Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 51
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 51 LAUGAVEGI, S: 511 1717KRINGLUNNI, S: 568 9017 Nýjar haustvörur ....vorum að fá sendingu af DIESEL gallabuxum og toppum Langur laugardagur Opið til kl. 17.00 Kringlan opin sun. kl. 13.00-17.00 HARMONIKUBALL verður í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima, á morgun, laugardagskvöldið 1. september, kl. 22:00. Allir velkomnir. Laugavegi 54 - s. 552 5201 Jakkar Áður 5.990 Nú 3.990 Margir litir og stærðir Peysur með og án hettu Áður 3.990 Nú 2.990 Stærðir: S, M, L. Margir litir 20% afs látt ur a f pe ysum Langur laugardagur í FLASH HLJÓMSVEITIN Úlpa hefur sett sér það mark að halda hita á rokk- áhugamönnum í vetur, en þá hyggst sveitin gefa út sína fyrstu breiðskífu. Platan kemur til með að heita Mea Culpa, sem er latína og þýðir: „Mín synd“. Þó nokkuð er síðan liðsmenn Úlpu lögðu lokahönd á gripinn sem þó er enn ófáanlegur. Áhugamenn um Úlpu-rokk verða að bíða aðeins lengur eftir breiðskífunni en þó mun hljómsveitin rjúfa útgáfuþögn sína fyrr því smáskífan Dinzl kemur út í dag. „Við erum að gefa út smáskífu og erum blankir menn og okkur langaði til þess að gefa fólki hana. Þannig að það var kostur að tala við Visa,“ út- skýrir trommuleikarinn Haraldur Örn Sturluson og á þar við það að smáskífan er gefin umsækjendum Svarta kortsins, sem er greiðslukort fyrir ungt fólk frá Visa. „Þú getur fengið hana gefins á www.svart.is, þá er það útrætt mál. Hún verður ekki fáanleg til sölu neins staðar. Þessu verður dreift út um allt til kynning- ar. Hún er gerð í þúsund eintökum.“ „Það eru tvö aukalög þarna sem við áttum til og verða ekki á plötunni. Við vildum gera eitthvað við þau,“ bætir Aron Vikar Arngrímsson bassaleikari við. „Annað lagið ákváðum við að hafa ekki á plötunni því það kom niður á heildinni. Hitt lagið tókum við upp beint í sal tónlistarskóla F.Í.H. Það átti alltaf að vera á plötunni en það gafst aldrei tími til þess að vinna það. Þetta er vel rokkuð smáskífa, platan er ekki alveg svona rokkuð.“ En hvenær er svo von á breiðskíf- unni umtöluðu í búðir? „Hún kemur út í lok september. Það er stefnan. Þar verður líka að finna lagið „Dinzl“ sem er aðallag smáskífunnar,“ segir Haraldur. Það eru eflaust nokkrir sem reka upp stór augu er þeir lesa jafn und- arlega lagatitla. Hvað þýðir þetta eiginlega? „Þetta þýðir ekki neitt, það var einhver strákur sem Maggi þekkti kallaður þetta,“ segir Haraldur og glottir. „Þetta var eiginlega bara vinnu- heiti sem festist á laginu,“ útskýrir Aron frekar. Er lagið þá um þennan strák? „Nei, engan veginn,“ segir Har- aldur og hlær léttilega. Úlpa verður fyrsta rokksveitin til þess að gefa út hjá nýendurbættri útgáfudeild Eddu. „Þeir höfðu samband við okkur. Það var mjög spennandi af því þetta er nýtt útgáfufyrirtæki, að fá að vera nýir með þeim,“ segir Aron að lok- um. Hljómsveitin Úlpa gefur út smáskífuna Dinzl Útgáfu- þögnin rofin Hljómsveitin Úlpa á góðri stundu. MAÐURINN sem er staðráðinn í því að töfra upp kokkteilsjarma Las Vegas-borgar hér í bæ, Geir „Iceblue“ Ólafsson, er kominn aftur í heimahús. Í kvöld mun stóra sviðið, allur ljósabúnaður þess og andi rým- isins á Broadway verða hans til einkanota. „Þetta er í annað skiptið sem Nights On Broadway fer í loftið,“ segir Geir, fullur sjálfsöryggis, eins og áður. „Það er nú yfirleitt þannig að þegar menn ákveða að setja upp svona sýningu og frumsýna hana svo þá er alltaf farið yfir hluti og gall- arnir lagaðir og kostirnir bættir. En af því að þetta gekk svo vel síðast þá hafði Broadway samband við okkur aftur og þeir vildu endilega fá þetta á laggirnar aftur. Það er reyndin því í kvöld munum við hefja leikinn að nýju.“ Geir segir að eins og er verði að- eins um þessa einu sýningu að ræða. Hann tekur þó ekki fyrir það að sýn- ingin verði sett upp þarna aftur seinna. „Af því að ég er að gefa út plötu þá á ég erfitt með að vera binda mig á einhverjum svona stöðum. Þannig að við tökum bara eina sýningu í einu, þá held ég líka að maður einbeiti sér best á meðan. Við stefnum að því að platan komi út í október. Þar er ég með þessa hljómsveit sem spilar með mér á Broadway, þannig að það er mikið framundan. Platan er þó ekki alveg tilbúin, en hún verður það fljót- lega.“ Þeir einstaklingar sem leyfðu söngvaranum að leiða sig inn í næt- urstemmninguna á Broadway á síð- ustu sýningu, geta endurtekið leik- inn nú án þess að hafa áhyggjur af því að upplifa nákvæmlega sama hlutinn aftur. „Á þessari sýningu okkar, Nights On Broadway, erum við náttúrulega með helling af lögum. Það verða aldrei sömu lög á sýningunni. Það verða alltaf einhver þau sömu en við erum þó með mikla fjölbreytni í laga- vali fyrir hverja sýningu. Þannig að ef okkur finnst vera stemmning til að taka eitthvað lag, þá er það bara gert. Allt er klárt, þannig að það eru margir möguleikar í stöðunni.“ En hverjar eru þessar endurbæt- ur sem Geir minntist á áðan? „Ljósasýningin til dæmis er betri. Hljómsveitin er orðin þéttari sem gerir það að verkum að það er miklu skemmtilegra að syngja þetta. Það ætti þar af leiðandi að myndast skemmtilegri stemmning og svo eru náttúrulega komnir fleiri söngvarar, Rut Reginalds og Stefán Jónsson úr Lúdó & Stefán en þeir sjá um fjörið eftir sýninguna. Bryndís Schram er kynnir og það var mikill heiður að fá hana, eina fegurstu konu í heimi, til þess að kynna sýninguna. Það er í raun og veru ekkert meira sem þarf að koma fram.“ Þegar Geir er svo spurður hvort hann ætli sér að standa við stóru orð- in og halda uppi hamslausu stuði hendir hann fram kjörorðunum sín- um eins og pókerspilari sem felur ás- inn upp í erminni. „Ég lofa stemmningu sem engu er lík, það er alveg á hreinu! Þegar maður tekur svona verkefni að sér þá gerir maður það 100%. Maður leggur sig allan fram, það mun ekki einn svitadropi fara til spillis hjá mér! Ef fólk mætir á þessa sýningu og við stöndum okkur mun stemmn- ingin rífa þakið af Broadway, svo einfalt er það!“ Og þar hefur maðurinn örugglega rétt fyrir sér. Húsið opnar klukkan 21 en sýningin hefst klukkustund síðar. Geir Ólafsson kemur fram á Broadway í kvöld Morgunblaðið/Jim SmartGeir Ólafsson í góðra vina hópi. Stemmning sem engri lík biggi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.