Morgunblaðið - 31.08.2001, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 49
DAGBÓK
LJÓÐABROT
GRÖFIN
Hvar er í heimi hæli tryggt
og hvíld og mæðufró?
Hvar bærist aldrei hjarta hryggt?
Hvar heilög drottnar ró?
Það er hin djúpa dauðra gröf,
– þar dvínar sorg og stríð –
er sollinn lífs fyrir handan höf
er höfn svo trygg og blíð.
Þú kælir heita hjartans glóð
og heiftar slökkur bál,
þú þaggar niður ástar-óð
og ekkert þekkir tál.
– – –
Kristján Jónsson
SPIL dagsins er skemmti-
leg tækniæfing í tvímenn-
ingi. „Leiðbeinandi“ er
Bretinn Tony Forrester, en
hann sat við stýrið þegar
spilið kom upp í keppni í
Bandaríkjunum í fyrravet-
ur:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 32
♥ 763
♦ ÁKG103
♣ ÁG8
Suður
♠ KDG
♥ ÁG10
♦ 8742
♣ D75
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 2 tíglar * 3 grönd
Pass Pass Pass
* Hálitir.
Vestur kom út með spaða-
fimmu, þriðja hæsta í lit
makkers. Austur tók með ás
og spilaði litnum áfram, en
vestur fylgdi með sjöunni.
Hvert er nú fyrsta skrefið?
Vissulega er tígullinn líf-
liturinn, en það liggur ekk-
ert á að spila tígli strax.
Forrester vildi kanna spilið
betur áður en hann tæki af-
stöðu í tíglinum og svínaði
því laufgosa í þriðja slag.
Hann hélt. Þá kom hjarta úr
borði. Austur lét drottn-
inguna og fékk að eiga slag-
inn.
Norður
♠ 32
♥ 763
♦ ÁKG103
♣ ÁG8
Vestur Austur
♠ 1075 ♠ Á9864
♥ 42 ♥ KD985
♦ 65 ♦ D9
♣ K109643 ♣ 2
Suður
♠ KDG
♥ ÁG10
♦ 8742
♣ D75
Austur braut spaðann, en
Forrester hafði engar
áhyggjur af tíglinum. Hann
tók næst á tígulás, síðan
laufás, svínaði hjartagosa og
lagði niður hjartaás. Eftir
þessa vinnu var austur upp-
talinn með skiptinguna 5-5-
2-1 og því var vandalaust að
fella tíguldrottninguna. Ell-
efu slagir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 1. september, verður
fimmtugur Hans Markús
Hafsteinsson, sóknarprest-
ur Garðaprestakalls Kjalar-
nesprófastsdæmis. Í tilefni
afmælisins tekur hann á
móti gestum til samfagnað-
ar á þessum tímamótum
ásamt eiginkonu sinni, Jón-
ínu S. Sigurðardóttur, í
samkomuhúsinu Garðaholti
á milli kl. 17–20 á afmælis-
daginn. Garðaholt er
skammt frá Garðakirkju á
Álftanesi.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 5.089. Þær heita Guðný
Halldórsdóttir og María Karlsdóttir.
STAÐAN kom upp á al-
þjóðlegu móti í Bergen
sem lauk fyrir stuttu.
Pólska skákkonan Jo-
hanna Dworakowska
(2350) hafði svart
gegn Þresti Þór-
hallssyni (2456).
35... Hxc3+! Við
þetta splundrast
kóngsstaða hvíts og
svarti biskupinn
vaknar til lífsins.
36. Dxc3 Hxc3+ 37.
Kxc3 e4+ 38. Kd2
Db2+ 39. Rc2 Dc3+
40. Ke2 Dxf3+ og
hvítur gafst upp
enda er fátt sem
gleður augað í stöðu
hans bæði eftir 41.
Ke1 Bc3+ og 41.
Kd2 Bc3+. Skákþing Ís-
lands, landsliðsflokkur,
hefst í dag kl. 17:00. Teflt
verður á gamalgrónum
slóðum en íþróttahúsið við
Strandgötu í Hafnarfirði
hefur hýst marga skákvið-
burði. Teflt verður daglega
en alls verða níu umferðir.
Fjórir stórmeistarar taka
þátt og einn alþjóðlegur
meistari en sá er jafnframt
núverandi Íslandsmeistari.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
BRÚÐKAUP.
Gefin voru sam-
an í Hallgríms-
kirkju 28. jan-
úar ’96 og aftur
hinn 18. júlí sl.
(staðfest) í
Dómkirkju
Moskvu, heima-
borgar brúðar,
Lioudmila Jón-
asson og Krist-
inn Jónasson.
Heimili þeirra
er í Hafnarfirði
sem og í
Moskvu.
Með morgunkaffinu
Jú, það var fullt af
börnum í rútunni.
Hvers vegna spyrðu?
Það er
ótrúlegt
að ég
skuli
verða
vitni að
þessu.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert djarfur bæði til orðs
og æðis og lætur fátt standa
í veginum fyrir því að
þú komir áhugamálum
þínum í höfn.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Oft er það svo að lausn erfiðra
mála er sáraeinföld og eftir á
finnst manni hún liggja í aug-
um uppi. Vandinn er bara að
koma auga á hana.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að gæta tungu þinn-
ar í annarra viðurvist því oft
má satt kjurrt liggja. En
verðir þú að tala þá færðu orð
þín í tilhlýðilegan búning.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Eitthvað verður til þess að
setja allt á annan endann hjá
þér í dag. Láttu það samt
ekki setja þig úr jafnvægi
heldur bregstu við og leystu
málin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það ætti ekkert að standa í
veginum fyrir þér svo fram-
arlega sem þú hafir unnið
heimavinnuna þína og þekkir
málið sem um er að ræða út
og inn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú einn berð ábyrgð á þínum
mistökum en hinsvegar er
óþarfi að ganga um með haus-
poka þeirra vegna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að læra að fara með
það vald sem þér er fengið.
Hin fullkomna valdbeiting er
nefnilega sú að þurfa ekki að
beita valdinu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þeir eru margir sem vilja
taka þátt í samtökum sem þú
íhugar nú að stofna til. Stattu
því klár á því hvað þú vilt og
hvernig þú vilt ná þeim tak-
mörkum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allskonar sögusagnir eru á
gangi í kringum þig en þú
skalt ekki láta svo lítið sem
hlusta á þær því það er bara
tímasóun fyrir utan þá and-
styggð sem Gróa á Leiti jafn-
an vekur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér veitist erfitt að halda þig
að verki í dag en þú skalt nú
samt gera þitt besta og skila
þínu dagsverki þótt minna
verði um tilþrif en venjulega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Oft er lítið að marka það sem
sagt er um menn og málefni
og því skaltu fara varlega í
því að hlaupa eftir óvarlegum
ummælum annarra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að búa þig undir
breytingar á vinnustað þínum
og þarft að tileinka þér ný
vinnubrögð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur verið einn á báti of
lengi og ættir að finna þér
félagsskap við fyrsta tæki-
færi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hönnun
List
Gullsmiðir
Laugardagstilboð
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
Barnasængurverasett
og tvíbreiður
rúmfatnaður.
Opið frá kl. 10-16