Morgunblaðið - 02.08.2001, Síða 48
AFMÆLI
48 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Það var síðdegis í
kalsaveðri hinn 4.
febrúar 1909 að nýgiftu
hjónin, læknirinn og
húnvetnski bóndason-
urinn Þórður Sveins-
son frá Geithömrum í
Svínadal og brúður
hans, Ellen Johanne
Kaaber, óku eftir brúð-
kaup sitt í léttikerru
Lúðvíks Kaaber
frænda hennar neðan
úr Reykjavík og inn að
Kleppi, væntanlegu
heimili sínu og vinnu-
stað húsbóndans. Ekki
fer sögum af því hvað hin tvítuga
Kaupmannahafnarstúlka hugsaði
þegar þessi kuldalega nýja veröld
blasti við. Hún var hið yngsta 13
barna hins efnaða og vel metna Jens
Ludvig J. Kaaber og konu hans Söru
Armand Kaaber og þetta var henni
áreiðanlega framandi frá allsnægt-
um og hlýju umhverfi foreldrahús-
anna. En ungu hjónin horfðu fram á
veginn, ástin, vongleðin og bjartsýn-
in fylltu hug þeirra. Stofninn var
sterkur, festi skjótt rætur og hér
spruttu greinar hans í góðu umhverfi
ævintýraheimsins við Sundin blá.
Barnahópurinn varð stór, sex synir
og ein dóttir. Elstur var Hörður,
fæddur í desember 1909. Síðan komu
Úlfar, 2. ágúst 1911, þá Sveinn, Nína
Thyra, Agnar, Gunnlaugur og loks
Sverrir og öll urðu þau merkir og
landsþekktir Íslendingar. Ótrúlegt
en samt satt að hinn síungi óvenju-
legi maður, Úlfar Þórðarson, hið
elsta systkinanna sem á lífi eru, er að
verða níræður. Upplagið var gott og
hinir sterku persónuleikar læknis-
hjónanna á Kleppi gáfu sveininum
unga traust veganesti og veittu hon-
um góðan undirbúning fyrir lífs-
gönguna. Aðalsmerki Úlfars Þórðar-
sonar er hinn óeigingjarni gefandi
persónuleiki. Hugsun hans og um-
hyggja beinist ævinlega fyrst og
fremst að velferð annarra og að
hjálpa þeim sem þess þurfa við. Hon-
um er svo tamt að horfa aðeins á hið
jákvæða, gamansama og skemmti-
lega og tala aldrei illa um aðra menn,
að það fer ekki hjá því, að svo ötull,
hugmyndaríkur og réttsýnn maður
sem hann er í eðli sínu og í fram-
göngu, hafi haft sterk og góð áhrif á
samfélag sitt og samferðamenn á
langri ævi. Margir samtíðarmenn
okkar af eldri kynslóðinni hafa skrif-
að ævisögu sína, sagt frá mönnum og
málefnum sinnar samtíðar. Sannar-
lega eru þetta oft merkar heimildir
um sögu okkar fortíðar og samtíðar,
en ótrúlega hefur oft viljað við
brenna, að eigin persóna var sett
framarlega í frásögninni og stundum
gleymdist það sem miður fór hjá við-
komandi og annarra verk voru lítið
nefnd. Úlfar Þórðarson er ekki
þannig gerður. Hann setur sína per-
sónu í skuggann og kærir sig koll-
óttan um þótt aðrir trani sér fram og
láti á sér bera og hann er því miður
ekki í hópi þeirra sem hafa skráð
minningar sínar, en sögur hans af at-
vikum úr lífi og starfi og af samferða-
mönnum hérlendis og erlendis eru
ógleymanlegar. Fáa þekki ég
skemmtilegri menn sem segja frá at-
vikum úr bernsku sinni
við Sundin blá, frá
námi sínu og fram-
haldsnámi og lífinu í
Þýskalandi fyrirstríðs-
áranna, frá löngu við-
burðaríku starfi sem
héraðslæknir og síðan
sem augnlæknir í
Reykjavík í 60 ár.
Aldrei bregst minnið í
frásögninni um liðna
atburði. Mannanöfn og
staðanöfn gera at-
burðina ljóslifandi og
saga síðustu aldar
glæðist lífi og litum.
Ég var svo lánsamur að kynnast
lækninum og manninum Úlfari
Þórðarsyni fyrir tæpum 40 árum og
það hefur verið ómetanlegt og mann-
bætandi að hafa átt hann að vin nán-
ast öll fullorðinsárin og það eru
raunar sérstök forréttindi að hafa
fengið að kynnast honum. Þá er ég
viss um að mikill fjöldi manna sem
kynnst hafa þessum sérstaka manni
er mér hjartanlega sammála.
Fyrir framan mig á vinnuborði
mínu er mynd af ungum manni.
Hann er ljós og bjartur yfirlitum og
stoltur á svip þar sem hann 22 ára
gamall stendur við fleyið sitt á sum-
ardegi í Englandi þá nýbakaður flug-
maður. Föður unga mannsins leist
ekki meira en svo á uppátæki son-
arins þegar hann, í miðhluta lækn-
isfræðinámsins við Háskóla Íslands,
gerði hlé á náminu og hélt til Eng-
lands til flugnáms. Þessi maður sem
mér þykir vænst um allra þeirra sem
ég þekki, að mínum nánustu undan-
skildum, er hinn einstaki maður
Úlfar Þórðarson augnlæknir.
Þótt hugur Úlfars Þórðarsonar
stæði til flugsins, ætluðu örlögin
honum annað starf í lífinu. Ég er
ekki í vafa um að hann hefði náð
langt á sviði flugsins en atvinnu-
möguleikarnir þar voru litlir árið
1932 og sem betur fer fékk þjóðin að
njóta starfskrafta hans, þegar hann
að loknu sérfræðinámi sínu í Þýska-
landi hóf sinn glæsta feril sem augn-
læknir. Þeir eru margir Íslending-
arnir og á öllum aldri sem Úlfar
Þórðarson hefur hjálpað á löngum
farsælum læknisferli, með skarp-
skyggni sinni og þekkingu svo og
ótrúlegri hæfni til þess að tileinka
sér það nýjasta í greininni og und-
irritaður er sannarlega ekki sá eini
sem á honum líf sitt að launa.
Úlfar Þórðarson hefur víða skilið
spor sín eftir og haft mótandi áhrif á
mörgum sviðum þjóðlífsins. Það er
af svo ótrúlega mörgu að taka. Hann
var um langa hríð áberandi í heil-
brigðis-, íþrótta- og tómstundamál-
um borgarbúa. Hlíðarendi við Öskju-
hlíð væri til dæmis tæpast það sem
hann er í dag ef Úlfar hefði ekki
komið þar að málum. Allir íslenskir
flugmálastarfsmenn þekktu Úlfar
Þórðarson sem var trúnaðarlæknir
Flugmálastjórnar um áratuga skeið.
Hann átti um langt árabil hlut í flug-
vélum og einkaflugið átti hauk í
horni þar sem hann var ekki síður en
atvinnuflugið. Þá hefur Úlfar af mik-
illi alúð hlúð að íslenskri náttúru og
forganga hans í skógrækt og upp-
græðslu hefur víða breytt ásýnd
landsins. Þegar hann á efri árum
hófst handa við að rækta upp og
planta trjám í nánast gróðurlausa
mela sem hann eignaðist við Hafra-
vatn, var ekki slegið slöku við og
verkin lofa svo sannarlega meistar-
ann. Í þessu efni sem öðrum hefur
hann sannarlega verið fyrirmynd
yngri kynslóða og hvatning þeim
sem erfa landið okkar. Þessi sérstaki
öðlingur tekur á móti vinum sínum í
Valsheimilinu við Hlíðarenda á af-
mælisdaginn sinn, 2. ágúst, milli kl.
17 og 20.
Ég óska mínum sanna og góða vini
Úlfari Þórðarsyni til hamingju með
daginn þegar hann stígur inn í tí-
unda áratuginn sinn!
Skúli Jón Sigurðarson.
Níræður er í dag 2. ágúst Úlfar
Þórðarson augnlæknir. Áratugum
saman sinnti hann læknisverkum í
Reykjavík og vítt um hinar dreifðu
byggðir landsins. Þær aðstæður sem
þessi kynslóð lækna kom heim til eru
flestum í dag með öllu óskiljanlegar.
Það er ástæða til að leiða hugann að
því fyrir sporgöngumenn þeirra, hve
mikið þeir lögðu á sig.
Úlfar lærði læknisfræði við Há-
skol Íslands og útskrifaðist þaðan
1936. Eftir að hafa starfað sem hér-
aðslæknir á Sauðárkróki, og nærri
orðið fastur sem læknir þar, sneri
hann sér að augnlækningum og nam
þær við Háskólasjúkrahúsið í Berlín
og Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn
á árunum 1936 til 1940. Hann sneri
síðan heim og sigldi ásamt félögum
sínum á Frekjunni sögufræga för
heim til Íslands. Í stuttu máli var
starfsferill hans beint framhald af
því, ein frægðarför.
Það er ekkert sem læknir getur
óskað sér frekar að loknum starfs-
degi en að hafa verið farsæll, og það
hefur Úlfar verið. Sumir eru vafalítið
betur fallnir en aðrir til að stunda
þetta starf, en flest okkar væru mjög
sátt við að hafa þá eiginleika Úlfars
sem samanlagt gera hann að úrvals
lækni.
Úlfar starfaði á augnlæknastofu
sinni í Reykjavík í um 60 ár og var
hluti af eðlilegum hjartslætti mið-
bæjarins áratugum saman. Þéttsetn-
ar biðstofur og marghólfa húsakynni
voru yfirfull af fólki langt fram á
kvöld. Sjúklingar með rauð og bólgin
augu, nýskorin augu, með auga-
steina stóra eins og hundarnir í Eld-
færunum fylltu öll skot. Ef síminn
var ekki tekinn af og stungið í skúff-
una reyndu sjúklingar jafnvel að
svara fyrir lækninn og leggja sitt af
mörkum.
Á Landakotsspítala hóf Úlfar
störf 1942 og starfaði samfleytt þar
við augnlækningar til 1981 eða tæp
40 ár. Hann hóf jafnan störf eld-
snemma á morgna á undan öllum
öðrum og síðan leit hann á sjúklinga
sína á spítalanum áður en heim var
haldið seint á kvöldin. Vinnan á
Landakotsspítala var kefjandi en
þar var endastöð hinna erfiðari
vandamála sérgreinarinnar. Því var
nauðsynlegt að sinna viðhalds-
menntun og flytja til landsins nýj-
ungar í augnlækningum. Þessu
sinnti Úlfar afburða vel og heimsótti
reglulega virtar stofnanir víða um
heim. Þessa nutu sjúklingar hans um
allt land og reyndar þjóðin öll líkt og
jafnan gildir um nýja þekkingu sem
flutt er til landsins.
Auk þess að sinna augnlækning-
um um landið og miðin var Úlfar
trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar
1962–1997 auk fjölda annarra starfa.
Hann var formaður byggingarnefnd-
ar Borgarspítalans 1973–1978 og sat
í ótal nefndum og stjórnum tengdum
heilbrigðismálum borgarinnar. Úlf-
ar stofnaði rannsóknarsjóð við Borg-
arspítalann til minningar um for-
eldra sína og son sinn Þórð. Sjóður
þessi hefur styrkt rannsóknir í lækn-
isfræði við spítalann um árabil og
gerir enn.
Fyrir okkur augnlækna gegndi
Úlfar mörgum trúnaðarstörfum, var
í ritstjórn tímarits norrænna augn-
lækna í 20 ár, skipulagði norræn
augnlæknaþing og sat í ýmsum
stjórnum.
Úlfar varð snemma þjóðsagnaper-
sóna vegna starfa sinna. Smitandi
dugnaður hans og elja í starfi hafði
áhrif á okkur starfssystkin hans. Við
erum hreykin af að hafa slíkan mann
í okkar hópi og sendum honum okkar
áköfustu kveðjur á þessum degi.
F.h. Augnlæknafélags Íslands
Elínborg Guðmundsdóttir
formaður.
Á fjórða áratug síðustu aldar kom
Sigurjón Pétursson upp aðstöðu að
Álafossi fyrir sumarbúðir ung-
menna, sem send voru til ögunar og
uppfræðslu í góðum siðum. Á foss-
brún í Varmá, hinum upprunalega
Álafossi, hafði verið reist stífla, sem
myndaði uppistöðulón, líklega 40x75
m stórt og vel djúpt. Áin var volg svo
þarna var fyrir hendi stærsta sund-
laug á landinu. Snemma í júnímánuði
1936 tók hópur ungra sundmanna úr
Ármanni, KR og Ægi að koma til æf-
inga í sundknattleik í þessari laug,
sem var eina sundlaug landsins sem
gaf tækifæri til æfinga á löglegum
sundknattleiksvelli. Þeir komu á
tveimur fólksbílum upp úr kl. 20 og
fylgdumst við strákarnir með fyrstu
æfingunum, en fljótlega var fótbolt-
inn látinn ganga fyrir. Þegar spurzt
var fyrir um tilgang æfinganna var
upplýst, að hér væri kominn flokkur,
sem ætti að taka þátt í 11. Ólymp-
íuleikunum í Berlín í byrjun ágúst. Í
hópnum voru nokkrir piltar, sem
áttu eftir að vinna að vexti og við-
gangi sundíþróttarinnar, Jón Ingi
Guðmundsson, Jónas Halldórsson
og Þorsteinn Hjálmarsson, og aðrir,
sem síðar urðu velþekktir í þjóðlíf-
inu, Logi Einarsson, hæstaréttar-
dómari, Pétur Snæland, iðnrekandi,
Rögnvaldur Sigurjónsson, píanóleik-
ari, og Úlfar Þórðarson, augnlæknir,
sem í dag fyllir níunda tuginn.
Flokkurinn hélt síðan utan til
Hamborgar með Dettifossi hinn 16.
júlí og til þess að spara sváfu íþrótta-
mennirnir í lest. Tók ferðin til Berl-
ínar rúma viku, svo hætt er við, að
æfingastigið hafi eitthvað slaknað, er
komið var á áfangastað.
Eftir Ólympíuleikana varð Úlfar
eftir í Berlín, þar sem hann hóf fram-
haldsnám í augnlækningum, en flutti
sig síðan yfir til Kaupmannahafnar
og þar var hann staddur, er Þjóð-
verjar hernámu Danmörku 9. apríl
1940. Þá lokuðust inni nokkur
hundruð Íslendinga, sem sáu sér litla
möguleika á heimferð út til Íslands.
Fyrst lokaðist leiðin um Holland og
ekki auðveldaði sú staðreynd, að
Bretar höfðu hertekið Ísland sama
dag, og nokkrum vikum síðar lok-
aðist leiðin um Ítalíu og Bandaríkin.
Gunnar Guðjónsson, skipamiðlari,
var staddur í Kaupmannahöfn og
varpaði fram í vinahópi þeirri tillögu
að kaupa vélbát til siglingar heim til
Íslands. Gísli Jónsson, vélstjóri, var
einnig staddur í Höfn og hann spurð-
ist fyrir um möguleika á slíkum
kaupum og fékk þær upplýsingar, að
ekki yrði mögulegt að fá útflutnings-
leyfi nema að hámarki fyrir 30 tonna
bát, sem búið væri að úrelda. Lárus
Blöndal, skipstjóri, var til í tuskið, og
Gunnar var ráðinn stýrimaður, þótt
hann hefði ekki stýrt öðru farartæki
en bifreið. Þá var að fá leyfi þýzku
herstjórnarinnar og Gísli réðist ekki
á garðinn, þar sem hann var lægstur,
heldur sneri sér með hjálp milliliðs
til yfirvalda í Berlín og fékk sent
þaðan heimfararleyfi, en það var að-
eins gilt til Bergen.
Gísli leitaði að bát, sem uppfyllti
skilyrðin og fann einn í Fredriks-
havn á Norður-Jótlandi. Þetta var 30
tonna bátur, 52 ára gamall og eig-
andi bátsins, Knudsen, hafði verið
með hann í 48 ár. Gísli lýsti aðkom-
unni svona: Þegar komið var að
skipshliðinni, leizt mér ekki meira en
svo á fleytuna. Hún var að vísu 30
smálestir að stærð, en útlitið var
ekki aðlaðandi. Sá hlutinn sem í sjó
var, var þakinn sjávargróðri, eins og
kollan hefði ekki verið hreyfð árum
saman. Það sem upp úr stóð, var
bókstaflega mosavaxið, grænt á lit
og slímhúðað. Siglurnar voru rifnar
og reiðinn allur fúinn og ónýtur.
Legufæri ónýt, seglin léleg, engin
vinda og mannabústaður ekki fyrir
skepnur, hvað þá fyrir menn, ekkert
eldstæði og allt í óhirðu og fýlu. Það
var sáralítil lestarhola í skipinu, því
að það hafði verið smíðað til að flytja
lifandi fisk, svo að botn skipsins um
miðju var allur með smágötum og
miðbik þess því fullt af sjó. Með
hverjum planka í byrðing og þilfari
mátti reka hnífinn viðstöðulaust alla
leið að hjöltum, annars var ekki sjá-
anlegur fúi í viðnum. Í því var 70
hestafla vél, sem virtist vera nýleg.
Knudsen skipstjóra þótti svipur-
inn á mér ekki vera mjög ánægju-
legur, þar sem ég var að fara hönd-
um um skipið hans og hrista höfuðið.
„Þú getur ekki fengið betra sjó-
skip,“ sagði hann. „Ég þekki hana,
hún hefur verið annað heimili mitt í
nærri hálfa öld. Líttu á brjóstin á
henni. Það er ekki sú bára á Atlants-
hafinu, sem þau mylja ekki undir sig,
Líttu á afturendann. Þú getur beitt
honum á hvaða báru sem þú vilt, og
líttu á belginn, hann veltir af sér öll-
um skvettum. Skrokkurinn getur
enzt aðrar fjórar vélar, karl minn.
Þetta er bezta skip, ófúið og eikin
hörð sem stál. Synd að höggva hana
upp. Þeir heimtuðu það, þessir bölv-
aðir bjánar í Kaupmannahöfn, sem
létu styrkinn í nýja bátinn, að þessi
yrði höggvinn upp, mætti aldrei fara
til fiskjar aftur.“
Gísli keypti bátinn á hálft níunda
þúsund danskra króna og innifalið í
verðinu var blessun frú Knudsen.
Seljandinn fékk tvær vikur til þess
að ganga frá farkostinum og fín-
pússa hann. Þá var að „munstra“ í
áhöfn en leyfið var bundið við 7
menn. Ekki var hörgull á umsækj-
endum, en þegar hafði verið ráðið í
„brúna“ og með Gísla í vélarrúminu
yrði Björgvin Fredriksen, Úlfar var
skipaður matsveinn og hásetar þeir
Konráð Jónsson og Theodór Skúla-
son. Ekki var auðsótt að fá olíu á
tankinn, en með loforði við konu
danska viðskiptamálaráðherrans um
að láta hana fá fregnir af syni hennar
í London, ef farkosturinn kæmist á
leiðarenda, fékkst olíugeymir fylltur.
Sunnudaginn 21. júlí var lagt í hann
og haldið til Kristiansand í Noregi,
Stavanger og Bergen, en lengra náði
leyfi þýzku herstjórnarinnar ekki.
Gunnar var reiprennandi talandi á
þýzka tungu og hélt til Osló til fund-
ar við herstjórnina þar og kom til
baka með brottfararleyfi út til Ís-
lands. Eftir tilkynningar til allra
varðstöðva í Noregi var haldið til
Færeyja og haldið áfram unz lagzt
var að bryggju í Reykjavík 12. ágúst.
Þeir voru komnir heim til ástvina og
fjölskyldna heilu og höldnu eftir sigl-
ingu yfir hafið á ónýtum bát, í gegn-
um nýlagt tundurduflabelti í Skage-
rak og nærri kafsigldir af togara
undan suðurströnd Íslands. Þeir
höfðu sýnt áræði og dirfsku, lagni við
erfið yfirvöld og ýtni, er það átti við.
Þar af spratt nafn bátsins, Frekjan.
Þegar frá leið, fór Úlfar að gefa sig
meira að félagsmálum og tók að sér
formennsku Knattspyrnufélagsins
Vals 1946 og varð forkólfur í upp-
byggingu æfingasvæðisins við
Öskjuhlíð, gerð malarvallar, undir-
búningi grasvallar og kaupum á stál-
grind fyrir íþróttahús. Hann leitaði
tilboða erlendis og fékk tilboð frá
Belgíu og festi kaup á einni stál-
grind, en þegar hann komst að því,
að verðið hefði lækkað verulega,
seldi hann grindina útgerðarmanni í
Hafnarfirði undir fiskverkunarhús
og keypti aðra á nýja verðinu. Þetta
hafnfirzka hús er í dag Íþróttahús
Hauka. Geysimikið vinnuframlag
félagsmanna kom þessum fram-
kvæmdum áleiðis og þar lét Úlfar
ekki sitt eftir liggja þrátt fyrir tíma-
frek læknisstörf hans. Naut hann við
þessar framkvæmdir iðnaðar-
manna í félaginu og þar fóru fyrir
bræðurnir Jóhannes og Magnús
Bergsteinssynir.
Um miðja öldina tók undirritaður
að sér með öðrum þjálfun yngstu
knattspyrnuflokka KR og þá var
eldri sonur Úlfars, Þórður, farinn að
leika með 4. flokki Vals, en það var
þá yngsti aldursflokkur knattspyrn-
unnar, og Úlfar lét sig sjaldnast
ÚLFAR
ÞÓRÐARSON
Veistu að þ
að er
útsala í Kr
ílinu?
Já það
er
30-70
%
afslátt
ur af ö
llu