Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.08.2001, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ottó Sigurðssonfæddist á Siglu- firði 16. janúar 1928. Hann lést á líknar- deild Landspítala í Kópavogi 26. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Evert Jónsson, f. 13.12. 1903, d. 3.11. 1960, og Nikólína Dagbjört Jónsdóttir, f. 28.11. 1901, d. 15.8. 1972. Bróðir Ottós er Friðrik Jón, f. 1931. Uppeldis- systir Ottós er Brynja Gestsdóttir, f. 1927. Hinn 1. október 1955 kvæntist Ottó eftirlifandi konu sinni Aðal- heiði Lárusdóttur húsmóður, f. 1928. Foreldrar hennar voru Lár- us Ásmundsson, útvegsbóndi í Ottó lærði bakaraiðn hjá föður sínum í Neskaupstað og síðan í Björnsbakaríi í Reykjavík. Ottó tók við rekstri bakarísins í Nes- kaupstað 1957 og rak það ásamt móður sinni allt fram til ársins 1970. Hann var bakari hjá kaup- félaginu Fram í Neskaupstað þar til fjölskyldan fluttist til Reykja- víkur árið 1981. Þar hóf hann störf hjá Myllunni. Árið 1985 tók hann við bakaríinu hjá Hrafnistu í Reykjavík og vann þar til eftir- launaaldurs. Ottó var mikill tón- listarunnandi, söng með kórum, spilaði í lúðrasveit Norðfjarðar og með vinsælum danshljómsveitum frá Norðfirði til margra ára. Hann var frístundamálari og áhuga- maður um málaralist og einn af stofnendum frístundamálara- klúbbs Norðfjarðar. Á seinni ár- um hafði hann mikið yndi af ís- lenskum bókmenntum og fornsögum og var áhugamaður um söguslóðir. Útför Ottós fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Neskaupstað, og Dag- björt Sigurðardóttir. Börn Ottós og Aðal- heiðar eru: 1) Sigurð- ur, verkstjóri, f. 1949, kvæntur Öldu K. Helgadóttur. Þeirra börn eru: Ottó og Helga. 2) Hermann, framkvæmdastjóri, f. 1955, kvæntur Jó- hönnu G. Þormar. Þeirra börn eru: Orri, sambýliskona Krist- jana Fjóla Guðmunds- dóttir, þeirra dóttir Dagný Lilja, Valur, Hrafnhildur og Katrín Þóra. 3) Dagbjört Lára, húsmóðir, f. 1962, gift Ingófi Erni Arnarsyni. Þeirra börn eru Heiða Rut og Elvar. 4) Friðrik Jón, framreiðslumaður, f. 1964, hans dóttir er Hilma Sól. Mig langar til að minnast elsku- legs föðurbróður míns, hans Ottós, með nokkrum línum. Heimili hans og Öllu var ávallt op- ið öllum, gestum og gangandi. Á uppeldisárum mínum var ég fastagestur á heimili þeirra á Sjáv- arborg, því þar voru tvö lítil börn, Dagga Lára og Friðrik, sem ég varð að fá að fara með út í gönguferð. Auðvitað var alltaf labbað í bak- aríið til að hitta pabba í vinnunni og fá snúð og ekki var verra ef Ottó laumaðist fram í búð og laumaði smá nammi í lófann á mér. Mesta hátíðin var að fá að fara í bíltúr með honum og krökkunum í bakarísbílnum, þessum brúna stóra, og keyra um bæinn og stoppa í Beggusjoppu og fá stóran ís. Árin líða fljótt og ég eignaðist mína fjölskyldu sem ég síðan kynni fyrir Ottó og Öllu. Þegar dóttir mín var fjögurra ára gömul lá leið okkar í Bláhamrana og fyrir utan stendur Ottó og er að fara í búðina, þá veit ég ekki fyrr en hún hleypur af stað og beint í fangið á honum og segir: Þetta er hann afi minn, og síðan þá talar hún alltaf um hann Ottó afa enda er varla hægt að finna jafnbarngóðan mann og hann var. Alltaf hafði hann tíma til að spjalla hvar sem ég hitti hann, hvort sem var í búðinni eða á ganginum í Hverafoldinni. Ég og fjölskylda mín vottum Öllu og fjölskyldum hennar samúð okkar. Vil ég með þessum orðum kveðja elskulegan frænda. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Kveðja, Ósk. Ottó Sigurðsson er látinn eftir erf- iða baráttu við sjúkdóm sinn. Hann vissi vel að hverju dró og tók því af einstöku æðruleysi. Í hvert sinn sem komið var til hans hafði hann uppi gamanyrði og gerði það svo lengi sem hann hafði mátt til. Með þessum örfáu línum viljum við þakka Ottó trygga vináttu sem stóð óslitið í áratugi. Ottó var list- fengur að eðlisfari og gerði töluvert af því að mála í frístundum. Hann var meðlimur í Lúðrasveit Neskaup- staðar á yngri árum og lék einnig í danshljómsveit um tíma. Ottó var líka einstaklega barngóður og sást það best þegar barnabörnin hópuð- ust í kringum hann. Margs er að minnast, bæði frá þeim tíma þegar fjölskyldan bjó í átt- högunum austur á Norðfirði og einn- ig eftir að hún fluttist til Reykjavík- ur. Við þökkum allar góðu samveru- stundirnar á heimili hans og Öllu og þá annáluðu gestrisni sem þar var ætíð að finna. Á þessari kveðjustund sendum við Öllu og allri fjölskyldu hennar okkar einlægustu samúðarkveðjur. Hugur okkar er hjá þeim nú þegar Ottó vin- ur okkar er kvaddur. Svavar og Elsa. Vinur minn og fyrrverandi starfs- félagi, Ottó Sigurðsson, er látinn. Hann reyndist mér einstaklega traustur og lipur liðsmaður á fyrstu starfsárum Rimaskóla og fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur. Ottó réð sig til starfa við Rima- skóla fyrsta skólaárið haustið 1993. Hann var á þá á góðum afaaldri og reyndist strax traustsins verður. Frá upphafi lagði Ottó það í vana sinn, óbeðinn, að mæta fyrstur manna í skólann á morgnana og fara síðastur heim á daginn. Hann lag- færði innan stokks það sem aflaga fór og fyrir skólastjóra sem engan formlegan húsvörð hafði fyrsta skólaárið var þessi árvekni Ottós ómetanleg. Þau fimm ár sem Ottó starfaði við Rimaskóla voru honum falin marg- vísleg verkefni sem hann jafnan leysti fljótt og vel af hendi. Ottó kunni vel við sig í skólanum. Lengst af sá Ottó um mötuneyti í sérdeild skólans og síðar í heilsdagsskóla. Þar kom þekking og starfsreynsla bakarameistarans sér vel. En Ottó átti ekki síður auðvelt með að skynja þarfir og tilfinningar þeirra nem- enda sem hann annaðist. Hann sýndi þeim nærfærni og virðingu sem þau endurguldu með því að hlýða fyrir- mælum hans í einu og öllu. Sem félagi var Ottó ungur í anda þótt starfsþrekið færi þverrandi og afar vel liðinn af öllum samstarfs- mönnum, þægilegur í umgengni og skemmtilega stríðinn, að hætti Aust- firðinga. Eftir að Ottó lét af störfum í Rimaskóla heimsótti hann oft gamla vinnustaðinn og hélt góðu sambandi við starfsmannahópinn. Ég vil fyrir hönd starfsfólks Rimaskóla færa fjölskyldu hans hug- heilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ottós Sigurðssonar. Helgi Árnason. OTTÓ SIGURÐSSON Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.                     !"#  $ $!                        !"## %%    ! !$&!    '%&!     &!  ( '%)% %&   )% ! *!& !$%  ! !$  )%     ) + % + % + %            ,,-./ + $ ! !  $ 0  1 2 3 4$5 6$         $        ! !  # $      %   %     & '   (   ) * +*     2!  &!  !   )% &  &!    %%)% '2 %% .()   * +5  &!  %   % )%  ! !$'%)% + % + %) + % + % + %             .7, ,  8*8 89'- *-,, $ : 4$5 6$ &       #  845  )% 1 4%5  )% ( &6'%&!  4%!  )%  &  )% . ;%';6&!    &!   .%% )% + % + %) + % + % + %          '   '  '    7,/-  +;" "<=.  +>   , -  -+!##%    !  .   &     &   +   )   %   !" ! ## ;% 15 $';6&!   %2!  % &!  -   % )%  6  % &!  -   4 - )% ( 6 *6 - &!   % .%% )%  '%&!  ?   +5 %&! )   !  %& %% .        8..8,*-,, $ %! / & 0      #  1     2 .!%% '2 %%&! @. A   '2 %%)% 5  &!  1 '2 %%)% 8 % &!  ! 6 '2 %%&!  -  ! ;)% + %) 5$4&  3             19 */89'- *-,, %+5 >$ (  26      45&   (    !"## * 6  !%)% . ;%'%&!  . ;%8    !%&!  () & '%)% 845    !%)% ?!25    !%)% 2!& .%&&!  + %)  % + % 6    2                  ./'-, ,,B  ? %% 45 .%C( 4%!&!  -  %! .5%)% %! .5%&!  %.5%&! 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.