Morgunblaðið - 28.09.2001, Síða 12

Morgunblaðið - 28.09.2001, Síða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EINAR Sveinbjörnsson, bæj- arfulltrúi Framsóknarflokks í Garðabæ, segir rangt að skipulag geri ráð fyrir því að uppbygging Arnarneslandsins hefjist fyrst árið 2005. Hann segir hið rétta að samkvæmt skipulaginu eigi uppbyggingu að vera lokið á þeim tíma. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að Jón Ólafsson, eigandi landsins, hyggðist hefja sölu einbýlishúsalóða á svæðinu á næstunni og vonaðist hann til að framkvæmdir á svæðinu gætu hafist á næsta ári. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri sagði hins vegar að slíkt myndi fara í bága við skipulag bæj- arins sem gerði ráð fyrir að uppbygging svæðisins myndi ekki hefjast fyrr en árið 2005. Einar Sveinbjörnsson, bæj- arfulltrúi Framsóknarflokks, segir þetta rangt. „Það virðist vera svolítill misskilningur hjá bæjarstjóranum um að þetta svæði sé á skipulagi 2005. Það er bara vitleysa því samkvæmt aðalskipulagi átti uppbygg- ingu þarna að vera lokið árið 2005, þarna verði byggðar upp 385 íbúðir með 2300 íbúum. Þetta tvennt er í greinargerð- inni með aðalskipulaginu þannig að hún les þetta bara svona vitlaust.“ Deiliskipulagið tilbúið árið 1994 Hann segir deiliskipulag Arnarneslandsins hafa legið fyrir strax árið 1994 og að til hafi staðið að hefja uppbygg- ingu svæðisins þá þegar. „Þá náðust ekki samningar um landakaupin og þegar ljóst var að það gengi ekki árið 1997 var ákveðið í skyndingu að fara að skipuleggja Ásahverfið sem er verið að byggja upp núna.“ Einar segist vera þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að þarna verði byggt upp á næstu árum. „Þetta svæði liggur mjög vel við stofnbrautum og gatnakerfi á höfuðborgar- svæðinu, það fellur vel að bæj- armynd Garðabæjar og í þriðja lagi myndu fleiri íbúar á þessu svæði styrkja þá þjón- ustu sem er til staðar í bænum. Þetta hefur verið stefna bæj- arins og í mínum huga væri það mjög slæmt ef menn næðu ekki samkomulagi og þessu yrði frestað einhver ár fram í tímann því íbúahverfin þarna í kring eru hægt og bítandi að verða að grónum hverfum.“ Bæjarfulltrúi Framsóknarflokks segir ekki rétt að uppbygging Arnarneslandsins megi ekki hefjast fyrr en 2005 „Misskilningur hjá bæjarstjóranum“ Garðabær að undirstrika mikilvægi vináttu og samvinnu en hringirnir eru tákn þessara eiginleika. Þannig sýndu börnin einnig samstöðu sína með þeim sem eiga um sárt að binda vegna hryðjuverk- anna í Bandaríkjunum. Tilefni verkefnisins var dagur stærðfræðinnar sem var í gær og notuðu krakk- arnir síðustu viku til æfinga auk þess sem þeir útbjuggu hatta sem þeir skrýddust við tækifærið. Er ekki annað að sjá en hringirnir hafi verið með slíkum glæsibrag að hvaða ólympíuþjóð sem er hefði getað verið stolt af. ÞEIM sem áttu leið hjá Digranesskóla í gærmorgun hefur kannski flogið í hug að þar væri verið að setja ólympíuleikana með pomp og prakt. Svo var þó ekki heldur röðuðu nemendur skólans, 500 að tölu, sér upp í ólympíuhringina á skólalóðinni í þeim tilgangi Morgunblaðið/Ásdís 500 skólabörn sýna samstöðu Kópavogur BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefur samþykkt deiliskipulag fyrir Vatnsendahvarf sem gerir ráð fyrir uppbyggingu athafnasvæðis. Skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkur hafði gert athugasemdir við skipulagið, sem og hverfis- samtök Vatnsenda „Sveit í borg“, en 170 íbúar skrifuðu undir undirskriftalista til að mótmæla deiliskipulaginu. „Auðvitað erum við mjög svekkt að ekki var tekið tillit til athugasemda okkar í neinu, en samt sem áður koma þessi vinnubrögð okkur ekkert á óvart,“ segir Rut Kristinsdóttir íbúi við Vatns- enda. „Þeir gera ekki neitt nema það verði allt vitlaust, það er hálfgert sýndarlýð- ræði hér í hverfinu. Reglum samkvæmt verða þeir að aug- lýsa skipulagstillögur og kalla eftir athugasemdum, en svo er aldrei farið eftir þessu, nema það komi einhverjar 11 þúsund undirskriftir og sé farið að hitna verulega í kol- unum,“ segir Rut. Þarna vís- ar hún til þess að árið 2000 söfnuðu hverfissamtökin 11 þúsund undirskriftum þegar íbúðabyggð á Vatnsenda- svæðinu var mótmælt. Rut segir að þá hafi aðeins sára- lítið tillit verið tekið til at- hugasemda hverfissamtak- anna. Hvað varðar athafnasvæðið gerðu hverfasamtökin at- hugasemd við að fyrirhuguð byggð væri of háreist og að hún væri í hrópandi ósam- ræmi við staðsetningu svæð- isins og byggðina í kring. Þá bentu samtökin á að breyt- ingar myndu verða á rennsli ofanvatns á svæðinu, sem þau höfðu efasemdir um að búið væri að rannsaka nægjanlega vel. Aldrei boðað til fundar með Reykjavík Árni Þór Sigurðsson, for- maður skipulags- og bygging- arnefndar Reykjavíkur, segir að það hafi komið sér á óvart að Kópavogsmenn hafi sam- þykkt deiliskipulagið án þess að eiga fund með borgar- fulltrúum í Reykjavík. Sam- vinnunefnd um svæðisskipu- lag höfuðborgarsvæðisins hafði óskað eftir því að deili- skipulag Vatnsendahvarfs yrði rætt á breiðari grunni. Árni segir að í Kópavogi hafi menn ekki talið ástæðu til að ræða málið á vettvangi sam- vinnunefndarinnar allrar, en sagt að rétt væri að málið yrðirætt milli Kópavogs og Reykjavíkur. „Ég átti satt að segja von á því að þeir myndu vilja ræða við okkur sérstak- lega um þetta mál, en þeir hafa greinilega ákveðið að gera það ekki, sem kom okk- ur á óvart,“ segir Árni Þór. Rut segir að hverfissam- tökin hafi ekki rætt hvort og hvernig brugðist verði við því að deiluskipulagið hafi verið samþykkt og segir að það sé spurning hvort það væri ekki bara eyðsla á pappír að senda bréf. Hún segir að hverfis- samtökin hafi verið stofnuð í fyrra því bærinn vildi koma á formlegri samskiptum í skipulagsmálum. Samtökun- um hafi þó aldrei verið kynnt deiliskipulag Vatnsenda- hvarfs. Nú fer deiliskipulagið fyrir Skipulagsstofnun ríkis- ins til samþykktar og segist Rut vonast til að stofnunin muni gera athugasemdir við deiliskipulagið. „Það er síð- asta hálmstráið sem við höf- um,“ segir hún. Bæjarstjórn Kópavogs sam- þykkir umdeilt deiliskipulag Íbúar segja ekkert tillit tekið til at- hugasemda Vatnsendahvarf þessu ári. Á sýningunni kynna um 30 fyrirtæki í Garðabæ sig og starfsemi sína. Brynjar segir nokkur hundruð manns tengjast sýn- ingunni enda séu fyrirtækin í bæjarfélaginu mörg hver mjög öflug og vilji taka þátt í svo stóru verkefni. Að sögn Brynjars er eftir- tektarvert hversu fyrirtækin starfa í ólíkum greinum, allt frá sérhæfðum fyrirtækjum í rafeindaiðnaði og vélmenna- gerð yfir í hefðbundnari þjón- ustu- og framleiðslugreinar. „Það er kraftur, metnaður og framsýni sem einkennir þessi fyrirtæki. Bæjarfélagið hefur upp á margt að bjóða og það er von okkar að sýningin veki athygli Garðbæinga og annarra á þeim möguleikum sem hér bjóðast í atvinnulífinu og hvaða vörur eru hér fram- leiddar. Við viljum ná til fólks- ins sem býr í bæjarfélaginu um að hér séu störf til ráðstöf- unar. Garðbæingar leita mikið til nágrannasveitafélaganna um vinnu þegar næga vinnu er að hafa hér og það er vert að minna á þessa staðreynd þar sem stuttar vegalengdir til og frá vinnu teljast til lífsgæða.“ Mörg rótgróin fjölskyldufyrirtæki Hann segir að ótrúlega margir geri sér ekki grein fyr- ir að hægt sé að sækja svo til alla þjónustu innan bæjar- félagsins. „Það eru að minnsta kosti 300 fyrirtæki starfrækt „ATVINNULÍF hefur eflst mikið í bænum á undanförnum árum og okkur fannst kominn tími til að kynna bæjarbúum þá grósku sem hér er í at- vinnulífinu,“ segir Brynjar Haraldsson, formaður at- vinnuþróunarnefndar í Garða- bæ en í hádeginu á morgun verður sýningin Atvinnulíf í Garðabæ opnuð á Garðatorgi. Sýningin er liður í dagskrá afmælisárs Garðabæjar sem á 25 ára kaupstaðarafmæli á hér í þremur iðnaðarhverfum, þ.e. Lyngási, Búðum og Molduhrauni.“ Aðspurður segir Brynjar undirbúning sýningarinnar hafa tekið nokkra mánuði þar sem atvinnuþróunarnefndin sótti meðal annars heim hátt í 70 fyrirtæki en heimsóknirnar voru liður í undirbúningnum. „Það vakti alveg sérstaka at- hygli okkar hversu mörg fyr- irtæki í bænum eru rótgróin fjölskyldufyrirtæki þar sem meðlimir stórfjölskyldunnar leggja hönd á plóg og mæður og feður, börn og jafnvel ömm- ur og afar koma að rekstrin- um,“ segir Brynjar. „Þetta var geysilega áberandi og mér er til efs að svona sé háttað á mörgum svæðum, en í bænum eru atvinnusvæðin verulega tengd við íbúahverfin. Okkur fannst þessi greinilegu tengsl því bæði sérstök og skemmti- leg.“ Spurður hversu margra gesta aðstandendur sýningar- innar vænti segir Brynjar ómögulegt að segja til um slíkt en menn séu bjartsýnir á að sem flestir mæti og eigi lífleg- an og skemmtilegan dag á Garðatorgi. Í tengslum við atvinnusýn- inguna er sögusýning í Kirkju- hvoli þar sem eru munir, myndir og teikningar sem tengjast sögu Garðabæjar. Meðal annars verða sýndir skipulagsuppdrættir af Garða- bæ í gegnum árin og gamlar ljósmyndir úr bæjarlífinu. Morgunblaðið/RAX Undirbúningur sýningarinnar stendur sem hæst. „Kraftur, metnaður og framsýni“ Garðabær Sýning um atvinnulíf opnuð á morgun á Garðatorgi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.