Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 45
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 45
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS – HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Frá 21.5. til 19.8. er opið sem hér segir: mán.–fös.
kl. 9–17, lau. 10–14. Sun. lokað. Þjóðdeild og handrita-
deild lokaðar á laugard. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið
alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–
16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á int-
ernetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16
alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán.–föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til
1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við
gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borg-
ara. Safnbúð með minjagripum og handverksmunum.
Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust-
@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bré-
fas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða:
hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun.
til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási 7, 210 Garðabær,
sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri.–lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánudaga -
laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla
daga kl. 10–18. Opnað fyrir hópa utan þess tíma. Forsýn-
ing á safni Landmælinga Íslands. Maríukaffi býður upp
á gómsætar veitingar. Til sölu steinar, minjagripir og ís-
lenskt handveerk. S. 431 5566. Vefsíða: www.islandia.is/
steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pant-
að leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum
861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
Bifreiðinni JL 451, sem er ljósblá Toyota Carina II, árg.
1989, var stolið frá Smiðshöfða 6 í lok júlímánaðar.
Skemmd er á bretti og hurð bílstjóramegin.
Þeir sem kynnu að hafa upplýsingar um afdrif bifreiðarinnar eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband
í síma 891 8004 eða 898 1765.
B í l þ j ó f n a ð u r
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, hefur skipað starfshóp til
að fara yfir kostnað við gagnaflutn-
inga og eflingu fjarskiptaneta og
fjarskiptaþjónustu á Íslandi.
Í fréttatilkynningu frá sam-
gönguráðuneyti segir m.a. að
starfshópurinn sé skipaður í ljósi
þess að á undanförnum misserum
hafi augu manna beinst í vaxandi
mæli að þeim möguleikum sem fjar-
skiptatækni getur fært einstakling-
um og fyrirtækjum. Fram kemur
að kostnaður vegna almennrar tal-
símaþjónustu hér á landi sé með því
lægsta sem þekkist en hins vegar
hafi notendur gagnaflutningsþjón-
ustu gagnrýnt verðlagningu fyrir
gagnaflutning og leigulínur.
„Stjórnvöld og Alþingi hafa ítrek-
að lýst yfir því markmiði sínu að
tryggja beri ódýran aðgang að
nægjanlegri flutningsgetu um allt
land,“ segir í tilkynningunni.
Starfshópurinn skal vinna fram-
kvæmdaáætlun um hvernig mark-
miðunum verður náð. Hópurinn á
að skila áfangaskýrslu í byrjun
október nk. og lokaskýrslu í árslok
2001.
Formaður starfshópsins er Jakob
Falur Garðarsson, aðstoðarmaður
samgönguráðherra, en aðrir í hópn-
um eru Óskar B. Hauksson verk-
fræðingur og Sævar Sigurgeirsson
endurskoðandi. Gunnar Jóhannes-
son rekstrarverkfræðingur er ráð-
gjafi starfshópsins en Einar Hann-
esson, lögfræðingur í samgöngu-
ráðuneytinu, er starfsmaður hans.
Verðlagning gagna-
flutninga könnuð
DANSDAGUR DÍ verður haldinn á
Ingólfstorgi laugardaginn 1. sept-
ember. Undanfarin þrjú ár hefur
DÍ haldið keppni meðal danskenn-
ara um dans ársins. Í keppni um
dans ársins 2001 vann framlag
Irmu Gunnarsdóttur. Hann verður
dansaður á dansdeginum. Til-
gangur með dansi ársins og dans-
deginum er að vekja athygli á
dansi og hvetja fólk til dansiðk-
unar.
Fleiri dansuppákomur verða á
torginu, dansarar frá J. S. B. munu
sýna Street jass, boðið verður upp
á kántrýdans, splunkunýjan dans
frá Grikklandi og fl.
Dansráðið mun einnig veita
Menningar- og Listaverðlaun DÍ í
annað sinn. Verðlaunin eru farand-
gripur, tákn um rísandi stjörnu.
Gripurinn er hannaður af Gulli og
Silfri. Hljómsveitin Sigurrós hlaut
hina rísandi stjörnu árið 2000.
Dansdagur á laugardag
STIGULL, félag stærðfræði-
og eðlisfræðinema við Háskóla
Íslands stendur fyrir prímtölu-
maraþoni í kvöld, föstudags-
kvöld klukkan 20 í Gula húsinu
á gatnamótum Lindargötu og
Frakkastígs. Lesin verður
upp, staf fyrir staf, Mersenne
prímtala 32, nánar tiltekið
2756839-1, sem er 227.832 tölu-
stafir. Lesturinn mun taka 24
stundir og er gestum og gang-
andi boðið að taka þátt í upp-
lestrinum.
Lesa 227.832
stafa tölu
ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinn-
ar gagnrýnir félagsmálaráðherra
harðlega fyrir að halda áfram viðmiði
lána Íbúðalánasjóðs við brunabóta-
mat, segir í frétt frá þingflokknum.
„Ríkisstjórnin hefur á liðnum ár-
um veist að húsnæðislánakerfinu
með vanhugsuðum aðgerðum sem
hafa haft alvarlegar afleiðingar, svo
sem skort á félaglegum úrræðum,
hækkun íbúðaverðs ásamt húsnæð-
iseklu. Nýgerðar breytingar á
brunabótamati gera viðmiðun við
það ófæra og telur þingflokkur Sam-
fylkingarinnar nauðsynlegt að lána-
viðmið endurspegli raunvirði fast-
eigna.
Þingflokkur Samfylkingarinnar
krefst þess að viðmiði húsnæðislána
verði tafarlaust breytt til að ná því
markmiði,“ segir í tilkynningu frá
þingflokknum.
Vilja breytt
viðmið
húsnæðislána
BENEDIKT Jónsson sendiherra af-
henti mánudaginn 27. ágúst sl. hr.
Vladímir Pútín, forseta Rússlands,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Ís-
lands í Rússlandi.
Afhenti
trúnaðarbréf
VILTU HÆTTA AÐ REYKJA?
vikunámskeið
Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði, sími 483 0300