Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TRILLUR
● Léttu þér vinnuna
● Gerðu langar vega-
lengdir stuttar og
þungar vörur léttar
● Sterk plastgrind og
öflug hjól með legum
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
SOCO trillur
- liprar og léttar - Fulltrúakjör
Samkvæmt lögum Sjómannafélags Eyjafjarðar fara kosningar
fulltrúa félagsins á 27. þing Alþýðusambands Norðurlands fram
að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð
ASÍ um slíkar kosningar.
Félagið hefur rétt til að senda 5 fulltrúa á þingið, sem haldið
verður á Illugastöðum, Fnjóskadal, dagana 5. - 6. október nk.
Framboðslistum eða tillögum til þings AN, þar sem tilgreind eru
nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til
vara, ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, Akureyri,
eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 25. september nk.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 45 fullgildra
félagsmanna.
Akureyri, 14. september 2001.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
ÞAÐ ríkti hátíðarstemmning á
Akureyri sl. laugardag eftir að
Þór hafði sigrað með glæsibrag í
1. deild Íslandsmótsins í knatt-
spyrnu og ljóst var að KA myndi
fylgja Þór í efstu deild á næsta
ári. Þórsarar héldu uppteknum
hætti á heimavelli, lögðu Víkinga
í lokaleik mótsins og tryggðu sér
glæsilegan sigur í 1. deild. Þetta
er jafnframt annað árið í röð sem
Þór vinnur deild, því félagið vann
yfirburðasigur í 2. deild á síðasta
ári. KA sótti Þrótt heim á laug-
ardag og dugði jafntefli til að ná
öðru sætinu og það gekk eftir.
Á laugardagskvöld héldu Þórs-
arar glæsilegt lokahóf á Oddvit-
anum, þar sem á þriðja hundrað
manns, leikmenn, stjórnarmenn
og stuðningsmenn skemmtu sér
saman. Skömmu fyrir miðnætti
stóðu Þórsarar fyrir flugeldasýn-
ingu við Oddeyrarbryggju, þar
sem m.a. 41 sól var skotið á loft,
eða einni fyrir hvert stig sem Þór
fékk í deildinni í sumar.
Stuðningsmenn KA tóku á móti
sínum mönnum á Akureyrar-
flugvelli og þar var einnig glatt á
hjalla. Um kvöldið var opið hús í
KA-heimilinu og þangað komu
margir gestir og fögnuðu með sín-
um mönnum.
Bæði Þór og KA leika í efstu deild knattspyrnunnar á næsta ári
Morgunblaðið/Kristján
Gríðarleg stemmning var á lokahófi knattspyrnudeildar Þórs á laug-
ardag, þar sem á þriðja hundrað manns, leikmenn, stjórnarmenn og
stuðningsmenn fögnuðu glæstum árangri í sumar.
Morgunblaðið/Kristján
Morgunblaðið/Gunnar Sverrisson
Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA, færði strákunum sínum
blómvendi við komuna til Akureyrar á laugardag. Með henni á mynd-
inni eru Hreinn Hringsson og Þorvaldur Örlygsson þjálfari.
Feðgarnir Vignir Þormóðsson, formaður knattspyrnudeildar KA, t.v.,
og faðir hans, Þormóður Einarsson, fyrrverandi leikmaður félagsins,
voru að vonum ánægðir með árangur sinna manna í 1. deild.
Morgunblaðið/Gunnar Sverrisson
Hátíðarstemmning
ríkti á Akureyri
Þórsurum bárust margar gjafir. Þórarinn B. Jónsson, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, og Sigrún Stefánsdóttir í stjórn ÍTA færðu knatt-
spyrnudeild blómakörfu, sem Árni Óðinsson formaður veitti viðtöku.
VETRARSTARF Kórs Glerárkirkju
er að hefjast um þessar mundir. Þeir
sem áhuga hafa á að syngja með kórn-
um í vetur geta haft samband við kór-
stjórann, Hjört Steinbergsson, og
fengið nánari upplýsingar. Unnt er að
bæta við fólki í allar raddir.
Fyrsta æfing Barnakórs Glerár-
kirkju verður á fimmtudag, 20. sept-
ember kl. 17.30 og verður á þeim tíma
tekið við nýjum félögum.
Vetrarstarf
að hefjast
Kór Glerárkirkju
HALLDÓR G. Halldórsson og
Ruth Viðarsdóttir sigruðu í karla-
og kvennaflokki í Skíðastaða-
spretti, hjólreiðakeppni frá
Gúmmívinnslunni við Réttar-
hvamm og að Skíðahótelinu í Hlíð-
arfjalli.
Alls mættu 13 keppendur til
leiks í kalsaveðri og var ekki laust
við að það snjóaði á fólk við Skíða-
staði. Hjólaleiðin er 5 km löng og
öll upp í móti. Þrátt fyrir að að-
stæður hafi verið erfiðar náði Hall-
dór að bæta besta tímann á þess-
ari leið í fyrra um rúmar tvær
mínútur.
Skíðastaðasprettur
Halldór og
Ruth sigruðu
LANDSBANKI Íslands hefur
leyst til sín þær eignir þrotabús
Skinnaiðnaðar sem bankinn átti
veð í og hefur félag á vegum hans,
Skinnaiðnaður – rekstrarfélag,
nú tekið við rekstri í sútunarverk-
smiðjnni. Skinnaiðnaður var í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
úrskurðaður gjaldþrota í fyrri
viku að beiðni stjórnar félagsins.
Sigurður Sigurgeirsson, svæð-
isstjóri Landsbanka Íslands á
Akureyri, sagði að um væri að
ræða tímabundna aðgerð, en bú-
ist væri við að bankinn myndi
halda úti starfsemi í um það bil
einn mánuð.
Auk þess sem bankinn hefur
leyst til sín eignir hefur hann
samið við þrotabúið um leigu eða
kaup á öðrum eignum þess. Sig-
urður sagði að verið væri að vinna
upp í þær pantanir sem fyrir
liggja og að koma hráefnisbirgð-
um í verð. „Það má segja að með
þessu séum við að bjarga þeim
verðmætum sem fyrir eru en
þetta fyrirkomulag verður ekki til
frambúðar,“ sagði Sigurður.
Um 120 manns unnu hjá
Skinnaiðnaði en um síðustu mán-
aðamót fengu 37 starfsmenn upp-
sagnarbréf vegna fyrirsjáanlegra
erfiðleika í rekstri félagsins. Nú
eru um 30 manns við störf í verk-
smiðjunni.
Landsbankinn tekur tímabundið við
rekstri þrotabús Skinnaiðnaðar
Verðmætum
verði bjargað
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
AKUREYRINGUR datt í lukku-
pottinn sl. laugardag er hann vann
Gullpottinn í Gullnámu Happdrættis
Háskóla Íslands og hljóðaði vinning-
urinn upp á 7,3 milljónir króna.
Vinningshafinn var að spila í Gull-
námukassa í Geislagötunni þegar sá
stóri féll og sagði Gísli Jónsson, um-
boðsmaður HHÍ á Akureyri, að hann
hafi verið bæði glaður og hissa.
„Vinningshafinn sá ástæðu til að
koma aftur til okkar 15 mínútum eft-
ir að hann fékk þann stóra, svona
rétt til þess að fullvissa sig um að
þetta væri raunveruleiki.“
Fyrir tæpum fjórum mánuðum
féll annar stór pottur í skaut Akur-
eyrings í Gullnámunni, eða upp á 4,3
milljónir en hann var einnig að spila í
Gullnámukassa í Geislagötunni. Gísli
sagði það vissulega jákvætt að þessir
stóru kæmu jafnt til Akureyrar og á
aðra staði.
Vann rúmar
7 milljónir
í Gullpott-
inum
www.leir.is