Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 27 Haustferðir Heimsferða hafa fengið ótrúlegar und- irtektir og nú eru margar ferðir uppseldar í október og nóvember til þessarar fögru borgar. Beint flug í október og nóvember og nú kynnum við nýja frábæra gistivalkosti í hjarta Prag, góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn með íslenskum fararstjórum Heimsferða, þar sem þú kynnist alveg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar einstöku borgar sem á engan sinn líka í Evrópu. Fáðu bæklinginn sendan. Verð kr. 32.100 Flugsæti til Prag, 11. október, skattar kr. 2.870, ekki innifaldir. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 39.970 M.v. 2 í herbergi, Pyramida, 11. október, 4 nætur, m.v. 2 í herbergi með morgunmat. Skattar innifaldir. Viðbótargisting Aðeins 10 herbergi í boði Helgarferð til Prag 11. október frá kr. 32.100 með Heimsferðum Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Haustlínan er komin Munið buxurnar á kr. 1.990 VILJI EMMU er fjórða verk Dav- ids Hare sem sviðsett er hérlendis: Leikfélag Reykjavíkur sýndi Ofan- ljós 1998 og Bláa herbergið 1999 og Nemendaleikhúsið sýndi Fanshen 1978. Verkið er nýlegt (frumsýnt 1997) en innri tími þess spannar 16 ár og gerist fyrsti þátturinn árið 1979 en sá síðasti 1995. Aðalpersón- ur verksins eru mæðgurnar Emma (Elva Ósk Ólafsdóttir) og Esme (Kristbjörg Kjeld) og Dominic unn- usti Emmu (Baldur Trausti Hreins- son). Esme er fræg leikkona en Dominic upprennandi fjölmiðla- stjarna, gagnrýnandi og kvikmynda- gerðarmaður. Aðalátök verksins kristallast í erfiðum samskiptum þeirra tveggja sem spretta öðrum þræði upp af ólíkum viðhorfum þeirra til lífsins, leikhússins og list- arinnar en kannski fyrst og fremst af baráttu þeirra um „yfirráðin“ yfir Emmu sem á þann draum heitastan að þessir ástvinir hennar nái saman. Titill verksins vísar meðal annars til þessa „vilja“ hennar. Erfitt samband tengdamóður og tengdasonar er með kunnari klisjum okkar tíma og kemur ekki á óvart að David Hare leiti á slík mið. Deiluefni þeirra tengdamæðgina sem tengist mismunandi gildismati kynslóðanna á listum og fjölmiðlum er einnig efni sem lítið nýjabrum er á og bar fátt nýtt á góma í þeim samtölum sem um það efni snerust. Þau Esme og Dominic eru hvort um sig hreinrækt- aðir fulltrúar sinna viðhorfa og ekki erfitt að sjá hvorum megin samúð höfundar liggur (enda leikhúsmaður eins og Hare varla hallur undir það viðhorf að leikhúsið sé dautt list- form). Leikritið er í fjórum þáttum og líða nokkur ár á milli þátta. Fyrstu þrír þættirnir gerast á heimili Esme og sá síðasti baksviðs í litlu leikhúsi. Í fyrsta þætti er Emma að kynna Dominic fyrir móður sinni sem líst miður vel á hann af ástæðum sem áhorfendur geta auðveldlega fallist á. Í þeim næsta eru þau Emma og Dominic í heimsókn hjá Esme sex árum síðar og lýkur þeim þætti með ósætti Dominics og Esme. Í þeim þriðja kemur Emma í heimsókn til móður sinnar og á milli þeirra á sér stað uppgjör sem er illa undirbyggt og skilur áhorfandann eftir hálf- undrandi. Í þeim síðasta heimsækir Dominic Esme í leikhúsið þar sem hún vinnur og leitar sátta. Styrkleiki verksins er fólginn í persónusköpun Esme. Kristbjörg Kjeld gerði hlutverkinu frábær skil og leikur hennar einn og sér hélt ein- faldlega sýningunni fyrir ofan með- allag. Helsti veikleiki verksins er hins vegar slöpp persónusköpun Emmu og Dominics og þótt mjög færir leikarar fari hér með hlutverk- in tókst þeim ekki að gæða persón- urnar nægilegu lífi til að hrífa áhorf- andann með. Persóna Dominics er flöt og einhliða; hér er á ferðinni kuldalegur framagosi sem nýtur þeirrar frægðar og valds sem sviðs- ljós fjölmiðlanna færir honum. Erfitt er að skilja skilyrðislausa ást Emmu á honum og auðvelt að samsama sig andúð tengdamömmu. Þótt hann sýni á sér nýja hlið og „breyti rétt“ í síðasta þætti nægir það ekki til þess að persónan öðlist dýpt. En Emma sjálf er mesta ráðgátan. Okkur er sagt að hún sé manneskja sem elski alla og vilji að allir séu vinir. Þetta virðist vera hennar eina krafa og sú sem aðrir eiga svo erfitt með að upp- fylla. En hver er Emma? Starfar hún eitthvað? Krefst hún einskis fyrir sjálfa sig? Af hverju bregst hún við eins og hún gerir í uppgjörinu við móður sína? Af hverju sættir hún sig við kúgun Dominics frá upphafi til enda? Orð Emmu og athafnir eru svo illa undirbyggð í texta verksins að raun er á að horfa. Tilvísunin til hennar í síðasta þætti, þar sem hún virðist vera orðin einhvers konar píslarvottur sem hefur verið fórnað til þess að fjandmennirnir sjái að sér og sættist, er ótrúverðug og meló- dramatísk. En það verður að játast að leikritið rís engu að síður hæst hér vegna túlkunar Kristbjargar á Esme. Þóra Friðriksdóttir, Arnar Jóns- son og Bjarni Haukur Þórsson fara með aukahlutverk í verkinu og skila sínum hlut óaðfinnanlega. Sýningin í heild fer hægt af stað, áherslan er fyrst og fremst á samskipti hinna þriggja aðalpersóna og sérstaklega á orðaskiptum þeirra Esme og Dom- inics. Samtöl þeirra tveggja eru víða lipurlega skrifuð og sérstaklega lifn- ar verkið í tilsvörum Esme. Sýningin er fyrsta leikstjórnarverkefni Vig- dísar Jakobsdóttur í atvinnuleikhúsi og gætti nokkurs reynsluleysis í sviðsetningunni sem kom fram í nokkru úrræðaleysi í leiklausnum og sviðshreyfingum. Yfirbragð sýning- arinnar var á tíðum langdregið og kyrrstætt og megnaði sú orðræða sem fram fór ekki að gefa sýning- unni slagkraft. Raunsæisleg sviðs- mynd Hlínar Gunnarsdóttur hefur yfirbragð hlutleysis og sama má segja um lýsingu og tónlist; hvorugt var eftirtektarvert. Af ítarlegri kynningu á David Hare í leikskrá þar sem ferill hans er rakinn má sjá að hann hefur verið af- kastamikill í bresku leikhúslífi síð- astliðna þrjá áratugina og verk hans hafa hlotið ýmsar viðurkenningar þarlendis og erlendis. Að sögn er Hare eitt virtasta samtímaskáld Breta og hefur honum jafnvel verið skipað á bekk með þeim Harold Pinter og Tom Stoppard. Undirrituð á bágt með að sjá að Hare verðskuldi slíkan samanburð, ef miðað er við þau verk sem hér hafa verið tekin til sýninga. Hare kemst hvergi nærri Pinter í frumleika eða nýsköpun og leikfléttur hans er oft og tíðum veik- ar og hallar undir kunnar klisjur. Hins vegar má geta þess að 1998 skrifaði Hare leikritið Via Dolorosa þar sem hann tekst á við menning- arlega árekstra fyrir botni Miðjarð- arhafs, átök Araba og gyðinga. Verkið er skrifað, að sögn höfundar, „fyrir þá sem halda að þeir viti eitt- hvað um hvað þessi átök snúast, en skilja þau ekki til fulls. Og að skilja þau ekki til fulls er það sama að botna ekkert í þeim“. Hér mætti ímynda sér að væri á ferðinni verk með brýnt erindi, sem varla er hægt að segja um Vilja Emmu. Hver er Emma? LEIKLIST Þ j ó ð l e i k h ú s i ð Höfundur: David Hare. Íslensk þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson. Leikstjóri: Vigdís Jakobsdóttir. Leikarar: Arnar Jónsson, Baldur Trausti Hreinsson, Bjarni Haukur Þórsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Þóra Friðriks- dóttir. Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Smíðaverkstæðið 15. september. VILJI EMMU Soff ía Auður Birgisdótt ir Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson „Yfirbragð sýningarinnar var á tíðum langdregið og kyrrstætt og megnaði sú orðræða sem fram fór ekki að gefa sýningunni slagkraft.“ PÍANÓLEIKARINN Roman Rudnytsky heldur píanótónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðju- dagskvöld, kl. 20. Á efnisskrá eru verk eftir Bach-Busoni, Beethoven, Copland, Gersh- win, Ravel, Chopin, Rudn- ytsky, Wagner, Liszt og Moszk- owski. Roman Rudn- ytsky er af úkraínskum uppruna, en fæddist í New York. Hann hef- ur ferðast til meira en 75 landa til þess að halda tónleika og er lík- lega sá píanóleikari sem hefur komið hvað víðast fram. Auk hefð- bundinna tónleika í höfuðborgum og virtum tónleikasölum ýmissa landa ferðast hann oft á framandi slóðir. Hann hefur hlotið viður- kenningu gagnrýnenda víða um heim. Rudnytsky útskrifaðist úr hinum þekkta Juilliard-skóla í New York og hlaut frekari fram- haldsmenntun í Peabody-tónlist- arskólanum í Baltimore. Rudnytsky hefur fengið fjölda verðlauna og má þar nefna verð- laun hinnar alþjóðlegu Leventritt- keppni í New York og J. S. Bach keppninnar í Washington, en auk þess vann hann til verðlauna í „F. Busoni“ keppninni og „A. Casa- grande“ alþjóðlegu píanókeppn- inni á Ítalíu. Hann hefur leikið inn á margar upptökur í Póllandi, Ástralíu og Bandaríkjunum. Auk þess að halda fjölda tón- leika hefur Rudnytsky komið fram sem einleikari með fjölmörg- um hljómsveitum víða um heim. Roman Rudnytsky hefur starfað við Dana-tónlistarskólann við Youngstown-háskólann í Ohio í Bandaríkjunum síðan árið 1972 og verið sæmdur viðurkenningu skólans fyrir störf sín. Víðförull píanó- leikari í Salnum Roman Rudnytsky
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.