Morgunblaðið - 18.09.2001, Page 24
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RINGULREIÐ, óvissa, sam-skiptaörðugleikar og al-mennur skortur á viðbún-aði gerði að verkum að
ráðamenn í varnarmálaráðuneytinu
yfirgáfu ekki bygginguna á þeim 35
mínútum sem liðu frá því að tveimur
farþegaþotum var flogið á turna
World Trade Center í New York og
þeirri þriðju var flogið á byggingu
varnarmálaráðuneytisins, Pentagon.
Yfirstjórn loftvarna í Bandaríkjun-
um barst sú orðsending frá Flug-
málastjórn landsins (FAA) að far-
þegaþotu sem rænt hefði verið væri
stefnt að Washington 12 mínútum áð-
ur en flugvélin skall á byggingunni,
að því er fram kemur í yfirliti yfir rás
atburða sem útbúið hefur verið á veg-
um varnarmálaráðuneytisins. Don-
ald H. Rumsfeld og næstráðendum
hans var ekki kunnugt um hættuna.
Þeir sem bera ábyrgð á öryggi
Pentagon-byggingarinnar fengu
heldur enga viðvörun og gripu því
ekki til neinna þeirra ráðstafana sem
fallnar hefðu verið til að gæta lífs og
lima þeirra 20.000 manna sem þar
vinna að jafnaði.
Strax eftir að orðsending Flug-
málastjórnar hafði borist fóru tvær
orrustuþotur af gerðinni F-16 á loft.
Þær tóku hins vegar ekki á loft frá
Andrews-herstöðinni sem er aðeins
rúma 20 kílómetra frá Pentagon-
byggingunni heldur frá Langley-
flugstöðinni í Virginíu í um 200 kíló-
metra fjarlægð. Þetta var gert sökum
þess að í Andrews-stöðinni voru eng-
ar herþotur í viðbragðsstöðu til að
halda uppi loftvörnum í Bandaríkjun-
um. Tveimur mínútum eftir að þot-
urnar voru komnar á loft var þotu
American Airlines, flugi 77, flogið á
Pentagon-bygginguna með þeim af-
leiðingum að alls fórust 188 manns,
þar af allir þeim sem um borð í þot-
unni voru.
Þá áttu herþoturnar eftir um 20
mínútna flug til Washington.
Associated Press-fréttastofan
greindi frá því á sunnudag að tvær
þotur af gerðinni F-15 hefðu haldið af
stað frá Otis-herstöðinni í Massa-
chusetts eftir að boð hefðu borist um
að tvær þotur á leið frá Boston hefðu
breytt út af skilgreindri flugleið.
Þessar þotur voru líkt og F-16-vél-
arnar langt frá farþegaþotunum þeg-
ar þeim var stýrt á skotmörk sín.
Miðað við árás erlends ríkis
Frekari upplýsingar um hversu illa
yfirvöld varnarmála í Bandaríkjun-
um voru undir árásina búin bárust
um liðna helgi. Þrír hershöfðingjar úr
flughernum lýstu því í viðtölum
hversu gjörsamlega ófullnægjandi sá
viðbúnaður og þær ráðstafanir
reyndust sem skilgreindar höfðu ver-
ið fyrirfram yrði ráðist á Bandaríkin.
Í máli þeirra kom fram að jafnvel
þótt tekist hefði að koma herþotum
til Washington eða New York áður en
hryðjuverkamennirnir náðu að stýra
þeim á skotmörk sín væri óvíst hvort
það hefði dugað til varna. Flugherinn
og flugumferðarstjórn hefðu aldrei
æft viðbrögð ef hryðjuverkamenn
með farþegaþotur á valdi sínu
ákvæðu að láta til skarar skríða með
sjálfsmorðsárásum líkt og gert var
síðasta þriðjudag. Æfingar þeirra
hefðu ávallt miðast við að fljúga í veg
fyrir óvininn utan landamæra Banda-
ríkjanna, yfir Atlantshafi eða Kyrra-
hafi, þannig að svigrúm gæfist til að
ræða við flugmenn þotna og hafa
samráð við stjórnvöld áður en gripið
yrði til róttækra aðgerða gegn flug-
ræningjum.
Leyfi veitt til að granda þotum
Heimildarmenn innan flughersins
sögðu að samkvæmt þeim reglum
sem mótaðar hefðu verið þyrfti að
leita staðfestingar forseta Bandaríkj-
anna áður en farþegaflugvél væri
skotin niður. Dick Cheney, varafor-
seti Bandaríkjanna, greindi frá því
um helgina að George W. Bush for-
seti hefði gefið út þá tilskipun sl.
þriðjudag að skjóta bæri niður allar
þær farþegaþotur sem ekki hlýddu
fyrirskipunum um að breyta þegar í
stað stefnu sinni í átt frá Washington.
Heimildarmenn úr flughernum
sögðu árásirnar ennfremur hafa leitt
í ljós hversu ófullnægjandi loftvarn-
arkerfi Bandaríkjanna væri. Það
hefði verið skipulagt á dögum kalda
stríðsins til að koma í veg fyrir að
sprengjuflugvélar frá Sovétríkjunum
næðu inn í bandaríska lofthelgi. Aldr-
ei hefði við hönnun þessa kerfis verið
skoðaður sá möguleiki að hryðju-
verkamenn rændu farþegaþotum í
innanlandsflugi í Bandaríkjunum í
því skyni að valda sem mestu blóð-
baði í stórborgum á borð við New
York og Washington.
Fátt um varnir í Pentagon
En þessi sami skortur á viðbúnaði
einkenndi einnig viðbrögðin á jörðu
niðri. Háttsettir embættismenn í
varnarmálaráðuneytinu voru lengi að
gera sér ljóst hvert var raunverulegt
umfang þeirra atburða sem gerst
höfðu. Jafnvel þótt flestir í Pentagon-
byggingunni fréttu strax af árásun-
um á World Trade Center og margir
hefðu kveikt á sjónvarpstækjum sín-
um virðist sem fáir ef nokkrir hafi
hugleitt þann möguleika að sjálf
taugamiðstöð herafla Bandaríkjanna
yrði einnig fyrir árás.
Rumsfeld varnarmálaráðherra
hélt kyrru fyrir á skrifstofu sinni í
austurhluta Pentagon-byggingarinn-
ar eftir að hann frétti af árásunum í
New York og beið eftir því að leyni-
þjónustan, CIA, myndi gera honum
grein fyrir stöðunni á fundi. Nokkrir
æðstu aðstoðarmenn hans fóru í flýti
til miðstöðvar herstjórnarinnar sem
er að finna djúpt inni í höfuðstöðvum
ráðuneytisins. En þeim var hins veg-
ar ekki kunnugt um að enn einni þotu
hefði verið rænt og að henni væri
stefnt að byggingunni. Jafnvel eftir
að þotunni hafði verið flogið á húsið
gerðu þessir menn sér ekki ljóst hvað
varð þess valdandi að byggingin nötr-
aði og reykur tók að stíga upp frá
vesturhlið hennar.
„Það fyrsta sem öllum kom til hug-
ar var að sprengja hefði sprungið,“
sagði Victoria Clarke, talsmaður
Rumsfelds varnarmálaráðherra.
Það var ef til vill af þessum sökum
sem John Jester yfirmaður Gæslu-
sveita varnarmálaráðuneytisins,
DPS, sem gæta Pentagon, ákvað að
færa viðbúnaðarstig liðsafla síns upp
um aðeins eina gráðu, frá „eðlilegu“
til „alpha“-stigs sem felur það eitt í sé
að skoða skuli af handahófi bifreiðar í
nágrenni byggingarinnar auk þess
sem eftirlitsferðum lögreglusveita er
fjölgað.
Að auki eru menn í ráðuneytinu
vanir því að mikil flugumferð sé í ná-
grenni byggingarinnar. Nokkrar
flugleiðir til og frá Ronald Reagan-
flugvellinum í Washington liggja yfir
Pentagon. Hins vegar eru engar loft-
varnarbyssur til reiðu uppi á þaki
byggingarinnar og ráðuneytið ræður
ekki yfir sjálfstæðu ratsjárkerfi til að
fylgjast með flugumferð í grenndinni.
John Jester sagði að æft hefði ver-
ið á þriggja mánaða fresti eða tæma
Pentagon en yfirleitt hafi þá aðeins
verið um að ræða að rýma hluta
byggingarinnar. Þannig hefði mikið
reykhaf fylgt minniháttar eldi í hús-
inu fyrir um mánuði en þá hefði að-
eins helmingur þessarar risastóru
byggingar verið rýmdur.
Endurbætur komu að gagni
Jester og fleiri embættismenn tóku
hins vegar fram að mannfallið í
Pentagon hefði án efa orðið meira
hefðu ýmsar nýlegar öryggisráðstaf-
anir ekki verið gerðar. Vakin var at-
hygli á því að sá hluti byggingarinnar
sem varð fyrir árásinni hefði nýverið
verið endurnýjaður í samræmi við
áætlun um endurbyggingu Pentagon
til 20 ára. Sökum stálfleyga sem kom-
ið hefði verið fyrir hefðu veggir bygg-
ingarinnar haldið í um 30 mínútur í
stað þessa að hrynja strax er flugvélin
skall á húsinu. Fólk í mörgum skrif-
stofum hefði nú verið á bakvið tveggja
þumlunga þykkt öryggisgler og skot-
helda veggi sem trúlega hefði dregið
úr manntjóni. Sjálfvirkar eldhurðir
og úðarakerfi hefðu og farið í gang.
Aðeins um 20 vélar
í viðbragðsstöðu
Á fyrstu árum kalda stríðsins voru
þúsundir flugvéla um öll Bandaríkin
tilbúnar til að fara á loft með skömm-
um fyrirvara til að halda uppi loft-
vörnum gegn sovéskum sprengju-
flugvélum. Síðustu tíu árin hefur hins
vegar mjög verið dregið úr þessum
viðbúnaði og hafa um 20 flugvélar
verið í viðbragðsstöðu á sjö flugvöll-
um í Bandaríkjunum. Að sögn eins
heimildarmanns voru herfræðingar í
flughernum. Á fundi æðstu stjórn-
enda hans nokkrum dögum fyrir
árásina og þrýstu þeir á að enn yrði
dregið úr þessum viðbúnaði til að
unnt reyndist að nýta fjármuni sem
þá losnuðu til fjárfestinga í nýjum há-
tæknibúnaði.
Frá árinu 1958 hefur yfirstjórn
loftvarna í Bandaríkjunum verið á
hendi „Varnarstjórnar norður-amer-
ískrar lofthelgi“ sem á ensku nefnist
NORAD og hefur aðsetur djúpt inni í
fjalli einu í Colorado þar sem gert er
ráð fyrir að hún gæti staðist kjarn-
orkuárás. Þeir sem þar starfa fylgj-
ast með ratsjám allan sólarhringinn,
alla daga ársins og leita eldflauga eða
dularfullra flugvéla sem kunna að
stefna á Bandaríkin. Þessi viðbúnað-
ur hefur hins vegar ávallt miðast við
árás erlends ríkis fremur en að hugað
hafi verið að innanlandsflugi. NOR-
AD-kerfið vinnur náið með Flug-
málastjórn Bandaríkjanna og fyrir
liggja áætlanir um viðbrögð til að
treysta loftvarnir skapist hætta eða
óvissa.
Frá því á þriðjudag hafa 26 flug-
vellir með herþotum verið settir á
hærra stig viðbúnaðar. Greint hefur
verið frá því að í ráði sé að kalla þús-
undir manna til starfa úr varaliði
flughersins sem gefur til kynna að
þessu viðbúnaðarstigi verði viðhaldið
í marga mánuði til viðbótar.
Ófullnægjandi við-
búnaður og ringulreið
Einungis tókst að koma fjórum herþotum á
loft og þær voru enn víðs fjarri þegar
hryðjuverkamenn stýrðu þremur farþega-
þotum á Washington og New York á þriðju-
dag. Allt fyrirkomulag loftvarna í Banda-
ríkjunum miðaðist við árás af hálfu
Sovétríkjanna og viðbúnaður á jörðu niðri
var ófullnægjandi.
Reuters
Björgunarmenn meta eyðilegginguna í Pentagon eftir hryðjuverkin í
síðustu viku.
Washington. The Washington Post.
MOHAMMED Sayyed Tantawi,
sem er æðstur allra klerka innan
súnní-greinar íslamstrúar, sagði í
Kaíró í Egyptalandi í gær, að Banda-
ríkjamenn hefðu fullan rétt til að
grípa til varna eftir árásirnar í síð-
ustu viku. Jóhannes Páll páfi II lýsti
yfir fyrir helgi harmi sínum vegna
þessa „óskaplega grimmdarverks“
en hvatti Bandaríkjastjórn um leið til
að láta ekki undan hefndarþorstan-
um. Aðrir kirkjuleiðtogar á Vestur-
löndum hafa tekið í svipaðan streng.
Á blaðamannafundi þar sem Tant-
awi gerði grein fyrir afstöðu súnní-
múslima til hryðjuverkanna 11. sept-
ember sagði hann, að samkvæmt ísl-
ömskum lögum yrði að refsa ríkjum
eða hópum manna, sem gerðust sekir
um hryðjuverk. Kallaði hann hryðju-
verkin í Bandaríkjunum einhver þau
„viðbjóðslegustu“ sem um gæti.
Er Tantawi var spurður um hugs-
anlegar hefndarárásir Bandaríkja-
manna svaraði hann: „Það er réttur
hvers ríkis að verja hendur sínar.“
Sagði hann einnig, að ríki, sem héldu
verndarhendi yfir hryðjuverka-
mönnum, myndu fá makleg mála-
gjöld. „Þeir, sem skýla glæpamönn-
um, eru glæpamenn sjálfir,“ sagði
Tantawi.
Íslamskir klerkar í ýmsum öðrum
löndum hafa lýst þessu sama yfir, til
dæmis í Sýrlandi, Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum og í Sádi-Ar-
abíu. Í Íran hófust föstudagsbænirn-
ar að þessu sinni ekki með vana-
legum hrópum um „Dauða yfir
Bandaríkjamönnum“, heldur var
hryðjuverkið fordæmt. „Við verðum
að skera upp herör gegn hryðjuverk-
um,“ sagði hinn íhaldssami klerkur
Emami Kashani en lagði um leið
áherslu á, að fyrsta skilyrðið væri að
koma taumhaldi á Ísrael, það væri
mesta hryðjuverkaríkið.
Sprengjur ekki svarið
Páfi sagði, að meinin, sem hrjáðu
samfélag mannanna, yrðu ekki lækn-
uð með sprengjum og enn meira of-
beldi. Rétta svarið væri að setjast á
rökstóla og reyna að fjarlægja und-
irrót hatursins. Bandaríkjamenn
mættu ekki undir neinum kringum-
stæðum láta hefndarþorsta og ein-
angrunarhyggju taka við því mikil-
væga hlutverki, sem þeir hefðu í
heiminum.
Aðrir leiðtogar kristinna kirkju-
deilda hafa einnig hvatt til stillingar
og varað við bráðræðislegum við-
brögðum. Hið sama hefur Lútherska
heimssambandið gert í sérstakri yf-
irlýsingu.
Æðsti klerkur
súnní-múslima
AP
Mohammed Sayyed Tantawi
Réttur
Bandaríkja-
manna að
verja hend-
ur sínar
Kairó, Castelgandolfo. AP, AFP.