Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLANDSLEIKHÚSIÐ er skipað tólf unglingum á aldrinum 15–16 ára frá sex bæjarfélögum víðsvegar af landinu. Hugmyndina átti Greip- ur Gíslason, sem undanfarin tvö sumur hefur staðið fyrir atvinnu- leikhúsi ungs fólks á Ísafirði og er hann verkefnisstjóri Íslandsleik- húss. Stjórnandi er Margrét Eir Hjartardóttir. Leikhúsið hlaut styrk úr Menningarborgarsjóði og hefur ferðast um landið með fjórar sýn- ingar í farteskinu og sýnt ólíkum hópum á hverjum stað. Senn lýkur þessari hringferð um landið með sýningu í Borgarleikhúsinu í dag. Blaðamaður sest niður með krökk- unum og Margréti Eir og spyr hvernig sé búið að vera? „Mjög skemmtilegt og mikil reynsla,“ svara krakkarnir allir. „Við höfum lært heilmikið um samskipti og að standa á eigin fótum, pabbi og mamma hvergi nærri í fimm vikur. Þó hefur auðvitað stundum verið erfitt. En hópurinn hefur verið frá- bær.“ Að sögn þekktust engir í hópnum áður en samstarfið hófst fyrir utan þá sem komu frá sama sveitarfélagi. Var ekkert erfitt að vera svona mikið saman? „Jú, stund- um, en samt er ótrúlegt hvað gengið hefur vel, miðað við að við þekkt- umst ekkert áður. Kannski er það út af fjölskyldufundunum,“ skýtur einn inn í. Fjölskyldufundir, hvað er nú það, er blaðamaður forvitin að vita. „Það eru fundir sem við héld- um reglulega til að tala um hlutina. Það er mikilvægt þegar maður er með svona stóran hóp sem er svona mikið saman að fólk tali saman frek- ar en að vera í fýlu hvert í sínu horn- inu,“ segir Margrét Eir. Hún er sú eina sem fylgt hefur krökkunum á ferðalaginu, sú eina yfir tvítugu eins og hún orðar það, og hefur hún stjórnað hópnum, en Greipur Gísla- son er verkefnisstjóri. Margrét Eir segist vona að Íslandsleikhús verði starfrækt aftur næsta sumar og krakkarnir segja að þau væru alveg til í að taka aftur þátt. „Þau læra mikið meira en bara að vera að leika og koma fram, hvernig á að vinna með öðru fólki,“ segir Margrét Eir. „Ég hugsa líka að þetta hafi skipt fólkið sem við heimsóttum, til dæm- is á leikskólum og elliheimilum miklu máli.“ Hópurinn, sem tengist hverju sveitarfélagi á einhvern hátt, er sammála Margréti. En eru þau ólík eftir því hvaðan þau koma af landinu? „Já, en samt ekki. Sumir voru með fordóma fyrir krökkunum utan af landi og aðrir fyrir krökkunum úr borginni. En það var bara fyrst og við höfum komist að því að við eigum fullt sam- eiginlegt og þekkjum mikið sama fólkið.“ Lokasýningin í Borgarleikhúsinu er í dag og hefst hún kl. 16.30. Þar taka þau fyrir söguna um Litla prinsinn, sem þau hafa í sameiningu samið leikgerð við. „Við ákváðum fyrir þessa síðustu sýningu að æfa leikverk frá upphafi til enda. Þetta er alveg glænýtt stykki, sem við höf- um aldrei sýnt áður,“ segir Margrét Eir. „Hitt sem við vorum að gera var meiri spuni þar sem við þurftum að laga okkur að ólíkum aðstæðum.“ Og hvað var svo skemmtilegast við að taka þátt í Íslandsleikhúsi? „Að kynnast krökkunum af öllum stöðum á landinu og læra það sem við höfum lært,“ segja þau. Verður erfitt að hætta? „Já, en samt líka gaman að fara heim.“ Margrét Eir bætir við að að þessi vinna hafi verið talsvert ólík öðrum vinnum, þar sem unnið hafi verið langa daga og alltaf að heiman. „Við erum búin að vera eins og samlokur í fimm eða sex vik- ur. En hópurinn hefur verið svo frá- bær.“ Sumir krakkarnir hyggjast leggja leiklistina fyrir sig, aðrir ekki. Þau eru þó sammála um að Ís- landsleikhúsið hafi glætt áhuga þeirra á leikhúslífi. Möguleiki er að í sumar hafi leikarar framtíðarinnar stigið sín fyrstu spor á framabraut- inni. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Krakkarnir í Íslandsleikhúsinu æfa leikgerð sína um Litla prinsinn, sem sýnd verður í Borgarleikhúsinu í dag. Leikið landið um kring Í kvöld lýkur starfi Ís- landsleikhússins með sýningu í Borgarleik- húsinu sem hófst á Ísafirði hinn 25. júní. Þátttakendur lýstu verkefninu fyrir Ingu Maríu Leifsdóttur og segja það hafa verið dýrmæta reynslu. ingamaria@mbl.is SÝNING þeirra Helgu Birgis- dóttur og Olgu Pálsdóttur í Gallerí MAN fjallar um helstu rök lífsins. Þegar inn í salinn er komið blasir við risastórt járnvirki með keramik- formum sem veltast um í rangölum þess. Helga spyr: Hvaðan komum við? – og vitnar þar með í fleyga nafngift Gauguin, á einni þekktustu, frumstæðu altaristöflu hans frá Tahiti. Samsetning Helgu er voldug, þótt ef til vill sé erfitt að sjá samnefnara með þessu mikla málmverki og kerf- inu sem býr í skauti kvenna og kveik- ir líf okkar mannanna. Höggmynd Helgu er einfaldlega of voldug – sumir mundu segja strákaleg – til að geta höfðað beinlínis til mýktarinnar í móðurkviði. Það er miklu fremur hægt að túlka verkið pólitískt sem andsvar konu við þeirri hörku sem umlykur líf hennar og lífgjöf. Við er- um alltaf áminnt með vissu millibili um það vægðarleysi sem konur búa við í her- og kredduvæddum heimi. Þetta breytir því þó ekki að verk Helgu er athyglisverð smíð, og til- raun hennar – að mægja leirlist og höggmyndalist – er mjög vel heppn- uð, sláandi og gefur fögur fyrirheit. Olga Pálsdóttir gerir það heldur ekki endasleppt. Þetta er annar við- burðurinn í sumar sem hún setur saman við Skólavörðustíginn og leyf- ir sér að hverfa aftur inn í veröld þrykksins eftir smellinn útúrdúr fyr- ir fáeinum vikum. Hvert förum við? - spyr Olga og botnar Gauguin, um leið og hún bregður upp nærtækri fjölskyldumynd, þar sem látin ná- frænka hennar leikur stórt hlutverk í syndafallsmyndröð byggðri á boð- orðunum tíu. Það býr mikill, dramatískur strengur í Olgu, sem gefur æting- armyndum hennar knýjandi innileik. Það er sjaldséður eiginleiki nú á tím- um yfirborðskennda og sýndar- mennsku, og á ábyggilega eftir að fleyta listakonunni langt ef hún held- ur áfram að leggja sömu rækt við þennan merkilega frjóanga. Stórar spurningar MYNDLIST L i s t a s a l u r M A N , S k ó l a v ö r ð u s t í g Sýningu er lokið. LEIRLIST OG GRAFÍK HELGA BIRGISDÓTTIR OG OLGA PÁLSDÓTTIR Halldór Björn Runólfsson „BRAUÐMÓT og búmörk“ er yf- irskrift sýningar Bryndísar Jóns- dóttur og Þorgerðar Sigurðardótt- ur sem nú stendur yfir í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Bryndís sýnir leirverk og dúkristumyndir sem byggðar eru á búmörkum en Þorgerður sýnir tréristur byggðar á brauðmótum. Brauðmótin eru frumverk en í sama stíl og sjá má á mótum á íslenskum byggðasöfn- um og Þjóðminjasafni Íslands. Textarnir eru ýmist teknir eftir gömlum mótum eða úr kunnum borðbænum. Brauðmótin og búmörkin skapa þjóðlega stemmningu í hinu 157 ára gamla Pakkhúsi en þetta er fyrsta listsýningin í Pakkhúsinu en stefnt er að því að framhald verði á slíkum sýningum. Myndlistarkonurnar eru báðar útskrifaðar úr Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og hafa haldið fjölda einka- og samsýninga hér- lendis sem erlendis. Þær hafa báð- ar vinnustofur á Korpúlfsstöðum og verk eftir þær eru m.a. á Lista- safni Íslands, Kjarvalsstöðum og Listasafni Reykjavíkur. Sýningin er opin alla daga frá kl. 10–19 og lýkur 31. ágúst. Myndlistarsýn- ing í Ólafsvík NÚ stendur yfir sýning Marijo Mu- rillo í Selinu, Galleríi Reykjavík. Marijo hóf störf hjá spænska hönnuðinum Roberto Turegano árið 1996, starf hennar fólst meðal ann- ars í útlitshönnun bóka og sýning- arskráa kunnra listamanna. Marijo hefur fengist við teiknun og málun módelmynda og skyndi- portretta við menningarmiðstöðina Cirkolo de Bellas Artes í Madríd. Hún mun mála og teikna fólk (einnig eftir ljósmyndum) meðan sýningin stendur yfir. Málverk Marijo má finna í galleríum í Brussel, Barce- lona, Madríd, Berlín, Köln, Mainz, Marseille og Houston. Marijo býr og starfar í Reykjavík. Sýningin er opin frá kl. 13–18 mánudaga til föstudaga og frá 13–17 laugardaga og stendur til 7. ágúst. Málar port- rett á sýningu KARL Guðmundsson, leikari og þýðandi, mun lesa upp úr sagnaskáldskap Vestur-Íslend- inga á opnum fundi sem hald- inn er á vegum Vináttufélags Íslands og Kanada í kvöld, mið- vikudaginn 2. ágúst. Fundurinn er haldinn í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 201, og hefst hann kl. 20. Allir eru velkomnir á fund- inn. Sögur Vest- ur-Íslendinga NÚ stendur yfir sýning Bryndísar Brynjarsdóttur í Galleríi Ash, Lundi, Varmahlíð. Á sýningunni eru þrívíð verk úr áli og gleri. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11–18 og stendur til 15. ágúst. Þrívíðar myndir í Ash ♦ ♦ ♦ DAÐI Guðbjörnsson opnar myndlistarsýningu í Galleríi Sölva Helgasonar, Lónkoti í Skagafirði, í dag, miðvikudag, og tileinkar Daði sýninguna Sölva Helgasyni. Myndirnar eru vatnslita- myndir og eru allar unnar á þessu ári. Myndefnið er landið, sjálfstæð tilvera málverksins og sálarkima förumannsins. Sýningin stendur til 15. ágúst. Í minningu Sölva Helgasonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.