum. Gert er ráð fyrir úrskurðinum í dag eða á morg- un. Fjölmargir óvissuþættir sem tafið geta framgang málsins Hver sem úrskurðurinn verður halda forráðamenn Reyðarálsverkefnisins fast við fyrri áætlanir sínar um að lokaákvörð- un verði tekin 1. febrúar nk. um hvort ráð- ist verður í byggingu álvers á Reyðarfirði eða ekki. Hins vegar eru ótal óvissuþættir enn sem hindranir á þeirri leið og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er ekki talið ólíklegra að framkvæmdir við virkjun og álver fyrir austan, verði af þeim á annað borð, geti frestast um eitt ár. Fyr- ir því eru ýmsar ástæður, t.d. umhverfis- áhrif, árstíðabundinn framkvæmdatími og óvissa varðandi fjármögnun hér innan- lands en stefnt er að því að álverið á Reyð- arfirði verði í meirihlutaeigu Íslendinga. Enn er þó of snemmt að fullyrða neitt í þessum efnum. Hvað áform um stórfellda stækkun ál- vers Norðuráls á Grundartanga áhrærir- er mun betri tónn í aðilum máls en í vetur og vor þegar útlit var jafnvel fyrir að ekk- ert yrði af frekari framkvæmdum. Í byrj- un síðasta mánaðar lögðu iðnaðar- og fjár- málaráðuneyti fram fyrstu hugmyndir um breytingar á fjárfestingarsamningi um byggingu og rekstur álversins á Grund- artanga. Samningsaðilar höfðu sett sér það markmið að meginlínur varðandi skatta- og aðstöðumál annars vegar og orkumál hins vegar lægju fyrir í lok júní og var á forráðamönnum Norðuráls að heyra að þessar hugmyndir ráðuneytanna gæfu góð fyrirheit um að áframhald geti orðið á viðræðunum. Í fyrra mánuði hóf Norðurál viðræður við fjármögnunaraðila og birgja til þess að tímaáætlanir stæðust. Fór fyrsti fundur- inn fram í New York á dögunum en áfram er stefnt að því að endanleg niðurstaða liggi fyrir í mars á næsta ári. Þá hefur ágætur gangur verið í viðræð- um Norðuráls og Landsvirkjunar um orkuverð, þótt þær séu enn á byrjunar- stigi. Sem nærri má geta mótast viðræð- urnar mjög af þeirri staðreynd að Lands- virkjun hefur enn ekki fengið leyfi til byggingar nauðsynlegra mannvirkja til að uppfylla raforkuþörf stækkaðs álvers á Grundartanga, t.d. fyrirhuguðu Norð- lingaöldulóni. Það setur nokkuð mark sitt á viðræð- urnar að forsvarsmenn Norðuráls vilja fá n.k. afslátt af orkuverðinu í upphafi samn- ingstímans en Landsvirkjun er fremur á því að bjóða svipuð kjör og ætlað er að gildi um Kárahnjúkavirkjun og Reyðarálsverkefnið. Rök Norðuráls fyrir kröfum um af- slátt á orkuverði byggjast m.a. á því, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að fyrirtækið vilji í raun stækka upp í 240 þúsund tonn. Ljóst sé hins vegar að ekki sé til orka fyrir svo mikilli stækkun og því sé stækkun upp í 180 þúsund tonn alls ekki jafnhagkvæm fyrir fyrirtækið. Þann- ig þurfi til að mynda að fjárfesta í jafn- dýrum vélum og tækjabúnaði fyrir 180 þúsund tonna álver og 240 þúsund tonna álver. Í seinna tilvikinu sé slík fjárfesting hins vegar mun arðbærari, eins og gefur að skilja. Afstaða LSR veldur uppnámi Segja má að óvissan varðandi Reyð- arálsverkefnið á Austurlandi sé allt ann- ars eðlis en gagnvart áformum um stækk- un álversins á Grundartanga. Í fyrrnefnda verkefninu er um að ræða viðamikið og flókið samstarf erlendra og innlendra fjárfesta, viðkvæma samninga og gríðar- lega fjármögnun sem enn sér ekki fyrir endann á, og er að nokkru leyti jafnvel á frumstigi. Í síðarnefnda verkefninu er á hinn bóginn um að ræða samningagerð milli íslenskra stjórnvalda og erlends fyr- irtækis sem þegar rekur hér stóriðju og hefur reynslu af íslenskum atvinnu- rekstri. Í báðum tilfellum fléttast hins vegar inn flókin og viðkvæm umhverfis- áhrif og vandkvæði Landsvirkjunar og fleiri orkufyrirtækja við að uppfylla þá gríðarlegu þörf fyrir raforku sem svo um- fangsmikil stóriðja óneitanlega hefur. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í fyrri viku hljóp snurða á þráðinn í sam- starfi sex helstu lífeyrissjóða landsins um þátttöku í Reyðarálsverkefninu með því að annar stærsti lífeyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), ákvað að verða að óbreyttu ekki með í samstarfshópi um könnunarviðræð- ur við lánastofnanir og öflun gagna. Til stóð að stærstu lífeyrissjóðirnir sameinuðust um starfshópinn til að vinna að áætlun og greinargerð um fyrirhugað álver á Reyðarfirði til að leggja fyrir stjórnir sjóðanna. Rétt er að geta þess að engin formleg afstaða hefur verið tekin til Reyðaráls- verkefnisins af stjórn LSR, sem er einn öflugasti fjárfestir landsins, en ekki reyndist meirihluti fyrir því innan stjórn- ar sjóðsins að eiga aðild að könnunarvið- ræðunum. Ekki til formlegrar atkvæða- greiðslu um málið, en ljóst lá fyrir að atkvæði launagreiðenda og lífeyrisþega féllu á jöfnu. Meirihluta atkvæða þarf til að taka ákvarðanir innan stjórnarinnar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur afstaða LSR valdið miklum titringi hjá stjórnvöldum sem telja vandræðalegt að opinberir starfsmenn skuli ganga fram fyrir skjöldu með þessum hætti. Þá veldur ekki síður titringi framganga stjórnarfor- mannsins, Ögmundar Jónassonar, en hann er yfirlýstur andstæðingur virkjana og stóriðju, m.a. sem alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Raunar hafa ýmsir orðið til þess að gagnrýna setu stjórnmálamannsins Ög- mundar í svo veigamiklu embætti og benda á að erfitt geti reynst fyrir hann að skilja á milli hins pólitíska hlutverks og þess að gæta hagsmuna félaga í lífeyris- sjóði starfsmanna ríkisins. Í því sambandi nægir að benda á tvær aðsendar greinar sem birst hafa hér í blaðinu síðustu daga. Halldór Árnason, framkvæmdastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ, sagði þar m.a. að með ólíkindum væri að Ögmundur sæi ekki að afstaða sín í þessu máli væri alfarið flokks- pólitísk og Stefán Pétursson, fjármálastjóri Landsvirkjun- ar, benti á að sem stjónarfor- maður hefði Ögmundur þá meginskyldu að tryggja að samhengi ávöxtunar og áhættu sé með eðlilegum hætti. Augljóst sé hins vegar að stjórn- arformaðurinn sé ekki með hugann við þessa skyldu auk þess sem hann hafi sýnt að faglegri þekkingu hans sem fjárfestis sé stórlega ábótavant. Verkefnið afar áhættusamt Þrátt fyrir þetta væri mikil einföldun að segja að afstaða Ögmundar Jónassonar sé eitthvert einsdæmi þegar kemur að lífeyr- issjóðunum í þessum efnum. Fullyrða má að margir stjórnarmenn í stærstu lífeyr- issjóðunum eru mjög varkárir gagnvart þessu verkefni sem slíku, enda er það í eðli sínu afar áhættusamt og um leið gríðar- lega umfangsmikið og dýrt. Þegar nánar er að gáð velta lífeyrissjóð- irnir slíkum fjárhæðum og ráða yfir svo miklum eignum að fjárfesting sem þessi virðist næsta lítilfjörleg. Þannig má gera ráð fyrir því að verði hlutur lífeyrissjóð- anna í Hæfi hf. um tíu milljarðar kr. jafn- gildi það um 1% af eignum þeirra árið 2006. Stjórnarform Morgunblaðið r vera fyllilega s að Íslendingar Alltaf megi se þátttöku lífeyri rekstri. Á hinn ir gjarnan stan atvinnulífs og l vægi einstakra auka hlutfall iðn ígildi í sveifluke Sami viðmæl irnir gætu ef t varðandi Hvalfj Þar hafi verið unum í upphafi hafi sérstakir á að gerð þeirr reynsla hafi ve haldið vatni, sta arðsemi, hafi l fjármagn og ge ig mögulega. Hins vegar e málið ofan í kjöl er að íslensku innspýtingu fjá fjármagns, auk Austurlandi bíð jafnstórkostleg ber vitni. Þannig sagði einaða lífeyriss Gunnarsson, te af stjórn stærst vilja ekki taka irhugaðs álvers ingarkosts. St sjóðs verslunar sagt að ákvörðu isverð. Hallgrímur s Undirbúningur vegna stækkunar álversins á Titri Hydr íslen Áfra hér í útte ek Ekki enn verið skrifað undir trúnaðareið fjárfesta FRÍVERZLUN Í ALLRA ÞÁGU Aðildarríki Heimsviðskiptastofn-unarinnar (WTO) munu á ráð-herrafundi í Doha í Persaflóa- ríkinu Katar, sem haldinn verður í nóvember, ákveða hvort ráðizt verður í nýja og umfangsmikla lotu samninga- viðræðna um aukna fríverzlun á heims- vísu. Fyrir tæpum tveimur árum var haldinn sambærilegur ráðherrafundur í Seattle í Bandaríkjunum, sem fór út um þúfur vegna ágreinings um umfang nýrrar viðræðulotu. Heimsbyggðin má ekki við því að slíkt endurtaki sig. Öll ríki hagnast á því að utanríkis- viðskipti séu sem frjálsust, tollar sem lægstir og viðskiptahindranir sem fæstar. Nú, þegar hægir á hagvexti víða um heim, er einkar mikilvægt að víðtækt samkomulag geti náðst um að efla fríverzlun, því að utanríkisvið- skipti og hagvöxtur haldast í hendur. Í niðursveiflu fjölgar alltaf kröfum frá atvinnugreinum, sem standa höllum fæti, um að stjórnvöld í viðkomandi ríkjum grípi til aðgerða til að vernda hagsmuni þeirra með tollum eða öðrum viðskiptahindrunum. Slíkar kröfur byggjast hins vegar alltaf á skamm- sýnum og þröngum hagsmunasjónar- miðum. Verði gripið til verndarað- gerða í einstökum ríkjum, dregur það einvörðungu úr hagvexti á heimsvísu og þá er hætta á að niðursveiflan verði að alheimskreppu. Þau ríki, sem munu græða mest á nýrri, víðtækri viðræðulotu á vegum WTO, eru þróunarríkin. Erlendar fjár- festingar og aukinn útflutningur opna þessum ríkjum leið frá fátækt til bjarg- álna. Frá 49 fátækustu ríkjum heims, þar sem ríflega tíundi hluti mannkyns býr, kemur aðeins 1% af heildarút- flutningi á heimsvísu. Ástæðan er ekki sízt háir tollar og aðrar hindranir, sem standa í vegi fyrir innflutningi vara frá þessum löndum til auðugra iðnríkja. Bezta þróunaraðstoðin, sem þessum ríkjum væri veitt, væri að opna mark- aði iðnríkjanna fyrir framleiðslu þeirra, t.d. landbúnaðarvörum, vefnað- ar- og leðurvörum. Því hefur verið haldið fram að þróunarríkin myndu græða 155 milljarða dollara á tolla- lækkunum, sem hafa verið til umræðu. Það er meira en þreföld sú upphæð, sem sömu ríki fá nú í þróunaraðstoð frá Vesturlöndum. Vissulega er afnám tollmúra og viðskiptahindrana aðeins hluti af þeirri aðstoð, sem þróunarríkin þurfa á að halda, en engu að síður ákaf- lega mikilvægur hluti, því að viðskipti og fjárfestingar eru undirstaða framþróunar efnahagslífs í þessum löndum til langframa. Fríverzlun með landbúnaðarvörur er viðkvæmt mál víðast í iðnríkjunum, eins og við Íslendingar þekkjum mæta- vel. Árangur síðustu fríverzlunarvið- ræðulotu, sem kennd var við Úrúgvæ, sést í hillum íslenzkra matvöruverzl- ana; úrvalið hefur aukizt til muna eftir að innflutningsbann á ýmsum vörum var afnumið. Hins vegar hefur verðið ekki lækkað eins og vonazt var til. Rétt eins og stjórnvöld í mörgum öðrum iðnríkjum heldur íslenzka ríkið niðri verði á innlendum landbúnaðarvörum með framleiðslustyrkjum, en verðinu á innfluttum vörum uppi með ofurtoll- um. Áætlað hefur verið að niðurgreiðslur til landbúnaðar í OECD-ríkjunum nemi álíka upphæð og gervöll lands- framleiðsla Afríku. Menn geta rétt ímyndað sér hvað það þýddi fyrir al- þjóðahagkerfið – og einkum og sér í lagi fyrir Afríkuríkin – væru þessar niðurgreiðslur afnumdar og landbún- aðarvörur frá þróunarríkjunum ættu greiðan aðgang að mörkuðum OECD- ríkja. Staðan nú er hins vegar sú að meðaltollur á landbúnaðarafurðir á heimsvísu nemur yfir 40% og mörg dæmi eru um allt að 300% toll – sum hver ekki alltof fjarlæg okkur. Það er e.t.v. ekki pólitískt raunhæft að af- nema stuðning við landbúnað með öllu, en tækifæri til hagræðingar í vestræn- um landbúnaði eru vannýtt á meðan hann er verndaður fyrir erlendri sam- keppni. Um leið og verzlun með landbúnað- arvörur verður alþjóðlegri, þarf vissu- lega að tryggja matvælaöryggi og heil- brigði. En það má ekki nota slíkt sem skálkaskjól fyrir verndarstefnu. For- ystumenn Sameinuðu þjóðanna og WTO hafa bent á að reglur Evrópu- sambandsins um innflutningshöft á hnetur, kornvöru og þurrkaða ávexti frá Afríku, sem ætlaðar eru til að úti- loka hættu á sýkingum af völdum svo- kallaðra aflatoxína, eiturefna sem geta myndazt í þessum vörum við ákveðnar aðstæður, komi hugsanlega í veg fyrir eitt banvænt sýkingartilfelli í gervöllu ESB á tveggja ára fresti, en kosti hins vegar Afríkuríkin 670 milljónir dollara á ári. Spyrja má hversu mörgum mannslífum þeir peningar gætu bjarg- að í Afríku. Þróunarríkin, og raunar öll þau ríki, sem eiga lítið undir sér á heimsvísu, hafa ríka hagsmuni af því að víðtækar viðræður um alþjóðlega fríverzlun komist aftur á skrið. Þessi ríki hafa ein og sér ekki burði til að knýja fram bættan markaðsaðgang í ríkjunum, þar sem markaðir eru stærstir og kaupmáttur mestur. Alþjóðlegt kerfi, sem byggist á viðurkenndum reglum og alþjóðlegu samstarfi, er langtum hagfelldara fyrir þessi ríki en ástand, þar sem aflsmunur viðskiptastórveld- anna ræður. Hættan er sú, að náist ekki samkomulag í Doha, verði nýir samningar um fríverzlun á næstunni einkum svæðisbundnir eða tvíhliða og að þar með verði veikustu ríkin útund- an og njóti ekki ávaxta fríverzlunar- innar. Það er líka nauðsynlegt að hefja víð- tæka samningalotu, þar sem margir málaflokkar eru undir, til þess að auka svigrúm til pólitískra málamiðlana. Trúverðugleiki WTO og hins alþjóð- lega viðskiptakerfis er ekki sízt í húfi. Ísland á mikið undir alþjóðlegri frí- verzlun og á að beita sér fyrir því að í Doha verði tekin ákvörðun um nýja samningalotu. Hagkerfi okkar er opið og mjög háð útflutningi. Það eru brýnir hagsmunir okkar að markaðsaðgangur fyrir íslenzkar útflutningsvörur sé greiður og ótvíræður. Ísland hefur á vettvangi WTO meðal annars átt frum- kvæði að því að samið verði um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi, sem skekkja samkeppnisstöðu íslenzkra fyrirtækja og hafa aukinheldur skað- leg áhrif á umhverfið, þar sem þeir hvetja til óhagkvæmrar sóknar í fiski- stofna. En við verðum líka að átta okk- ur á að fríverzlun er ekki einstefnugata og við getum ekki gert kröfur um að önnur ríki opni markaði sína og dragi úr stuðningi við sjávarútveg, ef við við- höldum innflutningshindrunum og rík- isstyrkjum til óhagkvæmra atvinnu- greina. Fríverzlun er allra hagur, en til þess að hún nái fram að ganga, verða líka allir að leggja sitt af mörkum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.