Morgunblaðið - 18.09.2001, Síða 49
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 49
H A U S T F E R Ð T I L U N G V E R J A L A N D S
BUDAPEST Í VIKU
– saga og mannlíf
Brottför þriðjudaginn 16. október
Frá þriðjudegi til þriðjudags
Flogið með Flugleiðum til Kaupmannahafnar
og þaðan áfram með SAS til Búdapest.
Fararstjórn og leiðsögn
Fararstjóri verður Emil Örn Kristjánsson,
sem er vel kunnugur sögu og staðháttum.
Að morgni fyrsta dags er farið í skoðunar-
og kynnisferð um Budapest til að farþegar
kynnist borginni og því sem þar er eftirtektar-
verðast. Einnig verður í boði dagsferð til
Szentendre og Visegrad auk ferðar út á
sléttuna miklu.
Matur og veigar
Ungversk matargerð er heimskunn
og í Budapest er fjöldi veitingahúsa
með góðan mat og þjónustu
– ekki spillir verðið!
Drottning Dónár, litla París
Glæsilegar breiðgötur, fagrar byggingar og
fallegir garðar setja svip sinn á borgina sem stór-
fljótið Dóná skiptir í borgarhlutana Buda og Pest.
VERÐ Á MANN 75.600 KRÓNUR
Innifalið: Flug um Kaupmannahöfn til og frá
Budapest, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli
erlendis, gisting á Hótel Liget (rétt við Hetjutorgið í
Pest) í 2ja manna herbergi í 7 nætur, morgunverður,
skoðunarferð um Budapest og íslensk fararstjórn.
Aukagjald fyrir eins manns herb. er 12.100 krónur.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is
netfang: outgoing@gjtravel.is
75.600
13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og
eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.–fim. kl. 8.15–22, föst. kl. 8.15-19, lau. 9–17, sun.
kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð sunnud. og handritadeild lokuð
laugard. og sunnud. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Op-
ið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16.
Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internet-
inu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gam-
alt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara.
Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi,
kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eld-
horn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–17.
Hægt er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma
567 9009 eða á netfang: rafheimar@or.is
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrif-
stofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas:
552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða:
hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15. maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga
kl. 13–18 nema mánud. er lokað. Opnað fyrir hópa utan
þess tíma eftir samkomulagi. Maríukaffi býður upp á
gómsætar veitingar á opnunartíma. Til sölu steinar,
minjagripir og íslenskt handverk. S. 431 5566. Vefsíða:
www.islandia.is/steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pant-
að leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-
0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs hefur sent
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
„Þingflokkur VG mótmælir harð-
lega fyrirætlunum um sölu Lands-
síma Íslands. Fjarskipti og gagna-
flutningar eru grunnþjónusta sem
allir landsmenn eiga að hafa jafnan
aðgang að. Með því að halda Lands-
símanum í ríkiseign er hægt að
tryggja jöfnuð í þjónustu og gjald-
skrá og jafnframt beita styrk fyrir-
tækisins til áframhaldandi uppbygg-
ingar á fjarskiptakerfi landsmanna.
Landssíminn hefur sinnt vel sínu
hlutverki og auk þess skilað miklum
fjármunum í ríkissjóð.
Nú er ríkinu ætlað að afsala sér
arðinum af starfsemi Landssímans
en standa eftir sem áður undir þeirri
þjónustu sem ekki skilar arði. Til að
bæta gráu ofan á svart er fyrirhugað
að selja stofnunina við mjög óhag-
stæðar aðstæður í viðskiptaheimin-
um.
Sala á Landssímanum nú gengur
þvert á loforð um að fyrirtækið verði
áfram í meirihlutaeigu Íslendinga.
Þess í stað á nú að afhenda erlendum
fjárfesti meirihlutavald í stjórn og
forgang að meirihlutaeign síðar.
Þannig er erlendum aðilum veitt
lykilstaða í fyrirtæki sem í raun hef-
ur einokunarstöðu á markaði hér-
lendis.
Þingflokkur VG skorar á ríkis-
stjórnina og stuðningsflokka hennar
að endurmeta allar hugmyndir sínar
um sölu Landssímans.“
Mótmæla
áætlunum
um sölu
Landssímans
UMHVERFISMÁLASTOFA
Landverndar og Umhverfisstofnun-
ar HÍ verður haldinn í stofu 101 í
Odda þriðjudaginn 18. september kl.
17. Fjallað verður um stór uppi-
stöðulón og áfok.
Í fréttatilkynningu segir: „Um-
hverfisáhrif stórra uppistöðulóna
eru oft nefnd til sögunnar þegar
metin eru áhrif stórra vatnsaflsvirkj-
ana á hálendinu. Umhverfisáhrif
stórra lóna geta verið víðtæk, en
áhrif á áfok og eyðingu gróðurs
vekja sérstakar áhyggjur þar sem
slík áhrif eru yfirleitt óafturkræf.“
Á málstofunni mun Ólafur Arn-
alds, sérfræðingur hjá Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins, flytja fram-
söguerindi. Fulltrúi Landgræðslu
ríkisins, Guðmundur Hagalín stöðv-
arstjóri í Búrfellsvirkjun, Matthías
Loftsson, jarðverkfræðingur, og
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor,
munu sitja við pallborð ásamt frum-
mælanda til að fjalla frekar um mál-
ið.
Fjallað um stór
uppistöðulón
og áfok
OPINN umræðufundur Félags
stjórnmálafræðinga í samstarfi við
Borgarleikhúsið og vefritið Kist-
an.is verður á á þriðju hæð Borg-
arleikhússins þriðjudaginn 18.
september kl. 20. Rætt verður um
árásirnar á Bandaríkin, ástæður
og afleiðingar.
Frummælendur verða: Jón
Ólafsson, heimspekingur, for-
stöðumaður Hugvísindastofnunar
Háskóla Íslands, Brynhildur
Ólafsdóttir, stjórnmálafræðingur,
fréttamaður á Stöð 2, Magnús
Stefánsson, alþingismaður Fram-
sóknarflokksins og varaformaður
utanríkismálanefndar Alþingis, og
Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþing-
ismaður Samfylkingarinnar sem á
sæti í utanríkismálanefnd Alþing-
is.
Í pallborði verða auk frummæl-
enda: Baldur Þórhallsson, stjórn-
málafræðingur, lektor við Háskóla
Íslands, og Jón Ormur Halldórs-
son, stjórnmálafræðingur, dósent
við Háskólann í Reykjavík.
Umræðu-
fundur um
ástæður og
afleiðingar
Árásin á Bandaríkin
Í LJÓSI frétta um að ráðstefnum og
fundum hafi verið frestað á Íslandi í
kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum er rétt að árétta að slíkt er
ekki algilt. Fyrsta alþjóðlega ráð-
stefnan um ál, sem halda á 25. til 28.
september næstkomandi, er t.d. enn
á dagskrá en þangað hafa 130 er-
lendir gestir frá 35 álverum tilkynnt
komu sína auk fjölda íslenskra gesta
og fyrirlesara, segir í frétt frá ráð-
stefnuhaldara.
Álráðstefnu ekki frestað
AÐALFUNDUR Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík,
verður haldinn mánudaginn 24. sept-
ember kl. 18 í Valhöll við Háaleit-
isbraut 1.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Hægt er að skila framboðum til
stjórnar félagsins á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins eða til formanns
Heimdallar, Björgvins Guðmunds-
sonar, og verða þau að berast fyrir
kl. 18 laugardaginn 22. september.
Aðalfundur
Heimdallar
EKIÐ var á bifreiðina NJ-271, sem
er Daihatsu rauð fólksbifreið, þar
sem hún stóð kyrr og mannlaus á
bifreiðastæði við Lindargötu gegnt
Þjóðleikhúsinu 16. sept. sl. milli kl.
22.30 um kvöldið og kl. 1.30 um
nóttina. Sá sem það gerði fór af
vettvangi án þess að tilkynna
óhappið til lögreglu eða hlutaðeig-
anda. Því er hann eða aðrir sem
geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til lögreglunnar í
Reykjavík.
Auglýst
eftir vitnum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
NÝLEGA veitti Siglufjarðarkaup-
staður hin árlegu umhverfis-
verðlaun. Sú leið hefur verið far-
in á undanförnum árum að veita
ekki eingöngu verðlaun fyrir fal-
legar lóðir heldur horfa á heild-
arumhverfi húsnæðisins.
Þá hefur verið litið til þess að á
undanförnum tveimur árum hefur
orðið mikil vakning varðandi end-
urbyggingu gamalla húsa á Siglu-
firði. Hafa bæjaryfirvöld m.a.
komið að því máli með stuðningi
við aðila sem viljað hafa forða
gömlum húsum frá niðurrifi, sem
illa hafa verið farin. Verðlaunin
voru að þessu sinni veitt tveimur
aðilum: hjónunum Birni Jónassyni
og Ásdísi Kjartansdóttur fyrir
glæsilega, vel hirta lóð og um-
hverfi hússins á Suðurgötu 56, og
Sigurbirni Pálssyni og Sigrúnu
Þór Björnsdóttur fyrir vel heppn-
aða endurbyggingu hússins við
Lindargötu 9b, auk þess sem allt
umhverfi hússins væri til fyr-
irmyndar. Verðlaunagripurinn er
hannaður með það í huga að
hann sé unnt að festa á vegg ut-
anhúss en hönnun hans annaðist
listakonan Brynja Baldursdóttir á
Siglufirði.
Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Siglufirði, afhendir Birni Jón-
assyni og Ásdísi Kjartansdóttur verðlaunin.
Umhverfisverðlaun afhent
Siglufirði. Morgunblaðið.
♦ ♦ ♦