Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ritum sínum og telja að tímabært sé að huga að vaxtalækkun. Í vefriti fjármálaráðuneytisins sem kom út í gær kemur fram að það sé mat ráðu- neytisins að fremur sé ástæða til að óttast samdrátt í efnahagslífinu en þenslu. Meginástæður í hagstjórn hljóti því að miðast að því að bæta rekstr- arskilyrði atvinnulífsins og stuðla þannig að auknum hagvexti og traustu efnahagsumhverfi. Annars vegar með lækkun vaxta. Hins vegar með lækkun skatta. Sú staðreynd að áhrif slíkra aðgerða skila sér alla jafna með nokkurri töf út í efnahags- lífið gerir ákvörðunartöku í þessum efnum enn brýnni en ella, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðu- neytisins. Í sérútgáfu greiningardeildar Landsbankans-Landsbréfa um FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ og Landsbanki Íslands taka undir með forsvarsmönnum atvinnulífsins í vef- vaxtamál kemur fram að með hlið- sjón af vaxtalækkunum nágranna- ríkja, stöðu á markaði og því að helsta röksemd fyrir vaxtalækkun er að stuðla að bættri samkeppnishæfni atvinnulífs hér á landi og auka al- menna tiltrú á stöðu atvinnufyrir- tækja, megi færa rök að því að vaxta- lækkun Seðlabankans verði að vera umtalsverð, til þess að hafa þau al- mennu áhrif sem slíkri ákvörðun er ætlað að hafa. Ekki tímabært að skoða vaxtalækkun nú Að sögn Más Guðmundssonar, að- alhagfræðings Seðlabanka Íslands, telur Seðlabankinn ekki tímabært að skoða vaxtalækkun nú. Hann segir bankann spá því að verðbólga muni minnka á næstunni en þær vænting- ar og sú spá byggist á aðhaldssamri peningamálastefnu og kólnandi hag- kerfi. „Við teljum ekki tímabært þegar allt er skoðað á þessum tíma- punkti að lækka vexti,“ segir Már en bætir við að þessi mál séu í stöðugu endurmati og í þessu efni sé aðallega horft fram í tímann. Gylfi Magnússon, dósent við Há- skóla Íslands, tekur undir mat Más Guðmundssonar og segir það sjón- armið Seðlabankans að lækka ekki vexti eðlilegt, enda gefi hagtölur ekki tilefni til lækkunar vaxta að svo stöddu. „Ég tel þó að það sé ekki hægt að búa við þessa háu vexti til langframa og ég er viss um að Seðla- bankinn er samþykkur því mati. Það kemur niður á hagvexti og fram- leiðni þegar til lengdar lætur,“ segir Gylfi. Vefrit fjármálaráðuneytisins og Landsbanka Íslands Mælt með vaxtalækkun nú  Vaxtalækkun/18 GOLFÍÞRÓTTIN er enn stunduð af miklum móð þótt sumri sé farið að halla. Golfvellir víða eru bókaðir langt fram eftir kvöldi og umferð kylf- inga þar af leiðandi mikil um flatir og brautir. Fagurt var um að litast á golfvellinum við Suð- urnes á Seltjarnarnesi í vikunni, þegar þessi mynd var tekin í kvöldsólinni. Kylfingurinn á myndinni var til alls líklegur, eins einbeittur og hann var, þegar ljósmyndara bar að garði. Morgunblaðið/Ómar Slegið um sólarlagsbil FRÁ 1994 hefur neysla á kjúkling- um meira en tvöfaldast eða farið úr 1.380 tonnum í 3.200 tonn. Neysla á svínakjöti hefur á sama tíma farið úr 3.200 tonnum í 4.800 tonn. Framleiðendum hefur fækk- að í þessum búgreinum og búin hafa stækkað. Nú er svo komið að tveir aðilar eru með um tæplega 70% af svínakjötsmarkaðinum og tveir aðilar með 80% af kjúklinga- markaðinum. Miklar fjárfestingar hafa verið í svína- og kjúklingarækt á síðustu árum. Fjárfestingar stærsta aðil- ans hlaupa t.d. á nokkrum millj- örðum. Þannig hafa stærstu svínabúin, Vallárbúið og Brautar- holtsbúin, nýlega stækkað bú sín um helming. Þá hefur svínabúið í Brautarholti, sem fyrir ári keypti 2⁄3 svínabúsins á Minni-Vatnsleysu af afkomendum Þorvaldar Guð- mundssonar hafið undirbúning að því að stækka búið um helming. Sláturhús Móakjúklings í eigu Landsafls Fjárfestingar í kjúklingarækt eru ekki minni en í svínaræktinni. Nýlega tók nýtt kjúklingabú Ís- landsfugls til starfa á Dalvík, en öll uppbygging þess kostaði um 350 milljónir. Ísfugl í Mosfellsbæ er einnig að gera endurbætur á sláturhúsi sínu. Þá tók kjúk- lingabúið á Móum nýlega í notkun nýtt sláturhús, en uppbygging þess kostaði rúmlega 700 milljónir. Nýja sláturhús Móa í Mos- fellsbæ er í eigu Landsafls, dótt- urfyrirtækis Íslenskra aðalverk- taka. Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnarformaður Móakjúklings, staðfesti í samtali við Morgunblað- ið að húsaleigugreiðslur til Lands- afls væru með bankatryggingu frá Búnaðarbankanum líkt og algengt væri á húsaleigumarkaði í dag þegar um stórbyggingar væri að ræða. Reykjagarður, sem er í eigu Búnaðarbankans, hóf nýlega að slátra kjúklingum hjá Móastöðinni eftir að salmonella kom upp í kjúk- lingahópum hjá fyrirtækinu. Guð- mundur Guðmundsson, forstöðu- maður fyrirtækjasviðs Búnaðar- bankans Verðbréfa og stjórnar- formaður Reykjagarðs, sagði að fyrirtækið myndi ekki hefja slátr- un aftur á Hellu þó að bann hér- aðsdýralæknisins á Suðurlandi við slátrun á Hellu yrði numið úr gildi. Ástæðan væri sú að slátursamn- ingurinn við Móastöðina fæli í sér 30–35% sparnað fyrir Reykjagarð. Niðurstaða skoðunar Samkeppnis- stofnunar gæti þó breytt þeim áformum. Eigendur Móabúsins hafa sýnt því áhuga að kaupa Reykjagarð, en þessi tvö fyrirtæki eru með 80% markaðshlutdeild. Kjúklinganeysla hef- ur tvöfaldast á 7 árum  Samþjöppun/30 HAUST- og vetrartískan er komin í flestar verslanir og fjölmargt sem gleður augað. Að vanda hafa tískuhönnuðir sótt innblástur sinn víða, t.d. til fatnaðar hefðarkvenna fyrri alda. Rykkingar á skyrtum og yfirhöfnum eru áberandi og sömuleiðis blúndur og púffermar. Áhrifa pönk-, hippa- og diskó- menningar liðinnar aldar gætir víða í bland við hermannatísku. Gallafatnaður af öllum gerðum heldur enn velli og er hann nú snjáður og skreyttur sem aldrei fyrr. Loðkragar, flauel, ekta skinn og breið belti eru í tísku og einnig skartgripir úr dökkum steinum og perlum í miðaldastíl. Morgunblaðið/Jim Smart Síð rúskinnskápa, gallabuxur, skyrta með rykkingum og pinnahælaskór eru í tísku. Loðskinn, flauel, píf- ur og púff  Pífur og púff/B1–B3 ÞRÍR bílar, þar af einn vöruflutn- ingabíll með tengivagni, skemmd- ust í árekstri á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gær. Ekki urðu alvarleg slys á mönnum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi virðist sem slysið hafi orðið með þeim hætti að ökumaður sem ók í austurátt reyndi að forðast að aka á fýl sem var á veginum. Við það straukst bifreið hans við bíl sem kom á móti. Ökumaður þess bíls missti stjórn á bíl sínum við áreksturinn og stöðvaðist bíllinn þversum á veginum. Ökumanni vöruflutninga- bíls með tengivagni tókst ekki að koma í veg fyrir árekstur og keyrði inn í hlið fólksbílsins. Hon- um hafði þó tekist að hægja ferð- ina en hlið fólksbílsins gekk samt inn að miðju. Beita þurfti vökvaklippum til að ná ökumanninum út og var hann síðan fluttur á slysadeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss í Foss- vogi. Vildi ekki aka á fýl og olli árekstri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.