Morgunblaðið - 18.09.2001, Qupperneq 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 41
✝ Gísli Svavarssonfæddist 15. febr-
úar 1943 í Reykjavík.
Hann lést á krabba-
meinsdeild Lands-
spítalans við Hring-
braut 8. september
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Svavar
Gíslason bifreiða-
stjóri, f. 9. apríl 1915,
d. 26. nóvember
1983, og Guðrún
Gísladóttir húsmóðir,
f. 4. september 1915,
d. 2. mars 1980. Syst-
ur Gísla eru Guðrún
Ólöf, f. 11. febrúar 1947, maki
Lárus Tryggvason, f. 26. mars
1946, og Millý, f. 2. október 1951,
maki Hákon Helgason, f. 6. októ-
ber 1949. Gísli kvæntist Guðlaugu
Bjarnadóttur 15. febrúar 1963.
Foreldrar hennar eru Bjarni K.
Bjarnason vélstjóri, f. 4. septem-
ber 1911, d. 8. nóvember 1985, og
Jakobína Kristmundsdóttir hár-
greiðslumeistari, f. 19. október
1918. Börn Gísla og Guðlaugar
eru: Svavar, f. 30. apríl 1961.
Kvæntist Agnesi Þóru Guðmunds-
dóttur, þau slitu
samvistum en eiga
saman þrjú börn: 1)
Birgi Þór, f. 18. sept-
ember 1982, Berg-
lindi Ósk, f. 27. mars
1986, og Brynjar
Örn, f. 26. apríl 1987.
Sambýliskona Svav-
ars er Katarina
Hörnfeldt. 2) Guð-
laug Rún, f. 10. mars
1975, maki Árni
Gunnar Ragnarsson.
Þau áttu eitt barn,
Dag Frey, f. 10.
ágúst 2001, d. 16.
ágúst 2001. 3) Bjarni Jakob, f. 13.
september 1976.
Gísli starfaði sem bifreiðastjóri
mestan hluta ævi sinnar. Fyrstu
árin keyrði hann almennings-
vagna í Reykjavík, keyrði svo rút-
ur um landið í 9 ár, lengst af hjá
Norðurleið. 21. desember 1973
fékk hann atvinnuleyfi sem leigu-
bílstjóri og keyrði lengst af hjá
Hreyfli.
Útför Gísla fer fram frá Há-
teigskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Elsku pabbi og tengdapabbi.
Við vissum að þegar þú varðst
veikur fyrir um einu ári að baráttan
yrði erfið. Þær áhyggjur okkar
reyndust því miður á rökum reistar.
Við gátum ekki annað en dáðst að
kraftinum og bjartsýninni í gegnum
alla meðferðina og eftir ferðirnar til
Svíþjóðar fannst okkur eins og allt
væri á réttri leið. En annað kom á
daginn. Þrátt fyrir að læknar og
hjúkrunarfólk gerðu allt sem í þeirra
valdi stóð báru veikindin þig ofurliði.
Á meðan á öllu þessu stóð misstir
þú aldrei baráttukraftinn og umfram
allt húmorinn sem fylgdi þér alla
daga. Það var alltaf hægt að treysta
á þig ef okkur vantaði eitthvað. Okk-
ur þykir óskaplega vænt um þig,
elsku pabbi, og vitum að nú er bar-
áttan á enda og þú færð loksins hvíld.
Eitt langar okkur að segja þér,
elsku pabbi. Meðan þú varst sem
mest veikur á spítalanum fæddist lít-
ill afastrákur. Við gáfum honum
nafnið Dagur Freyr. Þú fékkst því
miður ekki að kynnast honum, því
hann var aðeins hjá okkur í 6 daga.
Okkur fannst það mjög sárt að fá
ekki að deila með þér okkar mestu
gleði og okkar mestu sorg. Vonandi
færðu að kynnast afastráknum þar
sem þið eruð núna.
Þú hafðir alltaf svo gaman af að
sjá Formúlu 1 keppni í sjónvarpinu.
Þó að við höfum ekki verið sammála
um hver væri besti ökumaðurinn var
alltaf gaman að ræða við þig eftir
hverja keppni. Vonandi færðu að
fylgjast með Formúlunni þar sem þú
ert núna, þó að keppendurnir séu
ekki þeir sömu. Þú færð að sjá Ayrt-
on Senna og fleiri kappa meðan við
verðum að láta Hakkinen og Schu-
macher duga.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Elsku pabbi, við kveðjum þig með
söknuði.
Guðlaug Rún og Árni Gunnar.
Síðasta samtal okkar, pabbi minn,
var í gegnum síma en þá var ég að
segja þér að ég væri á leið frá Kaup-
mannahöfn til Berlínar í helgarferð.
Ef ég hefði vitað að þetta yrði í síð-
asta sinn sem við töluðum saman
hefði ég viljað segja svo miklu meira.
Það síðasta sem þú sagðir við mig
var að þér þætti vænt um mig og þú
hlakkaðir til að heyra aftur frá mér.
Þú varst nýkominn heim af spítalan-
um og allt virtist vera á réttri leið.
Fimm dögum seinna, þegar fyrsti
skóladagur var liðinn, hringdi Svav-
ar bróðir og tilkynnti mér að þú hefð-
ir verið færður á gjörgæsludeild, þér
væri haldið sofandi og að útlitið væri
ekki gott. Ástæðan var lungnabólga.
Þær vikur sem þú barðist fyrir lífi
þínu á gjörgæsludeildinni var ég
sannfærður um að þú myndir ná þér
á strik aftur. Síðastliðið ár hefur ver-
ið þér, mömmu og okkur öllum mjög
erfitt og aðdragandinn að veikindum
þínum langur. Í einhverja daga
vaknaðir þú og gat ég talað við þig og
þú kinkað kolli til baka. Ef bara við
hefðum getað talað saman. Það var
svo margt sem mig langaði að segja
við þig og ræða okkar á milli.
Ég gleymi aldrei þeim ófáu
morgnum sem við sátum saman inni í
eldhúsi og spjölluðum saman um allt
milli himins og jarðar. Ég hef alltaf
getað komið til þín og mömmu ef mér
líður illa einhverra hluta vegna og
þið hafið alltaf verið til staðar fyrir
mig og hvatt mig áfram. Þú varst
mér góður faðir og vinur. Því gleymi
ég aldrei.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að segja þér
hversu mikið ég elska þig og hvað þú
ert mér mikils virði. Ég er þakklátur
fyrir að hafa getað verið hjá þér
þann tíma sem þú lást á gjörgæslu,
haldið í hönd þína og getað kvatt þig
með þeim orðum sem ég hvíslaði til
þín. Ég sakna þín sárt og vona að þú
hafir heyrt til mín þegar ég talaði til
þín undir lokin. Ég kveð þig að sinni,
elsku pabbi minn.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
huga þinn og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum.)
Hvíl þú í friði, þinn
Bjarni.
Elsku bróðir, nú vitum við að þér
líður vel. Það er ekki hægt að rifja
upp allt. Þú hafðir alveg sérstakan
húmor. Bílar voru alltaf þitt áhuga-
mál, þeir voru allir flottir, með hvít-
um dekkjahringjum, og það var allt-
af viðkvæðið þegar keyptur var nýr
bíll, „mælaborðið er æðislegt“.
Það var einn góðviðrisdag að þú
komst og kallaðir á krakkana í Skipó
og gafst þeim tyggjó. Þegar við vor-
um búin að tyggja í smástund, lést
þú okkur vita að vatnskassinn í bíln-
um þínum væri götóttur og að þú
þyrftir að fá tyggjóið til að bæta í
götin.
Það mætti telja upp mörg svona
atvik en það yrði of langt mál. Ég
man alltaf þá stund þegar þú komst
heim úr vinnunni og gafst mér þrí-
hjólið.
Þegar þú giftir dóttur þína 9. júní
sl. varstu nýkominn úr meðferð í Sví-
þjóð, þá sagðir þú við okkur: Nú hef
ég lært þrjú orð í sænsku, Scania,
Volvo, Saab. Þá vissum við að þú
hafðir engu gleymt.
Að leiðarlokum þökkum við þér
þær góðu stundir sem við áttum
saman.
Elsku Laulau, Svavar, Guðlaug
Rún, Bjarni Jakob, Árni Gunnar og
barnabörn, við biðjum Guð að
styrkja ykkur í sorginni.
Ó, leyf mér þig að leiða
til landsins fjallaheiða
með sælu sumrin löng.
Þar angar blómabreiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég,
þar aðeins við mig kann ég,
þar batt mitt tryggðaband,
því þar er allt sem ann ég.
Það er mitt draumaland.
(Jón Trausti.)
Ólöf og Millý.
GÍSLI
SVAVARSSON
!" #
$
% &
' &
(
(
!" "
#
$ %
&'
)**
+ %
," #
- % .
//" #
" ,"00"
1
%
$ '( %
"
%)
"%*'
)%) *
"
& ) +%%
"%)
$ '( % " )
,!
%)
"
) !&"% )%)
" (
)-
*')%)
.
..
.
.
- % % ( % (
!"*/* 0 )
") (1
232
4 (
(
3
4 %
/ " #
" ,"00"
5
%
6" #
" 7"70"
8 (
2
2
9
3
4 "
"
&-% )-
%) 4
' $
56) )-
7
%)
)-
%)
)-
8 )-
"% "
%)%)
9
' )-
-
4% )-
%)
)
&
$
%)
.
.
&
(
(
$!:*;"8:* "
&
2<=
>
:" #
9%
; $ '+ .%)
% )&
5 ' )&%) $ '( % $ '( %
>
)&
&)&
+)&%)
+$
)&%) ) )
8 & )& :
.%)
"&%)&
5 )& 8) "
%%)
.
..
.
.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
' &
(
(
?> @$;!:*9!?? 5-'2=
$**
+
%
%
," #
> %
.
.
. .
.
.
-