Morgunblaðið - 28.09.2001, Side 4

Morgunblaðið - 28.09.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KONA á sjötugsaldri, sem ákærð er fyrir að hafa blekkt á sjötta tug millj- óna króna út úr 10 rosknum og öldr- uðum mönnum á síðastliðnum ára- tug, neitaði sök þegar skýrsla var tekin af henni við aðalmeðferð máls- ins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sonur hennar, sem er um þrítugt, er einnig ákærður fyrir fjársvik og fyrir hylmingu með því að taka við um níu milljónum af ávinningi móður sinnar. Hann neitar einnig sök. Nokkrir þeirra manna sem af- hentu konunni fé, sem alls er um 56 milljónir króna, báru vitni fyrir dómi í gær og sögðu að kynni þeirra af ákærðu hefðu hafist með þeim hætti að hún hefði einfaldlega hringt í þá og síðar hafi beiðni um fjárhagsað- stoð fylgt. Þeir litu svo á að um lán væri að ræða og ákærða myndi end- urgreiða þeim síðar. Hinu sama hélt ákærða fram og endurgreiddi einum þeirra tæpa milljón á sínum tíma. Nokkrir bændur eru í þessum hópi og sögðu þeir að ákærða hefði í fyrstu spurt hvort þá vantaði ráðskonu. Þegar þeir sögðu svo ekki vera, hefðu málin eigi að síður æxlast þannig að hún hefði tjáð þeim fjárhagsvand- ræði sín og þeir lánað henni fé. Varð- andi upplýsingar þeirra um greiðslu- getu hennar, sagðist hún aldrei hafa svarað þeim ranglega um fjárhags- stöðu sína, en þeir hefðu heldur aldr- ei spurt út í hana. Allir sögðust þeir myndu hafa tekið fyrir slíkar lánveit- ingar hefðu þeir vitað að ákærða var í sambandi við fleiri menn á sama tíma í þessum tilgangi. Upplýst var að ákærða sagði mönnunum lygasögur um að hún ætti veik börn sem þyrftu læknismeðferð erlendis og að tvö þeirra hefðu látist, auk þess sem hún sagðist vera að missa húsnæði sitt. Þá sagðist hún hafa annast heimilis- aðstoð hjá einum mannanna úr hópn- um, sem lét hana hafa rúmar 23 millj- ónir króna. Upplýsti ákærða að hún hefði kynnst honum árið 1996 og að hún hefði komið til hans einu sinni viku til að ræsta hjá honum og færa honum mat. Enginn afgangur af fénu Enginn afgangur er af því fé sem ákærða fékk hjá mönnunum og sagði hún tugmilljónirnar hafa farið í „hitt og þetta“. Þá sagðist hún hafa ráð- stafað fjárhæðunum í að greiða skuldir sínar og viðgerðir á húsnæði sínu. Einn sonur ákærðu bar fyrir dómi að hún hefði verið undir miklum þrýstingi frá þremur börnum sínum, sérstaklega meðákærða, syni sínum, um að láta þau fá fé. Sagði hann að ákærði hefði „lifað eins og kóngur“ þrátt fyrir að hann hefði ekki unnið neitt að ráði um ævina. Upplýst var að ákærði hefur síðastliðin 12 ár haft samtals 1.800 þúsund krónur í tekjur. Vitnið sagði ákærða t.a.m. hafa eytt yfir 200 þúsund krónum í flugelda ein áramótin, keypt sér leðurklæddan Volvo fyrir 3,5 milljónir króna og mætt í afmælisveislur á limúsínum og farið í utanlandsferðir. Aðspurt af Sveini Andra Sveinssyni hrl., verj- anda ákærða, sagðist vitnið þó ekki vita um fjármál ákærða. Sjálf sagði ákærða meðákærða, son sinn, ekki hafa beitt sig umræddum þrýstingi. Aðspurð af saksóknara sagðist ákærða hafa valið mennina af tilvilj- un e.t.v úr símaskránni og hefði hún ekki haft nein gögn um þá fyrirfram. Fleiri vitni koma fyrir dóminn í dag þegar aðalmeðferð verður haldið áfram. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur er fjölskipaður í málinu. Dóms- formaður er Guðjón St. Marteinsson og meðdómendur eru héraðsdómar- arnir Hjörtur O. Aðalsteinsson og Gréta Baldursdóttir. Helgi Magnús Gunnarsson sækir málið af hálfu efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra og verjandi ákærðu er Örn Clausen hrl. 67 ára gömul kona ákærð fyrir að blekkja 56 milljónir króna út úr 10 karlmönnum Féð fór í „hitt og þetta“ og skuldir FRAMKVÆMDIR við nýja bygg- ingu Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni í Reykjavík eru samkvæmt áætlun að sögn Páls Magnússonar upplýsingastjóra fyrirtækisins. Framkvæmdir hóf- ust fyrir tæpu ári en ætlunin er að starfsemi ÍE flytji í nýja hús- næðið um áramótin. Um sex hundruð manns vinna hjá fyr- irtækinu sem hefur aðstöðu í fimm byggingum á tveimur stöð- um á höfuðborgarsvæðinu, í Árbæ og Kópavogi. Byggingin, sem stendur sunnan við nýtt Náttúrufræðihús Háskóla Íslands, er um 15.000 fermetrar að stærð og er áætlaður heild- arkostnaður við verkið um 2 millj- arðar króna. Byggingin er mynd- uð af þremur meginhlutum, skrifstofuhúsnæði og rannsókn- arbyggingu, sem tengjast um mið- rými með glerþaki en göngugata undir glerþakinu er eftir endi- langri rannsóknarbyggingunni og skiptir henni í tvo meginhluta. Aðkoma bíla verður frá Sturlu- götu og bílastæði verða við Sturlugötu og Njarðargötu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir við nýja byggingu Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni eru samkvæmt áætlun. Fram- kvæmdir samkvæmt áætlun 15 þúsund fermetra hús ÍE rís í Vatnsmýrinni KRISTÍN Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Ís- lands, sagði í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær að svo virtist sem allt stefndi í þrjú þriggja daga verkföll sjúkraliða sem starfa hjá rík- inu og tveimur sjálfseignar- stofnunum, Grund og Ási í Hveragerði, en þau hafa sem kunnugt er verið boðuð frá og með 1. október nk. Takist ekki að leysa kjara- deilu sjúkraliða munu um átta hundruð sjúkraliðar leggja niður vinnu aðfaranótt mánu- dagsins en auk þess munu uppsagnir um hundrað sjúkra- liða hjá ríkinu taka gildi. Þegar Morgunblaðið hafði samband við Kristínu síðdegis var nýlokið samningafundi sjúkraliða með fulltrúum rík- isins en fundinum hafði verið frestað til kl. 13 í dag. „Það eru bara búnar að vera þreif- ingar í gangi um það hvað hægt væri að gera. Það liggur hins vegar ekkert fyrir og því allt útlit fyrir verkfall,“ sagði hún. Formaður Sjúkra- liðafélagsins „Allt stefnir í verkfall“ FJÖGURRA manna fjölskylda með tvö börn, eins og þriggja ára, þar sem annað foreldri er í námi, gæti haft 1,7 milljónum kr. meira til ráðstöfunar á ári með sýndarskilnaði en ef þau eru áfram í hjónabandi, vegna mismun- andi skattareglna, tekjutengingar námslána og niðurgreiddrar barna- gæslu. Þetta kemur fram í útreikn- ingum sérfræðings sem gerðir hafa verið fyrir málefnanefnd Sjálfstæðis- flokksins er vann að undirbúningi að stefnumörkun í fjölskyldumálum fyr- ir landsfund flokksins í næsta mánuði. Í útreikningunum er tekið dæmi af hjónum þar sem annað er í fullu starfi og hitt í 9 mánaða lánshæfu námi en vinnur í 2 mánuði á ári. Árslaun þeirra nema alls um 4,4 milljónum kr. en skuldir vegna húsnæðiskaupa eru 5 milljónir kr. Greiða þau 350 þús. kr. á ári í vexti og verðbætur vegna hús- næðisskulda. Börnin eru eins og þriggja ára, annað hjá dagmömmu en hitt í leikskóla 8 klst. á dag. 205 þúsund kr. lægri kostnaður vegna barnagæslu á ári Leikskólagjöld foreldranna vegna eldra barnsins nema 206.400 kr. á ári ef þau eru í hjónabandi en 140.400 kr. ef þau eru skilin. Áætlaður kostnaður vegna vistunar yngra barns hjá dag- móður nemur alls 360 þús. kr. á ári en niðurgreiðsla Reykjavíkurborgar á gjöldum dagmæðra nemur 120 þús. kr. ef um hjón er að ræða en 259.200 kr. ef um einstætt foreldri er að ræða. Alls greiða þau því 446.400 kr. vegna daggæslu tveggja barna sinna ef þau eru í hjónabandi en 241.200 kr. ef þau eru skilin. Mismunurinn nemur 205.200 kr. á ári, skv. þessum for- sendum. Heildarskattgreiðslur hjónanna nema alls 1.007.898 kr. á ári en lækka í 670.584 kr. ef þau skilja. Mismunur- inn stafar fyrst og fremst af því að hjónin fá mun minni barnabætur vegna tekjuskerðingar bótanna og engar vaxtabætur í þessu tilviki af sömu ástæðu. Heildarmismunur á skattgreiðslum foreldranna nemur því 337.314 kr. á ári eftir því hvort þau eru í hjónabandi eða eru skilin. Alls halda hjónin því eftir 542.514 kr. meiri ráðstöfunartekjum á ári eftir greiðslu skatta og kostnaðar vegna barnagæslu ef þau skilja skv. þessum útreikningum. Það foreldri sem stundar nám á ekki kost á neinu námsláni vegna tekna maka ef þau eru í hjónabandi en getur fengið alls 1.173 þús. kr. námslán án nokkurrar tekjuskerðing- ar sem einstætt foreldri tveggja barna ef þau skilja. Að öllu samanlögðu geta þessi hjón haft 1.716.239 meira til ráðstöfunar ef þau skilja en í hjónabandi skv. þeim forsendum sem útreikningarnir byggjast á. Hjón geta aukið fjárráð sín verulega með sýndarskilnaði, skv. útreikningum 1,7 milljónum meira er til ráðstöfunar á ári LÖGREGLAN í Kópavogi áminnti 200 ökumenn á miðvikudag fyrir að gefa ekki stefnuljós í hringtorgum og afhenti þeim upplýsinga- og leið- beiningamiða um notkun stefnuljósa í hringtorgum. Lögreglan fylgist um þessar mundir með stefnuljósanotkun öku- tækja í hringtorgum í bænum, en þeim hefur fjölgað mikið á síðustu árum, ekki síst í Fífuhvammi og Dalsvegi við verslunarmiðstöðina í Smáralind. Lögreglan segir að þrátt fyrir að gert hafi verið átak í slíkum málum með umræðu um umferðarreglur í hringtorgum í fjölmiðlum fyrir tveimur árum virtist það ekki hafa skilað sér og verði fylgst með umferð ökutækja um hringtorg næstu daga. Fyrst um sinn verða þeir ökumenn, sem brjóta umferðarreglur, áminnt- ir með umræddum miðum, en síðan mun lögreglan beita sektum, en sekt fyrir að brjóta umferðarreglur í hringtorgi er fimm þúsund krónur. Ökumenn áminntir í hringtorgum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.