Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 49

Morgunblaðið - 31.08.2001, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 49 DAGBÓK LJÓÐABROT GRÖFIN Hvar er í heimi hæli tryggt og hvíld og mæðufró? Hvar bærist aldrei hjarta hryggt? Hvar heilög drottnar ró? Það er hin djúpa dauðra gröf, – þar dvínar sorg og stríð – er sollinn lífs fyrir handan höf er höfn svo trygg og blíð. Þú kælir heita hjartans glóð og heiftar slökkur bál, þú þaggar niður ástar-óð og ekkert þekkir tál. – – – Kristján Jónsson SPIL dagsins er skemmti- leg tækniæfing í tvímenn- ingi. „Leiðbeinandi“ er Bretinn Tony Forrester, en hann sat við stýrið þegar spilið kom upp í keppni í Bandaríkjunum í fyrravet- ur: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 32 ♥ 763 ♦ ÁKG103 ♣ ÁG8 Suður ♠ KDG ♥ ÁG10 ♦ 8742 ♣ D75 Vestur Norður Austur Suður -- 1 tígull 2 tíglar * 3 grönd Pass Pass Pass * Hálitir. Vestur kom út með spaða- fimmu, þriðja hæsta í lit makkers. Austur tók með ás og spilaði litnum áfram, en vestur fylgdi með sjöunni. Hvert er nú fyrsta skrefið? Vissulega er tígullinn líf- liturinn, en það liggur ekk- ert á að spila tígli strax. Forrester vildi kanna spilið betur áður en hann tæki af- stöðu í tíglinum og svínaði því laufgosa í þriðja slag. Hann hélt. Þá kom hjarta úr borði. Austur lét drottn- inguna og fékk að eiga slag- inn. Norður ♠ 32 ♥ 763 ♦ ÁKG103 ♣ ÁG8 Vestur Austur ♠ 1075 ♠ Á9864 ♥ 42 ♥ KD985 ♦ 65 ♦ D9 ♣ K109643 ♣ 2 Suður ♠ KDG ♥ ÁG10 ♦ 8742 ♣ D75 Austur braut spaðann, en Forrester hafði engar áhyggjur af tíglinum. Hann tók næst á tígulás, síðan laufás, svínaði hjartagosa og lagði niður hjartaás. Eftir þessa vinnu var austur upp- talinn með skiptinguna 5-5- 2-1 og því var vandalaust að fella tíguldrottninguna. Ell- efu slagir. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Hlutavelta Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag- inn 1. september, verður fimmtugur Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprest- ur Garðaprestakalls Kjalar- nesprófastsdæmis. Í tilefni afmælisins tekur hann á móti gestum til samfagnað- ar á þessum tímamótum ásamt eiginkonu sinni, Jón- ínu S. Sigurðardóttur, í samkomuhúsinu Garðaholti á milli kl. 17–20 á afmælis- daginn. Garðaholt er skammt frá Garðakirkju á Álftanesi. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 5.089. Þær heita Guðný Halldórsdóttir og María Karlsdóttir. STAÐAN kom upp á al- þjóðlegu móti í Bergen sem lauk fyrir stuttu. Pólska skákkonan Jo- hanna Dworakowska (2350) hafði svart gegn Þresti Þór- hallssyni (2456). 35... Hxc3+! Við þetta splundrast kóngsstaða hvíts og svarti biskupinn vaknar til lífsins. 36. Dxc3 Hxc3+ 37. Kxc3 e4+ 38. Kd2 Db2+ 39. Rc2 Dc3+ 40. Ke2 Dxf3+ og hvítur gafst upp enda er fátt sem gleður augað í stöðu hans bæði eftir 41. Ke1 Bc3+ og 41. Kd2 Bc3+. Skákþing Ís- lands, landsliðsflokkur, hefst í dag kl. 17:00. Teflt verður á gamalgrónum slóðum en íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði hefur hýst marga skákvið- burði. Teflt verður daglega en alls verða níu umferðir. Fjórir stórmeistarar taka þátt og einn alþjóðlegur meistari en sá er jafnframt núverandi Íslandsmeistari. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. BRÚÐKAUP. Gefin voru sam- an í Hallgríms- kirkju 28. jan- úar ’96 og aftur hinn 18. júlí sl. (staðfest) í Dómkirkju Moskvu, heima- borgar brúðar, Lioudmila Jón- asson og Krist- inn Jónasson. Heimili þeirra er í Hafnarfirði sem og í Moskvu. Með morgunkaffinu Jú, það var fullt af börnum í rútunni. Hvers vegna spyrðu? Það er ótrúlegt að ég skuli verða vitni að þessu. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert djarfur bæði til orðs og æðis og lætur fátt standa í veginum fyrir því að þú komir áhugamálum þínum í höfn. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Oft er það svo að lausn erfiðra mála er sáraeinföld og eftir á finnst manni hún liggja í aug- um uppi. Vandinn er bara að koma auga á hana. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir að gæta tungu þinn- ar í annarra viðurvist því oft má satt kjurrt liggja. En verðir þú að tala þá færðu orð þín í tilhlýðilegan búning. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Eitthvað verður til þess að setja allt á annan endann hjá þér í dag. Láttu það samt ekki setja þig úr jafnvægi heldur bregstu við og leystu málin. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það ætti ekkert að standa í veginum fyrir þér svo fram- arlega sem þú hafir unnið heimavinnuna þína og þekkir málið sem um er að ræða út og inn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú einn berð ábyrgð á þínum mistökum en hinsvegar er óþarfi að ganga um með haus- poka þeirra vegna. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft að læra að fara með það vald sem þér er fengið. Hin fullkomna valdbeiting er nefnilega sú að þurfa ekki að beita valdinu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þeir eru margir sem vilja taka þátt í samtökum sem þú íhugar nú að stofna til. Stattu því klár á því hvað þú vilt og hvernig þú vilt ná þeim tak- mörkum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Allskonar sögusagnir eru á gangi í kringum þig en þú skalt ekki láta svo lítið sem hlusta á þær því það er bara tímasóun fyrir utan þá and- styggð sem Gróa á Leiti jafn- an vekur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þér veitist erfitt að halda þig að verki í dag en þú skalt nú samt gera þitt besta og skila þínu dagsverki þótt minna verði um tilþrif en venjulega. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Oft er lítið að marka það sem sagt er um menn og málefni og því skaltu fara varlega í því að hlaupa eftir óvarlegum ummælum annarra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft að búa þig undir breytingar á vinnustað þínum og þarft að tileinka þér ný vinnubrögð. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur verið einn á báti of lengi og ættir að finna þér félagsskap við fyrsta tæki- færi. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hönnun List Gullsmiðir Laugardagstilboð Njálsgötu 86 - sími 552 0978 Barnasængurverasett og tvíbreiður rúmfatnaður. Opið frá kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.