Morgunblaðið - 18.09.2001, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 31
KATALÓNSKI óperu-söngvarinn José Carr-eras kom til Íslandsskömmu eftir hádegi í
fyrradag, en í gærkvöldi söng hann
á tónleikum í Laugardalshöll með
Diddú, Sinfóníuhljómsveit Íslands
og kór Íslensku óperunnar. Carr-
eras kom hingað frá London, þar
sem hann söng á tónleikum á
PROMS hátíðinni á laugardags-
kvöld, en eftir tónleikana hér held-
ur hann til Noregs.
Á blaðamannafundi á Hótel Sögu
á sunnudag, lýsti Carreras ánægju
sinni með að vera kominn í fyrsta
sinn til Íslands.
„Þetta starf er mér köllun“
„Það er mér sérstakt gleðiefni að
heimsækja þennan hluta Evrópu,
fólk á þessum slóðum er listfengt og
næmt, og á Norðurlöndunum finn
ég alltaf fyrir vinsemd og hrifningu
tónleikagesta.“ Aðspurður um
hvort hann væri enn að læra ný
hlutverk segist José Carreras von-
andi aldrei láta af því. „Ég reyni
eins og ég get að kynna mér og læra
ný hlutverk, og gömul hlutverk sem
ég hef ekki sungið áður. Það er mik-
ilvægt fyrir mig að geta boðið upp á
eitthvað nýtt á sviðinu og vera ekki
alltaf í sömu hlutverkunum. Ég
reyni alltaf að leita að nýjum mögu-
leikum, og líka að læra upp á nýtt
það sem ég söng fyrir löngu síðan; –
þar á meðal Verdi-hlutverk eins og
Stiffelio, Il Corsaro, I due foscari og
fyrir tveimur árum söng ég nýtt
hlutverk í óperunni Sly eftir Wolf-
Ferrari. Ég er mjög stoltur af
þessu; – það kemur í veg fyrir að ég
festist í sömu rútínunni og er mér
alltaf ný ögrun.“ Carreras segist
aldrei fá nóg af söngnum. „Þetta
starf er mér köllun á sinn hátt, það
að syngja gefur mér tækifæri til að
tjá mig og miðla einhverju til fólks.
Sumir mála, aðrir skrifa, ég syng og
verð aldrei þreyttur á því. Hlust-
endur mínir verða kannski þreyttir
á mér, – en ég er ekki orðinn þreytt-
ur á því að syngja.“
„Aldrei að rífast við sóprana“
Carreras segist vera gæfusamur
tenór og hafa fengið tækifæri til að
syngja með mörgum bestu söngv-
urum samtímans og nefnir nokkrar
uppáhaldssöngkonur, Mirellu
Freni, Agnesi Baltsa, Renötu
Scotto og Birgit Nilsson. „Það er
erfitt að nefna einn sérstakan uppá-
haldsmótsöngvara af öllum þeim
ágætu söngvurum sem ég hef unnið
með, en þó held ég að af ýmsum
ástæðum sé Montserrat Caballé
mér kærust. Hún hjálpaði mér mik-
ið þegar ég var að byrja minn feril
og vinátta okkar hefur verið náin og
persónuleg. Annars á ég alltaf góð
samskipti við sóprana, því mér var
eitt sinn gefið það heillaráð að rífast
aldrei við sóprana.“
Hljómsveitarstjórinn á tónleik-
unum, David Giménez, er systur-
sonur Carreras. „Ég hef alltaf hvatt
hann áfram, og hann er stórkostleg-
ur stjórnandi, sem ég er stoltur af, –
það væri ekkert öðru vísi þótt við
værum ekkert skyldir.“
„Roberto Alagna í miklu
uppáhaldi hjá mér“
Spurningunni um arftaka tenór-
anna þriggja reynist erfitt að svara.
„Það er heill hellingur af góðum
tenórum að syngja í dag. Roberto
Alagna er í miklu uppáhaldi hjá
mér, en það eru fleiri góðir eins og
José Cura, Marcello Alvarez, Pedro
Vargas; – ég er örugglega að
gleyma einhverjum, – en það er allt-
af þörf fyrir nýja tenóra til að halda
óperuhefðinni við.“
En hvað er það sem skilur milli
góðs og frægs tenórs og súperten-
órs eins og þeir Domingo, Pavarotti
og Carerras eru?
„Það er hinn almenni hlustandi
held ég, sem ákveður þetta. Og ef
ég held sjálfum mér utan við þetta
segi ég, að það sé ekki nóg að hafa
frábæra rödd, frábæra tækni og
helga sig starfinu miskunnarlaust,
– það þarf meira til. Það eru náð-
argáfan og persónutöfrarnir sem
geta ráðið þessu, ef hægt er að nota
það til að fanga áheyrendur. Þetta
er ekki alltaf bara spurning um að
vera frábær söngvari.“
Carreras segir hverja tónleika
sérstaka. „Það á ekki síst við þegar
maður er að syngja fyrir nýja
áheyrendur, – það er alltaf ögrun,
því auðvitað vill maður gleðja þessa
áheyrendur, standa undir vænting-
um þeirra og öðlast virðingu
þeirra.“
Aðspurður um það hvort söngur-
inn sé streituvaldandi starf, eða af-
slappandi, segir Carreras það vera
hvort tveggja.
„Það er auðvitað erfitt að eiga allt
sitt undir þessum tveimur og hálfa
sentimetra í hálsinum á sér. Hljóð-
færaleikara skilja hljóðfærin sín
eftir að lokinni æfingu, og eru lausir
við þau í bili. Við, söngvarar, göng-
um með hljóðfærið á okkur hvert
sem við förum, og því er það mun
viðkvæmara fyrir öllu álagi og
áreiti. Þetta getur vissulega skapað
spennu. En engu að síður er það
ótrúleg hamingja sem fylgir því að
geta tjáð sig með söng og skapað
sérstakt samband við hlustandann.
Það eru forréttindi.“
José Carreras hefur unnið með
öllum mestu hljómsveitarstjórum
samtímans. „Ég hef verið lánsamur
að fá að vinna með frábærum
stjórnendum; Leonard Bernstein,
Riccardo Muti, Zubin Mehta og
fleirum. En sá sem stóð mér næst
var Herbert von Karajan, – ég lærði
mikið af honum og við áttum gott og
persónulegt samband. Samstarf
með honum var alltaf sérstök upp-
lifun og um leið bestu stundir lífs
míns.“
Carreras veiktist af hvítblæði ár-
ið 1987, en með seiglu tókst honum
að komast á fætur og skapa sér enn
stærri áheyrendahóp en nokkurn
tíma áður. Á árunum eftir veikindin
starfaði hann sérstaklega mikið
með Karajan og saman unnu þeir að
fjölmörgum óperuhljóðritunum á
geisladiska. „Karajan studdi mig
mjög, og á meðan ég var veikur
fylgdist hann stöðugt með mér.
Þetta er ein fallegasta hliðin á ferli
mínum, – sambandið við Karajan.“
Aðspurður um menningarað-
stæður á Vesturlöndum segir
Carreras brýnt að vel sé stutt við
bakið á menningunni. „Því meira
sem löndin þróast, því öflugra verð-
ur menningarlífið og líf almennings
verður betra. Ríkisstjórnir um
heim allan verða að styðja betur við
menningu þjóða sinna. En hörm-
ungaratburðir eins og urðu í síðustu
viku sýna okkur að það er að fleiru
að hyggja. En sem listamaður segi
ég að stjórnvöld hvarvetna verða að
leggja meira af mörkum til lista al-
mennt.“
Carreras syngur nú á um 60 tón-
leikum á ári, en aðeins í einni eða
tveimur óperuuppfærslum. Þó hef-
ur hann sungið um dagana öll
helstu tenórhlutverk óperubók-
menntanna. En eitt þeirra stendur
upp úr. „Don José í Carmen. Þetta
er hlutverk sem er ekki nóg að
syngja, – það krefst líka mikils
leiks. Don José þarf að ganga í
gegnum mikla dramatík og átök
innra með sér, og það gerir hlut-
verkið sérstaklega áhugavert, og
þess vegna finnst mér vænt um
það.“
Carreras segir ómögulegt að
segja til um það hve lengi enn hann
muni syngja. „Þetta fer allt eftir því
hvernig hlutirnir þróast. Ég vildi
gjarnan geta sungið í 3,4,5,6 ár í við-
bót. Ég veit að mig mun alltaf langa
til að syngja, en ég á nána vini sem
hjálpa mér við þessa ákvörðun.
Maður verður að horfast í augu við
raunveruleikann og skilja og sætta
sig við takmörk sín. En ég vona
bara að ég þurfi ekki að hætta of
fljótt.“
„Ég syng og
verð aldrei
þreyttur á því“
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigrún Hjálmtýsdóttir segir sönginn með José Carreras stærsta við-
burðinn á söngferli sínum. Hér eru þau Diddú og Carreras á blaða-
mannafundi á Hótel Sögu síðastliðinn sunnudag.
José Carreras steig
hröðum skrefum inn á
Hótel Sögu um kl. 15.40
á sunnudag, nýkominn
til landsins. Tíu mín-
útum seinna var hann
sestur á blaðamanna-
fund. Þar var Bergþóra
Jónsdóttir og átti þess
kost ásamt öðrum fjöl-
miðlamönnum að
spyrja þennan geð-
þekka stórsöngvara um
lífið og sönginn.
begga@mbl.is
gerðum sem geta verið hryðju-
verk, skemmdarverk, glæpir, slys
og annað hættuástand. Meðal
annarra atriða má nefna:
Endurskoðun á flugslysaáætlun
fyrir Keflavíkurflugvöll.
Tækjakostur endurmetinn svo
og þjálfun starfsmanna.
Ný reglugerð undirbúin um að-
gang að varnarsvæðum.
Nýtt skipurit lögreglu, toll-
gæslu og Flugmálastjórnar með
aukinni áherslu á öryggismál.
Myndavélakerfi stórbætt.
Komið upp girðingu til að að-
skilja flugvallarsvæði frá þjón-
ustusvæði.
Sérhæft öryggisstarfsfólk ráðið
til lögreglu og Flugmálastjórnar.
Varðandi ráðningu starfsmanna
segja þeir Björn Ingi og Jóhann
að við útgáfu aðgangsskírteina
nýrra starfsmanna skrifi þeir
undir heimild þess efnis að leitað
sé upplýsinga í skráningarkerfi
lögreglunnar, þ.e. að ferill manna
sé kannaður. Segja þeir þessa til-
högun nýja og hafi með slíkri
heimild verið komið í veg fyrir að
fólk með fortíð er tengist afbrot-
um hafi verið ráðið til starfa.
Flugvallarstjórinn segir að allir
sem starfa á flugvellinum eigi í
raun að taka þátt í því að tryggja
öryggi flugvallarins og eru allir
hvattir til að vera á varðbergi og
hugsa um öryggismál. Það sé
unnt með því að láta vita ef þeir
komi auga á galla í flugverndinni,
þeir segi ekki öðrum frá öryggis-
málum vallarins og taki ekki við
óþekktum hlutum til geymslu.
Þýðir aukin fjárútlát
Jóhann segir ljóst að hertar að-
gerðir kosti sitt. Fleiri lögreglu-
og tollgæslumenn séu á hverri
vakt og það vindi fljótt upp á sig í
kostnaði. Embættið muni því
ræða við utanríkisráðuneytið um
hvernig unnt verði að mæta þeim
kostnaðarauka sem verði sýnilega
umfram heimildir fjárlaga.
Í lokin leggja þeir Jóhann og
Björn Ingi aftur áherslu á að
tímabært hafi verið að taka upp
strangari reglur um aðgang á
flugvallarsvæðinu öllu. Flugvöll-
urinn sé alþjóðlegt umhverfi sem
verði að lúta ákveðnum aga og
reglum sem tíðkist um heim all-
an. Þess vegna hafi þessi ákveðna
stefna verið mörkuð af utanrík-
isráðuneytinu fyrir um tveimur
árum og árangurinn sé sú endur-
skoðun sem fram hafi farið og
leitt hafi til og muni leiða til
margvíslegra umbóta í allri um-
gengni og öryggi. Líta megi á
þann sérstaka viðbúnað sem grip-
ið hefur verið til vegna árásanna í
Bandaríkjunum sem staðfestingu
á því að menn séu þar á réttri
braut.
Í lokin má geta þess að Fram-
kvæmdasýsla ríkisins lauk nýlega
fyrir hönd utanríkisráðuneytisins
þarfagreiningu fyrir stjórnsýslu-
hús á Keflavíkurflugvelli. Þar
yrðu til húsa undir sama þaki þeir
aðilar sem sjá um öryggismál á
vallarsvæðinu auk þess að skapa
aðstöðu fyrir almannavarnir á
svæðinu en sem stendur er
stjórnstöð Almannavarna fyrir
Keflavíkurflugvöll í skúr við
gömlu flugstöðina. Jafnframt
yrðu greiningarstöðvar þá á hin-
um borgaralega hluta flugvallar-
ins.og nú sé
á loka-
tt við að-
gerðir til að vernda farþega,
áhafnir og fólk á jörðu niðri og
stofnanir gegn ólögmætum að-
gerð í
m umferð
varnar-
Keflavík
markanir eru í gildi um hin
þágu öryggis. Jóhannes
a verið í endurskoðun um
tanríkisráðuneytisins.
joto@mbl.is
ar neyðarljósabúnað. Samvinna er einnig milli
m og í Keflavík.
Morgunblaðið/RAX
R. Benediktsson sýslumaður. Í baksýn sjást farþegar á leið gegnum tollhlið.
lvarðstjóri skoðar vegabréf í nýjum tölvubún-
sjá má hvort það er falsað eða ekta.