Morgunblaðið - 18.09.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„MAÐUR verður að vera harður,“ segir Jón
Valgeir Williams, sem hjó sundur sin á öðrum
fæti í aflraunakeppninni Suðurnesjatröllið í
Hafnarfirði á föstudag en hélt þó áfram
keppni. Fyrsta grein mótsins var skógarhögg
og vildi svo óheppilega til, að öxin hljóp í fót
Jóni og gegnum sin. Ekið var með Jón á
Landspítala –háskólasjúkrahús í Fossvogi og
þar gerð á honum aðgerð, en sinin hafði skot-
ist upp í fótinn. Þurfti að sækja sinarendann
upp í fótinn og sauma endana saman.
Þrátt fyrir að Jón Valgeir gengi nú eigi
heill til skógar, þótti honum ótækt að missa af
seinni grein dagsins, sem var krossfestulyfta,
sem svo er kölluð. Þarf þá að halda þungum
hlutum í hvorri hendi beint út frá skrokknum
eins lengi og maður getur. Hann segist ekki
hafa sagt hjúkrunarfólkinu að hann ætlaði að
halda áfram að keppa. Honum hafi verið sagt
að vera bara heima, nema hann treysti sér til
að fara eitthvað út, og hann hefði auðvitað
gripið það tækifæri. „Maður verður bara að
hafa gaman af þessu,“ segir hann. Spurður
um hvort hann hafi ekki verið kvalinn í slas-
aða fætinum þar sem hann stóð í hinn.
Þrátt fyrir að standa á öðrum fæti, með ný-
samansaumaða sundurhoggna sin í hinum
fætinum, tókst Jóni Valgeiri að halda lóð-
unum í 40 sekúndur og ná 5. sæti í kross-
festulyftunni en keppendur voru sjö.
Fjarri góðu
gamni næstu vikur
Síðari keppnisdaginn var Jón Valgeir hins
vegar fjarri góðu gamni. „Daginn eftir var
maður kominn heldur betur á slæmt stig
þannig að maður lét það vera að taka þátt í
neinu öðru.“
Jón Valgeir er ekki búinn að vera lengi í
þessari íþróttagrein. Hann tók þátt í aflrauna-
keppni fyrsta sinni í fyrrasumar. „Svo hef ég
farið vaxandi í sumar og er búinn að rokka
frá fjórða upp í annað sæti.“ Hann segist hafa
stundað stífa líkamsrækt og lyftingar í þrjú
ár. Áður hafi hann bara stundað líkamsrækt
til að halda sér í formi. Eftir að hann kynntist
aflraununum hefur hann æft með Magnúsi
Ver Magnússyni, hinum þekkta aflrauna-
manni. „Hann er búinn að vera minn kennari
og sýna mér hvernig á að gera þetta. Enda
hef ég bætt mig svakalega.“
Jón Valgeir býst við því að verða fimm vik-
ur í gifsi. „Ég er strax orðinn pirraður, mér
líður bara eins og ég sé í hjólastól.“
Aflraunir á öðrum fæti
Jón Valgeir Williams
SEX innbrot voru framin í höf-
uðborginni, þar af þrjú þeirra í
apótek aðfaranótt sunnudags.
Tveir sautján ára piltar voru
staðnir að innbroti í apótek í
austurborginni og voru þeir
handteknir og færðir í fanga-
geymslur lögreglu.
Þá uppgötvaðist innbrot í
apótek í vesturbænum, þar sem
rúða hafði verið brotin en engu
stolið. Síðar um nóttina upp-
götvaðist innbrot í annað apó-
tek í vesturbænum og hafði
lyfjum verið stolið.
Framið var innbrot inn í veit-
ingastað í Grafarvogi aðfara-
nótt sunnudags og skemmdir
unnar á dyrakarmi og af-
greiðsluborði og munum stolið.
Þá var brotist inn á mynd-
bandaleigu í austurbænum.
Ennfremur var brotist inn í
fyrirtæki í austurbænum um kl.
5 á sunnudagsmorgun, þar sem
stolið var tölvubúnaði.
Brotist inn
í 3 apótek
Vægur
skjálfti við
Mývatn
SIGURJÓN Sighvats-
son var sofandi heima
hjá sér í Los Angeles
klukkan sjö að morgni
þegar hringt var í
hann og honum sagt
frá hryðjuverkunum í
New York og Wash-
ington sl. þriðjudag.
Sigurjón segir að
þetta sé jafnvel ennþá
hálf óraunverulegt fyr-
ir fólk, ekki síst vegna
umfangs árásanna.
Fyrirtæki Sigur-
jóns, Palomar Pictur-
es, á mikil viðskipti við
New York og hjá hon-
um starfa fjölmargir,
sem koma frá New York og eiga
marga nána ættingja þar. „ Við
ákváðum að hafa það þannig, að
þeir sem vildu kæmu í vinnuna aðr-
ir ekki.“ Hann segir að u.þ.b. helm-
ingurinn af starfs-
mönnum hafi komið til
vinnu. Að sögn Sigur-
jóns átti enginn starfs-
manna fyrirtækisins
ættingja sem unnu í
World Trade Center
en þegar lengra líði
komi í í ljós ýmis per-
sónuleg tengsl við
fórnarlömb hryðju-
verkanna. Til dæmis
hafi tveir nánir kunn-
ingjar hans sjálfs átt
nána ættingja meðal
fórnarlambanna.
Tengdasonur annars
hafi verið í World
Trade Center og eig-
inkona og tengdamóðir hins hafi
verið í flugvélinni, sem lenti á seinni
turninum. Persónuleg tengsl við
fórnarlömbin teygi sig mjög víða.
Sigurjón telur að auk þess að
hafa mikil áhrif á viðskiptalífið komi
hryðjuverkin til með að „gjörbreyta
því hvernig við búum hér í Am-
eríku“. Það muni verða gífurlegar
breytingar á öllum samgöngum í
heild, t.d. vegna aukinna öryggis-
ráðstafana. Hann telur að breyting
verði á hinu „opna þjóðfélagi“
Bandaríkjanna. „Það sem hefur allt-
af verið aðlaðandi við Bandaríkin
sem þjóðfélag er í raun hvað Banda-
ríkin eru opið þjóðfélag. Það er svo
auðvelt að hreyfa sig innan þessa
þjóðfélagskerfis. Það er allt mögu-
legt í þessu landi.“ Sigurjón telur að
sú tilfinning sem fylgt hefur hinum
ameríska lífsstíl muni breytast.
Hann bendir á að kannski hafi
Bandaríkjamenn verið verndaðir
fyrir þessari hlið tilverunnar, þeir
séu nú að reyna það sem Evrópu-
menn hafi búið við lengi, þótt ekki
hafi verið af þessari stærðargráðu.
„Það verður ákveðin hugsanabreyt-
ing í þessu þjóðfélagi,“ segir hann.
„Það er mjög þungur tónn í fólki.
Það er náttúrulega almenn sorg í
landinu.“ Hann segir að á rauna-
stundu sem þessari þjappi fólk sér
saman og geri sér betur grein fyrir
hinu sameiginlega, sem bindi það
saman, upplifi sig betur sem „koll-
ektífa“ heild. „Maður finnur það
mjög sterkt hér í Los Angeles. Svo
var auðvitað fullt af fólki héðan ...
ein vélin átti að vera á leiðinni hing-
að og önnur til San Fransisco,
þannig að auðvitað eru bein áhrif
mikil.“ Að sögn Sigurjóns finnst
honum að hin gífurlega reiði, sem
greip fólk strax í kjölfar atburð-
anna, sé að dvína og snúast upp í
samkennd og sorg. Umræður um
hefnd og refsingu séu orðnar yf-
irvegaðri og á einhvern hátt heil-
brigðari. „En það er dapur tónn hér
í fólki, enda held ég að það sé um
allan heim.“
Sigurjón Sighvatsson um hryðjuverkin í Bandaríkjunum
„Mun gjörbreyta því hvern-
ig við búum hér í Ameríku“
Sigurjón
Sighvatsson
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða
hefur dæmt karlmann í fjög-
urra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að slá lögreglu-
mann við skyldustörf í andlit
svo af hlaust nefbrot.
Lögreglumaðurinn sem varð
fyrir högginu var ásamt starfs-
félaga sínum að sinna útkalli á
heimili ákærða, sem átti í átök-
um við bróður sinn. Ákærði
sagði að hnefahögg sitt hefði
lent óvart á lögreglumanninum,
þegar hann ætlaði að slá bróður
sinn. Dómurinn taldi hins vegar
sannað að ákærði hefði beint
árásinni að lögreglumanninum
og dæmdi ákærða fyrir líkams-
árás og brot gegn valdstjórn-
inni.
Dóminn kvað upp Erlingur
Sigtryggsson dómstjóri.
Hlaut fjóra
mánuði fyr-
ir að nef-
brjóta lög-
reglumann
ÁÆTLAÐ er að tap Flugleiða vegna
röskunar á flugi eftir hryðjuverkin í
Bandaríkjunum fyrir réttri viku
nemi um 100 milljónum króna. Fé-
lagið þurfti að aflýsa 26 flugferðum
dagana 11.-14. september og varð
röskun á sjö ferðum til viðbótar. Alls
áttu um 4.000 farþegar bókað sæti í
þessum ferðum. Í fréttatilkynningu
frá Flugleiðum kemur fram að um-
talsverður kostnaður falli á fyrirtæk-
ið vegna þessa, t.d. vegna hótelgist-
ingar og aksturs fyrir farþega.
Flugfélög gera almennt ráð fyrir
að atburðirnir muni hafa töluverð
neikvæð áhrif á flugrekstur og ferða-
markað og hafa bandaríks flugfélög
boðað 20% samdrátt í áætlunum sín-
um. Þau hafa óskað eftir fundi með
forseta Bandaríkjanna um framtíð
flugstarfsemi í landinu. Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra hefur
miklar áhyggjur af þessari þróun,
þar sem verðhækkanir á eldsneyti
hafi einnig leikið félagið grátt. Hann
er nú staddur á Grænlandi og segist
gera ráð fyrir að funda með forsvars-
mönnum Flugleiða strax eftir kom-
una til landsins á fimmtudag.
75% af tekjum Flugleiða koma
úr millilandaflugi
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að frá síðasta
laugardegi, þegar flug vestur hófst
að nýju, hafi sætanýting í vélum fé-
lagsins verið góð. Það sé þó ekki
marktækt þar sem að hluta til sé um
að ræða farþega sem áttu bókað far
þá daga sem ekki var flogið. Hann
segir að talsvert hafi verið um að fólk
hafi afpantað flug, sumir hafi fært til
ferðadaga og aðrir hætt við ferðalög.
Engar tölur um þetta hafi verið tekn-
ar saman. Guðjón segir að ýmsir ut-
anaðkomandi þættir hafi áhrif á bók-
anir, t.d. hafi ráðstefnum og ýmsum
uppákomum ytra verið slegið á frest.
Eftirlit á flugvöllum hefur verið
hert í kjölfar hryðjuverkanna og seg-
ir Guðjón að fólk mæti almennt fyrr
til innritunar nú en áður. Því hafi
ekki orðið neinar stórvægilegar tafir,
einnig hjálpi til að ekki hafi verið
mikið álag á flugvöllum vestanhafs.
Gert er ráð fyrir að samdráttur í
flugi verði mestur í innanlandsflugi í
Bandaríkjunum, en einnig er búist
við neikvæðum áhrifum í flugi milli
Bandaríkjanna og Evrópu og Banda-
ríkjanna og Asíu. Guðjón segir enn
ekki ljóst hvernig þessar hræringar á
markaðnum muni koma fram og
hvort lítil félög og lítil lönd muni í ein-
hverju njóta fjarlægðar og smæðar.
Einhverjir dagar og jafnvel vikur
muni líða þar til hægt verði að meta
áhrif atburðanna á Flugleiðir og
ferðaþjónustu á Íslandi.
Guðjón segir að nú standi yfir
heildarúttekt á rekstri fyrirtækisins
sem verði hraðað í kjölfar atburð-
anna í Bandaríkjunum og að þar
verði sérstakt tillit tekið til áhrifa
hryðjuverkanna. Guðjón segir
stærsta óvissuþátt í rekstri Flugleiða
vera aðstæður á alþjóðamarkaði, þar
sem 75% af tekjum millilandaflugs
koma þaðan og 60% af tekjum sam-
stæðunnar.
Áhrif hryðjuverkanna í Bandaríkjunum á flugrekstur hérlendis
Flugleiðir hafa tapað
100 milljónum króna
LÖGREGLAN á Ísafirði hefur
til meðferðar líkamsárásarmál
sem upp kom aðfaranótt sunnu-
dags, þegar nokkrir menn réð-
ust á skipverja á skólaskipinu
Sæbjörgu.
Atvikið átti sér stað í landi og
hlaut maðurinn skurði á höfði
og var fluttur með sjúkrabif-
reið á sjúkrahúsið á Ísafirði.
Formleg kæra vegna málsins
hefur ekki verið send inn til lög-
reglunnar.
Ráðist á
skipverja
JARÐSKJÁLFTI að stærð 2,4
á Richterskvarða fannst við
Mývatn kl. 19.58 á sunnudags-
kvöld. Að sögn Steinunnar S.
Jakobsdóttur, jarðeðlisfræð-
ings hjá Veðurstofu Íslands,
voru upptök skjálftans við
Námaskarð. Hann fannst
greinilega í Reykjahlíð og í Kís-
iliðjunni við Mývatn.
Steinunn sagði við Morgun-
blaðið í gær að rólegt hefði ver-
ið á svæðinu frá því skjálftans
varð vart á laugardagskvöld;
fleiri skjálftar hefðu ekki mælst
og ekki væri búist við fleiri
skjálftum þótt áfram væri
fylgst með umræddu svæði.