Morgunblaðið - 18.09.2001, Síða 29
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 29
ÍSKÓLA Helgu Sigurjónsdótt-ur er m.a. börnum 4–6 áraboðið upp á lestrarkennsluauk þess sem lestraraðstoð
við skólabörn er hluti af verkefnum
skólans. Helga stofnaði skólann í
Kópavogi fyrir ári þar sem hún hafði
lengi vitað að þörf á lestrarstuðningi
við skólabörn var brýn. Eftir að
skólinn var stofnaður kom í ljós að
þörfin fyrir þessa kennslu og áhug-
inn var jafnvel meiri en hún hafði
gert ráð fyrir.
Helga hefur víða látið til sín taka í
menntamálum allt frá því hún lauk
kennaranámi árið 1957. Viðhorf
hennar í þeim málum hafa ekki alltaf
fallið að þeim viðhorfum og venjum
sem ríkja í kennsluaðferðum
menntamálayfirvalda og hefur
Helga ekki farið leynt með skoðanir
sínar á menntakerfinu og annmörk-
um þess. Hún hefur skrifað fjölda
greina og haldið fyrirlestra og svo
hefur hún einnig samið flestar þær
kennslubækur sem hún notar í eigin
skóla. Í hugmyndum þeim sem
liggja að baki starfi hennar á þessu
sviði segir m.a.: „Þegar skólaganga
hefst á að ganga út frá heilbrigði
barna og eðlilegum, meðfæddum
hæfileikum þeirra. Þó að hæfileik-
arnir séu mismiklir bendir margt til
þess að munurinn sé minni en nið-
urstöður á þekkingar- og hæfileika-
prófum gefa til kynna. Erfiðleikar í
námi eru því ekki merki um vöntun
eða afbrigði. Þeir eru eðlilegur og
sjálfsagður hluti mannlífsins.“
Læra að tala og stafa
Upphaf lestrarkennslunnar má
rekja til blaðagreinar sem Helga las
fyrir um þrjátíu árum en þar var lagt
til að börnum væru kenndir stafir
um leið og þau byrjuðu að tala.
Helgu fannst málið áhugavert og
sannreyndi þetta á yngsta barni sínu
en lagði hugmyndina svo á hilluna.
Fyrir þremur árum rakst hún á bók
um sama efni, Early Reading eftir
Máire Mullarney, og ákvað að gera
sjálf eitthvað í málinu. Þá fór hún af
stað með tilraunakennslu í lestri á
Laufásborg með góðum árangri. Nú
býður hún upp á átta vikna námskeið
fyrir börn á aldrinum 4–6 ára og
kennir þeim fjórum sinnum í viku,
hálftíma í senn. Einnig eru fram-
haldsnámskeið og er þá kennt þrisv-
ar í viku.
Lestrarkennslan hjá Helgu fer
þannig fram að 4–5 börn koma í hana
í fylgd með foreldri eða aðstand-
anda. Helga segir mikilvægt að for-
eldrar fylgist með kennslunni þann-
ig að þau geti lært aðferðina og
haldið áfram að þjálfa barnið heima.
Kennsluefnið hefur Helga hannað
sjálf, en það eru bækur sem ná yfir
alla stafi stafrófsins með tilheyrandi
lestraræfingum. Hún segir gaman
að sjá hvað afar og ömmur eru dug-
leg að hvetja börnin og koma með
þau í lestrartímana.
Helga telur að þessi kennsla eigi í
raun heima inni í leikskólum og velt-
ir upp spurningunni hvort það hljóti
ekki að vera einfaldara fyrir grunn-
skólakennara sem taka á móti
stórum hópi barna í fyrsta bekk að
meirihluti þeirra kunni að lesa. Hún
segir börnin vera opin fyrir náminu
þó að ung séu og því fyrr sem þau
byrja á að læra að lesa þeim mun
fyrr sé hægt að sjá hvaða börn eru
lesblind og aðstoða þau í kjölfar
þess. „Það gefur þeim tækifæri á að
vinna tíma og fá þá aðstoð strax sem
í boði er í grunnskólunum.“ Helga
segist hafa mjög gaman af að vinna
með ungum börnum. „Það er ekki
bara gaman heldur veitir ekki af að
vanda til byrjendakennslu í lestri,
miðað við öll þau lestrarvandamál
sem börn eiga við að glíma í grunn-
skólum í dag,“ segir Helga, en í skóla
hennar er ennfremur boðið upp á
námsaðstoð við nemendur á grunn-
skólaaldri sem eiga við lestrar- eða
stærðfræðiörðugleika að stríða.
Börnin þurfa hvatningu
Hún segir aðstæður í grunnskól-
um víða óviðunandi, sé horft til líð-
anar þeirra barna sem af einhverj-
um ástæðum eiga erfitt með
einbeitingu og lærdóm. „Kennarar
fara í verkfall út af launum. Hefur
þeim aldrei dottið í hug að fara í
verkfall vegna óviðunandi að-
stæðna? Að barn búi við ákjósanleg-
ar aðstæður getur haft áhrif á fram-
tíð þess og sálarheill þegar til lengri
tíma er litið,“ segir Helga. Hún segir
algengt að börn sem eigi erfitt með
nám eigi einnig í félagslegum erf-
iðleikum. „Börnin þurfa hvatningu
og kennarinn þarf að geta byggt
nemendur sína upp. Ekki má efast
eina mínútu um getu nemandans.
Þegar hann finnur traustið og fær
trú á sjálfan sig þá fer hann líka að
ná árangri.“
Helga segir mikilvægt að kenn-
arinn missi aldrei móðinn og líti
aldrei svo á að þessir erfiðleikar
nemandans séu varanlegir. „Þeir eru
einungis tímabundnir og því þarf
nemandinn töluverðan stuðning til
þess að komast yfir þennan erfið-
leikaþröskuld,“ segir Helga Sigur-
jónsdóttir kennari.
Lestur/ Ekki má efast eina mínútu um getu nemandans. Ef hann finnur traustið og fær
trú á sjálfan sig birtist árangurinn, segir Helga Sigurjónsdóttir sem rekur lestrarskóla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnur Björk fremst til vinstri, Margrét, Birta Dögg, Alexandra Rós, Kristín, Alma og Felix stunda
nám í lestri í Skóla Helgu Sigurjónsdóttur, Meðalbraut 14 í Kópavogi.
Trúin á eigin getu mikilvæg
Afar og ömmur dugleg að hvetja
börnin í lestrarkennslunni.
Ætti ef til vill að kenna börnum
að lesa í leikskólum?
„H.C. Andersen, Winston
Churchill, Albert Einstein,
Charles Darwin, Selma Lag-
erlöf og Pablo Picasso voru öll
skapandi og höfðu sérstaka
hæfileika. Auk þess áttu þau við
mikla les- og skriftarerfiðleika
að stríða á
skólaárum sín-
um. U.þ.b. 10%
nemenda eiga
erfitt með lest-
ur og skrift.
Miklir leserfið-
leikar hrjá
u.þ.b 5% nem-
enda, oftar
drengi en
stúlkur. Sumir
eiga erfitt með lestur, aðrir staf-
setningu, sumir hvort tveggja,“
stendur á heimasíðu Heimils og
skóla, www.heimiliogskoli.is en
þar er að finna ráðleggingar
undir fyrisögninni: „Hvað á ég
að gera ef barninu mínu gengur
illa með lestur?“ Hér eru dæmi:
Gerðu það sem foreldrar hafa
gert í gegnum tíðina með börn-
um sínum. Lestu upphátt,
syngdu, farðu með þulur eða
gerðu hvað annað sem vekur
áhuga barnsins á móðurmálinu.
Bæði kennarar og aðrir sér-
fræðingar eru sammála um að
rím- og orðaleikir þjálfi máltil-
finningu barnsins og börn með
leserfiðleika þurfa að þjálfa
hana miklu betur en önnur
börn.
Sættu þig við að það er ekki
alltaf hægt að laga les- og skrift-
arerfiðleika að fullu. Sjálfs-
traust og heilsteypt sjálfsmynd
einstaklingsins skipta meira
máli um hvernig honum farnast
í lífinu. Langflestir komast vel
til manns þrátt fyrir leserfið-
leika og það er liðin tíð að tengja
lestrargetu við greind eða gáf-
ur.
Ef til er tölva á heimilinu er
hægt að fá sérstök forrit sem
þjálfa lestur og ritun. Kannaðu
málin í skólanum og í Skóla-
vörubúðinni.
Reyndu að finna lesefni sem
höfðar til barnsins. Fyrirsagnir
í blöðum, íþróttafréttir, skrýtl-
ur, teiknimyndasögur, auglýs-
ingar, hvað sem er gerir gagn ef
barnið sýnir því áhuga. Ágætt
er að spyrja barnið um eitthvað
sem stendur í dagblaði og láta
það leita uppi svörin.
Fáðu lánaðar hljóðbækur á
bókasafninu eða í skólanum þ.e.
snældur með upplestri. Það eru
til „venjulegar“ bækur með
hljóðsnældu sem eru sérlega
hentugar til æfinga í lestri.
Barnið getur fylgst með prent-
uðum texta um leið og það hlust-
ar á frásögnina.
Almenn ráð vegna
lestrarkennslu
Albert
Einstein
NÆSTI
umsóknar-
frestur um
styrki til
manna- og
starfsmannaskiptaverkefna í Leon-
ardóstarfsmenntaáætluninni verður
1. október nk.
Svör við umsóknum fást strax í
október og hægt verður að hefja
skiptin þá þegar. Sérstök áhersla
verður lögð á umsóknir frá verk-
menntaskólum sem vilja senda nem-
endur og kennara þeirra í kynnis-
ferðir í erlenda skóla og/eða
fyrirtæki sem tengjast náminu.
Frekari upplýsingar eru veittar á
Landsskrifstofu Leonardó í síma
525-4920 eða netfanginu thordise-
@hi.is.
Evrópurútan 2001
Dagana 10.–21.
september nk.
verður farið í öfl-
ugt kynningar-
átak á lands-
byggðinni þar
sem kynntir verða möguleikar Ís-
lendinga í evrópsku samstarfi. Átak-
ið, sem unnið er í samstarfi við
Byggðastofnun og atvinnuþróunar-
félög um land allt, gengur undir
nafninu „Evrópurútan“. Fulltrúar
14 Evrópuáætlana og þjónustuskrif-
stofa munu fara í hringferð um land-
ið með viðkomu á Selfossi, Vík,
Höfn, Egilsstöðum, Húsavík, Akur-
eyri, Skagafirði, Borgarnesi, Ísafirði
og Reykjanesbæ. Allir þeir sem hafa
hugmyndir eða áhuga á að taka þátt
í slíku samstarfi eru hvattir til að
koma á fund og kanna möguleika
sína.
Fleiri frá EES-löndum sækja
um störf á Íslandi
Eftir að sett var upp rafrænt um-
sóknareyðublað hefur umsóknum
um störf sem auglýst eru í EES-
vinnumiðlun fjölgað verulega. Flest-
ar umsóknir eru sem fyrr frá hinum
Norðurlöndunum,
einkum Svíþjóð og
Finnlandi. Auglýst
störf eru einkum í
landbúnaði, fisk-
vinnslu, umönnun og
hótelstörf. Helsta
hindrunin í vegi at-
vinnuumsækjenda frá Evrópska
efnahagssvæðinu er húsnæðisskort-
ur á höfuðborgarsvæðinu en margir
sem vilja vinna þar eiga erfitt með að
finna húsnæði. Atvinnurekendur eru
í fæstum tilvikum tilbúnir að aðstoða
við húsnæðisleitina. Í haust koma
60–70 starfsmenn frá hinum Norð-
urlöndunum og Bretlandi til starfa í
sláturhúsum víðs vegar um landið.
Einnig hafa margir sótt um störf á
komandi síldarvertíð á Austurlandi.
Umsóknarfrestur í Sókrates
Umsóknarfrestur til samstarfs-
verkefna menntaáætlunar Sókrates-
ar rennur út 1. nóvember nk.
SÓKRATES/Lingua – tungu-
málanám og -kennsla. Samstarfs-
verkefni a.m.k. þriggja stofnana frá
ESB-/EES-löndum. Verkefnin geta
verið af
ýmsum
toga en
miða að
því að
efla
tungumálanám og -kennslu. Náms-
gagnagerð, námskeiðsgerð o.fl.
SÓKRATES/Grundtvig – Full-
orðinsfræðsla. Samstarfsverkefni
a.m.k. þriggja stofnana frá ESB-/
EES-löndum. Verkefni felast í
námsgagnagerð, námskeiðsgerð o.fl.
SÓKRATES/Mínerva – Opið nám
og fjarnám. Samstarfsverkefni
a.m.k. þriggja stofnana frá ESB-/
EES-löndum til eflingar opins náms
og fjarnáms.
SÓKRATES/Comeníusarnet
Net menntastofnana sem hafa tekið
þátt í Comeníusarsamstarfi (þema-
bundin net). Landsskrifstofa Sókr-
atesar aðstoðar umsækjendur við
leit að samstarfsaðilum. Styrkupp-
hæðir eru að meðaltali 100.000 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.ask.hi.is.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál