Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 23 Cider vinegar diet formúla FRÁ Apótekin Ofurmegrun með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla hin golfbúðin Mögnuð haustútsala 30 - 50% afsláttur Nú er rétti tíminn að kaupa jólagjafirnar Járnasett Tré Púttarar Kerrur Pokar Gallar Bolir Hanskar Boltar o.fl. o.fl. Aðeins í örfáa daga Opið alla helgina 10 til 16 Golfhornið Hafnarstræti 5, sími 511 2150 RÁÐAMENN frá flestum aðildar- ríkjum Sameinuðu þjóðanna hófu í gær að safnast til Durban í Suður- Afríku til að mæta á ráðstefnu um kynþáttamisrétti, en í aðdraganda hennar hafa harkalegar deilur stað- ið um það að hve miklu leyti stefna Ísraelsstjórnar gagnvart Palestínu- mönnum og kröfur um skaðabóta- greiðslur vegna þrælasölu frá Afr- íku fyrr á öldum ættu erindi á ráðstefnuna. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, hélt frá Gaza í gær áleiðis til Durban á Austurströnd S-Afr- íku, en hann verður meðal ræðu- manna á ráðstefnunni, sem hefst í dag. Fídel Castró Kúbuleiðtogi verður einnig meðal ræðumanna. Deilumálin tvö hafa yfirgnæft öll önnur ætluð umfjöllunarefni ráð- stefnunnar á fundum fulltrúa frjálsra félagasamtaka í aðdrag- anda hennar. Fundur þar sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sat fyrir svörum endaði í hálfgerðu uppþoti. Palestínumenn og stuðn- ingsmenn þeirra stóðu fyrir mót- mælagöngu við fundarstaðinn, þar sem lýst var yfir á kröfuspjöldum: „Ísrael er apartheid-ríki,“ með til- vísun til kynþáttaaðskilnaðarstefn- unnar sem réð ríkjum á valdatíma hvíta minnihlutans í Suður-Afríku. Lögregla þurfti að skilja að arab- ana og gyðinga, sem einnig voru komnir til mótmælaaðgerða. „Þessi ráðstefna á að vera helguð barátt- unni gegn kynþáttamisrétti, en þess í stað hefur hún verið yfirtek- in af mönnum sem ala á slíku,“ sagði Anne Bayefsky, fulltrúi Al- þjóðasamtaka gyðingalögfræðinga. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ákvað að mæta ekki á ráðstefnuna í mótmælaskyni við meint „móðgandi“ orðalag ályktana sem til stendur að ráð- stefnan samþykki. Gagnrýnin orð í garð Ísraelsstjórnar munu hafa rið- ið baggamuninn um þessa ákvörð- un Powells. Nærri allar þjóðir eiga fortíð sem þrælahaldarar Um hitt deilumálið sagði Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, í ávarpi að hann styddi hugmyndir um skaðabætur vegna þrælahalds fyrri tíma. Bandaríkin og Evrópu- lönd hafa beitt sér gegn því að ráð- stefnan taki undir slíkar hugmynd- ir, sem gætu leitt til krafna um skaðabótagreiðslur fyrir rétti. Abdoulaye Wade, forseti Sene- gal, sem sjálfur er afkomandi vest- ur-afrískra konunga sem stunduðu þrælahald, lýsti í gær kröfur um skaðabætur fyrir þrælasöluna yfir Atlantshafið fyrr á öldum fráleitar; þær væru bæði óframkvæmanlegar og í sjálfu sér móðgandi. „Nærri því hver einasta þjóð á sér fortíð sem þrælahaldarar,“ sagði Wade. Hann bætti við að það sem þær skulduðu nútímanum væri viðurkenning á því ranglæti sem falizt hefði í þrælahaldinu. Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um kynþáttamisrétti Harðar deilur um Ísrael og þrælahald Durban, Abidjan. AFP, AP. SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, kom fyrir stríðs- glæpadómstól Sameinuðu þjóðanna öðru sinni í gær. Lýsti hann þá yfir, að dómstóllinn væri í raun „tilbún- ingur“ og sagði, að „gróflega“ hefði verið brotið á réttindum sínum. Að reiðilestri Milosevic loknum sagði Carla Del Ponte, aðalsak- sóknari réttarins, að hún myndi bæta við tveimur ákærum á Milose- vic. Eru þær um þjóðarmorð, ann- ars vegar í Bosníu og hins vegar í Króatíu. Fyrri ákærur eru um glæpi gegn mannkyni, aðallega vegna ofsóknanna gegn Albönum í Kosovo. Milosevic sagði fyrir réttinum, að sér hefði verið haldið í „algerri ein- angrun“ og spurði hvers vegna fjöl- skyldan mætti ekki heimsækja hann eins og væri með aðra fanga. Mira, eiginkona hans, hefur raunar heimsótt hann tvisvar. Richard May dómari lokaði fyrir hljóðnema Milosevic eftir um 40 mínútur en það gerði hann líka er forsetinn fyrrverandi kom fyrir réttinn í fyrsta sinn. Sagði hann dómstólinn ekki ætla að sitja undir pólitískum yfirlýsingum en Milose- vic hafði lýst yfir, að dómstóllinn væri „tilbúningur“ eins og ákær- urnar gegn sér. Af þessum sökum vill Milosevic ekki, að sér verði skipaður verjandi en dómstóllinn hefur skipað mann, sem á að gæta hagsmuna hans við réttarhöldin án þess þó að verja hann. Lokað á Milosevic eftir reiðilestur Haag. AFP. AP Milosevic á stórum skjá í herbergi fréttamanna. Hann kom öðru sinni fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.