Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 22
ERLENT 22 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ JAPAN er nú helsta ógnunin við stöðugleika í fjármálum heimsins. Enn einu sinni er samdráttur í efna- hagslífinu þar í landi, fjárlagahall- inn geysimikill, skuldir ríkisins (þar á meðal vegna lífeyrisréttinda sem ekki hafa verið fjármagnaðar) meiri en í nokkru öðru landi. Reglugerða- skógurinn hefur enn ekki verið ruddur og einkafyrirtæki eru á bólakafi í skuldafeni, ekki er hægt að reiða sig á að einkaframtakið muni valda umskiptum. Ef Japan væri í röðum bjargálna þróunarríkja myndum við geta bú- ist við hruni og þá myndi Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, IMF, grípa inn og koma aftur á eðlilegu ástandi. En Japan er hvorki Argentína né Tyrk- land, efnahagur landsins er hinn þriðji stærsti í heimi. Stöðnun í efnahag Japana og ógnvægileg op- inber skuldasöfnun eru mjög alvar- leg ógn við stöðugleika í heiminum. Hvers vegna eru ráðamenn heimsins ekki hræddari en þeir eru? Í fyrsta lagi ríkir almennt trú á að Japan geti ekki verið svo illa statt, þjóðin hefur vakið svo mikla aðdáun um allan heim síðustu 50 ár- in. Kannski Japanir eigi bara við nokkurn vanda að stríða eins og tölvufyrirtækið IBM á sínum tíma. Ef þeir gerðu viðeigandi ráðstafanir myndu þeir örugglega ná sér aftur á strik. Hvernig er það, voru ekki Bandaríkjamenn í miklum vanda snemma á níunda áratugnum en mættu síðan tvíefldir til leiks á tí- unda áratugnum eftir að hafa losað sig við meinsemdirnar? Spurningin er: Getur nýr, vinsæll og umbótasinnaður forsætisráð- herra Japana, Junichiro Koizumi, snúið taflinu við? Getur hann lagað stöðu ríkisfjármála, komið skikki á ástandið í fjármálum einkafram- taksins í landinu og komið á frelsi á neytendamarkaðnum? Takist hon- um allt þrennt munu Japanar sleppa úr klípunni vegna þess hve mannauðurinn í landinu er mikill og hæfileikar þeirra til að laga sig að breyttum aðstæðum miklir. En það er erfitt að takast á við þessi þrjú verkefni ef menn stýra efnahag sem þjakaður er af samdrætti og þurfa að kljást við stjórnmálakerfi sem berst af einurð gegn umbótum. Fram til þessa hefur Koizumi gengið allt í haginn; hann nýtur mikils stuðnings meðal almennings og flestir hafa trú á því að með því að draga úr ríkisútgjöldum meðan samdrátturinn ríkir verði hægt að minnka úr skuldasöfnun í hlutfalli við þjóðarframleiðslu (þó ekki stöðva hana), aðrar umbætur muni síðan bæta rekstrarumhverfi fyrir- tækjanna. Koizumi veit að þegar samdráttur herjar er erfitt að stíga slík skref og það er varasamt. Her- bert Hoover, forseti Bandaríkjanna fyrir sjötíu árum, varð frægur fyrir að reyna það sem Koizumi vill nú gera. Þótt Koizumi viti af áhættunni virðist hann ekki ætla að láta deigan síga og svíkja fyrirheit sín. Hann hefur vissulega sagt að ef ástandið í efnahag Japans versni skyndilega, að nokkru vegna um- bóta hans og niðurskurðar á ríkisút- gjöldum, muni hann grípa til „djarf- legra og sveigjanlegra aðgerða“. Vandinn er að hann á ekki kost á neinum slíkum lausnum. Veit hann það? Ég efa það. Mikil gengislækkun á jeninu myndi vafalaust örva viðskipti en þar sem efnahagur landsins er mjög lokaður (eins og efnahagur Evrópu og Bandaríkjanna) mundi hún fljót- lega valda mikilli ókyrrð á verð- bréfamarkaði, vextir myndu hækka og ástand fjármála í Japana myndi enn versna. Traust meðal fjárfesta og ráðamanna fyrirtækja myndi minnka vegna þess að líkur á verð- bólgu myndu vaxa og í kjölfarið drægist neysla saman. Áætlunin um gengislækkun mun því sennilega reynast ægileg mis- tök. Seðlabanki Japans virðist til allrar hamingju vera sömu skoðun- ar sem kemur sér vel fyrir heiminn í heild vegna þess að þegar í stað yrði gripið til gagnaðgerða ef umbætur Koizumis hefðu í för með sér að samdráttur breyttist í kreppu. Hvaða aðrar sveigjanlegar aðgerðir kæmu til greina? Hægt væri að efna til opinberra framkvæmda eins og gert var á fjórða áratugnum en þær myndu hafa góð áhrif á atvinnu- ástandið, ekki fjárlögin. Hvað sem því líður er ólíklegt að Koizumi fái ráðrúm til að fylgja eft- ir umbótaáætlun í fimm eða tíu ár, áætlun sem nauðsynleg er ef takast á að koma aftur á eðlilegum hag- vexti. Við vitum af reynslunni í Bandaríkjunum á níunda áratugn- um að það tekur svo langan tíma. Vandamálið er að Koizumi hefur ekki nægilega öflugt pólitískt um- boð og almenningur, sem styður ákaft umbótahugmyndir hans, hef- ur ekki gert sér grein fyrir því að þær munu í fyrstu auka atvinnu- leysi en ekki hagvöxt. Ástæðan er sú að fjárfesting í fyrirtækjarekstri, sem eykur at- vinnusköpun, kemur kemur ekki fram fyrr en löngu seinna. Banda- ríkjamenn gengu í gegnum sárs- aukafullt tímabil á níunda áratugn- um en það var ekki fyrr en á tíunda áratugnum að nýju störfin í nýja hagkerfinu fóru að koma fram á sjónarsviðið. Við sjáum merki um sömu þróun í japönskum fyrirtækj- um sem hafa byrjað að laga til hjá sér en bíða með frekari fjárfesting- ar. Ef hömlum og verndarreglum verður enn frekar aflétt í hagkerf- inu mun samdrátturinn færast í aukana og vinsældir Koizumis enn minnka. Hvernig er hægt að draga úr skuldasöfnun ríkisins? Minnka þarf fjárlagahalla – og það í hagkerfi þar sem þegar ríkir samdráttur! Hvað myndi gerast ef tapaðar skuldir japönsku bankanna yrðu þurrkaðar út? Giskað er á að afleiðingin yrði samdráttur í hagvexti sem næmi 1–2% og alls ekki hægt að treysta því að aukinn vöxtur myndi nokk- urn tíma taka við. Þetta eru því ekki aðgerðir sem líklegar eru til að vera framkvæmanlegar í stjórnmálalegu tilliti. Miklu líklegra en að Koizumi tak- ist á hendur dirfskufullar og viðvar- andi umbætur er að meistari í að ná tengslum við almenning, hæfileiki sem skiptir miklu við að halda trausti þjóðarinnar og jafnframt maður sem sýnir nokkra umbóta- viðleitni færi fjármagn frá bygging- ariðnaði (grein sem styður and- stæðinga Koizumis) yfir til hátækni þar sem allir Japanar vona að lausnin sé. Hvað fjármálastefnuna snertir mun mikið af aðgerðunum beinast að því einu að færa til hús- gögnin þ.e. að ábyrgð á skuldum verður færð frá einni stofnun til annarrar. Jenið mun sennilega áfram verða veikt en ef heimurinn allur lendir ekki í miklum efnahags- örðugleikum er gengishrun gjald- miðilsins ekki líklegt í bráð. Menn ættu því ekki að búast við mikilli hjálp frá útflutningsgreinunum. Því miður er það svo að þótt margir séu nú vongóðir er líklegt að Japan verði áfram mikill áhættu- þáttur í efnahagskerfi heimsins. Líða munu nokkur ár þar til mikil hætta skapast en Japanar virðast staðráðnir í að koma sér í hana. Hvað sem líður öllum yfirlýsingum þar til það gerist mun hagvöxtur ekki koma til sögunnar og fjármála- ástandið í Japan, þar sem ríkis- skuldabréfum má jafna við ruslbréf, mun verða jafnvel enn verra en nú. Getur Koizumi bjargað Japan? Vandamálið er að Koizumi hefur ekki nægilega öflugt pólitískt umboð . eftir Rudi Dornbusch Rudi Dornbusch er Ford-prófessor í hagfræði við MIT-háskólann í Bandaríkjunum og fyrrverandi ráðgjafi í hagfræði hjá Alþjóða- bankanum og Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. © Project Syndicate „Á SLÓÐUM njósnaranna“ mætti kalla skoðunarferðina, sem tveir menn, Bandaríkjamaður og Rússi, standa fyrir í Washington um þess- ar mundir. Sjálfir eru þeir gamlir njósnarar frá því á dögum kalda stríðsins en nú sýna þeir fólki fræg- ustu staðina í borginni í þessari sögu njósna, svika og undirferla. Ferðastjórarnir eru þeir Peter Earnest, fyrrverandi CIA-foringi, og Oleg Kalugin, fyrrverandi yf- irmaður KGB í Bandaríkjunum. Á tveimur klukkustundum sýna þeir fólki ýmsa staði, sem láta kannski ekki mikið yfir sér, en skipa þó virðulegan sess í njósnasögunni. Sem dæmi má nefna Chadwick’s- krána þar sem CIA-maðurinn Ald- rich Ames afhenti sovéskum tengi- liðum sínum upplýsingar og franska veitingastaðinn Au Pied de Cochon. Þar tókst KGB-manninum Vítalí Júrtsjenko, sem áður hafði flúið á náðir CIA, að flýja frá CIA- mönnunum og snúa aftur til sinna fyrri félaga. Þeir Earnest og Kalugin glettast stundum hvor við annan og Kalugin hefur gaman af því að minna á, að þeir hjá KGB hafi ekki átt í neinum vandræðum með að þekkja CIA- njósnarana á árum áður. „Þeir voru alltaf á ódýrustu gerð- inni af Plymouth,“ segir hann hlæj- andi, „og allir í hvítri skyrtu með bindi.“ Að sjálfsögðu liggur leiðin framhjá rússneska sendiráðinu í Washington en beint á móti því var CIA með eftirlitsstöð á sínum tíma. Kalugin segir, að KGB hafi auðvit- að vitað af henni og fylgst með fjar- skiptum CIA-mannanna enda hefði dulmálið, sem þeir notuðu, verið auðráðið. Faðir Kalugins var í leyni- lögreglu Stalíns en þegar Kalugin hætti störfum 1990 gerðist hann mikill gagnrýnandi KGB og komm- únismans. Nú starfar hann hjá gagnnjósna- og öryggisstofnun í Virginíu í Bandaríkjunum. CIA-menn á ódýrum Plymouth AP Peter Earnest, til vinstri, og Oleg Kalugin tala við ferðamenn í Washington sl. helgi. Hér var sendiráð Sovétríkjanna fyrrverandi í Washington, á horni 16. strætis og L strætis. Washington. AP. Skoðunarferð um njósnara- slóðir í Washington
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.