Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 56
PEDRO Almodovar, spænski
kvikmyndaleikstjórinn, á nú í
mesta basli við yfirlýsta dýravini.
Þeir hafa lagt fram formlega
kvörtun yfir því að hann hafi lát-
ið drepa naut við gerð nýjustu
kvikmyndar sinnar sem mun bera
nafnið Hable Con Ella, eða Tal-
aðu við hana.
Þeir segja framleiðslufyrirtæki
hans El Deseo hafi brotið þau
dýraverndunarlög þar sem segir
til um að öll atriði í kvikmyndum
þar sem dýr þurfi að þjást verði
að vera sett á svið. Hæsta sekt
við því nær allt að einni og hálfri
milljón króna.
Hable Con Ella fjallar um
kvennautabana og er spænska
söngkonan Rosario Flores í aðal-
hlutverkinu.
Aðstandendur El Deseo við-
urkenna að fjögur naut voru
drepin á nautaatsvellinum í Ar-
anjuez, en standa fastir á því að
þeir hafi fengið tilskilin leyfi.
Blaðafulltrúinn Paz Sufrategui
segir: „Þegar við keyptum nautin
drógum við enga dul á að þau
voru fyrir kvikmyndaupptökur.
Við höfum ekki brotið nein lög,
auk þess sem nautaatið fór fram
á mjög sársaukalítinn máta.“
Segir hann að notast hafi verið
við nemenda úr Nautaatsskóla
Madrid fyrir atriðin.
En dýravinir eru ekki sáttir og
segist Matilde Cubillo hafa það
eftir fólki sem var við upptök-
urnar að óreyndur nautabani hafi
hreinlega slátrað nautunum fyrir
framan myndavélarnar.
Reuters
Ætli myndin byggi á sögu Cristinu Sanchez sem hætti sem nautabani
vegna ólæknandi karlrembu innan stéttarinnar?
Almodovar kærður
Almodovar, alltaf
eitthvað bralla.
56 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTJANA hefur heillaðmargan djassunnandannupp úr skónum með söng
sínum, og ekki bara hér á landi,
því fyrir rúmu ári lauk hún djass-
söngnámi í Den Haag þar sem
hún hlaut hæstu einkunn.
Kristjana er nú að taka upp
sinn fyrsta sólódisk og er ekki í
ónýtum félagsskap við það. Við
píanóið situr útsetjarinn hennar
Agnar Már Magnússon og með
þeim leika félagar Kristjönu úr
djassnáminu, Michael Erian, ten-
órsaxófónleikari, Uli Glassman,
bassaleikari og Thorsten Grau
trommar. En flygelhorns- og
trompetleikarinn Birkir Freyr
Matthíasson var á þeytingi um
Evrópu þegar blaðamann bar að
garði.
En auk þess að æfa fyrir upp-
tökurnar, eru þau að hita upp fyr-
ir tónleika á Múlanum í kvöld, kl.
21 í Húsi málarans við Banka-
stræti og í Pakkhúsinu Selfossi
annað kvöld.
Mikilvægt að
syngja standarda
„Platan á að koma út í október,
en hún hefur lengi verið að gerj-
ast með mér og svo hentaði þessi
upptökutími bæði mér og drauma-
bandinu mínu mjög vel. Auk þess
sem ég er að flytja aftur til út-
landa og þá er alltaf gott að hafa
disk með sér í farteskinu.“
– Er smá titringur i þér?
„Já, þetta er æðislegt og ég hef
verið alveg á haus. Við Agnar Már
höfum unnið að útsetningunum
seinustu mánuði og erum nú að
leggja þær fyrir restina af hljóm-
sveitinni og það er svo spennandi
að sjá hvernig það kemur út.“
– Hvernig valdir þú lögin?
„Þetta eru lög sem ég hef verið
að vinna í skólanum sl. þrjú ár, og
eru sum hver uppáhaldslög sem
ég hef verið að hlusta á síðan ég
var krakki. Þetta eru allt stand-
ardar, blanda af hraðari og rólegri
lögum. Mér fannst mikilvægt að
koma því frá mér, þar sem ég hef
verið að vinna mest með þá und-
anfarin ár, og annað koma ekki til
greina fyrir fyrstu sólóplötuna.
Þetta er svona lítil Ellu Fitzgerald
plata, plata í anda gömlu dívanna
eins og Dinah Washington, Sarah
Vaughan, svona í þessum gamla
góða klassíska standard-anda.“
Vill vinna
með vinum sínum
– Hvers vegna valdirðu þessa
gæja ?
„Við Agnar Már kynntumst í
Hollandi 1996 og höfum mikið
unnið saman síðan.
Hann skilur mínar hug-
myndir mjög vel og
kann að nálgast mig á
hátt sem ég fíla vel.
Hinir strákarnir eru
allir skólabræður mínir
frá Den Haag, og ég
hef líka unnið með
Thorsten og Uli síðan
1996. Þeir spila mikið
nútímadjass en eru líka
algjörir sérfræðingar í gömlu
klassíkinni, eru mjög lýrískir og
ég valdi þá þar sem þeir ráða svo
vel við þetta hefðbundna form.
Mér finnst líka mjög mikilvægt
þegar ég vinn svona þétt með
fólki, að það séu vinir mínir eins
og þeir eru. Ég veit nákvæmlega
að hverju ég geng, og þeir líka.“
Kristjana og félagar léku í
Deiglunni á Akureyri sl. fimmtu-
dagskvöld, voru síðan í ströngum
æfingabúðum um helgina á Sel-
fossi og hófu síðan upptökurnar.
Þau ættu að vera orðin vel æfð
fyrir tónleikana í kvöld og á morg-
un. Eftir það verðum við að bíða
með að heyra af nýja diskinum
þar til hann kemur út.
„Maðurinn minn er að fara í
leikstjórnarnám í Bristol í haust
en ég ætla að vera meira á Íslandi
alla vega fram að jólum til að
fylgja plötunni eftir með nokkrum
tónleikum, og svo er bandið að
vonast til að komast í tónleika-
ferðalag um Þýskaland eftir jól,“
segir djasssöngkonan góða skæl-
brosandi og spennt yfir þessu öllu
saman.
Kristjana Stefáns syngur á Múlanum
Í anda gömlu dívanna
Í sal FÍH lætur Selfoss-
dívan sjálf, Kristjana
Stefánsdóttir, rödd sína
óma er hún túlkar á sinn
einstaka máta djass-
standardinn „Day In
Day Out“. Hildur
Loftsdóttir raulaði með.
Morgunblaðið/Jim Smart
Agnar Már, Uli,
Kristjana, Thorsten
og Michael eru á
fullu í hljóðverinu
ásamt Birki Frey.
Kristjana syngur „If I were a
Bell“ eftir Frank Loesser.
hilo@mbl.is
Sýnd kl. 8.10.
Vit 235. B.i. 12.
Sýnd kl. 5.50, 8 og
10.10. Vit 255.
Sýnd kl. 4, 6 og 10.
Vit 249
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra
að eilífu.
r , i r r tti lífi irr
ilíf .
KVIKMYNDIR.is
1/2 Hug-
leikur
Sýnd Kl. 3.50 og 6.
Vit 234
Ný eyja. Nýjar tegundir. Nýjar hættur.
Forsýning
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 243. Forsýnd kl. 8 B.i.10 ára.
strik.is
Íslenskt tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 245
Enskt tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 244
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T.Rás2
strik.is
Kvikmyndir.com
DV
Hugleikur
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
DV
Sýnd Kl. 3.45.
Vit 213
Allt er þegar þrennt er. Myndin opnaði með
þvílíkum látum í Bandaríkjunum nú fyrir stuttu.
Júragarðurinn 1&2 var aðeins upphitun. Nú
hefst rússíbanaspennan fyrir alvöru og af fullum
krafti. Besta Júragarðsmyndin til þessa. Með
Sam Neill (Jurassic Park, Even Horizon),
William H. Macy (Fargo, Boogie Nights), Téa
Leoni (The Family Man, Bad Boys), Alessandro
Nivola (Face/Off) og Trevor Morgan
(The Patriot).
Leikstjóri: Joe Johnston (Jumanji, Honey, I Shrunk The Kids,
The Rocketeer).
Græna tröllið SHREK hefur allstaðar heillað
heimsbyggð alla og nú er röðin komin að Íslandi.
Sjáið eina skemmtilegustu og stærstu kvikmynd ársins.
Með íslensku og ensku tali.
Reiðskólinn Hrauni
Grímsnesi
Erum að bóka í síðsumarsnámskeiðin
Upplýsingar í síma 486 4444
reiðskólans.rh@mi.is
Skoðið heimasíðu www.vortex.is/reidskoli/
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Kvikmyndir.com
DV
strik.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15.
Ó.H.T.Rás2Hugleikur
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15.
strik.is
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
Kvikmyndir.com
Mbl
DV
TILLSAMMANS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 6 íslenskt tal.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 enskt tal
Stærsta ævintýri
sumarsins er hafið
Kvikmyndir.com
RadioX DV