Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þeir fiska sem róa og nú er lag því loksins kemstu á alvöru útsölu í stærstu veiðibúð landsins. Ótrúleg tilboð Neoprenevöðlur frá kr. 8.995. Öndunarvöðlur frá kr. 12.995. Vatnsheldir veiðijakkar með öndun frá kr. 9.995. 50% afsláttur af veiðivestum. - Vöðluskór frá kr. 3.500. Mikið urval. 30 - 40% afsláttur af Okuma kasthjólum og fluguhjólum. Okuma Airstream fluguhjól með aukaspólu og Scierra flugulínu kr. 8.995. Allt að 50% afsláttur af veiðitöskum. Ron Thompson vöðlutaska kr. 2.995. Scierra hjólataska fyrir 10 hjól kr. 2.995. Allar kaststangir og flugustangir frá Ron Thompson með allt að 40% afslætti. Fluguveiðistöng með diskabremsuhjóli og uppsettri flotlínu á aðeins kr. 15.995. Undirfatnaður, flísbuxur og jakkar, úrval af grifflum úr fleece og neophrene með allt að 40% afslætti. Í fyrsta skipti á Íslandi - flugur á útsölu. Sjóbirtingsstraumflugurnar aðeins kr. 230. Laxatúpur í haustveiðina aðeins kr. 290. (með þríkrækju), Frances og allar hinar laxaflugurnar aðeins kr. 230. Allar bestu flugulínurnar á sama stað. 20% afsláttur af öllum flugulínum frá Scientific Anglers, Rio, Wulff og Sage 50% afsláttur af öllum Scierra flugulínum. Eldri línur á tombóluverði. Seljum allt girni á hálfvirði - nýjar birgðir næsta vor. ATH. - ATH. - ATH. Þetta er aðeins lítið brot af öllu því sem er á útsölunni. Einnig 15% afsláttur af öllum öðrum vörum meðan á útsölunni stendur Aðeins í nokkra daga - sendum samdægurs um allt land. Nú er rétti tíminn að kaupa jólagjafirnar. Veiðihornið er opið alla helgina frá kl. 10 til 18. Veiðihornið Hafnarstræti, símar 551 6760 - 511 2150 www.veidihornid.is KEPPNI í landsliðsflokki á Skák- þingi Íslands hefst á morgun, föstu- daginn 31. ágúst, kl. 17:00 í íþrótta- húsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Sigurvegari mótsins verður skák- meistari Íslands 2001. Jón Viktor Gunnarsson, núverandi skákmeist- ari Íslands verður meðal þátttak- enda, en stigahæstur er Hannes Hlífar Stefánsson sem vann titilinn bæði 1998 og 1999. Þetta er sögulegt mót fyrir þær sakir að í fyrsta sinn frá 1913, þegar fyrst var keppt í landsliðsflokki, tekur kona þátt í mótinu. Þar er á ferðinni tékkneska skákkonan Lenka Ptácníková og verður spennandi að fylgjast með þessum fyrsta fulltrúa kvenþjóðar- innar í baráttunni við sterkustu skákmenn landsins. Auk baráttunnar um titilinn er þess beðið með eftirvæntingu hvort einhverjum þátttakandanum takist að ná áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli, en 6 vinningar duga til þess. Samsetning mótsins er reyndar nokkuð hagstæð hvað þetta varðar og telja verður góðar líkur á að áfangi náist í mótinu. Dregið hefur verið um töfluröð og í fyrstu umferð mætast: Stefán - Lenka Jón Viktor - Bragi Jón Garðar - Þröstur Björn - Arnar Sigurbjörn - Hannes Áhorfendur eru hvattir til að fjöl- menna á morgun kl. 17 í íþróttahúsið við Strandgötuna, en þeir sem ekki komast þangað geta fylgst með skákunum á Netinu í gegnum heima- síðu Skáksambands Íslands og á ICC-skákþjóninum. Peter Acs heimsmeistari unglinga Ungverski stórmeistarinn Peter Acs (2514) sigraði á heimsmeistara- móti unglinga, en hann fékk 10 vinn- inga í 13 skákum. Í 2.-3. sæti urðu georgíski alþjóðameistarinn Merab Gagunashvili (2445) og stórmeistar- inn Levon Aronian (2562) frá Arm- enínu með 9½ vinning. Íslensku keppendunum gekk þokkalega, en áttu þó báðir slæman kafla á mótinu. Stefán Kristjánsson hlaut 7½ vinning og hafnaði í 18.-30. sæti. Bragi Þorfinnsson tapaði í lokaumferðinni eftir fjórar vinnings- skákir í röð. Hann hlaut 7 vinninga og hafnaði í 31.-40. sæti. Frammi- staða þeirra Stefáns og Braga var í samræmi við skákstig þeirra. Sigurður Áss sigraði á atkvöldi Hellis Sigurður Áss Grétarsson sigraði á fyrsta atkvöldi vetrarins hjá Tafl- félaginu Helli, en hann lagði alla andstæðinga sína, sex að tölu, að velli. Röð efstu manna: 1. Sigurður Áss Grétarsson 6 v. 2. Vigfús Ó. Vigfússon 4½ v. 3.-4. Hrannar Björn Arnarsson, Hilmar Þorsteinsson 4 v. 5.-9. Ingvar Örn Birgisson, Björn Kafka, Sigurður Ægisson, Valdimar Leifsson, Knútur Otterstedt 3 v. Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfús- son. Næsta atkvöld Hellis fer fram mánudaginn 17. september og hefst kl. 20. Arnar sigraði á sjötta bikarmóti Striksins Arnar E. Gunnarsson vann örugg- an sigur á sjötta mótinu í Bikar- keppni Striksins sem fram fór á ICC á sunnudag. Björn Þorfinnsson leiðir í Bikarkeppninni eftir sex fyrstu mótin með 35 vinninga, Arnar er annar með 34 vinninga og Snorri Guðjón Bergsson þriðji með 32 vinn- inga. Þátttakendur voru 34. Röð efstu manna: 1. Arnar E. Gunnarsson 8½ v. 2. Þorsteinn Þorsteinsson 7 v. 3. Birgir Berndsen 6½ v. 4.-7. Davíð Ólafsson, Jón Viktor Gunnarsson, Ingvar Ásmundsson, Björn Þorfinnsson 6 v. 8.-10. Magnús Örn Úlfarsson, Gunnar Björnsson, Snorri Guðjón Bergsson 5½ v. 11.-14. Sæberg Sigurðsson, Arnar Þorsteinsson, Ingvar Þór Jóhannes- son og Kristján Örn Elíasson 5 v. 15.-20. Guðmundur S. Gíslason, Björn Jónsson, Sigurður Baldvin Sigurðsson, Sigurður Ingason, Arn- aldur Loftsson og Tómas Veigar Sig- urðsson 4½ v. o.s.frv. Mótsstjóri var John Fernandez. Honum til aðstoðar var Gunnar Björnsson Skák frá HM unglinga Þeir tefldu margar skemmtilegar skákir íslensku þátttakendurnir á Heimsmeistaramóti unglinga. Eftir- farandi skák var tefld í fjórðu um- ferð mótsins. Zufic er Króati með 2289 skákstig. Hvítt: M. Zufic (Króatíu) Svart: Stefán Kristjánsson Frönsk vörn 1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Bb4 4.e5 Re7 5.a3 Bxc3+ 6.bxc3 c5 7.Dg4 Kf8!? Stefán heldur mikið upp á þennan sjaldséða leik. 8.Bd2 -- Skákin, Smirnov-Stefán, Evrópu- mótinu í Ohrid 2001, tefldist á eft- irfarandi hátt: 8.h4 Da5 9.Bd2 Da4 10.Hc1 Rbc6 11.h5 h6 12.Rf3 b6 13.Hh3 Ba6 14.Bxa6 Dxa6 15.Rh4 cxd4 16.cxd4 Dc4 17.Hg3 Hg8 18.c3 Hc8 19.f4 f5 20.exf6 gxf6 21.Rg6+ Kf7 22.Dh3 Rf5 23.Hd3 Rce7 24.g4 Rd6 og svartur hefur mun betri stöðu og vann skákina fallega. 8...Dc7 Það gafst Stefáni ekki vel að leika 8...Da5 í skák við armenska stór- meistarann, Minasjan, á fyrrnefndu Evrópumóti. Framhaldið varð 9.a4 Rbc6 10.Rf3 Bd7 11.Be2 h6 12.0–0 Dc7 13.h4 Ra5 14.h5 Rc4 15.Bxc4 dxc4 16.dxc5 Dxc5 17.Bc1 He8 18.Ba3 Dc8 19.Rd2 Bc6 20.Rxc4 Dc7 21.Rd6 og hvítur vann. 9.Bd3 c4 Til greina kemur 9...b6, t.d. 10.Rh3 Ba6 11.0–0 Bxd3 12.cxd3 Rbc6 13.dxc5 bxc5 14.Hfe1 Rg6 15.d4 c4 16.Rg5 Dd7 17.He3 Kg8 18.Hf3 Hf8 19.Hb1 Rce7 20.h4 h6 21.h5 hxg5 22.Dxg5 Dc7 23.Hh3 Hb8 24.Hxb8+ Dxb8 25.hxg6 Rxg6 26.Hxh8+ Kxh8 og svartur stendur af sér sókn hvíts og hefur betri stöðu (Gdanski-Socko, Varsjá 2001) 10.Be2 Db6 11.h4 -- Eða 11.Rf3 Db2 12.Hc1 h6 13.h4 Dxa3 14.h5 Db2 15.Df4 a5 16.Rh4 Ke8 17.0–0 a4 18.Ha1 a3 19.Hfb1 Dxc2 20.Bd1 Dd3 21.Rf3 Hg8 22.Re1 Df5 23.Dh2 g6 24.hxg6 Dxg6 25.Dxh6 Dxh6 26.Bxh6 Rd7 27.Bc1 a2 28.Hb2 Rc6 29.Hbxa2 Hxa2 30.Hxa2 og hvítur á betra tafl og vann skákina (Cao-Stefán Kristjáns- son, Ohrid 2001). 11...Db2 12.Hc1 Dxa3 13.Hh3?! -- Betra hefði verið að fylgja for- skrift Caos og leika 13. Rf3, sjá skák- ina, sem rakin er hér að framan. 13...Rbc6 14.Hf3 h6 15.Rh3 Rf5 16.Rf4 Db2 17.Rh5 Hg8 18.Df4 Rd8 19.Dh2 a5! Það er ekki að sjá, að sókn hvíts á kóngsvæng geti skilað honum neinu. Eftir stendur sú staðreynd, að svarta frípeðið á a-línunni rennur upp í borð og verður að nýrri drottn- ingu. 20.g4 Re7 21.Bf4 a4 22.Kd2 Rec6 23.g5 hxg5 24.Bxg5 a3 25.Df4 -- Eða 25.Dg1 a2 26.Ha1 Ra5! (með hótuninni 27. -- Rb3+) 27.Ke3 Dxc2 og svartur á vinningsstöðu. 25...a2 26.Bf6 a1D 27.Hd1 Dxc2+! 28.Ke1 -- Eða 28. Kxc2 Ha2+mát. 28. -- Ha2 og hvítur gafst upp, því að við hót- uninni 29. -- Dxe2+ mát er engin skynsamleg vörn. Landsliðsflokkur í skák hefst á morgun Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson SKÁK H a f n a r f j ö r ð u r SKÁKÞING ÍSLANDS 31.8.–8.9. 2001 Bridsfélag Suðurnesja Þá er komið að því að hefja vetr- arstarfið og við byrjum á eins kvölds tvímenningi nk. mánudags- kvöld kl. 19.30. Annan mánudag eða 10. septem- ber er svo fyrsta verðlaunamót vetrarins en það er þriggja kvölda tvímenningur þar sem tvö kvöld af þremur gilda til verðlauna. Spilað er í félagsheimili brids- spilara og hestamanna á Mána- grund við gamla Sandgerðisveg- inn. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ fimmtudaginn 23. ágúst. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 271 Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafsson 262 Viggó Nordquist – Oddur Halldórss. 252 Árangur A-V: Hilmar Valdimarss. – Magnús Jósefss. 240 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 240 Magnús Ingólfss. – Siguróli Jóhannss. 239 Tvímenningskeppni spiluð mánudaginn 27. ágúst. 22 pör. Árangur N-S: Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 253 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 244 Hannes Ingibergss. – Ragnar Björnss. 232 Árangur A-V: Ólafur Ingvarsson – Albert Þorsteinss.264 Alda Hansen – Margrét Margeirsd. 245 Björn E. Péturss. – Alfreð Kristjánss. 236 BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.