Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 45
Eldborg og í því er allt innifalið nema veitingar sem seldar verða á staðn- um og er miðaverðið 6.500 krónur. Mannrækt undir jökli Haldið verður Mannræktarmót á Brekkubæ á Hellnum um verslunar- mannahelgina eins og endranær. Áherslan er á fjölskylduvæna dag- skrá sem skapað getur samheldni þeirra sem svæðið sækja. Enginn að- gangseyrir er að svæðinu og er það því öllum opið báða dagana, en ein- ungis takmarkaður fjöldi kemst fyrir á tjaldstæðinu og í annarri gistingu. Ýmissa dagskrárliða má njóta án endurgjalds. Þar má nefna hljóða morgungöngu og jógaæfingar alla morgna helgarinnar, andlitsmáln- ingu fyrir börnin, ratleiki með sögu- legu og þroskandi ívafi á laugardeg- inum, helgistund við Maríulind á sunnudeginum og samsöng, friðarat- höfn og kvöldvöku bæði á laugar- dags- og sunnudagskvöldinu. Gegn endurgjaldi er svo hægt að fá lestur í stjörnumerkin og orkumælingu, lest- ur í spáspil, áruteikningar og leið- beinendateikningar, fléttubönd í hár- ið, heilun, nudd, fara í grasaferð, svitahof eða sækja stutt námskeið í fyrirlestraformi um þroskandi mál- efni. Líklegt er að óvæntur gestur helgarinnar verði Roy Littlesun, Hopi-indíáni, sem ferðast um heim- inn og kynnir speki Hopi-indíánanna og er hans vænst á Brekkubæ á laug- ardeginum. Eins og fyrri ár er mótið vímulaust. Tjaldstæði kostar 500 krónur á manninn fyrir 14 ára og eldri. Útihátíð SÁÁ, Staðarfelli Á útihátíð SÁÁ á Staðarfelli um verslunarmannahelgina leikur hljómsveitin KARMA fyrir dansi bæði á laugardags- og sunnudags- kvöld. Þá verður sérstök barnadag- skrá frá klukkan 11 til 14 báða dag- ana auk kvöldvakna, söngvara- keppni, töfrabragða, brennu, brennusöngs og flugeldasýningar. Á meðan á hátíðinni stendur verða haldnir þrír til fjórir AA-fundir á dag en meðferðarheimilið á Staðarfelli verður opið almenningi og þar verða nokkrir fundanna haldnir. Aðgangs- eyrir á útihátíð SÁÁ er 3.500 krónur en frítt verður inn fyrir börn undir 14 ára aldri. Útihátíð fjölskyldunnar í Galtalæk Að venju verður útihátíðin í Galtalæk sniðin að áhuga og þörfum stórfjöl- skyldunnar og þar eiga allir að finna afþreyingu og skemmtun við hæfi í dagskrá sem hlaðin er uppákomum frá morgni til kvölds. Aðstaðan í Galtalækjarskógi hefur byggst upp á rúmum 40 árum og er nú eins og hún gerist best á útihátíðum eins og bind- indismótin hafa verið undanfarin misseri, fjölmenn og vel heppnuð. Umhverfið gerist vart betra þegar tjaldað er til þriggja nátta, rómuð tjaldstæði og tjaldvagnasvæði, góð hreinlætisaðstaða, slysa- og lækna- vakt, fallegar gönguleiðir í nágrenni, göngustígar um kjarrskóg, veitinga- þjónusta og verslun. 350 starfsmenn í þjónustu og gæslu sjá um að allt fari fram eftir þeim lögum og reglum sem tryggja öryggi og vellíðan móts- gesta, í vímulausu umhverfi. Aðgang- ur fyrir fullorðna er á 6.000 krónur, unglinga, 13 til 14 ára, á 5.000, en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Á heimasíðu hátíðarinnar (www.tv.is/ galtalaekur) kemur fram að í forsölu fáist 1.000 króna afsláttur á ofan- greint verð. Landsmót hvítasunnumanna Kotmót 2001, landsmót hvítasunnu- manna verður haldið í Kirkjulækjar- koti, Fljótshlíð, um verslunarmanna- helgina, 2.–6. ágúst. Metaðsókn var að mótinu í fyrra, en talið er að ríf- lega 2.000 manns hafi verið á móts- svæðinu þegar mest var. Ekki er bú- ist við síðri þátttöku í ár og því mikilvægt er að mæta snemma. Kot- mót er árleg útihátíð fyrir alla fjöl- skylduna sem nú var haldin í 52. sinn. Barnamót fer fram samhliða Kot- mótinu og er dagskrá þess hönnuð með hliðsjón af samkomuhaldi. Í Kirkjulækjarkoti er safnaðarmiðstöð hvítasunnuhreyfingarinnar og er að- staða þar nú öll til fyrirmyndar. Nú fara allar samkomur fram innanhúss í gamla tívolíhúsinu sem nú heitir Örkin og var áður staðsett í Hvera- gerði. Örkin rúmar meira en 1.000 manns í sæti! Næg tjaldstæði eru á mótssvæðinu og aðstaða fyrir tjald- vagna og húsbíla. Þá er svefnpoka- pláss fyrir einstaklinga. Á staðnum er skáli með svefnaðstöðu sem rúmar á annað hundrað manns. Gistiaðstað- an í Skálanum er einkum ætluð öldr- uðum, veikum og fólki með ung börn. Hægt er að kaupa mat á staðnum, ýmist fullt fæði allan tímann eða stakar máltíðir. Frítt er inn á móts- svæðið. Síldarævintýri Siglufirði Að venju verður Síldarævintýrið Siglufirði í fullum gangi yfir versl- unarmannahelgina. Selt er á hátíðina og veitir armband það sem keypt er aðgang að öllu sem í boði verður í bænum. Þar má nefna tjaldstæði, sundlaug, síldarminjasafnið með söltunarsýningum, harmonikuleik og bryggjuböllum. Jafnframt eru leik- tæki fyrir börnin og skemmtisigling- ar um fjörðinn. Dagskrá er á sviði alla daga og öll kvöld með víðfrægum skemmtikröftum eins og Erni Árna- syni, Stúlla og Sævari, Steini Ár- manni Magnússyni, Sönghópnum „Á elleftu stundu,“ Leikfélagi Siglu- fjarðar o.fl. Þá verða einnig í boði hesta- og kajakaferðir fyrir börnin. Fjölmargir dansleikir verða haldnir um helgina og koma fram, meðal annarra, Bjarni Ara, Páll Óskar og Milljónamæringarnir, Allinn og Mannakorn. Þátttaka í hátíðinni kostar 3.900 krónur fyrir 18 ára og eldri en en börn í fylgd með foreldr- um sínum fá frítt inn. Fjölskyldumót við Úlfljótsvatn Útilífsmiðstöð skáta stendur nú í fyrsta skipti fyrir Fjölskyldumóti fyrir almenning við Úlfljótsvatn og er stefnt að því að þetta verði árviss viðburður. Mótinu er ætlað að mæta þörfum fjölskyldufólks sem leitar eftir friðsælli fjölskyldustemmningu um verslunarmannahelgina. Verði er stillt í hóf, en nóttin á tjaldstæðinu kostar 1.000 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn yngri en 16 ára. Á Úlfljótsvatni hefur verið byggð upp frábær aðstaða á undanförnum árum, ræktuð hafa verið skjólbelti og sett upp salernisaðstaða, stórt grill og nestisborð á hverju tjaldsvæði. Á Fjölskyldumótinu er boðið upp á fjöl- breytt verkefni fyrir börn og full- orðna. Sem dæmi má nefna kassa- bílarallí, ratleiki, bátasmiðju og skipulagðar gönguferðir, en auk þess er vatnasafarí, þrautabraut og hoppukastalar á staðnum. Risastór klifurturn gnæfir yfir svæðið og hef- ur hann gífurlegt aðdráttarafl fyrir unga sem aldna sem reyna þar fyrir sér í sigi og klifri. Hægt er að renna fyrir silung í vatninu eða að leigja sér hest, kanóa eða kajaka. Kvöldvökur hafa að sjálfsögðu sinn sess á mótinu, en á laugardag verður auk þess barnadiskótek í risatjaldi og á sunnu- dagskvöldið verður flugeldasýning í lok kvöldvökunnar. Úlfljótsvatn er í um 50 km fjarlægð frá Reykjavík ef Nesjavallaleið er farin. Þess má geta að unglingar yngri en 16 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum til að fá aðgang og öflug gæsla verður á staðnum. Fólk getur því treyst því að friðsæl fjölskyldustemmning ræður ríkjum á Úlfljótsvatni alla verslunar- mannahelgina. „Litla þjóðhátíðin“ í Úthlíð Í Úthlíð í Biskupstungum verður dagskrá um verslunarmannahelgina undir yfirskriftinni „Litla þjóðhátíð- in,“ þótt ekki sé um eiginlega útihátíð að ræða. Á fimmtudags- og föstu- dagskvöld leikur Stuðhljómsveit Geirmundar Valtýssonar fyrir dansi og á laugardags- og sunnudagskvöld rokkkóngurinn Rúnar Júl. og hljóm- sveit. Í Úthlíð er frábært útivistar- svæði þar sem í boði eru skemmti- legar gönguleiðir, góð sundlaug, heitir pottar, raftasiglingar, hesta- leiga, golfvöllur o.fl. Þá er ætlað að verði um helgina flugeldasýning og brenna og enginn má missa af undir frábærri stjórn Jóhannesar Stefáns- sonar undrakokks. Grillið opið alla helgina, með alvöru hamborgurum, samlokum, og okkar rómuðu pitsum. Inn á tjaldstæðin verður rukkað að þessu sinni til að hafa upp í kostnað en áður hafði ekkert kostað inn á svæðið. Ekki hafði verið tekin loka- ákvörðun í gær um hvert verðið yrði fyrir tjaldstæðið en frekar var gert ráð fyrir að því yrði stillt í hóf. Sæludagar KFUM í Vatnaskógi Að Sæludögum standa Skógarmenn KFUM, Vatnaskógi, og er ætlunin að halda eftirsóknarverða hátíð án allra vímuefna þar sem höfðað er til ólíkra aldurshópa. Dagskráin verður fjöl- breytt og aðstaðan í Vatnaskógi nýtt á skemmtilegan og fjölskylduvænan máta.Við vatnið verða bátar af ýms- um gerðum öllum opnir, fjöldi vand- aðra kassabíla verður á staðnum ásamt hoppkastala og frábærum leiktækjum. Glæsilegur íþróttavöllur er í Vatnaskógi þar sem leikin verður knattspyrna og Sæludagaleikarnir fara fram. Á leikunum verða marg- víslegar íþróttir við allra hæfi í boði. Þá fara fram hæfileika- og söngva- keppni, fjölskylduguðsþjónusta með léttu sniði, harmónikkudansleikur, gospeltónleikar með Bubba Mort- hens, Páli Rósinkrans og Óskari Ein- arssyni, ásamt hljómsveitunum SHEEP og Tristan og kvöldvökur þar sem meðal annars verða: fyndn- asti maður Íslands, barnaleikritið Óskirnar tíu verður sýnt og sigur- vegarar úr söng- og hæfileikakeppn- inni stíga á stokk. Þá verða í kapell- unni bæna- og kyrrðarstundir og í Gamla skála verða fræðslustundir þar sem sr. Sigurður Pálsson fjallar um: Trúaruppeldi barna í fjölhyggju- þjóðfélagi og Gunnar J. Gunnarson fjallar um Trú og efa í textum U2. Verð inn á svæðið er 2.800 krónur en þó aldrei hærra en 6.000 krónur fyrir fjölskyldu. Dagsheimsókn er á 1.500 krónur. Hátíð á Kirkjubæjarklaustri Að venju verður fjölskylduhátíð á Kirkjubæjarklaustri um verslunar- mannahelgina þótt ekki sé um skipu- lega útihátíð að ræða. Gestir og gangandi geta um helgina unað sér við margs konar iðju og má þar nefna að á laugardaginn verður markaðs- tjald við Skaftárskála með ýmsan varning. Einnig verður selt kaffi og vöflur og ókeypis andlitsmálning verður í boði fyrir börnin. Á Kirkju- bæjarklaustri er margt annað í boði um helgina, ferðir, hestar, götubolti, veiði, golf, o.fl. Á sunnudagskvöldið verður svo fjölskylduskemmtun í Hlöðunni Efri-Vík, haldin verður grillveisla og ball þar sem hljóm- sveitin Fossabandið leikur fyrir dansi. Enginn aðgangseyrir er inn á svæðið en selt er á tjaldstæðin eins og venjulega og aðgangseyrir er að dansleikjum og slíku. Fjölskylduhátíð á Vestfjörðum Sólbakka- og Sandshátíð heitir fjöl- skylduhátíð á Vestfjörðum um versl- unarmannahelgina. Fer hún að mestu fram á Flateyri og á Ingjalds- sandi, en boðið verður upp á fjöl- skylduvæna og fjölbreytta skemmt- an í faðmi Vestfjarða. Meðal dagskrárliða eru dansleikir í Vagn- inum á Flateyri, auk þess sem Birkir Þór Guðmundsson rokkbóndi spilar á dansleik í fjárhúsunum á Hrauni en þau hafa verið innréttuð sem veislu- og dansstaður. Einnig verður haldin kajakróðrakeppni í Önundarfirði, barnadansleikur á Hrauni, farnar gönguferðir, haldnar stuttmynda- og ljósmyndasýningar, grillveislur, kerruferðir fyrir börnin, pílukastmót og margt fleira. Til að komast á In- gjaldssand er ekið að Núpsskóla í Dýrafirði og þaðan sem leið liggur yf- ir Sandsheiði. Að hátíðinni standa Önfirðingafélagið og Ingjaldur, Vinafélag Ingjaldssands. Rukkaðar eru inn 1.000 krónur fyrir tjald eina nótt og 1.500 inn á dansleik. Nánari upplýsingar má finna á www.ingjaldur.is. Fjölskyldustemmning á Flúðum Á Flúðum og í nágrenni verður mikið um að vera um verslunarmannahelg- ina og að sögn eitthvað fyrir alla fjöl- skylduna. Á laugardag verður Traktorstor- færukeppni, Íslandsmeistaramót í Míkado og „Hreppa-fitness“ keppni. Þá er ótalin Flúðagrettukeppnin 2001. Á sunnudeginum verður svo haldin í 15. sinn á Litlu-Laxá Furðu- bátakeppni sem talin er einstök í heiminum. VERSLUNARMANNAHELGIN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 45 FRÉTTIR „DAGANA 30. júní til 5. júlí var haldin opin alþjóðleg danskeppni í bænum Alassio á Ítalíu. Það eru danshjónin Anna og Guido Maero sem halda þessa keppni ár hvert og var þetta í 13. skiptið sem keppni þessi er haldin. Frá Íslandi voru fjögur pör þátttakendur. Í flokki unglinga I, 12-13 ára, voru það Stefán Claessen og María Carrasco og Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir. Í flokki ung- linga II, 14-15 ára, Davíð Gill Jóns- son og Helga Björnsdóttir og í flokki fullorðinna Eggert Claessen og Sigrún Kjartansdóttir. Öll dans- pörin eru í Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Ellefu alþjóðlegir dóm- arar dæmdu í keppninni. Keppnin var geysisterk og danspör hvaðan- æva úr heiminum. Bestum árangri íslensku paranna náðu Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir. Þau komust í úrslit í enskum valsi og höfnuðu þar í 6. sæti og inn í undan-úrslit í 10 dönsunum. Í þeirra aldursflokki voru pör frá Rússlandi í miklum meirihluta og oftar en ekki eingöngu í úrslitum. Öll íslensku danspörin stóðu sig með prýði og voru landi og þjóð til sóma. Ýmislegt höfðum við Íslend- ingar við keppnishaldið að athuga. Þó nokkuð var um það að Rúss- arnir skráðu sig í ranga aldurs- hópa og unnu þar jafnvel til verð- launa. Ekki var farið eftir klæðareglum alþjóðasambandsins eins og auglýst hafði verið og mjög leiðinleg mistök áttu sér stað í tölvuvinnuslu hjá unglingum II, latin, sem kom illa niður á íslenska dansparinu án nokkurra skýringa. Að öllu öðru leyti gekk keppnin vel fyrir sig og koma danspörin alltaf reynslunni ríkari heim eftir þátt- tökuna,“ segir í fréttatilkynningu frá Dansíþróttasambandi Íslands. Aftari röð f.v.: Helga Björnsdóttir og Davíð Gill Jónsson. Sigrún Kjart- ansdóttir og Eggert Claessen. Fremri röð frá vinstri: Ásta Bjarnadóttir og Þorleifur Einarsson. María Carrasco og Stefán Claessen. Þorleifur og Ásta í úrslitum á Ítalíu „FÖSTUDAGINN 27. júlí 2001 var Neistanum (félagi hjartveikra barna) afhentar 600.000 kr. að gjöf frá Ægisklúbbnum, (hagsmunasam- tökum þeirra sem eiga tjaldvagn/ fellihýsi frá Seglagerðinni Ægi) og Seglagerðinni Ægi sjálfri í húsnæði Neistans að Suðurgötu 10 í Reykja- vík. Styrkur þessi kemur Neistanum sérstaklega vel, því umsóknir um styrki hafa aldrei verið fleiri en ein- mitt í ár eða 22 m.v fyrstu 6 mánuði ársins en 24 allt árið í fyrra. Upphafið að þessu samstarfi er að sl. vor hafði Ægisklúbburinn sam- band við Neistann og bauðst til að styrkja þá í samstarfi við Seglagerð- ina Ægi. Það sem gerði þetta ein- stakt var að þetta var í fyrsta skipti sem félagasamtök eða fyrirtæki eiga frumkvæði að því að styrkja Neist- ann. Það sem gerir þetta sérstaklega einstakt var að þetta var í fyrsta skipti sem skjólstæðingum Neistans var einnig boðið upp á félagslega samveru. Helgina 14.-15. júlí var hjartveik- um börnum boðið með Ægisklúbbn- um í Galtalæk til samveru yfir helgina og rann allur ágóðinn til Neistans. Seglagerðin hefur látið smá upp- hæð af hverjum seldum vagni renna til Neistans,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Neistinn fær góða gjöf Arnar Barðdal og Björgvin Barðdal f.h. Seglagerðarinnar Ægis, Guð- brandur Jónatansson, formaður Ægisklúbbsins, og Valur Stefánsson, formaður Neistans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.